Íslendingur


Íslendingur - 07.10.1927, Síða 2

Íslendingur - 07.10.1927, Síða 2
2 fSLENDINQUR OlmT Pakjárn Fy ri rl iggj an d i: Pakpappi Paksaumur Innanhússpappi Málning. og voru svo lög, í þessu efni, samin á þingi 1909, en þó má lelja, að bannlögin hafi fyrst komið til veru- legra framkvæmda 1. jant 1915. — Þá átti landið að vera þurausið, og hverjum dropa, sem þá fanst í land- inu, helt niður. — Bannlögin hafa því verið í gildi nú í 12 ár, og ættu því afleiðingar þeirra nokkurnveginn að vera orðnar lýðum Ijósar, og reynslutími þeirra orðinn nógu langur, til þess að sýna réttmæti þeirra. — Á þessu árabili hefir þeim oft og þráfaldlega verið breytt, bæði að efni og formi. — En reynslan hefir sýnt það, að afleiðingarnar hafa orðið hinar herfilegustu. — Bannlögin hafa reynst siðspillandi fyrir þjóðina, sér- staklega hina uppvaxandi kynslóð, og dýr f framkvæmdinni, með því að svifta ríkissjóð áður vissum tekjum. — Nú er svo komið, að hartnær helm- ingur allra Islendinga eru orðnir lög- brjótar, þar á meðal valdsmenn lands- ins, æðri sem lægri, alþingismenn, ritstjórar, prestar, bændur og sjómenn, og yfir höfuð menn, í öllum stéttum. — Virðingarleysi fyrir lögunum fer altaf vaxandi. — Opinber drykkju- skapur í aðalbæjunum, við flest tæki- færi, svo sem samkomur, skipakomur og almenna mannfundi, er orðinn eins mikill nú, eins og á drykkjuskapar- öldinni, áður en bindindisstarfsemi hófst hér á landi. — Yfirvöld lands- ins hafa flest gefist upp við að fram- fylgja lögunum. Telja það ófram- kvæmanlegt lengur; enda er hinn ólöglegi innflutningur áfengis orðinn svo mikill, að ómögulegt er að gera sér í hugarlund, hve miklu hann nemur. Vínbann er óframkvæmanlegt á ís- landi. — Strandlengjan, með öllum sínum víkum og vogum, er svo stór að tiltölu við fólksfjölda landsins, að ógerningur er að hafa svo viðtæka tollgæzlu, sem mundi nægja til þess, að framkvæma nógu stranga gæzlu, á öllum þeim stöðum, sem ti! greina gætu komið í þessu efni. — Annað er það, að samgangur skipa hér frá landi við útlend skip, er meiri en víð- ast annarstaðar; það gera fiskimiðin hér við land. — Fyrir suður- og vesturströndinni, og jafnvel austantil líka, er á fiskveiðunum daglegur sam- gangur milli íslenzkra og útlendra tog- ara, svo að segja næstum allan ársins hring. — Öll þessi útlendu skip eru frá vínfrjálsum löndum, og hafa öll, að meiru eða minna leyta, vín innan- borðs. — Hið sama má segja um sfldveiðitímann hér fyrir Norðurlandi, að bæði innan og utan við landhelgis- línuna, hafa íslenzk skip stöðugan að- gang að víni í útlendum skipum. — Tollgæzlan í þessum tilfelium, þar sem skoða ætti hvert skip, sem að landi kæmi frá veiðum, eða í hvert sinn, er það brygði sér úr höfn, má heita gersamlega óframkvæmanleg. — Bað er óhætt að fullyrða, að fá lönd eru, frá náttúrunnar hendi, eins opin fyrir ólöglegum innflutningi, eins og okkar land, vegna víðáttu og fram- kvæmdaerfiðleika, til að framfylgja ör- uggu, effektivu banni. — Hin tólf ára reynsla bannsins hér á landi, hefir því fyllilega sýnt það, að öruggu banni verður eigi komið við hér. — Hefir reynsla Norðmanna í þessu efr:i, einnig sýnt það mjög Ijóslega, þvílíkt vandræðamál þetta var orðið þeim.— Síðari árin höfðu Norðmenn notað allan hinn léttari hluta herskipaflota síns, til þess að verjast vínsmyglurun- um, en alt reyndist árangurslaust, og smyglararnir úrðu þeim altaf slóttugri, og stöðugt óx innflutningurinn. — F*ó landgæzlan kostaði Norðmenn þannig fleiri miljónir síðustu árin, varð þessi síðasta sókn þeirra samt sem áður árangurslaus. — Pegar framkvæmd bannsins fór þannig í Noregi, er ofurskiljanlegt, að hún gef- ist heldur eigi vel hér, þar sem hvorki er til að dreyfa tollgæzluskipum eða herskipum, sem gætu gætt strandlengj- unnar að nokkru gagni. (Meira). B. Á. ©<§> „Biðlar“ -? Tíminn, Dagur og Verkarnaðurinn létu sér ant uin það á n.liðnu vori og sumri, að hafa óvirðuleg orð uni keppinaut Ing- ólfs i Fjósatungn hér í bingeyjarsýslu um þingsætið. Enginn undrast það, að mál- gögn Jónasanna gerðust andrömm út af þvi framboði, en hitt var meiri furða um blað bræðranna. Tíminn hafði þau litilsigldu orð um framboð Sigurjóns Friðjónssonar, að Magnús ráðherra hefði leyft honum að kalla sig jafnaðarmann — eða á þá leið féllu froðuyrðin. En Dagur lét svo um- mælt — að sögn — að S. F. eða íhaidið hefði „biðlað til jafnaðarmanna í S.-Þing- eyjarsýslu". Brynleifur vor mun hafa átti þessi skáldlegu orð og munu þau eiga að vera hnjóðsyrði í garð Litlulauga bóndans. En torskilin er sú snakilska, þar sem i hlut á sá maður, sem biðlaði til jafnaðar- manna í Skagafirði. Þau andsvör tjóa eigi i þessu máli, að Framsóknarmenn og jafnaðarmenrf séu skyldari inn við völubeinið en jafnaðar- menn og íhaldsmenn. Sjálfur J. J., sem nú er ráðherra að nafnbót, hefir oftar en einu sinni sagt það í blaði sínu, að Fram- sókn muni berjast með íhaldinu gegn höfuðmáluin jafnaðarmanna, t. d. þjóðnýt- ingu, ef í harðbakka slægi. Af þvi að Sigurjón bróðir minn var hér i boði með stuðningi mínum og svo vegna þess, að hann mun hafa verið vant við kotninn á þessu sumri að standa í hólm- gönguin vegpa heimilisvanda — veikinda — vil eg minnast á framboð hans, þó að þessir hnútumenn, sém eg nefndi, séu ekki svara verðir. Það er satt, að Sigurjón hafði stuðn- ing jafnaðarmanna hér i sýslu og íhalds- manna. Því var svo háttað, að hann var samþykkur báöuin þessum flokkum i gengrsmálinu. í fyrsta lagi það. í öðru lagi var hann samþykkur stjórn- inni i járnbrautarmálinu. Stjórninni treysti hann betur, þeirri, sem kend er við Jón Þorl., til að fara með fjármál landsins en öðruin tilvonandi stjórnendum þessa rang- nefnda rikis. Jafnaðarmönnum varhann i verzlunar- málum svo nákominn, að hann var hlynt- ur ríkissölu á síld og jafnvel saltfiski. í þessum efnum eða greinuni var fólgin pólitisk trúarjátning Sigurjóns. Eg sé eigi, að hann sé óvirðingarverð- ur fyrir það, þó að hann teldi sumt rétt í stefnumálum jafnaðarmanna, og sumt i stefnumálum íhaldsins. Jafnvel traustir flokksmenn eru sífelt ósamþ. sumum skoðunum síns flokks. Þannig er M. J. Kristjánsson, ráðherra, gagnstæður félög- um sinum, hinum pólitisku, í gengismál- inu, sem Tr. Þórhallsson kallar „mál mál- anna“. Og sumir góðir íhaldsmenn eru ósamþ. göndu stjörninni í járnbrautar- itftlinu. Og er það mál að vísu stjórn- mál. Eg vil geta þess, að Sigurjón Frið- jónsson var svo óáleitinn á fundum í kjördæminu, og er svo gæfur annars- kostar, að hann hefði átt að vera óáreitt- ur i blöðunum, þó að hann biði sig frain til þingmensku. Og það orð gat hann sér á þingi meðal góðra manna, meðan hann sat þar, að hann mátti þangað aftur fara, fremur en sumir aðrir, sein þangað háfa átt afturkvæmt. Eg ætla, að samsýslungar hans hafi felt verð á hon- um, m. a. fyrir skoðanir lians á gengis- málinu. Þorri manna trúir því í einfeldni sinni, að Framsókn inuni „festa krón- una“ til hamingju skuidlegri alþýðu, og bæta þannig úr „afglöpum" gömlu stjórn- arinnar. Vér fáum nú að sjá, hvað nýja stjómin gerir i því máli og öðrum þeim, sem hún hefir hæst galað um. Ég ætla, að hún geri ekkert í gengismál- inu, annað en sú gamla gerði. G Fr. @© Símskeyti. (Frá Fréttastofu Islands.) Rvík 6. okt. 1927 Utlend: Frá London: Práðlaust viðtals- samband við Canada var opnað í gær. Frá Berlín: Nýir verzlunarsamn- ingar hafa tekist milli Persa og Rússa, er heimila innflutning fyrir 50 miljónir rúblur til Rússlands. Frá London: Samkomulag hefir náðst um hringmyndun á »kemi«- iðnaði Evrópu. Aðalþátttakendur »British Chemical Industries® og þýzku benzín-iðnaðarfélögin. Frá New York: Hvirfilbylur hefir valdið feikna tjóni í borginni St. Louis. Yfir 5000 hús skemdust eða hrundu, 86 menn fórust og yfir 1000 meiddust og um 25,000 urðu heimilislausir. Frá Moskva: Leon Trotzky hefir verið útilokaður frá 3. Internationale vegna tilrauna að mynda flokk utan um sjálfan sig. Miðsiöðvareldavélar fæ eg með »lsland«. Pær eru ódýr- ar og traustar, eins og önnur »Svendborg« eldfæri. Þeir sem ætla að fá sér miðstöðvarvélar í haust, ættu sjálfs síns vegna að >tala við mig, áður en þeir kaupa hjá öðrum. fón Stefánsson. Strandgötu 35. Akureyri. J----------—----------------1» Ifloniil iijá Ryei: Silkikjólar frá kr. 9,90, hvit iéreft frá 0,60 metr. afp., gardinur hv. og misl. frá 6,90 fagið, herra axla- bönd frá 1,00 parið, mjög falleg divanteppi frá 14,00, röndóttar karlm. buxur 9,75, rúmstæði 22,00, grammofónar frá 10,50, kaffiflösk- ur 1,65, nýmóðins strástólar frá 18,00, flibbar frá 0.40, ágætar velr- arkvenbuxur 2,75, barnabuxur frá 1,25, fyrirtáks sængurveratau 1,00 mt., smekksvuntur frá 2,85, afar fallegir dömunáttkjólar frá 4,90, hv. kvenskyrtur á 3,25, ágæt tvíbreíð madressuboldang á 2,60 met., fal- legt hv. gardínutau á 1,00 met., nýmóðins alullar golftreyjur á 7,50, drg. peysur frá 3,00, nýmóðins karlru. pullovers á 6,25, afar stórt úrval af altvibreiðuin kápu- og ulstertaum frá 6,90 met., fatatau altvíbreið frá 6,00 mek, bindi frá 0,75, ferðakoffort frá 6,75, karlm. h skinnhúfur á 6,90, loðskinnshúfur H á 25,00, stóra ullarlrefla á 1,50, morgunkjóla á 3.50. 1 Baldvin Ryel. \___________________________r Innlend: Dómsmálaráðherra hefir fyrirskip- að sakamálsratinsókn út af sjóðþurð- inni hjá Brunabótafélagi íslands, og hefir dr. jur. Björn Þórðarson verið skipaður setudómari í málinu. — Ojaldkerinn hefir verið settur í gæzluvarðhald. Aflasala togaranna góð undan- farið. Seldi »Ólat'ur« afla sinn í Englandi í gær, 991 »kit«, fytir 2258 sterlingspund, »Maí« í fyrradag, 836 »kit«, fyrir. 1846 sterlingspund og »Oyllir« 1068 »kit« fyrir 2482 stpd. Ofsarok af suðaustri í fyrradag. Gerði talsverðar skemdir. Sænsk-íslenzka frystihúsið í Rvík mun verða bygt í vetur. 5 Svíar komu hingað í fyrradag. 2 þeirra eru verkfræðingar, sem umsjón eiga að hafa með verkinu. Smásöluverð í Reykjavík í sept- embermánuði hefir verið 7°/° la;gra en í sept. í fyrra. Á síðastliðnu ári frá sept. í fyrra, hefir nálægt þre- falt meiri verðlækkun orðið á inn- lendum vörum en útlendum, eða 12°/o á móti 4°/o, — en miðað við stiíðshækkunina hefir verðhækkun innlendra vara verið rneiri en út- lendra. ao n Til Kristjúns Kristjdnssonar söngvara. Þökk fyrir sönginn, söngvin kœr, sálu mína, er endurncerir; fleiri munu fjœr sem nær fá þinn hæl við sínar tœr, þegar harpan hljómþýð slœr hup tninn burt af jörðu fœrir. Þökk fyrir sönginn, söngvin kœr, sálu mína, er endurnœrir. M. E. Saltfiskur. Er kaupandi að alflöttum stór- og smá-saltfiski, bæði metið og ómetið.1 Axel Kristjáhsson.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.