Íslendingur - 16.12.1932, Side 2
2
ISLKNDINGUR
Kostir SUPER-SKANDIA
fram yfir diesel-og há-
þrýstimótora:
Engin dýr og margbrotinn loft-
þjappari,
engir nálarlokar í innspýtings-
tækinu,
einföld gerð,
auðveld gæzla,
lítill viðhaldskostnaður,
lítill viðgerðarkostnaður,
lítill brunaþrýstingur íbi unahylkinu
lítill þrýstingur á eldsneytisolíunni
ekki viðkvæmur á hitastig svala-
vatns,
ræsing jafn auðveld í köldu veðri.
Kostir SUPER SKANDIA
fram yfir glóðarhauss-
og flatlcveikju-
mótora:
Þægilegileg kaldræsting,
fullkomin brennsla eldsneytisins
lítil eldsneytiseyðsla,
lítil smurningsolíueyðsla,
reyklaust afgas,
léttur hljóðlaus gangur,
mikil aflsframleiðsla.
SUPER-SKANDIA getur gengið með ódýrustu hráolíu. SUPER-
SKANDIA er að öllu leyti búinn til úr allra bezta efni. Bullu-
hylkið er steypt úr sérstakri járnsamsetningu, sem er einstæð aö
endingu. SUPPER-SKANDIA er lítill fyrirferðar, samanborið við
afi það, sem hann framleiðir. SUPER-SKANDIA er sérstaklega
endingargóður.
SUPER-SKANDIA er hlutfallslega mjög ódýr.
Greiðsluskilmálar mjög aðgengilegir.
Leitið upplýsinga, — þær kosta ekkert.
Tómas Björnsson, Akureyri.
— -Nú getur félagið verið víst um
það, að bæjarstjórnin gengur aldrei
inn á að tunnusmíðið sé unnið á
annan hátt en í ákvæðisvinnu og
með þeim kjörum, sem samþykkt
voru á síðasta fundi hennar. —
Haldi Verkamannafélagið fast viö
samþykkt sfna er tunnusmíðinu
líklega siglt í strand á þessum vetri,
og hafa þá kommúnistar með flónsku
sínni haft 15—20 þús. krónur af
þeim verkamönnum, sem vinnunnar
bafi orðið aönjótandi,
Og þeir færa það sem ástæðu
fyrir þessari breytni sinni kommún-
istarnir, að verkamennirnir verði aö
leggja of mikið á sig í ákvæðisvinnu
ef þeir eigi að hafa sæmilgt kaup.
— í tímavinnu geti þeir »slórað«
og hait sína »hentisemi« og þó bor-
ið engu minna frá borði. Er þessi
vinnu-»mórall< sérstaklega geðfeldur
letingjum og vinnusvikurum — en
þaö eru fiestir kommúnistar.
En farið getur svo, að svona
Iramkoma verði til þess að hætt verði
við vinnu, sem annars hefði verið
unnin, og margir nýtir og góðir
verkamenn verði að sitja auðum
höndum, sem annars hefðu getað
haft upp góð daglaun. Svo fer
sennilega um tunnusmiðið, ef Tré-
smíðafélag Akureyrar tekur það
ekki að sér — en það er nú á
döfinni. —
Hér og þar.
Dagur tekur sinnaskiftum.
Undanfarið hefir Dagur haft fátt
gott að segja um samsteypustjórnina
og oftast andað kalt til hennar frá
honum — en í gær er annað hljóð
komið í strokkinn. Er hann nú allt
1 einu orðinn eldheitt og ákaft
stjórnarblað, og óskapast yíir þvf
að íslendingur hafi flutt grein, þar
sem stjórninni hafi verið fundið ým-
islegt til foráttu. — Grein sú, sem
tsl. flutti, og Dagur óskapast út af,
var ekki ritstjórnargrein, heldur að-
send, þó það skipti nú ekki miklu
máli. Paö -skal játað, að hún var
ærið þungorð í garð stjórnarinnar,
en hún var jafnframt þörf brýning
á hana um að sýna dáð og dug;
lognmollupólitík hentaði ekki eins
og nú væri ástatt í landinu. Um
það er ísl. greinarhöf. sammála. —
Rangfærslur og útúrsnúningar Dags
villa engum sýn, og má hann una
við þá íramleiðslu sína óáreittur, en
gamla málsháttinn, »sá er vinur, sem
til vamms segirc, hefði ritstjórinn
gjarnan mátt muna — lýsir hann
afstöðu íslendings til samsteypu-
stjórnarinnar.
Hermann lögreglustjóri.
Dagur þrástagast á því að Her-
mann lögreglustjóri hafi bjargað
bæjarfulltrúum »íhaldsmanna« undan
bareflum kommúnista þann 9. f. m.,
og lagt líf sitt og limi í hættu við
»björgunarstarfið< — en launin að
hálfu »íhaldsblaðanna< séu sví-
virðingar og ofsóknir i hans garð. —
Lýgin er Framsóknarblöðunum töm.
— Það er Hermann Jónasson lög-
reglustjóri, sem mest allra manna
á sök á óspektunum og hryðjuverk-
unum, sem skeðu í Rvík 9. nóv. —
Hann var aðvaraöur í tæka tíð, áð-
ur en að bæjarstjórnarfundurinn
hófst, um að nauðsyn væri á vara-
liði, þar sem kommúnistar höfðu lýst
I>ví yfir í blaði sínu, og í ræðum á
götum úti, að þeir ætluðu að gera
aðsúg að bæjarstjórninni og þröngva
henni til að gera að vilja þeirra. —
Lögreglustjórinn neitaði að kalla
varalið, og er á bæjarstjórnarfund-
inn kemur, stillir hann svo til, að
áheyrandapláss fundarhússins fyllist
af æstasta og hamslausasta liði bols-
anna og tekur sjá.lfur undir ógnanir
þeirra í garð bæjarfulltrúa Sjálfstæð-
ismanna, láti þeir ekki undan í ka\ip-
deilumálinu: Þaö sé áðeins tvent
fyrir þá að gera, gefa samþykki
sitt til alls þess, er bolsar heimta,
eða þeir geti búist við aö tína lífinu.
— Þegar svo aðsúgurinn er gerður
að þessun. bæfarfulltrúum og þeirn
meinuð útganga, heldur lögreglu-
stjóri því leyndu að frjáls sé aðgang-
ur að aukadyrum hússins. Það er
aðeins fyrir tilviljun að bæjai fulltrú-
arnir komast að því, og ná að kom-
ast út — sýnilega þvert á móti vilja
og tilætlun Hermanns Jónassonar.
— Slíkur, sem hér er lýst, er
»björgunarstarfinn< (!) sem Dagur
rómar Hermann fyrir — Og síðar
þegar æsingalýðurinn ræðst á lög-
regluna úfi fyrir fundarhúsinu, hypj-
ar þessi sami Hermann sig sem
skjótast heim á skrifstofu sína, og
skilur eftir höfuðlausan her. Slík
framkoma hjá lögreglustjóra er svo
afskapleg, að þess eru engin dæmi —
og allt framferði hans þennan dag,
er með þeim hætti, að hann á að
hafa fyrirgert embætti sínu. Það
heföi ekkert uppþot og engir götu-
bardágar orðið í Reykjavík 9, nóv.
ef Hermann Jónasson hefði haft þann
viðbúnað, sem hann var beðinn um
— en neitaði að hafa, og brygðist
þar með skyldum sínum sem lög-
reglustjóri.
Vísa
gerö þegar sr. Benjamín Krist-
jánsson ílutti vígsluræðu sí:ta í
útvarpinu —
Gervileik held’r í horli
heill þarfur Knstj'áns arfi,
hikstar hvergi á taxta
hann í vígslu ranni;
Sjallræðu túlkar fullum,
frjálsmannlegum, hálsi,
áttaviss, einfær í bratta,
augum skimar til himins.
G. F.
Úr heimahögum.
□ Rún 593212208 — Frl/.
I. O. O. F. 114121681/*—III.
Kirkjan: Messað á Akureyri kl 2 e.h.
á sunnudaginn.
Sjálfstœðisfélag Akureyrar heldur fund
kl. 8 á mánudagskvöldið á venjulegum
stað. —
Varðarfundur á sunnudaginn kl. 1,30 í
Verzlunarmannafélagshúsinu.
.Lanilafrœði og úst< var leikiö í sjö-
unda og síðasta sinni í gaerkvö'di. — Fer
frú Martha Kalman suður með Dettifossi
á sunnnudaginn.
Gísli Ólafsson, skáld frá Eiríksstöðum,
er staddur hér í bænum og mun efna til
skemmtikvölds bráðlega. — Hefir hann
skemmt Reykvíkingum með kvæðaupp-
lestri, eftirhermum og kveðskap og fengið
tnikla aðsókn og góða dóma.
Hjúskapur. Ungfrú Þunður Pétursdótfir,
jónassonar kaupmanns á Hjalteyri og Jón
Pórðarson framkvæmdastjóri frá Lauga-
bóli, voru gefin saman í hjónaband af
bæjarfógeta 10. þ. m. — Pá hafa og ný-
lega verið gefin saman í hjónaband ung-
frú Ró;a Ttiorlaclus, Ijósmóðir í Öxna-
felli, og Benedikt júlíusson, bóndi í
Hvassafelli — Panrr 13. þ. rn. gaf sókn-
arpresturinn í hjónaband ungfrú Matthildi
Stefánsdóttur og Jakob Oislason, bæði til
heimilis að Miðgörðum á Grenivík.
Fiskajli er talsverður á innfirðinum
þegar gæftir eru á sjó. ,
Skarlatssóttin er að magnast á Siglu-
firði og hafa nokkrir dáið úr henni. —
Barnaskólanum hefir verið lokað.
„Akurlitjan“ heitir jólablað sem skáta-
sireitin »Fálkar« hefir gefið út og er nú
verið að selja á götunurn. — í blaðið
skrifa séra Friðrik Rafnar, jón Norðfjörð,
Ounnar Ouðlaugsson og Brynja Hlíöar.
Einnig flytur blaðið kvæði, sögur, myndir
og fréttir. Er blaðið hið myndarlegasta
og á skilið að vera keypt og lesið.
„jólin koma“ heita nokkur kvæði handa
börnum eftir Jóhannes úr Kötlum, sein
Pórhallur Bjarnason prentari hefir gefið
úr. Eru kvæðin prýdd ágætum myndum
eftir Tryggva Magnússon, þ. á m. af Qrýlu,
Leppalúða og öllum jólasveinunum. —
Kverið er hið eigulegasta fyrir börn og
kostar aðeins kr. 1,50.
Vikublaðið búlkinn. Jólablaðið kemur
hingað með Dettifossi í vikulokin. Er það
60 bls. að stærð og um helmingur les-
niálsins héðan frá Akureyri, auk fjölda
auglýsinga. Brynleifur Tobiasson rekur
sögu bæjarins, Stgr. Malthíasson héraðs-
læknir segir sögu spítalans, Sigurður bún-
aðarmálastjóri segir frá Ræktunarfélagi
Norðurlands, Jóhann Frímann skrifar um
iðnað og iðju, Otto Tulinius um útgerð,
og Har. Björnsson um leiklist auk margra
annara greina, sem hér verða ekki taldar.
Nær 50 ágætar myndir, flestar eftir Vigfús
Sigurgeirsson Ijósmyndara, fylgja greinum
þessum, — Af öðru efni má nefna grein
með fjölda mynda um Gunnar Ounnars-
son skáld, sögur eftir Jóhannes Friðlaugs-
son, O. Henry og Selmu Lagerlöf og
jólahugleiðingu eftir sér Friðrik J. Rafnar.
Verð blaðsins ein króna.
Dúnardœgur. Pann 12. þ. m. andaðist
hér í bænum, ekkjan Halldóra Arnfinns-
dóttir, rúmlega sjötug að aldri. Skýrleiks-
og dugnaðarkona. — Pá er látinn að heim-
ili sínu, Qránufélagsgötu 5 hér í bænum,
Stefán Hallgrímsson matsmaður, . valin-
kunniir sæmdarmaður, 66 ára gamall. Dó
hann úr krabbarneini. — Pá pru nýlega
látnar ekkjan Lilja Halldórsdóttir, móðir
Aðalsteins Bjarnasonar smiðs, og Sigríður
Finnsdóttir í Strandgötu 39 — báðar í
hárii elli. —
fólapósturinn að Einarsstöðum fer héð-
an þann 20. þ. m.
Áheit á Strandakirkju — 10 kr. — hefir
fsl. veitt móttöku frá N. N., sjúkling á
Vífilstöðum, og afhent sóknarprestinum
til fyiirgreiðslu.
Styrkið sjúka!
Kaupið Bréf frá Ingu. Bókhlöðuverð
nú aðeins kr. 3,75 í snotru sétt-
ingsbandi, áður kr. 5. Andvirðið
rennur lil bókasafns sjúklinga á
Vifilslöðum og Kristneshæli. Aðal-
útsölur, pósthólf 608 Reykjavík og
pósthólf 27 Akureyri, afgreiða pant-
anir utan af landi með sama verði,
burðargjaldsfrítt. Bóksalar fá venju-
legan afslátt.