Íslendingur - 15.09.1922, Qupperneq 1
Talsími 105. Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson. Aðalstræti 16.
VIII. árgangur.
Akureyri, 15. September 1922.
38. tölubl.
„Verkamaðurinn"
Og
Steinolían.
Lofdýrðarsöngur »Verkamanns-
ins« um steinolíueinokunina á ekki
að verða endasleppur. Ritstjórinn
setti (E. F.) fer aftur á stúfana í
síðasta blaði til andsvara íslendingi,
en svarið er sama marg-jórtraða
tuggan, sem þeim einokunarpostul-
unum ætlar aldrei að verða óiystug,
hversu oft sem henni er troðið nið-
ur í þá aftur, það, að ríkiseinokun
sé til þjóðþrifa, en frjáls verzlun sé
þjóðarböivun.
Kjarni þessarar síðustu greinar
er endurprentun úr »Tímanum«,
sem á að innihalda aðalatriði samn-
inganna við enska olíufélagið. Eng-
inn veit raunar með nþkkurri vissu,
hvort nokkurt orð í þeirri frásögn
er satt eða ekki, því samningurinn
er leyniskjal, sem almenningur fær
ekki annað að vita úr en Lands-
verzlunarforstjóranum gott þykir;
en það er víst og sannanlegt, að í
þessarr' grein, sem »Verkam.« end-
urprentar og á að vera útdráttur úr
samningum, er margt vafasamt og
varhugavert, ef ekki hrein og bein
ósannindi. í frásögninni er þetta
m. a.: »Annað höfuðatriði er það,
hversu gengið er frá verðinu í samn-
ingunum. En um það er þannig
samið, að Landsverzlunin fær olíuna
við því markaðsverði, sem daglega
er auglýst á kauphöllinrti í olíu-
höfnunum.« Menn vita ekki, hvað
hér er átt við með »olíuhöfn«. Al-
menningur veit ekki, hvort nokkur
kauphöll er á þeim stöðum, þar sem
olíuni verður skipað út, líkurnar að
svo sé ekki. Olían er venjulega leidd
til sjávar frá litlum bæjum, vegna
eldhættunnar; þannig er því t. d.
varið í Bandaríkjunum. Mikið af
olíu »Standard OiI«-félagsins er skip-
að út frá smábæ skamt frá New
York, sem Bayonne heitir, en verð
olíunnar auglýst á kauphöllinni í
New York.
»Við íslendingar,« heldur frásögn-
in áfram, »fáum olíuna við alheims
markaðsverði, eins og er á hverjum
tíma á sjálfum framleiðslustöðunum.
Utsöluverð olíunnar hér, eftir að
búið er að leggja á það sem heim-
ildarlögin heimila, ætti því sízt að
verða liærra en heildsöluverðið á
Englandi.«
Þannig skýrir »Tíminn« frá, og
»Verkam.« getur í hvorugann fótinn
stigið fyrir gleði yfir þessum vild-
arkjörum, Og það er ekki heldur
að undra, því eftir þessum ummæl-
um eigum við að fá olíuna, ekki
fyrir markaðsverð, eins og blöð
þessi segja, heldur fyrir svo iniklu
lægra verð, að svari ríflega flutn-
ingsgjaldinu frá Englandi til íslands
að minsta kosti. »Og ekki lætur
nú Bretinn — eins og »Vísir«
kemst að orði — sér lítið ant um hag
okkar íslendinga, ef hann ætlar að
selja okkur olíuna fyrir svo miklu
lægra verð en sjálfum sér.« Trúi
hver sem trúa vill.
í frásögninni sem »Verkam.« er
að flagga með, er ennfremur komist
svo að orði. »Landsverzlunin hefir
hafið þann sið, að flytja olíuna í
stáltunnum, og þeim sið verður
haldið áfram. Er það atriði mjög
þýðingarmikið, því að það er al-
kunnugt hversu miklil rýrnun verð-
ur á olíunni, þá er hún er flutt í
trétunnum.«
Það er ekki rétt að Landsverzlun
hafi byrjað á því að flytja til lands-
ins olíu í stáltunnum. Það höfðu
áður gert hér norðanlands kaup-
mennirnir Ásgeir Pétursson og
Rögnv. Snorrason og Hallgr. Bene-
diktsson í Rvík. í sjálfu sér skiftir
það litlu máli hver byrjað hafi á
innflutningi olíunnar í stáltunnum,
að öðru leyti en því að rangt er
skýrt frá þessu atriði og getur því
eins verið í fleirum. Annars er tölu-
vert vafamál hversu hyggilegt það
er, að flytja olíuna í stáltunnum.
Það er að minsta kosti órannsakað
mál. Olían getur geymst vel í lím-
bornum eikartunnum, séu þær
geymdar á góðum stað; og þær
má nota, og hafa verið notaðar
svo að segja eingöngn undir lifur
og lýsi sem út hefir verið flutt, og
hefir ekki til þessa þurft að flytja
inn tunnur eða föt undir þessar
afurðir vorar. Þetta atriði hafa
einokunarpostularnir ekki álitið vert
að taka með í reikninginn, þegar
verið var að semja um kaup eða
lán á stáltunnunum. Útvegsmönnum
munar þó sannsýnilega talsverðu, ef
þeir þurfa að flytja inn, þó ekki sé
meira en 25 þús. til 30 þús. eikar-
föt undir lýsi eða' gotu, sem flutt
er árlega úr landi. Endurbótin, sem
í því felst að flytja inn olíuna í
stáltunnum, er því mjög vafasöm,
þar sem kunnugir fullyrða að verð-
munur stáltunnanna, og trétunnanna
sé svo mikill að það, að komast
hjá rýrnun á olíunni borgi hann
ekki, auk þess sein að trétunnurnar
flytja út aftur afurðir vorar en stál-
tunnurnar verða að flytjast út tómar.
»Verkam.« gumar mjög af því,
Gapfræðaskólinn
á Akureyri
verður sökum viðgerðar og rafmagnsinnlagn-
ingar, ekki settur fyrr en Mánudag 9= Okt.
Sigurður Guðmundsson.
hversu Landsverzlunin hafi staðið
sig vel í samkepninni við Steinolíu-
félagið í olíuverzluninni árið sem
leið. Segir hann, að Landsverzlun
hafi selt að meðaltali kg. af olíunni
9 aurum ódýrara en Steinolíufélag-
ið, og birtir blaðið skýrslu, sömu
skýrluna og Erlingur las upp á lands-
málafundinum sæla hér í sumar, því
til sönnunar. En samanburðurinn á
útsöluverði þessara tveggja olíu-
verzlana er þannig, að hann tilgrein-
ir ekki verðið samtímis hjá báð-
um, heldur ber ritstjórinn saman
verð Steinolíufélagsins eins og hann
segir áð þ2Ö hafi verið í Febrúar
við verð Landsverzlunar í Marz, og
verð Steinolufélagsins i Marz ber
hann saman við verð Landsverzlun-
arinnar í Ágúst o. s. frv. Olíuverð-
ið fór stöðugt lækkandi á útlenda
markaðinn* frá því um áramótin 1921
til Októberloka, og er því auðséð,
hvernig á því stendur, að ritstjórinn
(E. F.) gerir verðsamanburðinn ekki
á sama tíma hjá báðum, og þess
utan eru hvergi nefnd olíugæði og
eru þau þó harla mismunandi og marg-
ar tegundir. Ritstj. setti gefur með
þessu tilefni til að ætla megi að
olíuverði Landsverzlunar sé tekin ó-
dýrasta tegund, en dýrasta tegund
Steinolíufélagsins. Það sem hér
hefir verið bent á, er til að sýna,
hversu blekkingarnar geta gengið
langt. Ritstj. gat með jafn miklum
rétti gert samanburð á útsöluverði
Landsverzlunar á olíunni 1. Júlí þ.
á. og útsöluverði Steinolíufélagsins
1. Júlí í fyrra, til þess að fá upp-
hæðina nógu háa Landsverzluninni
í vil. Tilgangurinn er ekki að segja
óhlutdrægt frá [sað sjá allir, enda
mundi það eyðileggja málstað ein-.
okunarinnar.
Annars er ekkert leyndarmál, að
Landsverzlunin notaði yfirfærslu-
örðugleikana í fyrra, til þess að ná
eins miklu fé úr vasa útgerðarmanna
fyrir olíuverzlunina og hún taldi sér
fært, og bera reikningar hennar þess
Ijósastan vottinn. Útgerðarmenn
voru því fyrir löngu búnir að sjá,
að hverju stefndi með olíusölu
Landsverzlunar og fóru að undir-
búa sig til þess að verða ekki fyrir
slíkum búsifjum framar. í vor komu
fleiri farmar af olíu til landsins og
verðið lækkaði fyrir aukna samkepni,
og eftir að farið var að skrásetja
gengi myntar í Rvík var ekki lengur
hægt að komast hjá því að selja
öllum gjaldeyri með sama verði.
Eftir það gat Landsverzlun ekki
lengur notað yfirfærslu--örðugleika
annara sér til skjóls. En samkepni
við kaupmennina treysti hún sér
ekki að standast, ef olíuverzlunin
væri frjáls. Fyrir hana var því um
3. leiðir að velja. 1. Að selja olíuna
með tapi ef hún ætlaði að selja eins
lágt og aðrir. 2. Að hætta að selja
og 3. Að útiloka alla samkepni með
því að koma á einokun. Sú leiðin
var valin, og til þess notuð 5 ára
gömul heimild frá Alþingi, þrátt fyr-
ir það, að afstaða þingsins til við-
skiftamálanna og aðstaðan utan frá
hafa gerbreyst síðan.
Ekki hefði það að minsta kosti ver-
ið ósanngjarnt, þótt ríkisstjórnin
hefði spurt Alþingi, hvort framkvæma
skyldi lögin, eftir að þau höfðu
legið í dvala svona lengi, en því
var ekki að heilsa. Steinolíusalan er
seld á leigu um 3 ára tíma, að þing-
inu fornspurðu ogeinokunar-tilkynn-
ingin látin koma sem þjófur á nóttu
yfir þjóðina, en sjálf kemur einok-
unin í framkvæmd 5 dögum áður
en næsta þing kemur saman.
Ástæðan til þess að ríkisstjórnin
fór að ráðum Landsverzlunarfor-
stjórans og valdi einokunarleiðina
,er sú, að með því móti einu var
íhægt að skýla hinu margumtalaða
^vandræða fálmi Landsverzlunar, að
æíla að geta staðist frjálsa sam-
kepni við kaupnienn án sérstakra
hlunninda. Landsverzlunarfórstjórinn
vissi, að verzluninni var þetta um
megn, en vildi ekki viðurkenna það.