Íslendingur - 21.08.1925, Qupperneq 1
Talsími 105.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson,
Strandgata 29.
XI. árgarigur.
Akureyri, 21. ágúst 1925
36. tölubl.
AKUREYRAR BIO
Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9:
Gættu þín fyrir kvenfólki,
5 þátta kvikmynd, amerísk, sprenghlægileg. Aðalhlutverkið leikur
EUGENE O’ BRIEN.
Miðvikudags- og fimtudagskvöld kl. 9:
Fjárglæframaðurinn
frá Kaliforníu. |
7 þátta kvikmynd, leikin af ýmsum helztu leikurum Bandaríkjanna.
Afarspennandi og áhrifamikil mynd.
Leppmenska.
ísl. hefir oftar en einu sinni gert
leppmenskuna að umræðuefni og
bent á þá vanvirðu, sem ísl. ríkis-
borgarar gerðu sér, með því að
selja útlendingum nöfn sín og þegn-
rétt á 1eigu fyrir auðvirðilega þókn-
un, og þann skaða og ranglæti, seni
þeir gerðu hinum raunverulegu ís-
lenzku útgerðarmönnum með þessu.
Löggjafarvaldið hefir nú reynt að
grípa í taumana gegn þessari óhæfu
með lögunum um skrásetning skipa,
er mæla svo fyrir, að engir erlendir
menn eða félög megi skrá skip sín
hér á Iandi, en naumast munu þau
ákvæði einhlít til þess að fyrirbyggja
leppmenskuna.
Eitthvert ósvífnasta dæmið upp á
leppmensku íslendinga, sem ísl. hefir
séð, er auglýsing, sem stóð 28. jan.
síðastl. í norska blaðinu »Stavanger
Aftenblad«. Hljóðar hún þannig í
ísl. þýðingu:
AUÐÆFI ÍSLANDS.
Fleiri hundruð þúsund krónur
geta menn árlega grætt á fiski- og
síldveiði við ísland. íslendingur,
sem nú er staddur í Noregi, er í
þeim erindum að komast að sam-
vinnu við einn eða fleiri Norðmenn,
sem hafa fiskiskipastól eða fjármagn
með höndum. Stórmiki! hlunnindi
eru boðin á móti. Skrifið strax.
Bréf merkt »Samvinna 6615«
sendist á afgreiðslu blaðsins.
Landi þessi hefir vissulega gert
þjóðinni lítinn sóma með auglýs-
ingunni, sem vitanlega er ekkert
ahnað en sölutilboð á þegnrétti
hans. En því miður munu þeir
ekki svo fáir, sem leikið hafa sama
leikinn' þó ekki hafi veiið gert jafn
berlega.
Úr annari átt stafar okkur hætta
af leppmensku og jafnvel öllu al-
varlegri og það er frá Dönum og
dönskum ríkisborgurum. Danir
fengu illu heilli með sambandslög-
unum jafnrétti við íslendinga til
veiða í landhelgi og hafa hér öll hin
sömu rjeftindi og íslenzkir ríkis-
borgarar. Sömu réttindi hafa íslend-
ingar í Danmörku, en það er að-
gætandi, að dönsku fiskimiðin eru
oss íslendingum einkisvirði, þar sem
fiskimiðin íslenzku og landhelgin
eru Dönum mikils virði, ef þeir
kynnu að færa sér þau hlunnindi í
nyt.
En nú eru Danir engir verulegir
fiskimenn, eins og allir vita, og því
manna ólíklegastir til þess að reka
hér fisk- eða síldveiðar, svo að
nokkru skifti. En þeir eru fyllilega
meðvitandi þeirra réttinda, sem þeir
hafa hér uppi, og — að þessi rélt-
indi má lána fyrir peninga.
Þess vegna vekur það jafnan
slæman grun um leppmensku, þeg-
ar Danir eða Færeyingar koma
hingað upp með svo eða svo mörg
norsk, sænsk eða ensk leiguskip og
aðeins með naumindum geta skrið-
ið innfyrir vébönd laganna um
mannahald og önnur ákvæði. Má
vera að grunurinn sé í sumum til-
fellum ástæðulaus, en í sumum til-
fellum er hann það vissulega ekki,
þótt örðugt kunni að reynast að
færa sönnur á hann.
Hér á höfninni hafa t. d. legið
nokkra undanfarna daga 3 kolaveið-
arar frá Esbjerg. Skipshafnirnar á
skipunum eru mestmegnis enskar,
aðeins eitt þeirra hefir getað upp-
fylt fyrirmæli laganna um manna-
hald. Eru nú skip þessi í raun og
veru dönsk eða eru þau ensk og
leppuð?
Er það ekki afsakanlegt undir
kn'ngumstæðunum að 'gruna hið
síðara?
Islenzka útgerðin hefir við nóg
að stríða, þar sem íslenzku lepparnir
eru, þó að hún einnig hafi ekki
danska leppa að stríða við. Það er
löggjafarvaldsins að verrida hana
fyrir hvorttveggja leppunum. Það
hefir nú verið reynt að uppræta þá
íslenzku, en fastara má að herða, ef
duga skal. Gagnvart danskri lepp-
mensku er að eins hægt eitt að
gera, sem dugað getur, og það er,
að fá ákvæðið burt úr sambands-
lögunum, sem veitir dönskum ríkis-
borgurum landhelgisréttinn hér, —
inótréttindi okkar hjá þeim eru
einkisvirði og væru þá að sjálf-
sögðu afnumin Iíka.
Þessari kröfu þarf að fylgja fast
og eindregið fram.
B I ö ð i n .
i.
Einn helzti liðurinn í hinni póli-
tfsku fræðslu,(!) er Jónas frá Hriflu
veitti mönnum í hinum nýafstaðna
leiðangri sínum um landið, var um
íhaldsblöðin. Þau áttu að vera gef-
in út af kaupmönnum þessa lands
og útgerðarmönnum, með stuðn-
ingi nokkra dánskra fésýslumanna,
og markmiðið með útgáfunni væri
að berjast fyrir hagsmunum þessara
stétta gegn hagsmunum almennings.
Ritstjórarnir við blöðin væru hug-
sjónalausir og áhugalausir leiguþræl-
ar, illa ritfærir og heimskir. Mest
gerði þó Hrifluherrann úr dönsku
yfirráðunum yfir blöðunum, sem
hann með skarpskygni sinni sá ber-
lega, úr því að danskur kaupmaður,
sem rekur stóra verzlun hérá landi,
hafði fyrir nokkrum árum styrkt
blaðafyrirtæki í Reykjavík með 2000
krónum. Þær krónurnar áítu svo
sem að nægja til þess að tryggja
honum, þessum danska kaupmanni,
yfirráðin yfir blöðunum um aldur
og æfi. Þetta tugði svo Hrifluherr-
ann upp aftur og aftur, á hverjum
einasta fundi og fipaðist hvergi.
Ritstjóri Tímans, sem einnig er
að bjástra við pólitísk fundarhöld
um líkt leyti og Jónas og honum
til aðstoðar á riokkrum fundum,
hraðar sér heim til Reykjavíkur og
skrifar langa grein í Tímann um
íhaldsblöðin og endurtekurfræðslu(l)
Hrifluherrans, og er Tíminn berst
hingað norður, trítlar Dagur á eftir
sömu rógburðarslóðina.
En því er þessi skyndilega og
illvíga herferð alt í einu hafinn á
íhaldsblöðin ?
Orsökin er auðsæ. Hrifluherrann
og Tímaritstjórinn hafa fundið það
strax í byrjun fundarhaldanna, að
áhrif íhaldsblaðanna voru víðtæk og
fóru sívaxandi, en álirif þeirra eig-
in .blaða þverrandi. Augu manna
höfðu opnast fyrir ósannindaburði
þeirra og blekkingum, svo að jafn-
vel »pólitískir samvinnumenn« voru
orðnir ótryggir. Hér varð^ð grípa
í taumana, því að annars væri hinni
pólitísku höll Hriflunga hætt við
falli og höfðingjum hennar við giöt-
un. — Níðróginum var því hleypt
af stokkunum í þeirri von, að ein-
hverju af honum yrði trúað.
II.
Tíminn og Dagur þykjast vera
bændablöð og lifa á styrk frá Sam-
bandi ísl. samvinnufélaga. íhalds-
blöðin, segja fyrnefnd blöð, séu
studd og gefin út af kaupmönnum
og útgerðarmönnum. Er það nokk-
uð lakara, þótt satt væri? Mega ekki
þessar stéttir veita þeim blöðum
stuðning, sem verja þær fyrir sífeld-
um árásum og níði Alþýðuflokks-
og Framsóknarblaðanna? En íhalds-
blöðin yeita bændastéttinni ekki síð-
ur að málum en hinum stéttunum.
Þau eru ekki og hafa ekki verið
stéttablöð, heldur landsmála- eða
stjórnmálablöð, sem líta á málin frá
flokkssjónarmiði, en ekki stétta.
Nú hefir íhaldsflokkurinn það á
sinni stefnuskrá, að styðja atvinnu-
vegi landsmanna með ráð og dáð;
hann vill frjálsa verzlun og telur
hana einu heppilegu og heilbrigðu
verzlunarleiðina. íhaldsblöðin fylgja
flokknum, af því að hann hefir
þessa stefnu, en ekki af því að flokk-
iirinn eigi blöðin.
Þess vegna er það næstum spaugi-
legt, að sjá Dag og aðra vera að
belgja sig út með það, að hinn og
þessi íhaldsflokksþingmaður hafi af-
neitað blöðunum — talið þau sér
óviðkomandi. Þessir þingmenn hafa
aðeins sagt sem satt var, að þeir
ættu ekkert í þessu eða hinu blað-
inu, og flokkurinn sem flokkur ekki
heldur. En þeir hafa bætt þvf við,
að ininsta kosti gerðu fjármálaráð-
herra og Björn Líndal það hér á
ieiðarþinginu, að þeir væru þakk-
látir fyrir þann stuðning, sem blöð-
in veittu flokknum, — þakldátari
heldur en ef það væri keyptur stuðn-
ingur, blöðin væru flokksins að
stefnu, þótt þau væru ekki. hans
eign.
Og hvar mun það viðgangast, að
stjórnmálaflokkar erlendis eigi svo
eða svo nrörg blöð. Venjulega eiga
flokkarnir aðeins eitt blað, sem kall-
að er »hið opinbera málgagn flokks-
ins«, hin ílokksblöðin teljast til hans
af því að þau eiga steínusamleið
með honum. — Hér hjá íhaldinu
er Jdví eins háttað: Vörður er hið
opinbera málgagn flokksins, sem
miðstjórn hans gefur út, en hin
blöðin fylgja lionum af skoðana-
skyldleik. Alþýðublaðið er hið op-
inbera málgagn Alþýðuflokksins,
en Skutull og Verkamaðurinn fylgja
honum að málum, en eru ekki gefin
út af honum. Þar hagar því eins
til og hjá íhaldinu.
Vegna þess, að Björn Líndai lýsti
því yíir hér á fundi, að hann ætti
ekki einn eyri í nokkru blaði, og
sá blaðstuðningur, sem hann hefði
fengið, væri veittur af fúsum og
frjálsum vilja, telur Dagur, að hann
hafi sýnt íslending lítilsvirðingu og
afneitað honum. B. L. á ekkert í
ísl. og hefir aldrei átt, svo að um
enga afneitun gat verið að ræða.
Og einkennilegur er sá »mórall«
hjá Degi, að telja það bezt við eig-
andi, að þau blöð beri lof á mann
og verji mann, sem maður á hlut í
sjálfur. Keyptur stuðningur er betri
en frjáls stuðningur, er kenning
blaðsins, og hefir það þar að lík-
indum sig og Tímann fyrir hug-
skotssjónum.
III.
Dómar þeirra Hrifluherrans og
Framsóknarritstjóranna um rilstjóra
Ihaldsins eru á einn veg: Þeir séu
leiguþrælar og rilskussar, sein enga