Íslendingur - 08.07.1921, Side 4
232
ISLENDINGUR
35. tbl.
Með e. s. Gullfoss kom
afarmikið
af allskonar
Járnvöru
(Isenkram)
stærri og smærri í
Tuliniusarverzlun.
iét
Stúlkur, landmenn og sjómenn
ræður undirritaður til síldveiða og síldarverkunar á Siglufirði.
Ásgeir Pétursson.
Ódýr álnavara.
Með s/s »Gullfoss« fékk eg undirritaður miklar birgðir af
margskonar áinavöru,
sem selst í heildsölu ódýrara en þekkist hér nú.
Ennfremur mikið af
prímusum og mótorlömpum
og tilheyrandi varastykkjum.
Þormóður Sveinsson.
Sannsögli bæjarstjórans.
Bréf Jóns Sveinssonar dags. 9. nóv.
f. á., birt í 32. tbl. ísl., sýnir að Jón
Sveinsson bæjarstjóri »afþakkar* fyrir
hönd nefndarinnar, »boð hins ameríska
raforkufélags*, sem hafði samkv. bréfi
sínu, þýddu i sama blaði, tekist í fang,
að segja álit sitt um kostnað raforku-
tækja fyrir hvoratveggja þeirra vatns-
orku-rafstöðva, sem eg hafði tilgreint
í bréfi mínu, dags. 29. maí f. á., sam-
kv. tilmælum hins sama J. S., dags.
22. maí sama árs. Að hann hefir af-
þakkað boð nýnefnds félags, að það
skuli semja (Orðrétt: sé að semja) álit
um kostnað raforkutækjanna til nefnd-
ra rafstöðva, og skuli hjálpa mér til
að útvega áætlun um kostnað bygg-
inganna og annars steinverks hjá á-
byggilegum byggingafélögum vestan-
hafs, með því að setja sig í samband
við þau, og gefa þeim nauðsynlegar
upplýsingar um stærð og tegund vél-
anna, það lætur Jón Sveinsson sem
ekkert sé.
Eftirrit (Duplikat) af bréfi ameríkanska
raforkufélagsins, sem þýðingin er af
var, eins og áður er sagt, lagt inn á
skrifstofu bæjarsljóra J. S. 2. sept. f.
á., og lá þar ósvarað heila tvo mán-
uði, þrátt fyrir ítrekaða beiðni mína
um skriflegt svar, nfl. þar til hinn 9.
nóv., og á meðan samdi félagið á-
ætlun sína eða álit um kostnað raforku-
tækjanna; er hún rituð ásamt með-
fylgjandi brjefi, á 26 bls. vélrituðum,
og innifelur sundurliðaðan lista yfir
áhöldin, einnig skrá yfir þau með þá-
gildandi verksmiðjuverði, og auk þess
nokkrar Ijósmyndir af teikningum yfir
sum vélakerfin, (turbinu- og dýnamo-
samstæðurnar.) Þær Ijósmyndir eru
dagsettar 16. ág. f. á., en álitsskjölin
h. 29. sept. og bréfið, sem fylgir, er
dags. 30. sama mán. Stærð og tegund
vélanna er ennfremur sýnd með töfl-
um og bókum, sem fylgja. Má hér af
ráða, að undirbúningur þessara skjala
sé 6 vikna vinna fyrir góðan verkfræð-
ing, og hafi kostað nefnt raforkufélag
alt að 600 dollara, eða ca, 3000 kr.
með núgildandi gangverði. Að nefndu
raforkufélagi sé greitt nokkuð fé fyrir
þetta starf sitt, hvað þá að mér sé
greidd nokkur borgun fyrir ómak mitt,
að útvega nefnt álit, og sjá um það
síðan, lætur Jón Sveinsson liggja í
þagnargildi,
Petta sýnir hve drenglyndur og
og skyldurœkinn J. Sveinsson er. í stað
þess að játa, að hann hafi gabbað of-
angreint félag, og bjóða því borgun
fyrir fyrirhöfn sína, og mér fyrir ómak
mitt, fer hann með vöflur og vífilengj-
ur um orðin »ti!boð«, »framboð«
og »áætlun« ogsegir: »Verður þvætt-
ingnum um þetta ásamt öðru fleira
svarað í næsta blaði.«
Næsta blað 33. tbl. fsl. liggur fyrir
mér; eg les þar þessi orð:
»Rá er Frímann B. Arngrímsson.
Eins og minst hefir verið á áður, þá
er bágt að svara Frímanni. Greinar
hans eru bygðar á svo miklu hugsana-
losi og mótsögnum, að helzt er ekki
hægt að fá botn í neinu, og hringl-
andinn á sér engan endir. Frímann
er líka við og við að lciðrétta sjálf-
an sig, sbr. síðasta Fylkir, 28. tbl. ísl.
þ. á.«.........Og svo meira og meira
af þessu og þvílíku rausi, sem fyllir
þrjá dálka blaðsins.
Rað sé langt frá mér að þreyta les-
endur þessa blaðs á því að svara sliku
rausi orði til orðs, þótt höfundur þess
sé bæjarstjóri eða »borgarstjóri« Akur-
eyrarkaupstaðar. Enda mun Jón Sveins-
son ekki hafa samið það alt eða hjálp-
arlaust. Eigi heldur líð eg sjálfur mest
tjón við það, þó álygar og flónska
sigri í bráðina. Eg læt mér nægja í
þetta sinn að mótmæla því, að eg hafi
farið með »ósanninda þvætting« eða
«blekkingar« í þeim greinum, er eg
hefi ritað og höf., J. S., vitnar til,
og er reiðubúinn að staðfesta, hvar
sem er, fyrir rétti ef þörfgerist, það,
sem eg hefi ritað.
Þeir, sem hafa blöðin ísl. og Verkam.
og ritið Fylkir, útg. f. á., sem J. S.
vitnar til því til sönnunar, að eg hafi,
í fyrra sumar og alt þar til í vor, ver-
ið því mótfallinn, að stöð, sem not-
aði Glerá tekna upp hjá Tröllahyl eða
Rangárvallabrúnni, og sem nægði öll-
um bænum til matsuðu jafnt sem til
ljósa og iðju, yrði bygð, en eindreg-
ið með því, að stöð væri reist við
neðsta Glerárfossinn, geta af þeim séð,
hve létt höf. er um að segja satt, eða
hitt þó heldur. í »Ásrún Akureyrar«,
ds. 19. febr. s. I., vara eg menn við
því, að byggja Glerárfoss stöðina, þar
sem þeir B. & W. segja, að hún skuli
standa, og samkv. þeirra álitsgerð, mæl-
ingum, teikningum og áætlun: þær séu
í »ýmsum aðalatriðum rangar«. Bréf
frá mér líks efnis var lesið upp snemma
í sama mánuði á bæjarstjórnarfundi,
í áheyrn bæjarstjóra J. S.
Það þarf meira en meðal dirfsku til
að rila slik ósannindi, sem J. S. hefir
ritað í þessum lið andmæla sinna.
Þrautina, sem hann óskar að eg
leysi, þá nfl., að sýna hvernig 300 —
450 hestafla stöðin þeirra B. & W. við
Glerárfossinn geti undir hans eigin
forustu og stjórn, steypt þessum bæ
í botnlaust skuldafen, þó steinolíu raf-
ljós kosti kr. 1,50 kwst. og steinolíu
kg, 80 aura., læt eg bíða annars dags,
þótt ekki sé örðugt að leysa.
í staðinn fyrir þá Iausn set eg hér
yfirlit yfir þær fjárupphæðir, sem eg
hef fengið úr bæjarsjóði fyrir afskifti
mín af ogþátt-töku í undirbúningi raf-
veitu Akureyrar síðan J. S. tók við
bæjarstjóra-embættinu. Þær sýna, aðJ.S.
varð feginn í fyrra vor, að fá mig til
að mæla aflið í Fnjóská og Glerá og
velja þar- stöðvar stæði, og einnig
sýna þær, hve spar J. S. getur verið
á fé bæjarins, þegar aðrir eiga f hlut
en hann sjálfur.
Fyrir að mæla aflið í Fnjóska út í
Dalsmynni, og vegalengdina frá stíflu
stæðinu ogofanfyrir Laufásmelana ímarz
f. á. fékk eg 150 kr.; borgun fyrir að-
stoð og riss-teikningu af svæðinu þar
í innifalin.
Fyrir að mæla aflið í Glerá, vídd
og dýpt gljúfursins upp við Tröllhyl
og vegalengdina þaðan og ofan á
flötinn við tóvélaskurðsþróna, í fyrra
vor, fékk eg 100 kr.; borgun fyrir að-
stoð og blýantsteikning þar í innifalin.
Fyrir blýantsteikningar af hvoru-
tveggja raíveitusvæðuuuui, ásamt lýs-
Sement,
tæpar 100 tunnur, væntanlegt 10.
þ. m. Selst frá skipshlið svo ó-
dýrt sem unt er.
Upplýsingar hjá
P. Péturssyni.
ingum af þeim og Akureyri á dönsku
og ensku og bréfum, er þeim fylgdu,
til útlendra rafmagnsfélaga, fékk eg fyr-
ir eindregin . meðmæli raforkunefndar-
innar 100 kr. — eftir tveggja mánaða bið.
Alls hefi eg fengið fyrir starf mitt
við undirbúning rafveitunnar s.l. ár og
alt til þessa dags 350 kr.; þar af fult
50 kr. fyrir aðstoð.
Auk þessara fjárupphæða hefir Jón
Sveinsson bæjarstjóri sent mér 3-4 dálka
»andmæ!i« að gjöf. — »Hver er sín-
um gjöfum líkastur*.
Fritnann B. Arngrímsson.
OQ
Kaupendur
»íslendings« í Þingeyjarsýslu eru beði'ir
að greiða andvirði blaðsins til hr.
kaupm. Bjarna Benediktssonar
á Húsavík.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.