Íslendingur - 16.12.1932, Qupperneq 1
XVIII. árgangur
Akureyri, 16. des. 1932.
50. tölubl.
NYJA-BIO
Föstudags-, Laugardags- og Ný mynd!
sunnudagskvöld kl. 9.
í HEKÞJÓNXJSTTT
Sprenghlægileg gamanmynd í 8 þáttum. — Aðalhlutv. leika:
LITLI og STÓRI.
Nú eru þeir komnir þessu frægu vinir okkar til þess að
gleðja alla, sem vilja heilsa upp á þá nú í skarnmdeginu, og
þeir verða eflaust margir, Mona Mártenson, hin fræga
sænska leikkona, leikur jómfrú þá, £r allt snýst um og aliir
eru bálskotnir í.
Lau Lauritzen, sá er gert hefir LITLA og STÓRA heims-
fræga (og þeir hann) hefir tekið þessa mynd og er hún ann-
áluð fyrir hversu rnargt öfugt gerist þar og talin hin fjöl-
breyttasta og hlægilegasta og með fegurstu landslagsmynd-
um frá Norður Sjálandi.
Sunnudaginn kl. 5 Alþýðusýning
Niðursett verð!
MAÐUR OG KONA
— I síðasta sinn.
Dr. Helsi lómasson
tekur aftur við Nýja Kleppi.
Lárus frá Haga svií't-
ur yfirlæknisstöðunni.
Loksins kom að því. —
Á föstudaginn 9. þ. m. skeðu
þau tíðindi, að dóms- og'heilbrigð-
ismálaráðherrann, Ólafur Thors,
svifti Lárus Jónsson frá Haga yfir-
læknisstöðunni við Nýja Klepp,
sakir drykkjuskaparóreglu, og skip-
aði í hans stað dr. med. Helga
Tómasson yfirlæknir spítalans. —
Er dr. Helgi þar með kominn í ríki
sitt að nýju og mun því almennt
fagnað. Má ætla, að með endurskipun
dr. Helga í yfirlæknisstöðuna sé
lokið þeim sorglega þætti í sögu
Nýja Klepps, sem Jónas frá Hriflu
bjó honuin með burtvikningu dr.
Helga og öðru framferði sínu.
Sagan er enn í fersku minni:
Pað var hinn 30. dag aprílmán-
aðar 1930, að ríðandi sendiboði
kom að Nýja Kleppi, með bréf til
dr. Helga frá þáv. dómsmálaráð-
herra, Jónasi Jónssyni. Efni bréfs-
ins var það, að tilkynna dr. Helga
að frá lokum þess hins sama dags,
væri hann sviftur stöðunni sem
yfirlæknir spítalans og yrði þegar
að hafa sig burtu þaðan, með fjöl-
skyldu sína. — Ástæður til þessa
voru ekki tilgreindar, en flestum
mun hafa verið það Ijóst, að þær
voru hatur, sem dómsmálaráðherra
hafði lagt á dr. Helga fyrir að hafa
látið uppi þá skoðun á heilsufari
ráðherrans, að hætta gæti stafað af
því fyrir þjóðina, að ráðherrann
færi áfram við völd. — Því áliti
dr. Helga hefir aldrei verið hnekkt
af dómbærum mönnum.
Burtrekstur dr. Helga var níð-
ingsverk, — ekki beinlínis gagnvart
honum og heimili hans, þó þar
væru þá fyrir veikindi — heldur
gagnvart aumingjunum varnarlausu
er voru sjúklingar á spítalanum:
Tugir saklausra og bágstaddra sjúkl-
inga eru iátnir gjalda þess á grimini-
legasta hátt, að velgerðamaður
þeirra, læknirinn, sem þá stundaði,
var kominn í ónáð hjá ráðherran-
um. — Þeir eru látnir vera læknis-
lausir, eða verra en það, í marga
daga, — þó gamall uppgjafalæknir,
sem ekkert þekkir til sjúkdóma
þeirra, sé falið eftirlit með þeim. —
Loks tekst Jónasi ráðherra að ráða
Iækni til spítalans, Lárus nokkurn
Jónsson frá Haga. Hafði hanri ver-
ið um stuttan tíma á geðveikraspít-
ala í DanmÖrku — spítala fyrir ó-
læknandi og bandóða sjúklingja —
en verið rekinn þaðan fyrir drykkju-
skap — Þennan mann telur ráð-
herrann fullgóðan handa sjúkling-
unum á Nýja K'eppi, stofnun sem
hefir það ætlunarveik aö Iækna
geðbilaða og taugaveiklaða sjúkl
inga. — Þessi maður er settur í
sæti eins helzta sérfræðings í geð-
sjúkdómum á Norðurlöndum. Mun
flestum hafa blöskrað þessar að-
gerðir ráðherrans, — því tiltrú til
Lárusar læknis bar enginn.
Mótmæli yfír burtrekstii dr. Helga
og ráðningu Lárusar drifu víðsveg-
ar að til ríkisstjói narinnar. — En
dómsmálaráðherrann léí þau sem
vind um eyrun þjóta. Hvað skipti
það hann þótt aumingjarnir á Nýja
Kleppi væru sviftir allri batavon
vegna aðgerða hans? Ekki hót. —
Hann þurfti að hefna sín á dr.
Helga — og það var honum fysir
öllu. —
Tíminn leið. —
Stuttu e'tir frávíkninguna gerði
dr. Helgi ráðstöfun til málshöfðun-
ar gegn ríkisst jórninni- Krafðist
hann að sér yrðu greidd árslaun
og öll önnur fríðindi, yfir sama
tíma, er hann hefði verið ráðinn
upp á. Undirréitardómurinn féll á þá
leið, að honum voru tildæmd ’/s
árs laun, með fríðindum, er fylgdu
ráðningu hans- Dómunum var af
báðum aðilum skotið til Hæsta-
réílar og voru dr. Helga þar til-
dæmd heils árs laun með dýrtíðar-
uppbót. Ennfremur 300 kr. á mán-
uði, yfir þann tíma, fyrir húsnæðl,
ljós og hiía. Þessutan 5X vextir
af báðum þessum upphæðum og
að iokum 500 kr. í málskostnað.
— Voru það alls um 12 þús. kr.
sem dr. Helga voru tildæmdar úr
ríkissjóði- Var því jafnframt slegið
föstu, að ekkert hefði komið fram
í málinu, sem réttlætt gæti frávikn-
ingu hans.
Nú víkur sögunni aftur að Nýja
Kleppi. —
— Hinn nýji yfirlæknir reyndist,
eins og menn höfðu búist við, ekki
starfinu vaxinn og drykkjuskapar-
óregla hans ágerðist. — Forráð-
endur sjúklinga, sem nokkur ráð
höfðu, tók þá af spítalanum og
komu þeim til lækninga hjá dr.
Helga, sem starfaði sem »prakti-
sérandi< læknir í Reykjavík. En vit-
anlega var það kostnaðarsamt að
hafa þá utan spíialans og gátu því
færfi en vildu. — Nýi Kleppur,
þessi dýia og vandaða stofnun,
stóð nú hálf tómur. — Síðla sum-
ars 1931 senda allar hjúkrunarkonur
spítalans klögun á Lárus yfirlækni
fyrir diykkjuskap og óreglu. Vil
mundur Jónsson, vildarvinur Jón-
asar ráðherra, var þá oiðinn land
læknir. Rannsakar hann kæruna og
kemst að þeirii niðuistöðu að hún
sé'sönn og leggur til að Lárus sé
sviftur yf.rlæknisstöðunni. Skrifar
hann vini sínum Jónasi þetta í nóv-
ember f. á., en Jónas bregst /mnnig
við, að hann framlengir rdðninga-
tíma Lúrusar lœknis um tvö ór. —
Sýnir Jónas þar greinilega enn á ný
umhyggju sína fyrir þeim sem bág-
ast eiga.
En er Jónas hrökklast frá völd-
um, þykjast flestir þess fullvissir að
nú muni fara að styítast sá tími,
sem Lárus -sé yfirlæknir á Nýja
Kleppi. — Á Alþingi hafði komið
fram krafa uin frávikning hans og
endurskipun dr. Helga í stöðuna
og Læknafélag íslands ítrekar áskor-
un sína til ríkisstjórnarinnar um að
gera dr. Helga aftur að yfirlækni
spítalans. — Landlæknir skrifar nú
stjórninni aftur bréf og er það
frekar loðið. Er því haldið þar
fram, að Lónis hafi nokkuð bætt
ráð sitt, síðan landlæknir skrifaði
fyrra bréf sitt. Samt muni réttast
að víkja ho' um frá. Gerir land-
læknir það að tillögu sinni að pró-
fessor Þórður Sveinsson sé gerður
að yfirlækni beggja spitalanna —
Gamla og Nýja Klepps, — og hon-
um fenginn kandidat til aðstoðar.
Dr. Helgi hafi yfirdrifið að gera
sem praktisérandi læknir og sé ekki
rétt að taka hann frá þeirri starf-
semi. Við þetta aukist rúm fytir
sjúklinga, þar sem öðrum læknis-
bústaðnum megi breyta í sjúkra-
herbergi. — Þessi lillaga landlækn-
is, um sameining yfirlæknisembætt-
anna, fær lítinn byr hjá öðrum
læknum og ekki heldur hjá dóms-
málaráðherra — og hvað Lárusi
viðvíkur, þá svarar ráðherrann land-
lækni því, a,ð rannsókn hafi leitt í
Ijós að það se' síður en svo að hann
hafi bœtt ráð sitt. — Með þetta
fyrir augum tekur ráðherrann svo
þá ákvörðun, sem fyr er að vikið:
að svifta Lárus yfirlæknisstöðunni
og veita hana dr. Helga.
Blöð Jónasar frá Hriflu, Tíminn
og Alþýðublaðið, vonskast yfir
þessum aðgerðum dómsmálaráð-
herra, en fáir munu þeir, sem mark
taka á rausi þeirra. — Aliur þorri
manna mun Ólafi Túors þakklátur
fyrir yfirlæknaskiptin, því með þeim
verður Nýi Kleppur hafinn upp úr
því ófremdarástandi, sem hann var
sokkinn í íyrir aðgerðir Hriflu-
Jónasar.
Tunnusmíðið.
Koimnúnistar bregða
fyrir það fótunum. —
Erlingur Friðjónsson sagði á síð-
asta bæjarstjórnarfusdi að það væri
því miður ot' mikið af flónurn í
Verkamannafélagi Akureyrar — og
ef dæinfi skal eítir síðasta fundi íé-
lagsins þá er þetta ekki ofmælt.
Tunnusmíðið margumrædda yar
þar til umræðu. Fengu kommúnist-
ar, mað fylgi Þorstéins Uorsteins-
sonar formanns félagsins, því fram-
gengt, að sámþykkt var að halda
fast við fyrri samþvkkt félagsins
um að tunnusmíðið yrði ekki íram-
kvæmt í ákvæðisvinnu, eins og bæj-
arstjórn hafði ákveðið, heldur í tima-
vinnu samkvæmt kauptaxta félugsins.