Íslendingur - 10.01.1930, Síða 2
2
ÍSLENDINOUR
Verslun Pjeturs H. Lárussonar
þakkar viðskiftafólki innkomnar greiðslur. — Jafnframt
væntir verzlunin þess, að þeir sem enn skulda, muni
eftir skuldum sínum og greiði þær hið allra fyrsta.
því að bæjarstjórnin fái kynt sjer
málið áður en ákvörðun er tekin.
Ábyrgðin, sern farið er fram á, er ,
þess utan hið mesta hættuspil fyr-
ir bæinn, þar sem hún kæmi til að
baka honum stórfeld fjárútlát ef ilia
tækist fyrir fjelaginu — og dæmin
eru mörg að svo hefir farið, bæði
fyrir fjelögum og einstaklingum, er
við útgerð hafa fengist. — Og ef
bæjarstjórnin hefði látið að vilja
jafnaðarmanna og afgreitt málið á
fundinum á þriðjudaginn og skelt
ábyrgðinni á bæinn yfirvegunar- og
rannsóknarlaust, hefði sök hennar
gagnvart bæjarbúum orðið þung og
stór. Pað er á þeirra herðum, sem
byrðarnar kæmu til að hvíla, ef illa
færi fyrir fjelaginu, og því sjálfsögð
skylda gagnvart þeim að málið sje
yfirvegað sem gaumgæfilegast, áður
en nokkur ákvörðun er tekin; —
fyrirhyggjuiaust fian, óverjandi ger-
ræói gagnvart þeim, og þeim mönn-
um til skamrnar, er vildu knýja það
fram.
Samvinnufjelag ísfirðinga bar tals-
vert á^góma á fundinum á þriðju-
daginn. Þetta fyrirhugaða fjelag hjer
á að vera svipað. Á það var m. a.
bent, að ísfirska fjelaginu hefði farn-
ast vel frá byrjun. Pað er rjett, en
það er nú ekki nema rúmlega l* 1 * * */5
árs gamalt og hefir verið svo hepp-
ið að lenda í einhverju þvh mesta
afla-ári, sem lcomið hefir yfir Vest-
firði. En reynslan hefir sýnt okkur
að það koma líka afla-rýr og erfið
ár og þá reynir á þolrifin. — Á
það var líka bent, að ekki væri
meira þó þess væri krafist af Ak-
kureyrarbæ að hann hlypi undir
bagga með hinu fyrirhugað íjelagi
sjómanna hjer, en er þess var kraf-
ist af ríkinu, að það hlypi undir
bagga með íkfirska fjelaginu, ástæð-
urnar væru líkar — hagsmunamái
sjómannanna. — En ástæðurnar
eru einmitt alt aðrar. Ríkið hljóp
undir bagga með ísfirska fjelaginu
til þess að firra ísafjörð hallæri og
eymd, eins og sjá má af orðum
framsögumanns fjárlaganna í Nd.,
er ríkisábyrgðin til ísfirska fjelags-
insxvar til umæðu. Fjellú orð hans
m. a. þanrtig:
»Eftir lýsingum á ástandi kaup-
staðarins eru engar líkur til annars,
en að hallæri verði þar á næstu
árum ef ekki verða gerðar gagn-
gerðar breytingar á högum þorps-
búa og reynt að koma fótunum
undir þessa einu atvinnugrein, sem
getur orðið þeim til bjargar.«
Hjer er engu slíku til að dreifa.
Silfursjálfblekungur
hefir tapast á Jeiðinni frá Strandgötu
13 inn að húsi Stefáns Jónssonar
klæðskera. Finnandi vinsamlega
beðinn að slcila honum til fóns
Árnasonar, Hótel Oddeyri, gegn
fundarlaunum.
Símskeyti.
(Frá Frjettastofu (slands).
Rvík í rnorgun.
Utlend:
Frá Búkarest: í bænum Cleno-
witz lenti í bióðugum skærum milli
kommúnista og lögreglunnar. Ætl-
uðu kommúnistar að hafa kröfu-
göngu í borginni í foiboði lögregl-
unnar og neituðu að hlýða skipun-
um um að sundra fylkingunni. Rjeð-
iat þá lögreglan að þeim með
brugnum sverðum. Fjellu nokkrir
og margir særðust, sumir hættulega,
áður en fylkingunni varð tvístrað.
Frá Oslo: Hollenskt skip, hlað-
ið málmsteini, strandaði nýlega við
strendur Noregs. — 5 menn fórust.
Frá Róm: Brúðkaup Umberto
krónprms og Marie Jose, dóttur
Belgakonungs, fór fram í gær með
mikilli viðhöfn.
Frá Haag: Samkomulagstilraunir
um ýrns óútkljáð atriði Yongsam-
þyktarinnar standa yfir en ganga
íreglega, jafnvel vonlítið að sam-
komulag náist.
Frá Oslo: Norðmenn reyndu
flugvjelanotkun við síldarleit á vest-
urströnd Noregs í fyrri viku og gafst
vel.
Innlend:
Fiskaflinn árið 1929 nam 417,273
skipd. og hefir hann aldrei orðið
jafnmikill á einu ári. Aflinn er 17,-
300 skpd. meiri en árið 1928, en
árið 1929 keyptu íslendingar meira
af erlendum skipum, svo veiði ísl.
skipa er því nær jöfn bæði ánn.
Aðalfundur Fiskifjelagsins stend-
ur nú yfir.
Bryggjugerðinni í Borgatnesi er
lokið. — Mikil snjóþynsli og um-
ferðateppa um att Suðurland.
V
Hjer og þar.
Loforðaefndir „Verkam.“.
„Verkam." var á dögunum að staglast
i pví, að „íhaldið“ — sem hann kallar
svo — findi alt af upp á einhverjum
„stórlygum" fyrir h'verjar kosningar, í
pví augnamiði að afla sjer fylgis. — ísl.
skoraði á „Verkam.“ að færa pessum
orðum sínum stað — um leið og hann
sýndi fram á, að einmitt forkólfar Alpýðu-
flokksins hjer i bænum hefðu iðkað
pessa iðju. Nú i siðasta „Verkam.“
pykist hann koma ineð sannanir fyrir
ásökunum sínum, og keinur með tvö
dærni, er hann tejur að muni næigja til
sönnunar. Er annað skólastjóramálið,
er „íhaldið" hafi notað blygðuuarlaust
við siðustu bæjarstjórnarkosningar — og
unnið á; hitt er saga frá bæjarstjórakjör-
inu um Jón bæjargjaldhera. Hafi „íhald-
ið“ borið pað út um bæinn, að hann
yrði rekinn frá starfa sínutn næði Jón
Sveinsson ekki kosningu, og par sem að
bæjargjaldkerinn hafi verið vinsæll mað-
ur, hafi petta haft mikil áhrif á úrslit
kosninganna. — Hvað sögu pessari við-
víkur, hefur ísl. aldrei heyrt hana áðar,
og enginn, er hann hefur átt tal við um
hana — svo ganga má út frá pvi se.m
vissu, að hún er tilbúningur pes^, ,ær
greinina skrifar — en sem vera mun
Halld. Friðjónsson, — ber hinn prúð-
mannlegi ritháttur greinarinnar öll ein-
kenni hans. Hvað skólastjóramálinu við-
vikur, pá sýndu andstæðingablöð skóla-
stjórans pað drengskaparbragð, að minn-
ast ekki á misgerðir niannsins einu orði,
fyr en eftir kosningar. Pað var „Verka-
maðurinn" einn, sem hreyfði málinu áð-
ur, og sem leiddi til pess að faðir
drengsins, er mispyrmt hafði verið, fann
sig knúðan til pess að leiðrjetta pá frá-
sögn og skýra frá málavöxtum eins og
peir voru. — „Verkam.“ segir, að frá-
si'gn föðursins hafi verjð ósönn. — Vill
hann pá lýsa pað ósannindi, sem meiri-
hluti skólanefndar segir í áliti sir.u eftir
hata rannsakað málið. — Par er m. a.
svo komist að orði:
%
„------Því leyfir skólanefnd sjer
að gefa skólastjóra, Steinpóri Guð-
mundssyni, áminningu fyrir að hafa
beitt of harðri líkamlegri refsingu við
barnið Guðbrand Hlíðar í kenslu-
stund í 6. bekk barnaskólans, 16.
f. m. Jafnframt átelur hún skóla-
stjóra og bendir honum á, að hann
verði að leggja niður ávana pann,
er hann hefur, að taka i eyru skóla-
barna og pví um líkt. Loks bendir
skólanefnd skólastjóra á pað, að
hann megi búast við, ef hann lætur
ekki skipast við pá áminningu nefnd-
arinnar, að verða sviftur starfinu.
Pað eru fulltrúar jafnaðarmanna
nefndinni, Elísabet Eiríksdóttir og Jón
Steingrímsson, flokkssystkyni Stp. G.J
sem bera fram pessa tillögu, og sem
eru bæði fullírúaefni jafnaðartnanns, á-
samt Steinpóri, við bæjarstjórnarkosning-
una, sem fer í hönd. — Pessi dómur er
ekki kveðinn upp af andstæðingum fyrv.
skólastjóra. Annar3 gerir „Verkam.“
Stp. G. lítinn greiða með pvl að vera
sifelt að draga petta misgerðamál fram í
dagsljósið. Hans vegna væri pað best
falið í pögninni. í iok greinarinnar gefur
„Verkam.“ pann ábæti á „sannanir" sin-
ar, að ísl. hafi hvað eftir annað orðið
að „jeta ofan í sig lygar,“ er hann hafi
flutt á undan kosningum, og jafhvel að
gefa út „aukablöð til peirra hluta, strax
að kosningum afstöðnuin." — Hvorugt
hefur nokkru sinni skeð. — Það eru ó-
sannindi eins og annað í pessari „Verka-
manns“-grein. í henni koina 30 sinnum
fyrir orðin „lygi“ og „lygar“ — en sjálf
er hún öll e i n 1 ý g i.
„Bálförin“.
Höfundur jólasögunnar geðslegu i
„Verkam.“, — „Bálförin", — hvað vera
frú Ingibjörg Benediktsdóttir, kona fyrv
barnaskólastjóra.
Á laugardaginn föru fram bæjar-
stjórnarkosningar í þremur bæjum á
landinu: Siglufirði, Norðfirði og Vest-
mannaeyjum og voru 3 listar í vali
á öllum stöðunum.
A Siglufiröi voru kosnir 9 íull-
trúar, þeir höfðu áður verið 8, en
ríkisstjórnin hafði gefið heimild að
bætá einum við. Fjell kosning þann-
ig, að A-listinn — F'ramsókn —
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem
á einn eða annan hátt sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát
Árna Eiríkssonar bankagjaldkera og
minnngu hans heiðruðu við útförina.
Akureyri 6. jan. 1930.
Ekkjan og börnin.
Hjer meö tilkynnist vinum og
vandainönnum, að koiian inín,
Krístín Hallgríinsdóttir, andaöist
8. þ. in. —
Jarðarförin ákveðin síðar.
Garðshorni í Glerárþorpi,
Guðfón Jóhannsson.
fjekk 164 atkv. og kom tveimur
fulltrúum að: Þormóði Eyjólíssyni
skrifstofustjóra og Andrjesi Hafliða-
syni kaupmanni. — B-listinn —
Sjálístæðismenn — fjekk 181 atkv.
og kom einnig tveimur fulltrúum að-:
Jóni Gíslasyni verslunarstjóra og
Ole Hertervig bakara. — C-listinn
— sameinaðir kommúnistar og jafn-
aðarmenn — fjekk 384 atkv. og
kom fimm íulltrúum að: Guðmundi
Skarphjeðinssjmi skólastjóra, Otto
Jörgensen stöðvarstjóra, Sig. Fanndal
kaupmanni, Hermanni Einarssyni
verkamanni og Gunnlaugi Sigurðs-
syni smið. — Þeir höfðu áður 6
fulltrúa í bæjarstjórninni og tapa
því einum. Einnig eru atkvæði
þeirra færri en við kosningarnar í
fyrra, þrátt fyrir fjölgun á kjörskrá.
Framsókn bætti við sig rúmum 50
atkv. og Sjálfstæðisfiokkurinn um 20
atkv. — tapið alt Alþýðuílokkslistans
megin.
A Noröjiröi voru 8 fulltrúar kosn-
ir. Fllaut listi jafnaðarmanna 220
atkv. og kom 4 fulltrúum að, var
það sama tala og áður. Sjálfstæðis-
manna-listinn fjekk 167’ atkv. og
kom þremur mönnum að, og Fram-
sóknar-listinn 91 atkv. og kom ein-
um manni aö. — Áður áttu »óháðir
verkamenn* einn fulltrúa í bæjar-
stjórninni en það sæti hafa nú Sjálf-
stæðismenn unnið — þeir einir hafa
unniö á í þessum kosningum.
1 Vestmcmnaeyjum hafði Framsókn
engan lista f kjöri, enda er sagt, að
ekki sjeu nema 2 Framsóknarmenn
í öllum kaupstaðnum — en 3 voru
listarnir engu að síður: frá Sjálf-
stæðismönnum, jafnaðarmönnum og
kommúnistum. Var f síðasta blaði
sagt frá skilnaöi jafnaðai'manna og
kommúnista og með hverjum hætti
hann hefði orðið. Kosningarnar fóru
svo, að listi Sjálfstæðismanna hlaut
831 atkv. og kom 6 mönnum að,
listi jaínaðarmanna 381 atkv. og
kom 2 mönnum að og listi komm-
únista 222 atkv. og kom einurn að.
Hafa þannig »flokkssvikararnir« sem
Vkm. kallar jafnaðarmennina haft
langsamlega betur cn kommúnist-
arnir, og þó höfðu þeir blað til að
styðjast við en »svikararnir« ekki.
Sýnir þetta best hvernig fer, þegar
verkalýðurinn fer að gera upp á
milli socialdemokrata og kommúnista.
Á Ísajiröi á að kjósa á morgun.
Eru þar 3 listar í kjöri, en engar
líkur eru laldar á því, að Fram-
sóknarlistinn komi manni að.