Íslendingur - 03.11.1922, Page 3
45. tbl.
ISLtfNDÍNÖUR.
177
Norsk
Furuskíði
4 — 6V2 fet, verð kr.
5,00 til 12,00, Skíða-
stafir, Skíðabönd,
Skíðasokkar, Bakpokar,
Stormtau.
BARNASLEÐAR
(Kjelker), fæsf bezt og
ódýrast í
I
BRAUNS VERZLUN, Akureyri,
Hafnarstrœti 106. Simi 59.
Páll Sigurgtirsson.
Pakkaduftið
Dönsku járnbrautirnar og
sporvagnarnir nota 1
aðeins
HELIOS
rafljósaperur.
þau blöðin, sem telja sig vernda og
viðhalda menningu þess hluta þjóðar-
innar, seni mun vera kjarni hennar,
bænda og sveitafólks.
0ílum er Ijóst, hve mikið gildi slíkt
hefir fyrir þá, sem lesa og hina sem
skrifa. Ef pólitískar skoðanir eiga
framvegis að ráða ummælum blaðanna
um bækur, þá er jafngott fyrir þá, sem
vilja leggja einhvern skerf til bókmenta-
lífs þjóðarinn.ir, að hætta því, eða vera
annaðhvort allra-flokka-gagn eða leiða
þjóðfélagsmál hjá sér eins og gersam-
lega óviðkomandi efni.
Eg tók það fram, að »SóIdægrum«
stafaði lítil hætta af gusi og glamri
»Tímans« og» Dags«. Rau blöð hafa
svo oft ausið sér yfir menn — og
unnið fyrir gíg. Eg vildi annarsvegar
benda á stefnu þeirra og hinsvegar
sýna, hve J. t*. tekst óumræðilega ó-
hönduglega, þegar ekkert annað vakir
fyrit’ honum en að bergmála þau en-
demi á Norðurlandi, sem »Tíminn«
segir á Suðurlandi.
Jón Björnsson.
C3
t
Sigvaldi á Gilsbakka
— er dáinn. — Mér hnykti við, er
eg heyrði lát hans. Og það hygg eg,
að fleiri 0xfirðjngum fari eins, því
austur þar var hann öllum kunnur fyrir
dugnað sinn, hjálpsemi, ráðvendni og
samvizkusemi til orða og verka.
Skólamentun hafði Sigvaldi enga.
Reyndi ei heldur nokkurntíma að sýn-
ast. En hann vildi vera. Hann lagði
hönd að verki, og sigraðist á flestum
þeim örðugleikum, sem fátækir einyrkj-
ar og fjölskyldutnen einir þekkja hve
harðir eru viðfangs.
Eg er, því miður, ekki undir það
búinn, að skrifa nákvæma lýsingu af
lífsstarfi Sigvalda.
Eitthvað mun hann hafa fengist við
búskap áður en hann kom að Gils-
bakka, fyrir nálega 20 árum. En þá
voru eignirnar sáralitlar og bústofn
rétt enginn. Jörðin hörð og slægna-
lítil, eins og íleiri þar í sveit, og hus
öll komin að hruni, — Álitlegt var
því ekki að setjast þarna að með fjöl-
skyldu. Enda mun það sönnu næst
að vonir manna hafi ekki verið glæsi-
legar um hag hans þar, eða afkomu.
En það fór á annan veg, Sigvaldi var
bjartsýnn u.aður með afbrigðum, og
h!ó við hverjum örðugleika. Var eg
nábúi hans urn eitt skeið, og því vel
kunnugt um hugarfar hans, og eins
um það hvílikt óhemju erfiði hann
lagði á sig. Undraðist eg oft hve vinnu-
þolið var mikið. Dögum og vikum
saman vann hann hjá öðrum. Svo eftir-
sókt var lagvirkni hans og dugnaður.
Samt þokuðust áfram framkvæmdirnar
heima fyrir. Búið stækkaði. Húsin voru
bygð upp. Vatn leitt heim að bænum.
Lögð stór girðing um engi og úthaga,
og sléttað og bætt túnið. Og nú við
fráfall hans, er jörðin orðin eitt af
snotrustu og byggilegustu býlum sveit-
arinnar.
Síðast þegar eg talaði við Sigvalda,
fyrir tæpum 3. vikum, var hugurinn
hinn sami. Alstaðer sá hann verkefni;
alstaðar eitthvað, sem þurfti að laga
og bæta. Það var eins og hugur hans
væri fullur af óunnum verkum. Hið
eina, sem mér fanst, þá og áður, skyggja
á vinnugleði hans, var það, að hon-
um fundust verk sín ófullkomin. Taldi
sig hafa unnið þau af vanefnum og
óttaðist að þau yrði ekki eins varanleg
og æskilegt væri. Hafði hann fullan
hug á að endurbæta þau, svo það tak
mark næðist.
Lengri lýsingu af starfinu og ein-
kerinum Sigvalda, þýðir ekki að skrifa.
Allir sveitungar hans og allir, sem
þektu hann nokkuð, munu taka undir
það með mér, að ósérplægnari og
samvizkusamari mann í störfum og
viðskiftum geti ekki. Reir munu og
með hljóðri þakklátssemi minnast manns-
ins, sem ekkert fanst of vel gert fyrir
þá fögru sveit. Og þeir munu eianig
óska þess að hún í framtíðinni eignist
marga slíka syni.
Sig. Bj.
OO
Úr heitnahögum.
Eldgosið. Amerískur rithöíundur,
James Norinan Hall að nafni, frá Col-
fax, Iowa, sem hér dvelur í bænum í
vetur, réðist í það þrekvirki, að fara
héðan í rannsóknarferð inn í óbygðir,
þar sem menn hugðu að eldgosið
mundi hafa verið. Til fylgdar fékk
hann Sigurð Sumarliðason í Bitrugerði.
Fóru þeir héðan til Svartárkots í Bárð-
ardal og lögðu þaðan á óbygðirnar.
Var fyrsta dagleiðin þaðan í Yxnadal
og höfðust þeir við um nóttina í kofa,
er þar er. Næsta dagleiðin var að
Trölladyngju. Þar sannfærðust þeir
utn það, að gosið hefði ekki verið í
norðanverðum Vatnajökli, eins og
haldið var, heldur hefði það verið í
hinum svonefndtt Þóristungum, norð-
anvert við Rórisvatn, en suðaustanvert
við Vonarskarð. Én þangað eru tvær
dagleiðir frá Trölladyngju. Ekki var
talið ráðlegt að halda lengra, því veð-
ur tók að dimma og hríð í aðsigi.
Var snúið aftur og hafst við í sama
kofanum næstu nótt, en daginn eftir
var náð til bygða. Var þá komin hríð
allmikil og hélst svo allan næsta dag
og gekk því ferðin örðugt hingað til
bæjarins, en klaklaust komust þó garp-
arnir hingað síðdegis á Priðjudaginn,
eftir 8 daga útivist. Lét Mr. Hall hið
bezta yfir ferðinni og hældi fylgdar-
manni sínum mjög fyrir dugnað og
áræði. Mun þetta í fyrsta sinni í
manna minnum hér norðanlands, að
farið hefir verið suður undii Vatna-
jökul um þetta leyti árs, þegar allra
veðra er von, og er í sannleika glæfraför.
»Bofn/a>< fór héðan kl. 4 síðd. á
Sunnudaginn áleiðis til útlanda. Fór
hún fram hjá Húsavik sakir óveðurs.
A Seyðisfirði náði hún í »Island«, er
þangað var nýkomið. Voru allmargir
farþegar með »Botníu», er ætluðu til
Reykjavíkur, og sem stólað höfðu á,
að geta náð í »Island« á Seyðisfirði,
þó hæpið kynni að vera. Reim varð
því að von sinni. Til útlanda fóru
héðan með »Botníu«: Ragnar Ólafs-
son konsúll og Puríður dóttir hans, er
dvelja ætlar í Englandi vetrarlangt,
Arni Ólafsson frá Hartford í Banda-
ríkjunum, heimleiðis, og Brynleifur
Tobiasson kennari, er ætlar sér að
dvelja erlendis i vetur.
Útboð. Verkstjóri brúargerðarinnar
á Eyjafjarðará, Júníus Jónsson, aug-
lýsir i »Vm.« og »Degi« útboð í
grjótflutning til brúargerðarinnar, og
fylgir þar nákvæmlega þeim reglum,
sam íslcndingur var að hamra á að
nauðsyn bæri ti! að teknar væru hér
upp. Er blaðinu því gleðiefni, að
verkstjórinn skuli hafa skipast við orð
þess í þessum efnum, og væntir að
svo verði alment. Opinber útböð á
öllutn verklegum framkvæmdum, sem
hið opinbera annast, ætti að vera skylda.
Guðmundur Friðjónsson skáld flytur
erindi í Samkomuhúsinu í kvöld.
Heiðrið skáldið með því að fyila húsið.
»J?an« seldi afla sinn — kola í ís
— í Fleetwood fyrir 1200 sterlings-
pund.
Tennis-félagið heldur funijl í bæjar-
stjórnarsalnurn n.k. Sunnudagskvöld
kl. 8.
Tundurduflið. »Fálkinn« kom í
gærmorgun til Siglufjarðar að tilhlut-
un Stjórnarráðsins til þess að gera út
af við tundurduflið. Eru skipsmenn
næsta smeykir við gripinn og þora
sem minst á honum að bæra, Er í
ráði, að flytja duflið á bátnum, setn
fann það (og þar hefir verið geymt)
á haf út, saga síðan borðstokkinn í
sundur og hleypa duflinu með var-
kárni í sjóinn. Ætlar »Fálkinn«, er
hann er kominn í nægilega fjarlægð,
að skjóta duflið i kaf.
»Villemoes«er væntanlegur á inorgun.
Peir, sem eiga eftir að tá
Áluminmin:
Katla, potta, könnur og kastar-
holur til rafsuðu, skulu ^thuga,
að frá í dag til 10. þ. m.
gefum við
30°|o afslátt
á öllum slíkum vörum.
Eiríkur Kristjánsson.
Kartöflur
á kr. 11,00 pokinn selur verzlun
Sveins Sigurjónssonar.
Islenzka smjörlíkið
á kr. 1,25 l/s kg. nýkomið í
verzlun Sveins Sigurjónssonar,
PERSIL
fæst í
HAMBORG.
Rúgmjöl
á kr. 38,00 100 kg.
fæst í verzlun
Sve/ns Sigurj'ónssonar.
Drengja og unglinga
F-0-T
eru seld með afslætti í
H AMBORG
Epli, Appelsínur, Vínber,
Fíkjur, og Döðlur
nýkomið í verzlun
Sveins Sigurjónssonar.
í heildsölu
hefi eg fyrirliggjandi 1. fl. sóla-
leður, bæði hreinskorið og í
heilum húðumJi Verðið afarlágt.
Þeir, sem þurfa að nota þessa
vöru, ættu að tala við mig áður
þeir festa kaup annarstaðar.
Pantanir utan af Iandi afgreiddar
gegn póstkröfu.
M. H. Lyngdal.
Niðursoðnir ávextir
hvergi betri og ódýrari en í
Q e y s i r .
| Rafljósaperurnar
HELIOS
eru notaðar í öllum opin- :
berum byggingum í Dan-
mörku.