Íslendingur


Íslendingur - 22.06.1928, Page 1

Íslendingur - 22.06.1928, Page 1
Talsími 105. Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson. Strandgata 29. XIV. árgangur. Carl F. Schiðtb, kaupmaður. Hann andaðist í Hrísey íöstu- daginn 15. þ. m. eftir langvarandi vanheilsu. Carl Frederik Schiöth var fæddur hjer á Akureyri 20. mars 1873. Voru foreldrar hans heiðurshjónin Henrik bakarameistari og Anna Schiöth. — Strax eftir fermingu fór Carl að fást við verslunarstörf og helgaði þeim upp frá því nær eingöngu æfistarf sitt. Um tvítugt fór hann til Eski- fjarðar og starfaði þar við verslun. um tíma og "byrjaði l þar 25 ára gamall verslun fyrir eigin reikning. — Skömmu eftir aldamótin fluttist hann aftur til Akureyrar og rak hjer verslun um'aldarfjórðungsskeið. — í fyrra sumar fluttist hann til Hrís- eyjar- og rak þar greiðasölu og verslun. Carl Schiöth var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Helga/'dóttir Frið- bjarnar Steinssonar bóksala og dannebrogsmanns á Akureyri. Misti hann hana haustið 1911 eftir 13 ára sambúð. Eignuðust þau 3 börn, sem öll eru á lífi. — Haustið 1914 giftist hann aftur eftirlifandi ekkju sinni, Jónínu Valdemarsdóttur frá Kolgrímastöðum í Eyjafirði, og eign- uðust þau tvö börn, dreng og stúlku, er bæði lifa. Eftir Carl Schiöth liggja engin stórvirki, er halda nafni hans á lofti, en þó mun minning hans eiga ævarandi bústað í hjörtum og huga vina hans og kunningja frá þeim árum, er hann var í blóma aldurs síns og manndómsárum. Var hann þá Iífið og sálin í fjelagslífi þessa bæjar og hrókur alls fagnaðar. Heimili hans va» á þeim árum fyr- irmynd að risnu og höfðingskap. Hugljúfi var hann hvers manns og mátti ekkert aumt sjá. Hjelst svo til þess sfðasta. Síðustu árin urðu ýmsir erfiðleikar á vegi hans; eign- ir hans gengu' til þurðar, heilsan bilaði, sporin urðu þung og erfið, lundin ljetta og káta varð beiskju- blandin, — en samt var alt af þar að Hitta sama gæða drenginn. Og hans ber að minnast með hlýhug og þakklæti. ■■ Akureyri, 22. jání 1928. 26. tölubl. Síldarútvegur. Síldareinkasala. Enginn atvinnurekstur hjer á landi hefir tekið jafn miklum framförum á ýmsa lund, eins og síldveiðarnar gerðu frá síðustu aldamótum til ársloka 1916. Fyrir og um aldamótin var síldin eingöngu veidd á fjörðum inni í kastnætur og lagnet, en skömmu eftir aldamótin fóru áhugasamir menn að elta hana út á hafið og veiða hana þar í reknet og herpi- nætur í stað þess að bíða eftir því, að hún kæmi inn á firðina, sem þráfaldlega brást. Árið 1903 er í fyrsta skifti getið um það í fiskiskýrslum, að síld hafi veiðst á þilskip hjer við land. Voru það rúmlega 1000 tunnur. Árið 1905 er síldaraflinn á þilskip orðinn hærri en aflinn, sem fjekst á báta á fjörðum inni, og eftir það má heita að nóta- og netaveiði á fjörðum inni sje hverfandi lítil. Samkvæmt íslensku verslunar- skýrslunum var síldarútflutningur- inn frá aldamótum tij ársloka 1916 sem hjer segir: 1901 4,208,000 kg. virt á 1902 4,320,000 — — - 1903 3,594,000 — , — - 1904 6,280,000 - — - 1905 9,117,000 - - 1906 18,231,000 — — - 1907 19,336,000 — — - 1908 15,866,000 — — - 1909 16,694,000 — — - 1910 13,474,000 — — - 1911 10,488,000 - — - 1912 11,981,000 - — - 1913 18,517,900 — * - 1914 23,576,000 - — - 1915 34,917,000 - — - 1916 31,657,000 - — - kr. 739,000 — 835,000 — 444,000 — 1,104,000 — 1,634,000 — 3,079,000 — 3,061,000 — 5,259,000 — 1,999,000 — 1,608,000 — 1,294,000 — 1,897,000 — 2,532,000 - 3,974,000 - 12,675,000 - 14,370,000 Á þessu tímabili voru bygðar bryggjur, síldarplön og síldarolíu- verksmiðjur fyrir miljónir kfóna, þar sem engar bryggjur höfðu áður verið. Á þessu tírnabili var byrjað að nota nýtt veiðarfæri — herpinótina — til síldveiðana, sem var upp- gripameira og á margan hátt hent- ugra veiðarfæri en þau, sem áður höfðu veriö notuð. Á þessu tíma- bili var líka byrjað að kryddsalta síldina, og hefir sú verkunaraðferð stöðugt farið í vöxt síðan og yfir- leitt borið ágætan árangur. Fyrstu árin voru það útlendingar, einkum Norðmenn, sem áttu veiði- tækin og vergögnin til síldveiðanna, og þær komu ekki landsmönnum að eins nriklum notum og æskilegt var. Töluvert af fje varð þó eftir í landinu af þessuin veiðum útlend- inga, bæði í verkalaunum, verslun og sköttum; en ýmsir framsýnir leiðtogar fslensku þjóðarinnar undu þessu illa og hvöttu landsmenn til þess, að Ieggja meiri rækt við síld- veiðarriar en verið hafði. Og þegar útflutningsgjaldið af síldinni var hækkað á árinu 1907, úr 20 aurum upp í 50 aura, var jafnframt ákveð- AKUREYRÁR BIO Laugardags- og sunnudagskvöld kl. S1/2** Sslienið. Áhrifamikil og listavel leikin kvikmynd í 7 þáttum. Aðalhlutverkið leikur: MILTON SILLS. ið, að 10°/o af útflutningsgjaldinu skyldi verja til eflingar íslenskra síldveiða. Pað er erfitt að gera sjer grein fyrir því, hvað mikið af afla þeim, sem að ofan greinir, var eign ís- lendinga og hvað erlendra manna, en líklega hafa útlendingar átt mik- inn meirihluta fyrstu árin, en lands- menn sífelt verið að vinna á. Samkvæmt skýrslu danska ræðis- mannsins í Stavanger frá 1916 tel- ur hann, að síldaraflinn við ísland hafi skiftst þannig árið 1916: Afli íslendinga 201,556 tunnur eða 50,6°/o — Norðmanna 152,651 — — 38,3— — Svía .... 31,054 — — 7,8— — Dana. ... 13,227 — — 3,3— Samtals er þessi afli nokkru hærri en íslensku skýrslurnar telja, og má gera ráð fyrir, að munurinn liggi í því, að Norðmenn hafi sjálfir verk- að nokkuð af aflanum um borð; það ekki komið hjer á land og því ekki ialið í skýrslum hjer, en aftur á móti í heimalandinu, þar sem afl- inn var lagður á land. Pað var mörgum gleðiefni að sjá framfarirnar, sem þessi atvinnurekst- ur tók á þessu tímabili, og sjerstak- lega þeim, er hvatt höfðu lands- menn til veiðanna. Pað voru ekki aðeins útgerðar- menn skipanna og áhöfn þeirra, sem fengu vinnuauka við síldveið- arnar, heldur fjöldi fólks í landi, bæði karlar og konur; trjesmiðir og járnsmiðir við bryggju- og húsa- smíði, beykirar við tunnusmíði, tunnugerð og löggun; stúlkur við kverkun, söltun og kryddun síldar; netagerðarmenn við aðgerð og upp- setningu veiðarfæra; kaupmenn og verslunarfjelög við aukna verslun. Flutningaþörfin jókst til og frá Iand- inu, og með henni aukin vinna fyrir innlend og erlend flutninga- skip, vátryggingarfjelög, hafnar- vinnumenn o. fl. o. fl. Alstaðar þar sem síldin var, komust fjármunir manna í örari umferð en áður, og það var fleira ai peningarnir, sem komst í örari hreyfingu, mennirnir urðu frjálslegri, fljótari í hreyfing- um og með meiri menningarbrag. Peir, sem ekki vildu dragast aftur úr í viðskiftunum, máttu ekki setja það fyrir sig að vaka á nótunum, ef með þurfti. Peir urðu að vera fljótir að hugsa og framkvæma. Árin 1915 og 1916 má telja sjer- stök góðæri og gróðaár fyrir út- gerðarmenn, síldarkaupmenn og verkafólk. Pað má fullyrða, að þessi tvö árin hafi enginn atvinnurekstur gefið annað eins af sjer sem síld- veiðarnar, enda voru menn þá ótrauðir að leggja í ýmiskonar fyr- irtæki, er miðuðu landinu og lands- mönnum til heilla á marga lund. En það varð ekki komist hjá því, að af þessu yrði lítilsháttar hávaði. Pað verður tæplega ausið svo var- lega úr hinum ómælilega djúpu auðsuppsprettum íslands, að ekki heyrist skrölt og skvamp við og við. Peir, sem elska værðina og sveitafriðinn svo mjög, að þeim finst Ijótt að sjá sjófugla keppast um æti, og hafa það ef til vill á tilfinn- ingunni, að skaparinn hafi ætlast til þess, að mennirnir mötuðu þá eins og ómálga börnin í vðggunni, eiga sennilega erfitt með að skilja það, að síldveiðar geti verið til gagns og blessunar landi og lýð, líkt og aðrar atvinnugreinir. Pótt margir væru ánægðir með aukningu síldveiðanna, var ánægj- an ekki óblandin fremur en vant er að vera. Til voru menn, er litu ■■■■■■ Nýja Bló ■■■■■■ Laugardagskvöldið kl. 8Va: GIFTUR SJ0 SINNUM Gamanleikur 1 8 þáltum. Aðalhlutverkin leika: BEN LYON og LOIS WILSON. Sprenghlægileg gamanmynd. Sunnudagskvöldið kl, 8*/*: í DAL DAUÐANS. Sjónleikur í 9 þáttum. Aðalhlutverkin leika: ROBERT FRAZER og 1 CLARA BOWO. Leikur þessi gerist á vestur- stiönd Norður-Ameríku á þeim límum, er frumbyggjar þar vest- ur frá áttu í mestum eijum við Indiána. Er íljettað inn í sögu þessa spennnndi ástaræfintýri milli hvítrar stúlku og Indíána- höfðingja. ■ ClBiSaaDIFaUHaiHBBBBHnHBBHI

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.