Íslendingur - 08.07.1921, Blaðsíða 2
130
ISLENDINGUR
35. tbl.
>íslendingur* kemur út á hverjum
föstudegi og aukablöð þegar ástæða er til.
Árgangurinn kostar sex krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí ár hvert. Uppsögn skrifleg,
bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu-
manns fyrir 1. október.
Innheimtumaður blaðsins er Hallgrímur
Valdemarsson Hafnarstræti 84.
hygni kynslóðarinnar, sem nú lætur
bægslin vaða mest. Petta er þá merg-
urinn málsins, ef um merg væri hægt
að ræða, að:
Jörð er keypt á 20,000 kr., sem
ætla má að fóðri 4—6 kýr og um
100 fjár (hesta læt eg vera, þeir gefa
ekkert af sér, beinlím's, nema þá stóð-
hross, þar sem þau þrífast). Renta af
þessum höfuðstól er með 7 af hundr-
aði 14 hundr. kr. Viðhald á húsum
og útgjöld má telja, að áriega nemi
kr. 200.00 að minsta kosti. Þarna eru
komnar 16 hundr. kr., sem ábúandi
verður að greiða í afgjöld og útgjöld.
Setjum svo, að jörðin beri 200 fjár.
Eg geri enga sundurliðaða áætlun um
búskap á jörðinni, en legg tnálið í
dóm bænda, sem hafa átt við búskap,
hvernig þeim lízt á að taka förð til
ábúðar, kosta Hansa og gjalda þetta
af henni og standa í skilum við heim-
ili, sveit og land. Reyndar þarf eg
ekki að skjóta þessu máli til annars
dómstóls en sjálfs mín og þeirrar
reynslu, sem hver maður hefir, sem
byrjað hefir með tvær hendur tórnar
að búa. Kaupa-Héðnar ætla ekki fyrir
áföllum, þegar þéir eru á báðum bux-
unum. Retta land er áfellaland. S.lt
ár hefir sýnt það enn á ný, þó að
harðindi hafi eigi verið. Verzlunarann-
markar hafa leikið bændur svo grátt,
að gersamlega hefir snúist við þeirra
manna hagur, sem á jörðuhum búa
og farið þó allavega gætilega. Svo
ramt kveður að þessu, að nú skulda
bændur þúsundir kr., sem inni áttu
þúsundir í fyrra — þó að þeir hafi
ekki steypt sér út í bandvitlaus jarða-
kaup eða hestakaup né neitt brask.
Varfærnu mennirnir vissu fyrir, að
hætta var á ferðum og vildu vera við
henni búnir. En þeir eru ofurliði
bornir af aldurandanutn andlausa,
sem gert hefir endaskifti á málefnum,
komið vitskunni á höfuðið, en otað
vitleysunni, frekjunpi og forsjárskort-
inum í öndvegin. Ef einhver tekur
sig fram um aðfinslur og bendir á
hættuna, sem þjóðin er í, á hann
handvísar persónulegar hnútusending-
ar frá oflátungum, sem ekkert annað
hafa sér til ágætis cn það, að foreldr-
ar þeirra hafa verið vel að manni.
f*á kem eg að því, sem kalla mætti
„Syndir feðranna* í Verkamanninum.
Verkamaðurinn flytur ritgerð í 21
tbl. sfnu um »syndir feðranna*. Hún
fjallar mest um það efni, að þœr
valdi mestu um atvinnumisfellurnar
í landinu og alt sem stendur í sam-
bandi við þær — vanmátt vinnuveitenda
og kauphæð vinnþiggjenda, þá setn
ekki er hægt að fullnægja eins og nú
er komið atvinnuvegunum. Ein af
þessum stórsyndum er falin í því
hátterni bænda, að synja um lands-
skika til nýbýla — eftir því sem Verka-
maðurinn lætur í veðri vaka. Sökum
þeirrar þverúðar, segir Verkam. að
unga fólkið hafi streymt til kaupstaða
og sjávarþorpa o. s. frv.
Verkamaðurinn^ ritaði s.l. vetur um
þennan straum og teldi þá aðalorsök-
ina vera skólaleysi við hœfi ungu kyn-
slóðarinnar og með þeim, skólunum,
mundi öfugstreymið lœknast. Þessu
mótmælti eg í Verkamanninutn og
færði rök fyrir. Nú minnist Verkam.
á þetta og andar um leið óeðlilega
kalt til mín. —
Kaldur andi frá manni til manns er
að vísu ekki blaðamatur og liggur mér
i léttu rúmi þess háttar vindstaða.
En að öðru leyti er þessi »synda«-
grein umræðuverð, þó að hún fari
að vísu með Iögvillur í sumum grein-.
um.
Villan er fólgin í þeirri fullyrðingu,
að fólkið myndi hafa setið kyrt (og
bjargast af sjálfsdáðum) heima í sveit-
unum, ef stórbændurnir, sem land-
rými áttu, hefðu miðlað skákum
til nýbýla (af óræktuðu landi?).
Ress er fyrst að geta, að eg veit
naumast dæmi til þess, að neitað hafi
verið um þess hátfar beiðnir hér norð-
anlands: beiðnir þess háltar tæplega
komið fram. Þar sem um nýbýli á
óræktuðu landi er að ræða, eru örð-
ugleikarnir svo miklir, bæði í byrjun
og framtíðinni, að hverjum skynbær-
um manni fellur þar allur ketill i eld.
Löggjafarvaldið hefir og örmagnast
við að búa í hendur einstaklingunum
það mál.
Nýbýli í sveit á óræktuðu landi er
svo seirit, mundi svo verða, til lífs-
bjargar þeim, sem ryddu sér þar til
rúms, að dauðinn sjálfur mundi verða
þar á þrepskiidinum eða örbyrgð æfi-
lörig meðan svo er háttað ræktun lands
og atvinnuvegum, sem nú er og hefir
verið.
Eigi tjáir að neita þessari fullyrð-
ingu með því að vitna til str.ábýla
kringum hverja meðaljörð (meðalbæ)
á liðnum öldum, sem vallgrónar tóftir
vitna um. Pá hafa mennirnir lifað
öðruvísi og tamið sér meiri nægju-
semi, en nú gerist eða mun gerast.
Lélegustu kotin, sem nú eru í ábúð,
sýna það og sanna, áð ekki gr líf-
vænlegt á lélegri jarðnæðum en þeim.
En nýbýli hlytu að verða lélegri sök-
um landsskorts til beitar, engjaleysis,
hagaleysis og túnleysis, sem þeitn
mundi fylgja f bráð og lengd. —-
Fáeinar undantekningar sanna lítið,
þær, að á fáeinum stöðum mætti með
sveitarhjálp eða landshjálp korna upp
einu og einu býli, þar sem sérstak-
lega er fallið til engjaumbóta og
víðar lendur liggja að annarsvegar
fyrir búsmala.
Eg gat um kotjarðirnar, hve ógóðar
væru til ábúðar, og þó miklu lífvæn-
legri en nýbýli, af því meðal annars,
að þœr eiga þó eiginhaga, hús og
tún. Pó hafa bændur flutt af þeim, á
mölina. Verkamaðurinn veit víst
um það, að tveir menn sitja nú í
bæjarstjórn Akureyrar, sem fyrrum
bju8gu ú smájörðum og fluttu af
þeim, sjálfkrafa — sennilega fyrir þær
sakir, að þeim hefir þótt óbjörgulegt
á þeim að búa.
Eg nefni þetla ekki í ámælisskyni,
heldnr til að sýna fram á það, að ó-
líklegt sé, að unga fólkinu liafi sú
ástæða úr sveitunum stjakað, að þar
var ekki koslur á landskikum t-il ný-
býla. IJar sem svo er háltað í rauit
og veru, að/jj bændur vilja heidur,
sumir hverjir, flytja »á mölina,« en
búa á jörðunum við þá örðugleika,
sem búskapnum fylgja, má að líkind-
um ráða, að ungir menn mundu eigi
fýsast til að leggja í þá tvísýnu, að
byggja sér bólstöð á óyrktu landi, þó
að kostur væri gerður þúfnanna. Eg
held að okkur ritstjóra Verkamannsins
hafi verið — svo að eg tæki dæmi
nærlendis — svo minnisstæð barátta
föður okkar við að koma sonum sín-
um (og dætrum) á framfæri, að okkur
hefði ekki litist á að byggja bæ úr
auðn, og innrætti hann þó ekki æðru
sonum sínum.
Eg þekki svo hugrenningar ungra
manna, að þeir hugsa fæstir um ný-
bygðamál, né framtíðarheimiíi. Peir
þrá að »fara utan« það er að segja
sjá sig um, skemta sér — láta reka á
reiðanum, lenda í æfinlýrum og lifa.
Hitt atriðið kemur seinna til sögunn-
ar: að staðfesta ráð sitt í orðsins víð-
tækustii rnerkingu.
Um það skal eg ekki fjölyrða að
þessu sinni. En það ætla eg að segja
fullum stöfum, svo eigi verði misskil-
ið, að mér keníur kynlega fyrir sjónir,
þegar bændur, sem ekki gátu rönd
við reist, meðan þeir bjuggu, kröfum
þeim, sem þá voru til þeirra gerðar
og örðugleikum bændálífsins og fluttu
þess vegna til kaupstaðanna — að
heyra þá ganga nú langt fram yfir þær
kröfur á hendur öðrum, sem þeir
sjálfir hrukku undan, t. d. í kaupgjaldi.
Regar þannig er breytt, er óþarfi að
tala um »syndir feðranna«, eða rita
utn þær. Þá er langtum réltara að tala
og rita um syndir sjúlfra sín.
Ringulreiðin, sem nú er í landi
voru í öllum áttum, svo að nærri
stappar þjóðarháska — hún er ekki
að kenna feðrunt vorum — nema að
því leyli, sem þeir eru valdir aþ því,
að þeir mann urðu til, sem ringulreið-
ina fretnja. Sú synd verður ekki af
þeim skafin, körlunum mosavöxtru.
En hver vill lcasta á þá fyrsla stein-
inum fyrir það athæfi?
Skyldi eir.kaerfinginn í Dunhaga
vilja taka upp fyrsta steininn og henda
honum í maik?
Nei! F*áð gerir enginn, sem er á-
ttægður með sjálfan sig!
29 júní 1921.
Guðmundur Friðjónsson.
OO.
Skýtur skökku við.
Siðastl. þriðjudag. var haldinn bæj-
arstjórnarfyndur á Akureyri. Helzta
mál á dagskrá var rafveitumálið. Eftir
gefnum upplýsingum frá Ragnari Ólafs-
syni í því máli, var borin upp tillaga
á þá leið, að þakka Otto Tulinius og
Ragnari Ólafssyni fyrir það, sem þeir
Itafa gert í því máli í útlöndum, og
var sú tillaga samþykt með öllum at-
kvæðum í bæjarstjórninni.
Verkatnaðurinn frá 26. maí ræðst á
ofangreinda menn fyrir ódugnað þeirra
að útvega lán til rafveitunnar, og á-
réttar með því, »að Ragnari Ólafssyni
verðt haldin tilhlýðileg þakkarveizla þá
hann kemur heim.«
• Regar borin eru saman umtrtæli
Verkamarmsins í þessu máli, við það,
sem bæjarstjórnin samþykti, þá er hin
JARÐARF0R
okkar hjartkæru móður og
tengdamóður,
Puríðar Kjartansdóttur,
sem andaðist að heimili okkar
1. þ. m., er ákveðið að fari að
forfallalausu fram 16. þ. m., kl.
12, frá heimili okkar.
Fyrir hönd okkar og fjarver-
andi skyldmenna.
Jóhanna Jónsdóttir.
Stefán Sigurðsson.
» Athugaverðaframistaða',« eftirummæl-
um Vm., þessara tveggja nianna dauða-
dæmd, og það af þeim verkamönnum,
sem í bæjarstjórninni sitja. Ög hin
tilhlýðilega veizla, sem álti að halda
Ragnari Ólafssyni í þessu máli, snýst
upp í þakklæti fyrir urinið starf í raf-
veitumálinu. Eftirmirinilegri snoppung
er trauðla hægt að hugsa sér, en þann,
sem verkantenn í bæjarstjórn gefa mál-
gagni sínu, en sá, sem þeir greiddu
í rafveitumálinu síðastl. þriðjudag.
Sennilega fer mönnum að skiljast,
að þau málgögr) hér á Akureyri, sem
liggja á því lúalagi að sverta helztu
borgara þessa bæjar, brígsla þeim um
afturhald, og þeir spilli fyrir framfara-
fyrirtækjum bæjarins tneð fratnkomu
sinni, séu ekkt setn lieiðvirðust eöa
sannleikselskandi, því þegar betur er
aðgætt, þá eru það mennirnir, sem
vilja brúka fyriihyggju á framkvæmd-
um og að fé bæjarins sé sparað,
en eltki ganað fyrirhyggju- og undir-
búningslaust t þau verk, sem bærinn
hefir með höndum.
Nú eru erfiðir og hættulegir tímar,
og því ríður lífið á að nota sér vit
og þekkingu þeirra manna, sem sjá
iengra e.n lengd sína í fjármálum.
OO
AKUREYRI.
. Gullfoss kom írá Reykjavík til Akur-
eyrar 1. |), nl. Með skipinu komu frá út-
löndum Ragnar Olafsson konsull og frú,
Hallgr. Davíðssoti verzlunarstj. og frú,
Ásgeir Pétursson og frú. Einnig var með
skipinu sænskur verkfræðingur til að sjá
um rafveituna við Glerá. Meðal farþega
með Gullfossi var og frú Sofia Thoraren-
sen, með lík mannsins síns, V. Thoraren-
sens.
Hjónaband. Gefin saman í borgaralegt
hjónaband af sýslumanni nú síðustu' daga:
Skapti Guðmundsson frá Þúfnavöllum og
ungfrú Sigrún Sigurðardóttir frá Leyningi.
Einnig byggingameistari SvéinbjörnJóns-
son og garðyrkjttkona Guðrún Björns-
dóttir frá Veðramóti. íslendingur óskar
brúðhjónum þessum til hamingju.
Fiskiajli góður undanfarna daga á mó-
lorbáta.
Tiðin, ágæt, grasið þýtur upp. Sláttur
byrjar alment næstu daga.
Inflúcnzan gengur nú um bæinn, sögð
lteldur væg.
Skrifstofa sýslumannsins í Eyjafjarðar-
sýsltt og bæjarfógetans á Akureyri er flutt
í hús sýslttmannsins.
Dánir ertt nýskeð tveir ungir og efni-
legir menn í Eyjafirði frant, Jóhann Frið-
finnsson í Árgerði, sem fór suður að Vífil-