Íslendingur


Íslendingur - 12.07.1929, Page 3

Íslendingur - 12.07.1929, Page 3
ISLENDINQUR 3 Smurningsolfur (Sjerstakleg-a handa Tuxham-vjelum). fyrirliggjandi. Selj así með heildsöluverði Verslunin „PARÍS” Akureyri. (Sigv. E. S. Þorsteinsson). Sínm. „PARIS“. Símar: 36 — 196. Nýtt nautakjöt fæst á morgun í H.f. Carl Höepfners verslun. irrjetti fjell dómurinn þannig, að Gefjunni var dæmdur truflunarlaus afnotarjettur af ánni, og skaðabætur fyrir truflanir þær, er rekstur Gefj- unar hafði orðið fj’rir af völdum rafveitunnar. f’ennan dóm voru forráðamenn bæjarins óánægðir með, sem skiljanlegt er, þar sem hanh gjörði að engu neitun þeirra á rjett- indum fjelagsins, og skutu mátinu til Hæs'tarjettar, þó ærið kostnaðar- samt sje að leita þangað. Far fór svo, að undirdómurinn var stað- festur, og bærinn dæmdur í máls- kostnað, auk skaðabótanna. ■Eí forráðamenn bæjarins hefðu fengist til að líta við sáttaboði fje- lagsstjórnarinnar, eða verið fáanleg- ir til þess *að reyna samingsleið í þessu máli, þá hefði alt þetta mála- vafstur, og sá mikli kostnaður sem það hefir haft í för með sjer, spaf- ast, og báðir aðilar mátt vel við una. Það verðiu: aldrei nema til bölvunar að berjá höfðinu við stein- inn og setja alt á oddinn, friðsam- legir samningar og sættir verða á- valt farsælli, í hverju sem er. i'að er nú undir báðum aðilum ltomið, hver endalok þessa máls verða, hvort þau verða á friðsamlegan hátt, eða þrákelknin og stýfnin sett í öndvegið. Bæjarbúar munu hafa opin augun og fylgjast með. X. lír heimaliögum. Kírkjan. Messað á sunnudaginn kl. 12 á. h. í Lögmannslilíð. — Safnaðarfundur á eftir messu. • Enskl skemtiskip, »Arcadians kom hing- að í gærmorgun og fór aftur í gærkvöldi. Hafði um 300 farþega, aðallega Breta og * Bandaríkjamenn. Frá Reykjavík voru með skipinu sem leiðbeinendur farþeganna Gunnar Halldórsson og Helgi Zoega. — Hneyksli er það, hvernig gengið er frá tröppunni á hafnarbryggjunni, — átti fólkið í vandræðum að komast upp og niður hana. Sildveiöin gengur sæmilega. Hafa sum skipin fengið þegar yfir 1000 tunnur, en öll síldin hefir en.n farið í bræðslu. Hjúskapur. Á sunnudaginn voru gefin saman í hjónaband hjer í bænuin ungfrú Guðriín Helgadóttir hjúkrunarkona og |ón Sigurðsson myndasmiður. — í gær voru einnig gefin saman í hjónaband ungfrú Valgerður Björnsdóttir bankaritari og Hannes Guðmundsson læknir úr Rvík. Nýji barnaskólinn. Bæjarstjórnin sam- þykti á síðasta fiindi, að fela þeitn Jóni Guðinundssyni og Einari Jóhannssyni byggingu barnaskólans. Var tilboð þeirra í bygginguna kr. 186,000,00. Annað til- boð frá Eggert St. Melstað og Guðmundi Ólafssyni var upp á kr. 179,000,00, eða 7 þús. kr. lægra. — Annar kostnaður við bygginguna er áætlaður kr. 32,500,00, og kemur því skólinn til að kosta uppkom- inn um 220 þús. kr. — Byrjað er þegar að vinna að byggingunni. Knaitspyrnujjelag Akureyrar heldur fund í kvöld (föstudagskv.) kl. 8'/a í bæjar- stjórnarsalnum. Áríðandi mál! Fjölmennið! Vatnsgeymi á nú að fara að byggja við Glerá, er taka á 500 teningsmetra af vatni. Með þeirri vatnsmiðlun er gert ráð fyrir, að vatnsskortur þurfi ekki að verða í bænum í nánustu framtíð. Arthur Gook er orðiun hjer breskur konsúll í stað Ragnars heitins Ólafssonar. Glimuflokkur úr Rvík sýndi hjer glím- ur og íþróttir á laugardags- og mánu- dagskvöldið við fremur litla aðsókn, þó var sýningin góð og verðskuldaði fult hús. — Betri glíma hefir ekki sjest hjer um langt skeið. Landlœknir og læknarnir Haraldur Jónsson frá Breiðumýri og Hannes Guð- mundsson úr Rvík, eru sladdir hjer í bænum. Slysfarir Á þriðjudagskvöldið vildi það hörmulega slys til í Ólafsfirði, að 7 ára gamall drengur fjell þar út af bryggju. — Maður var þar nærstaddur, og þó að ósyntur væri, hljóp hann þegar út i sjóinn, til þess að bjarga drengnum, en báðir druknuðu. Drengurinn hjet Gunnar Finnsson frá Ytri-Á, en inaðnrinn Konráð Jóhannsson ættaður úr Skagafirði. — Gamall maður var í fjörunni, er þetta skeði, en gat ekkert aðgert. g,|||HDli,,'.nillli, ...IIII...Illlln........ i I j Sumarkjólar j í r ^ I nýtt og smekklegt úrval beint frá B E R L I N . f I Stórt úrval af kvensilkisokkum og undirkjólum. # | BRAUNS VERSLUN. j Páll Sigurgeirsson. \ .......................................... Ferðamenn! Peysur, Reiðbuxur, Reiðjakka, Sportbuxur fáið þið best, fjölbreyttast og ódýrast í Verslun Eiríks Rristiánssonar. Handboltaæflng í kyöld kl. 9 hjá U. M. F. A. Aðalfundur Eimskipafjelags íslands var haldinn 29. f. m. Rekstur skipanna gekk vel síðastliðið ár, var hagnaður á honum alls rúml. 500 þús. kr. Hjá öllum skip- unum var hagnaður, mestur hjá Goða- fossi 217,395 kr., Gullfossi 133,176 kr., Brúarfossi 125,760., Selfossi 75,705 kr. og Lagarfossi 47,932 kr. Af ágóðanum var 305,703 kr. varið til afskrifta á verði skipanna. í endurnýunar og varasjóð voru lagðar 148,025 kr. og svo á að greiða hluthöfum 4°/o. llefur ekki verið lagt í varasjóð nje arður greiddur síðan 1920. Stjórn fjelagsins fær 4,500 kr. og endurskoðendur 3,600 kr. 29,222 kr. yfirfærast til nsésta árs. — Fjelagsstjórn- inni var heimilað að láta byggja eða kaupa eilt eðá tvö skip til viðbótar. Nauðungarvinna. Bæjarstjórn Rvíkur hefur nú ákveðið að setja i nauðungar- vinnu alla slæpingja og landeiður, sem liggja á framfærslu bæjarins af leti og ómensku eða vanrækja framfærslu skyldu- liðs síns eða meðgjöf með börnum. Lyfjabúðin. Innansmíði nýju lyfjabúó- arinnar er nú lokið og gengið frá öllu sem vera ber. Hefir Ól. Ágústsson hús- gagnasmiður smiðað alt innaiistokks af hinni mestu prýði, svo að ekki stendur að baki bestu erlendu smiði. — Er lyfja- búðin í alla staði hin prýðilegasta. Pjetur A. Jónsson óperusöngvari söng hjer i Samkomuhúsinu i gærkvöldi fyrir fullu húsi. — Var söng hans tekið með miklum fögnuði. Söngskráin var fjöl- breytt og sú nýlunda upptekin að flest óperulögin voru sungin með íslenskum tekstum. — Einna mest urðu áheyrend- urnir hrifniraf Wagners Sigurljóðum Wal- ters úr óp. Meistarasöngvarnir frá Nurnberg en allur söngurinn var dásam- legur. — Emil Thoroddsen aðstoðaði söngvarann af hinni mestu snild. Kransar úr lifandi blómum fást í Strand- götu 37. Hulda Clausen. Sími ‘201. H^FUNDUR-^I verður haldinn hjá K. A. í kvöld kl. 872 í bæjarstjórnarsalnum. Fjögur áríðandi mál á dagskrá! Fjelagar fjölmennið og mætið stundvíslega! Dansskemtun verður haldin að Þverá í Ong- ulstaðahreppi á laugard. kl. 9. NOKKRAR STtlLKUR geta fengið að læra matreiðslu og innanhússtörf næsta vetur, einnig allskonar útsaum og »brokade«-málningu. — Nánari upplýsingar hjá Valgerði Ólafsdóttur, Strandgötu 39. Með e.s. „Island“ komu kartöflur. Ný uppskera! Ódýrari en áður! Matarkex á 1 k kg. H AM BO RG. Manchettskyrtur, Bindi, Flibbar og Sokkar. Hvergi meira nje betra úrval en í Verslun E. Kristjánssonar. SkóversI.J. S. Kvaran er flutt í Hótel „Goðafoss“ — neðstu hæð — Nýkomið mikið úrval af sutnar- skófatnaði. gúmmívetlingar best og ódýrust í Verslun Eiríks Kristjánssonar.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.