Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 12.08.1921, Qupperneq 3

Íslendingur - 12.08.1921, Qupperneq 3
40. tbl. ÍSLENDINOUR 151 102,096,43. Bókað eignarverð Gull- íoss með áhöldum og varahlutum er 400,000 kr. Lagarfoss 767,637,01 og Goðafoss 1,272,568,88. Síðastliðið ár hefir verið gott fyrir félagið þótt eigi jafnist það að neinu leyti á við hag og afkomu t. d. D. F. D. S. enda .ólíku verri aðstaða hér heima. Um framtíðarhorfur félags- ins farast stjórninni þannig orð. »Félagið hefir nú starfað í 6 ár, óg þrátt fyrir marga og mikla erfiðleika undanfarin stríðsár, hefir þessu óska- barni þjóðarinnar þó farnast vel, þ'að sem af er. Því hefir græðst tiltölulega ihikið fé, samtímis sem það stríðsárin hefir verið bjargvættur landsins með að-og tráflutninga. En það er nú svo, að það er engu minni vandi að gæta fengins fjár, en aíla þess. Horfurnar fram undan eru síður en svo góðar. Öll útgjöld hafa vaxið hröðum fetum, og margfaldast á liðnum 6 árum, og það er ekki útlit fyrir að þau lækki að neinum mun á þessu ári. Jafnframt verður að gera ráð fyrir miklum og nauðsynlegum frádrætti á bókfærðum hátt keyptiim eignum félagsins, sem sé Goðafoss, Lagarfoss eftir viðgerð- ina og nýja húsinu. Hinsvegar má affur búast við, í lækkuðum flutnings- gjöldum og minni flutningnm, að tekjtirnar minki að miklum niuu. F*að þarf því að viðhafa mikla varúð hag- sýni og sparsemi ti) að koma félaginu giftulsamlega yfir boða þá, sem brýtur á framundan. Á þessu veltur blvera félagsins og framtíð landsins að miklu leyti. Og stjórnin vill endurtaka þessi hér áður töluðu, en ekki of oft sögðu orð:« »Gleymið ekki hugsjóninni sem fyr- ir þjóninni vakti við stofnun félagsins, og heldur ekki því, á hve miklu það veltur fyrir land og lýð, að halda við og styðja þetta félag, sem er tákn þess hve mikið má gera af fátækri og fámennri þjóð, með sameiginlegum kröfuni, sem mistakast rnundi, ef kraft- arnir væru sundraðir.« íslendingur vill taka undir þessi um- mæli stjórnarinnar en vill eigi láta hjá líða að láta í Ijósi undrun sfna yfir því að félagið skyldi með tilliti til þess útlits senr nú er, sjá sér fært að borga 10°/o til hluthafa og halda áfram þeim fordæmingarverða óvana að gefa stór- upphæðir til hinna og þessa stofnana. Nú síðast gaf félagið 10 þús. kr. til Heilsuhælissjóðs Norðurlands og er gjöfin falleg og til góðs gefin, ef fé- lagið sem slíkt varðaði nokkurn hlut um heilsuhælið, en svo er ekki. Ein- stakir menn meðal fundarmanna leggja til að þetta verði gert og góðgerðar- semi flestra hinna fundarmannanna hefir svo yfirhöndina yfir forsjálni og hyggindum að hún er samþykt. íslendingur er samþykkur ummæl- um Ragnars konsuls Ólafssonar í máli þessu og óskar að slíkar ráðstafanir og þessi komi framvegis frá stjórn fé- lagsins en eigi ábyrgðarlitlum hlut- höfum. " OO Ooðafoss • Berlinske Tidende* segja fráreynslu- för Goðafoss, hins nýja skips F.im- skipafélagsins, sem farin var eigi fyrír Kaupmenn og kaupfélög. „Plantall-“Margarine, frá Lever Brothers Ltd. Port Sunlight. Sérlega Ijúffengt og geymist vel. Birgðir fyrirliggjandi. — Lægsta heildsöluverð. Espholin Co., Akureyri. löngu. Segir blaðið, að skipið hafi reynst vel í alla staði og fari nú að hefja ferðir mííli íslands og Danmerk ur. Goðafoss er flutnings og farþega- skip. Vélin hefir 1200 hestöfl og hraði skipsins er 12 mílur á vöku. Fyrsta farrými er miðskipa og er þar rúin fyrir 44 farþégja. Á miðþilfari er stór og skrautlegur borðsalur, en vistlegur reykskáli á efra þilfarinu. Alt fyrsta farrými er mjög vandað að öllum frágangi. Aftur í skipinu er annað farrými, og er þar rúm fyrir 27 farþegja. Raflýsing er í öllu skip- inu og loftskeytaútbúnaður. Allur frá- gangur er eins ogál.flokks farþegja- skipum. OO Gimsteinar „Dags“. Það er fyrir löngu orðið kunnugt, að Dagur safnar gimsteinum. Gim- steinar þessir eru rangfærslur blaðsins og fáfræði í viðskiftamálum. Fyrir skömmu lét blaðið falla ummæli í þá átt, að ef lán það væri tekið, sem talað hefir verið um að fengist í Dan- mörku, og notað til lúkningar verzl- unarskuldum landsmanna, þá væri það sama og ríkið tæki að sér ábyrgð á verzlunarskuldum kaupmanna. Retta er auðvitað hin mesta fjarstæða. Kaup- menn hafa þegar goldið þær skuldir, sem um er að ræða, inn í banka hér og viðkomandi banki er þá auðvitað skyldugur til að standa skil á upphæð- unum, nema öðruvísi sé sérstaklega ákveðið. Ríkisábyrgðin, ef um nokkra slíka væri að tala, yrði þá fyrir bank- ana sjálfa, en ekki þá kaupmenn eða kaupfélög, sem borgað hefðu kröfur sínar inn í þá. Nokkru síðar fer blaðið að tala um olíu í sambandi við olíusendingu þá, sem Landsverzlun fjekk með »Borg« síðast, og lætur á sér skiljast, að enn verði þeir, sem hafa haft horn í síðu Landsverzlunar, að kyngja þeim um- mælum. Sannleikurinn í þessu máli er sá, að allar stærri verzlanir bæjar- ins hafa fengið meiri og núnni birgðir af olíu, og vegna þeirrar olíu hefir verið hægt að reka útveginn. Að sjálf- sögðu á Landsverzlun þakklæti skilið fyrir þær vörur, sem hún flytur inn, að svo miklu leyti sem það er þakk- lætisvert að byrgja upp af vörum, en gífuryrði »Dags« um þetta Cru, eins og fleira í því blaði, að mestu stað- lausir stafir. OC Dýrtfðin. Nýkomin Hagtíðindi flytja að vanda yfirlit yfir stnásöluverð áýmsumnauð- synjum á síðasta ársfjórðungi ásamt samanburði við fyrri tínia. Yfirlit þelta sýnir yfirleitt lækkun, hvort sem * miðað er við 1. apríl eða júlí í fyrra. Einstaka vörutegund hefir hækkað í verði, nefnilega bankabygg, rúsínur, kaffibætir, súkkulaði, mjólk og nauta- kjöt, sem alt er heldur dýrara nú, en það var 1. júlí í fyrra, þó eigi muni það miklu. En hins vegar hafa ýms- ar nauðsynjar lækkað mjög mikið í verði á sama tímabili, hrísgrjón úr 2 kr. niður í 83 aura, sagogrjón úr 2.03 niður í 1.01, kartöflumjöl álíka mikið, kandís úr 3.57 í 1.99, melís úr 4.07 í 1.75, kaffi úr 4.00 í 2.72, saltfiskur úr 1.50 í 1,03 og kol úr 48 kr. í 25.60 skippundið. Ressar tegundir hafa fallið mest í veiði, en aðrar að nokkrum mun. í samandregnu yfirliti er birt hlut- fallið í hundraðstölum milli vöruverðs- ins fyrir stríðið og þess, sem var 1. júlí þ. á. Verðhækkunin nemur á brauði 300°/o, á kornvöruin 231%. á kálmeti 265%, á sykri 302%, á kaffi, te og súkkulaði 115°/o, á feit- tneti, mjólk, osti og eggjum 279%, á kjöti 364°/o, á fiski \94®/o, á sápu og sóda 356% og á síeinolíu og kol- um 367%. Á síðasta ári hefir lækk- unin orðið mest á steinolíu og kolum 38%, á sykri 32%, á fiski 28°/o og kornvörum 27%. Hafa vörur þannig lækkað alt að þriðjungi á síðasta ári. í skýrslunni er talið, að vöruverð hafi að tneðaUali hækkað um 270°/o síðan strtðið byrjaði, en meðallækkun á síðasta ári er talin vera 17%, én 20% á síðustu fimm ársfjórðunguin og 4% á síðasta ársfjórðungi. En séu matvörur einar taldar, er verð- hækkunin síðan fyrir stríð 259°/o. Er þetta svipuð niðurstaða og er hjá ná- grannaþjóðunum. Reir vöruflokkar, sem mest hafa fallið í verði, hafa aldrei verið taldir með í skýrslunni, svo sem vefnaðarvara og skófatnaður, En eitt mesta dýrtíðarbölið, húsnæðisleysið, helst óhindrað, en húsaleigan er til- finnanlegur útgjaldaliður. En nú eru byggingarefni, eiukum timbur, farið að falla stórum í verði, svo að væntan- lega verður á næstunni farið að byggja aftur, þó miklum .vaidkvæðum sé bundið, einkum vegna hins mikla vinnulaunakostnaðar við húsasmíðar. »Mbl.« Saltfiskskaup. Kaupum fullverkaðan stórfisk háu verði nú þegar. Afhending í haust. Espho/in Co. Rúmstæði og madressa til sölu með tækifærisverði. Afgr. vísar á. Prentsmiðja Björns Jónssonar. Fréttir >- • eru engar í blaðinu í dag, og veldur það, að Reykjavíkurblöðin hafa'engar fregnir fengið frá útlöndum. Sæsím- inn er þó óslitinn, og mun því ekk- ert hafa skeð í útlöndum af því, er tíðindamanni blaðanna þótti vert að senda. CO AKUREYRI Aage Meyer Benedictsen hélt fyrirlestra þá, sem getið var um í síðasta blaði, um »Evrópu hina nýju« og »Armeníu«. Báðir fyrirlestrarnir voru vel og skörulega fluttir, eins og við mátii búast, og vel sóttir eftir atvikum. Hr. Benediktcen hefir verið veð- , urteptur hér í bænum. Býst hann við að fara héðan austur í Mývatnssveit, .þegar veður leyfir. Gestir. Eggert Laxdal, hinn gamli, góð- kunni Akureyrarborgari, er nýkominn hingað til stuttrar dvalar. Hann kom að sunnan með einum Kveldúlfs-togaranum. Sömuleiðis eru þeir báðir á ferð hér í bænum Hallgrímur framkvæmdarstjóri Kristinsson og Guðbrandur Magnússon kaupfélagsstjóri, fyrrum ritstjóri »Tímans« Guðm. Bergsson póstmeistari fór fyrir nokkrum dögum fyrir hönd landsstjórnar- innar til Siglufjarðar til þess að meta og yfirlíta hús það, sem landsstjórnin hafði í huga áð kaupa af Jósep Blöndal fyrv. stöðvarstjóra. Eftir því, sem póstmeistari hefir skýrt oss frá, varð niðurstaðan sú, að húsið var keypt fyrir upphæð þá, sem á því lá,, og er því landsstjórnin hér eftir réttur eigandi hússins. Nýi stöðvarstjórinn, Otto Jörgensen, á Siglufirði, er hýlega tekinn við embættinu. Sildveiðin gengur illa það sem af er. Kveldúlfs-togararnir á Hjalteyri fengu í gær 700 tunnur og Helgi magri 250. Norsk skip á Siglufirði höfðu fengið um 800 tunnur. Hingað hefir engin sild kom- ið enn, nema Hjalteyrin með rúmar 100 tunnur og Jakob með tæpar 50. Jakob liggur hér inni- með brotið skrúfublað. OG Heilbrigð skynsemi. • XI. Samansetningur Dags um hlutafélög og samábyrgðina, hefir fengið mönn- um mikillar furðu. Sem kunnugt er hélt Dagur því fram að ábyrgðin gæti ekki látið til sín taka í öðrum félög- um, fyr en félagið sem f hlut á, »hef- ir goldið siun síðasta eyri, þ. e. hVer maður í félaginu.« Petta er nú víst svo mikil fjarstæða að samábyrgðarinnar gætir líklega því nær á hverju ári t. d. við verðjöfnuð á afurðasölu félaganna. Að ábyrgð hvérs félags sé jöfn þeim hagnaði, sém hlotist getur, kemur málinu auð;

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.