Íslendingur


Íslendingur - 31.07.1925, Qupperneq 3

Íslendingur - 31.07.1925, Qupperneq 3
ÍSLENDINGUR 3 Innílegt þakklæti vottum við öllum þeim, er á einn eða annau hátt sýndu okkur samúð og hlut- tekningu við andlát og jarðarför Hjartar sál. Guðmundssonar. Akureyri 31. júlí 1925. Aðstandendurnir. Or heimahögum. Sítdveiðin enn þá mjög stopul. Alls saltað á öllum veiðistöðvum til siðustu vikuloka 36,698 tunnur, en til saina tíma í fyrra 41,468 tunnur. Sóknarpresturinn, séra Geir Sæmunds- son, er kominn heim úr sumarfríi sinu. Sig. S. Skagfeldt syngur annað kvöld í Samkomuhúsinu. Er þetta kveðjusöng- ur Skagfeldts, því hann er á förum til útlanda. Syngur hann að þessu sinni mestmegnis íslenzk lög og kostar að- gangurinn að söngnum aðeins eina krónu í petta skiftið. Söngurinn byrjar kl. 9 um kvöldið. Adam Poulsen, leikhússtjóri við úiileik- húsið í Kaupmannahöfn, hafði ákveðið, að koma í upplestrarferð hingað norður fyrir land í sumar. Ætlaði hann um Ieið að leika aðalhlutverkið í hinum hugð- næma gamla leik „Ambrosius", sem Leik- félag Akureyrar var byrjað á að æfa. En vegna ófyrirsjáanlegra atvika verður ekkert úr þvi, að leikhússtjórinn komi. Er það mjög leitt, þvi að margir hugs- uðu gott til komu hans. Sigfús Blöndahl, aðalkonsúll Þjóðverja, og frú hans komu hingað með „Goða- foss“ síðast. Fóru þau ásamt bróður konsúlsins, Sighv. Blöndahl, er komið hafði landveg að sunnan, austur til Detti- foss og Ásbyrgis og komu úr þvi ferða- lagi á sunnudagimi. Frúin héll suður með „ísland", cn þeir bræður héldu suð- ur landveg á miðvikudaginn. Stefán Thorarensen lyfsali og frú hans eru gestkomandi hér i bænuin. Augnlœknirinn, Helgi Skúlason, dvelur hér í bænum og tekur á nióti sjúklingum til 6. næsta mánaður. Bió. Sú breyting verður nú á sýning- um í Bíó, að tvö „prógröm" verða hér eftir sýnd á viku, og sýningakvöldin 4, í stað 3. Verður hver mynd aðeins sýnd tvisvar. Ný mynd Iaugardagskvöld og saina mynd aftur sunnudagskvöld, og svo ný mynd aftur miðvikudagskvöld og sama mynd fimtudagskvöld. Fimtudagskvöldin eru þannig nýju sýningakvöldin. Kaffibrensla Reykjavikur býður bæjar- búum upp á kaffidrykkju í bæjarstjórnar- salnum í dag, frá kl. 3—7 og 8—11 e. h. Er boðið gert til þess, að sanna gæði kaffibætisins „Sóley“. Heyskúffa Isfelds. Um nokkur undan- farin ár hefir ísfeld Guðmundsson á Galla- læk verið að vinna að uppfyndingu og smíði á heyskúffu, en svo er verkfæri kallað, sem sett er í samband vfð sláttu- vél og rakar heyinu jafnóðum og það Iosnar. Nú þykir svo frá verkfærinu gengið, að það sé orðið fullkomið og vinni verk sitt vel, eins og dómur þeirra manna sýnir, er Búnaðarfél. íslands kvaddi til að dæma um heyskúffuna: „í dag höfum við undirritaðir athugað heyskúffu ísfelds Guðmundssonar og séð hana notaða. Virðist okkur heyskúffan vel nothæf, með lítilsháttar aðgerðum. Fjaðrir þær, sem hrifan gengur á, toldu illa á réttum stað, vegna þess að búið er að breyta staðnum, án þess nægilega væri umbúið. Með þvi að laga þetta, og það ætti að vera auðvelt, getum við ekki annað séð en að skúffan sé vel nothæf. Til þess að losa heyið úr skúffunni þarf að stöðva hestana, en það er lítil töf og ætti ekki að vera til skaða, þar sem hestarnir þurfa að kasta mæðinni við og við hvort sem er. Teljum við áhald þetta mjög þarft og þess vert, að verðlaun séu veitt fyrir uppfundingu þessa. p. t. Steinsstöðum 19. júli 1925. Bernliarð Stefánsson. Brynjólfur Sveinss. Friðbj. Björnsson." Reglugerð um sölu áfengis til lyfja. Enn er komin út ný reglugerð um þefta efni. Er hún sett með ráði land- læknis og staðfest af Stjórnarráðinu. Meðal ákvæða er þetta: Læknar sem lyfsölurétt hafa skulu fá löggiltar áfengistegundir gegn sund- urliðaöri kaupbeiðni. Smáskamfalæknar geta og fengið 3 lítra af spiritus á ári. Lyfsalar og læknar mega ekki selja spiritus, hvorki blandaðan öðrum efn- um né óblandaðan til neins annzrs en lækninga, sjúkdómsrannsókna og ann- ara læknisvísinda, svo og til iðnþarfa. Er læknum stranglega bannað að af- henda eða ávisa áfengi í þeim tilgangi að það verði öðruvísi notað. Ekkeit áfengi má láta út úr lyfjabúð nema eftir lyfseðli eða löglegri beiðni. inú verður það uppvíst að einhver önnur áfeng |yf en koniak, spiritus eða vín, eru höfð til neyzlu og má þá ákveða að sama regla skuli um þau gilda og taka fram hve miklu megi ávísaísenn. í lyfjabúðinni skulu vera tvær bæk- ur: Vinnustofubók, er sýnir öll lyf sem gerð eru og áfengi er í og hversu mikið fer í þau af spiritus; og Eyðslu- bók þar sem mánaðarlega er í ritað hve mikið hefir selst af vínum og öðru áfengi. Fylgja henni allir áfeng- islyfseðlar. Læknar út um land þurfa ekki að hafa annað en eyðslubók. Áfengislyfseðlar skulu út gefnir á sérstök eyðublöð og má aldrei ávísa meru í einu en 210 gr. af spiritus, '/2 fl. af koníakki eða 1 fl. af víni, og eigi sama viðtakanda aftur fyr en eítir 3 nætur. He:milt er þó að ávísa meiru handa skipum, eða ef sjúklingur er langt að og læknir þekkir hann að því, að haun muni ekki nota áfengið til nautnar. Heilbrigðisstjórnin ákveður árlega hve mikið áfengi af hverri tegund hver lyfjabúð geti fengið mest og hvað læknar út. um land geti fengið mest á ári. QO Vín nauðsynlegt tll lækninga. Læknafélag Bandaríkjanna" liélt ný- verið ársþing sitt í Atlant c Gty, N. J. Gerði þingið m. a. þá yfirlýsingu, að áfengi væri nauðsynlegt til lækninga við ýmsum sjúkdómum, og samþykti áskorun til þings og stjórnar að breyta bannlögunum þannig, að læknum veit- ist heimild lil þess að gefa út lyfseðla uppá áfengi eftir því sem þeim þurfa þykir, í stað þess að nú hafa þeir að- eins heimild til ■'a potls af vínanda með 10 daga millibili. ©<§> Gengi peninga hjá bönkum í dag. Sterlingspund . . kr. 26,25 Dollar .... — 5,42 Svensk króna . . — 145,26 Norsk króna . . — 99,94 Dönsk króna . . — 123,53 Fyrirliggjðndi: Fiskábreiður (præsenninger) Fiskumbúðastrigi (hessian) Bindigarn Saumgarn. Kavl Nikulásson. Manntalsþing fyrir Akureyrarkaupstað verður sett og haldið í bæjarstjórnarsalnum í Samkomuhúsinu föstudag- inn 7. ágúst kl. 1 e. h. Bæjarfógetinn. B æ j a r b ú a r! Til þess að sanna, að íslenzki kaffibætirinn »Sóley« sé eins góður og bezti útlendur kaffibætir, bjóðum við yður til kaffi- drykkju í bæjarstjórnarsal Samkomuhússins föstudaginn 31. þ. m. (í dag). Kaffi verður veitt frá kl. 3—7 og 8—11 e. m. Óskað er eftir, að sem flestir komi til kaffidrykkjunnar. pt. Akureyri 29. júlí 1925 f. h. Kaffibrenslu Reykjavíkur Jón Bjarnar s o n . Ma i < ( i Munið, að ,,B U I C K • 6 er skemtilegasti og bezti bíllinn á Akureyri. Gísli Árnason, bílstjóri. Sími ,80 (hjá M. H. Lyngdal). nýkomið í Strandgötu 2 3. T. t. Consum kr. 5,00 kg. Hushold- nings kr. 4,00 kg. Ergo kr. 1,75 pk. 20 tegundir átsúkkulaði frá 0,18 stk. O ...III............... 1 Karlmannanærfst í f þunn, f nýkomin Brauns Verzlun. i W . % ..................... í verksmiðjur og verkstæði »Kronos« Titanhvítan heldur sér hreinni og hvitri í mörg ár. „Dekkar“ vel, létt i notkun. Umboðsmenn: Árni Jónsson, Reykjavík (Suöur- og Vesturland). Bræðumir Espholin, Akureyri (Noröut- og Austurland). .......................... J Smekkbuxur í § (Overalls) | | nýkomnar | f Brauns Verzlun. f <§>,"'ilHii."........... Auglýsing. Tapast hefir grár hestur, nýafrakað- ur. Mark: Sneiðrifað fr. hangfj. fr. hægra, hálftaf fr. vinstra. Finnandi er beðinn að koma honum í Lundargötu 2. Ólafur Guðmundsson. Góðar handsápur eiga að vera mjúkar, hafa þægilegan ilm og fara vel með húðina. — Alla þessa kosta hafa Hreins handsápur og eru auk þess íslenzkar,— Gjalddagi íslendings var 15. juni.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.