Íslendingur - 09.08.1922, Side 3
33. tbl.
ÍSLENDINGUR.
129
leyfi ti! að ræna og myrða Gyðingana,
hvöttu lýðinn ekki til að skera brjóstin
af Gyðingakonunum eða reka timbur-
fleyga í enni karlmannauna. Öll þessi
blóðugu hermdarverk cru því ein-
göngu alþýðunni sjálfri að kenna og
sprottin af giimd hennar.
En nú mun rnargur spyrja, hvar
hinn hjartagöfugi, hugsandi rússneski
bóndi sé, hinn óþreytaridi sannleiks-
og réttlætisleitandi, sem bókmentir 19.
aldarinnar hafa lýst svo fagurlega fyr-
ir heiminum.
Á unga aldri leitaði eg einnig með
ákafa að þessum inanni um alt Rúss-
land. En — eg fann hann ekki. Eg
fann alstaðar sannan, fullkominn raun-
verumann, lymskan náunga, sem tókst
ágætlega að látast vera einfaldur, þeg-
ar honum kom það að einhverju leyti
vel. Að eðlisfari er hann ekki heimsk-
ur, það veit hann. Hann hefir ort
mörg döpurleg kvæði, búið til marga
þjóðsöguna og myndað þúsundir máls-
hátta, sem geyma margháttaða lífs-
reynslu hans. .............
....... Eg vil enda þessa skugga-
legu grein með því að segja frá, hvað
þátttakandi einn í vísindaferð til Úral-
fjallanna hefir sagt mér. Bóndi nokkur
í sveitabæ einum, seni vísiudaleiðang-
inn dvaldi í, sneri sér til ferðaniann-
anna með þessum orðurn: »Pið eruð
lærðir memi — segið þið mér, hvort
eg er keyptur eða seldur. Basjkir cinn
drap kúna mína í fyrri viku. Auð-
vitað drap eg Basjkirinn og á eftir tók
eg belju frá fjölskyldu haus. Segið
þið mér nú: er hægt að dæma mig
fyrir eina belju?*
Peir spurðu hann að, hvort haun
byggist ekki frekar við að verða dæmd-
ur fyrir að hafa drepið manninn. Þá
svaraöi hann rólega:
»Sei, sei — hvað gerir það til.
Mennirnir eru ódýrir nú á tímum,*
Einkennaudi er orðið »auðvitað<.
Morð eru orðin hversdagsleg og eðli-
leg, þau eru orðin að vana. í þessu
felst öll grimd borgarastyrjaldanna og
þorparaskaparins. (Morgunbl.)
OO
Símfréitir frá útlöndum.
Rvík í gœr.
Balkanstyrjöldin hafin að ný/u. Er
Grikkir neituðu kröfum bandamanna
um að láta Konsiantínópel afskifta-
lausa, veittu þeir Tyrkjum liðstyrk og
hafa nú Grikkir orðið að hörfa und-
an frá landamœrum Tyrklands rneð
her sinn. Hvort liðveisla banda-
manna nœr lengra en til varnar
Konstantinöpel er ennþá óvist. Smá'-
skœrur hafa orðið en cngir verulegir
bardagar. Grikkir stórreiðir banda-
mönnum.
Óeirðirnar á Italiu halda áfram.
Svar Pjóðverja við kröfum Poincare’s
forseta um 3 miljöna sterlingspunda
skaðabótagreiðslu fyrir 15. þ. m. hef-
ir reynst ófullnœgjandi og hafa Frakk-
ar þvl framfylgt hótun sinni um að
beita refsiákvœðum l Rinarlöndunum.
Gengu þau i gildi á Sunnudaginn.
Irska uppreistin er að mestu talin
bœld niður, og hafa jlestir uppreist-
arforingjarnir, að De Valera undan-
skyldum, vcrið handlcknir og biða
dóms.
Lloyd George, Poineare og utan-
rikisráðherra Itala sitja á ráðsiefnu i
Parls, og rœða þar þýzku skaðabóta-
málin og skuldaskiftamöguleika með-
al bandamanna innbyrðis. Er bú-
ist við að niðurstaða þessa ráðherra-
fundar verði grundvöllur undir hitia
vœntanlegu ráðstefnu, sem Lloyd Ge-
orge vill koma á meðal bandamanna
með haustinu til að endurskoða Ver-
salasamningana.
Kolanámuverkfallið heldur áfram i
Bandarikjunum. Margar verksmiðjur
hafa orðið að leggja niður vinnu
vegna kolaskorts. Einnig eldsneytis-
skortur til heimilisþarfa yfirvofandi.
Harding forseti hefir krafist þess, að
verkið verði tekið upp með óvönum
starfsmönnum, takist ekki sættir nœstu
daga, og að hervaldi verði beitt til
að koma því i framkvœmd ef þörf
gerist. Verkamannafélögin hóta blóðs-
úlhellnigum.
Brezki rikiserfinginn, prinsinn af
Wales, er nú sagður trúlofaður Jólöndu
prinsessu, elstu dóttir Italíu konungs.
i co
Innlendar símfregnir.
Rvik i gœr.
Pýzkt skip nýkomið til Hafnarfjarð-
ar, hlaðið vinföngum. Pöttist skip-
stjóri œtla til Amerlku með farminn.
Með skipinu var Viðar Vík sem út-
lœgur er héðan af landi, að afstað-
inni hegningu fyrir margskonar af-
brot. Gaf það slœman grun um að
alt mundi ekki með fétdu hvað skipið
snerti. Var nú hafin yfirheyrsla og
kom það þá í Ijós að œtlunin var að
smygla vlninu i land og selja það á
ýmsum stöðum hér. Skipsijórinn cr
nú kominn i hegningarhúsið og lög-
hald hefir verið lagt á skipið.
oo
Úr heimahögum.
Útkoma blaðsins er að þessu sinni
tveim dögum fyr en venja er, og staf-
ar af því, að ritstjórinn þarf að skreppa
í burtu og verður að heiman nokkra
daga.
Síldveiðin. Landburður af síld hefir
verið hér við fjörðinn og á Siglufirði
síðustu dagana. Hafa flest skipin héð-
an aflað vel og eru mörg komin á
þriðja þúsundið að tunnutali. Af tog-
urunuin sunnlenzku, seni ganga á síld-
veiði, mun »Ýnúr vera hæstur. Mun
afli hans vera um fjögur þúsund
tunnur.
Gullbrúðkaup áttu nýlega hjónin í
Barði, María Flóventsdóttir og Júlíus
Kristjánsson.
Sira Pórður Tómasson. Meðal far-
þega á »Goðafoss« var landi vor
Þórður Tómasson, prestur í Horsens
í Damn'örku. Er liann sonur Pórðar
læknis Tómassonar, próíasls Sæmunds-
sonar, og fæddur hér á Akureyri 7.
Des. 1871. Eldri menn hér við Eyja-
fjörð muna vel föðui hans, Þorð lækni,
er andaðist hér 2. Nóv. 1873, gleði-
maður mikill og hvers manns hugljúfi.
Afinn frægi er alþjóð kunnur og kær.
Móðir séra Þórðar var dönsk og fór
hann með henni til Danmerkur skömmu
eftir lát föður síns og hefir dvalið þar
síðan og hlotið þar mentun sína. Síð-
an 1898 hefir hann verið prestur í
Horsens og befir mikið orð á sér sem
kennimaður. íslenzk mál hefir hann
látið sig miklu skifta, sérstaklega kirkju-
málin, og hefir hann unnið með alúð
að því, að koma á nánara sambandi
með kirkjum Islendinga og Dana og
myndað öflugan félagsskap f þeim til-
gangi — »Dansk-islandsk Kirkesag*.
Dvöl sfra Þórðar hér á Akureyri var
alt of stutt — að eins meðan »Goða-
foss« stóð hér við. A Suðurlandi
dvaldi hann tveggja vikna tíma og
heimsótti Breiðabólsstað í Fljótshlíð,
fæðingarstað föður síus. Þetta er
fyrsta kynnisferð síra Þórðar til Islands
síðan hann fór héðan barn.
Kristján jónsson, dómstjóri hæsta-
réttar, kom að sunnan með »Goða-
foss« og dvelur hér í bænum hjá
bróður sínum, bæjarfógetanum. Um
helgina fara þeir bræður austur í Mý-
vatnssveit til að heimsækja frændlið
sitl og forua átthaga.
Eftirliismaður með landhelgisbrotum
útlend nga er af útgerðarrnönnum á
Sigluíirði ráðinu Sveinn Bjarnáson
prókúrator. Þykir útgerðarmönnum
eflirlit lögregluvaldanna siglfirzku ekki
fullnægjandi og hafa þvi valið Svein
til uppfyllingar; á hann jafnframt að
vera saksókuari á hendur þeim brot-
legu.
E.s. »Lawrence« kom á Sunnudag-
inn með kolafarm til verzl. »Hamborg».
Opinberað hafa trúlofun sína uý-
verið ungfrú Ásta Sigurjónsdóltir frá
Fornustekkjum í Hornafirði og Karl Ás-
geirsson símritari hér á Akureyri.
Spánarvinsalan. Jóh. Ragúels kaup-
maður, sem er í Rvík um þessar
mundir að leita sér lækninga — hefir
tilkynt ísl. að hann ha(i ekki sótt uin
vínsöluna hér — hvorki til Stjórnar-
ráðsins eða bæjarstjórnarinnar. Er oss
óskiljanlegt, hvaðan bæjarstjóra hefir
borist heimild til að telja hann meðal
umsækjendanna, því eins og atkvgr.
sýnir, var bæjarstjórnin í engum vafa
um umsókn Jóhanns, en upplýsingar
sínar hafði hún frá bæjarstjóra.
»Músik félag Akureyrar,« heitir fé-
Iag sem stofnað var hér í bænum í
gærkveldi. Markmið félagsins er að
koma hérá fót »músík-skóla« er kenni
flestar greinar hljómlistarinnar, og
jafnframt að jvekja og glæða áhuga
manna fyrir hinni fögru list með
»koncertum« og fræðslu. Er í ráði að
útvega danskan kennara til að hafa
forstöðu skólans og aðal kenzluna á
hendi. í stjórn félagsins voru kosin:
Séra Geir Sæmundsson, Vernh. Þor-
steinsson, Sig. E. Hlíðar, ftú Kristín
Matthíasson og Haraldur Björnsson.
Svar frá Jóni E. Bergsveinssyni til
ritstjóra »Dags« kemur í næsta blaði.
OO
Fiskilinur
norskar 1—2 — 3—4 — 5 punda.
0ngultauinar
og
Lóðarönglar extra extra long,
fyrirliggjandi hjá
Ásgeiri Pétussyni.
Einkennileg lækninga-aðferð.
Meðal al óupplýstra þjóðflokka ersú
trú, að illir andar séu valdir að sjúk-
dómurn í mönnum og dýrutn, mjög út-
breidd. Aðferð villimannaflokks eins á
eynni Borneo við að lækna sjúkdóma
er lýst þannig:
Þegar læknirinn (særingamaðurinn)
hefir fengið fulla vissu um, hverskonar
andi sé valdur að sjúkdómnum, fer
hann heim til sín og tekur bút af sago-
pálmalré, sem liann teglir til í líkingu
við andann, sem þjáir sjúklinginn. Lík-
neskið er svo stundum látið inn í lít-
ið hús eða bát, setn gerður er fyrir
það. Herbergi sjúklingsins er skreytt
með marglitum dúkum, pálmablöðum
og laufum í líkingu ýmsra hluta, sér-
staklega fugla. Róla er búin til úrtág-
um og tengd með lauffléttingum við
húsið eða bátinn, sem andalíkneskið
er í, til þess að anditin geti komist
þangað eftir að særingamaðurinn hefir
stefnt honum í róluna. Nú setjast menn
í róluna, hver á eftir öðrum, og sveigja
sig og beygja á allan mögulegan hátt
eftir hljóðfalli frá bumbum, sem eru
barðar á bak við þá. Særingamaðurinn
sezt svo sjálfur í róluna og raular fyrir
munui sér í tilbreytingarlausum tóm
gömul særingaljóð. Efnið í þeim er
það, að biðja andann að koma ofan
og taka sjúkdóminn út úr líkama sjúk-
lingsins. Særingasöngurinn er stöðugt
endurtekið ákall til andans, sem sam-
kvæmt trúnni færist nær, og að síð-
ustu er talað til hans eins og hann
væri inni í húsinu. Að lokum fellur
særingamaðurinn úr rólunni og liggur
sem meðvitundarlaus. Þegar hann i akn-
ar við gengur hann að sjúklingnum,
þylur særingar, kastar í kring um sig
hrísgrjónum og veifar blóini yfir sjúk-
lingnum. Pegar enginn er í rólunni
er blómið látið liggja í henni. Pegar
særingarnar hafa gengið eins lengi eins
og þörf þykir, er sjúklingurinn sjálfur
settur í róluna, og þegar að særinga-
maðurinn segir að andinn sé kominn
fer hann og sjúklingurinn í bátinn eða
húsið. Særingamaðurinn spýtir legi af
betel-bnotum á líkneskið og hellir yfir
það vatni, síðan skvettir hann dropum
af vatninu á líkama sjúklingsins og
raular um leið særingaþulurnar. Næsta
dag er farið með líkneskið, sem er
skreytt með blómum, ásaint hrísgrjón-
um og annari fæðu, að á eða læk.
Par er það látið niður; nema ef ílát-
ið, sem það er í, er bátur, þá eru lítil
mannalíkneski búin til úr tjöru, sett í
bátinn og hann látinn berast niður
ána eða dregin út á sjó. Enginn nema
særingamaðurinn má snerta andalík-
neskið eftir að særingarnar eru afstaðn-
ar. Vanalega er einhverskonar samband
milli andans og sjúkdómsins, þannig
að andar sem búa í loftinu valda höf-
uðverk og hitasótt, skógarandar fóta-
bólgu o. s. frv. Pegar búið er að
ganga frá líkneskinu, sem veikin á uú
að vera komin í, cr álitið að sjúklingn-
um sé atbatnað.
af stúfasirzi nýkomið í verzlunina
„MERCATOR“, Hjalteyri.
Selst 25°/o ódýrar en annarsstaÖar.