Íslendingur

Eksemplar

Íslendingur - 02.03.1934, Side 2

Íslendingur - 02.03.1934, Side 2
2 ISLENDINOUR Jarðarför Sigríðar Orímsdóttur er ákveðin mánudaginn 5. mars, kl. 1 e. h., frá heimili hennar, Brekku- götu 27. Aðstandendur. þannig, að yfirfiskimatsmennirnir megi, þegar sérstaklega stendur á, votta mat á salt- og pressufiski, þótt aðeins einn maður hafi metið hann.« í sambandi við þetta mál var samþykkt eftirfarandi tillaga frá Jóni Sigurðssyni, svo sem í áframhaldi fyrri tillögunnar: »Ennfremur lítur fundurinn þann- ig á, a.ð æskilegt sé að kaup undir- matsmanna verði lækkað úr kr. .2,00 niður í kr. 1,75 á klukkustundc. 2. Mótornámskeiö á Húsavík. Einar Sörenson hafði framsögu í máli þessu og lýsti þörf þeirri, er væri fyrir hendi um námskeið á Húsavík og taldi fullar likur fyrir því að slíkt námskeið mundi verða fullskipað. Lagði hann fram í mál- inu eftirfarandi tillögu: »Fundurinn leggur til, við Fiski- félag íslands, að það á næsta hausti eða fyrri hluta vetrar, komi á mót- ornámskeiði á Húsavík, með svipuðu fyrirkomulagi eins og var á Húsa- vík 1930.« Tillaga þessi var aamþykkt með öllum atkvæðum, 3. Rekstrarlán handa smábát- um. Erindreki Páll Halldórsson hóf umræður um mál þetta. — Vísaði hann til samþykktar þeirrar, sem gerö var á fulltrúafundi á Akureyri 9. janúar 1931 i máli þessu og lagði tram eftirfarandi tillögu, er sam- þykkt var f einu hljóði: »Fundurinn skyrskotar til sam- þybktar sameiginlegs fundar útgerð- armanna í Norðlendingafjóröungi, er fylgir hér með í eftirriti. Fund- urinn telur ekki fengna úrlausn þessa máls enn þá og leyfir sér því að snúa sér til hins háttvirta Fiski- félags íslands og háttv. Milliþinga- nefndar í sjávarútvegsmálum, er nú situr að störíum, með beiðni um að þessir aðilar geri sitt ítrasta til að úr reksturslánaþörfinni verði bætt svo íljótt sem með nokkru móti er mögulegt.« f*egar hér var komið var fundi frestað til kl. 9 síðd., því von var fleiri fulltrúa, en áður en fundarhlé var tekið var kosin þriggja manna neind til þess að undirbúa tillögu i 5. máli dagskrárinnar »Ráðningar- kjör sjómanna*. Kosningu hlutu: JónSigurðsson, Haraldur Guðmunds- son og Sigurvin Edilonsson. Kl. 9 var fundur settur að nýju og voru þá mættir til viðbótar við fulltrúa þá, er áður voru komnir: Frá Grenivík: Þorbjörn Áskélsson og Vilhelm Vigfússon. • Frá Flatey: Hermann Jónsson og- Hinrik Sveinsson. Frá Hrísey: Brynjólfur Jóhannesson Frá Dalvík: Sigfús Þorleifsson. Frá: Ólafsfirði: Jóhann í*. Kröyer. Var þá tekið fyrir næsta mál á dagskrá. 4. Fulltrúaval. Eriudreki Páll Halldórsson reifaði málið og las upp skeyti frá stjórn Sölusamlags ís- lenzkra fiskiframleiðenda, dags. 22. des. 1933. — Kvað hann mál þetta fram komið vegna skeytis þessa, þar sem fram er tekið að um það mundi veröa hlutast að fjórðungarn- ir veldu sér trúnaðarmenn, er fylgd- ust með í störfum stjórnar samlags- ins og gættu hagsmuna hinna ein- stöku fjórðunga. Hafði nefnd sú, er til þess var kosin, átt tal við framkvæmdastjóra Richard Thors, og skýrði hún fundinum frá upplýs- ingum þeim, er íengist höíð.u, og sem hnigu í þá átt aö vafasamt væri hvort, úr nefndu fulltrúavali yröi. . Eftir miklar umræður um málið kom fram eítirfarandi tillaga frá frá Páli Halldórssyni: »Fundurinn lýsir fullu trausti á Sölusamlagi ísl. fiskiramleiðenda, én tjáir sig hins vegar mjög óánægðan með að samlagsstjórnin skuli hafa kvikað frá ákvörðunum sínum í bréfi frá 22. des. f. á. um fulltrúa fyrir fjórðungana og skorar á hana að taka þá á'tvörðun upp aftur til fram- kvæmda á þessu ari.« Ennfremurkom fram svohljóðandi tillaga frá Jóni Sigurðssyni og var hún samþykkt einróma: »Fundurinn skorar á stjórn Sölu- samlagsins að halda fund einu sinni ári með minnst 5 fulltrúum úr hverj- um landsfjórðungi, þar sem mál samlagsins væru ítarlega rædd og teknar ákvarðanir uin framtíðar- sarfsemi þess*. Þegar hér var komiö var liðið að miðnætti og var fundi frestað til næsta dags, Föstudaginn 23. febrúar var fund- ur settur aftur á sama stað og var þá tekið fyrir: 5. Ráðningarkjör sjómanna. — Framsögumaður þessa máls var út- geröarm. Jón Sigurðsson, fyrir hönd nefndar þefrrar, sem kosinn hafði verið til þess að gei a tillögur í mál- inu. Lagði framsögumaður fram nefndarálit og fylgdi málinu úr garði með stuttri ræðu. Um málið urðu fjörugar umræður og hnigu þær í þá átt að halda fast við ályktanir þær, er gerðar voru á íulltrúafundi 9. jan. 1931, en á því hafði reynst brestur að undanförnu. í málinu kom fram svohljóðandi tillaga frá Jóni Sigurðssyni: »Fundurinn mælir eindregið með því, að allsstaðar beri að koma á almennum hlutaskiftum á alla báta smærri sem stærri, eins og tíðkast hjá Siglfirðingum, Hrfseyingum og byrjað er á hjá Ólafsfiröingum, og er í samræmi við fundarsamþykkt, er gerð var á fulltrúafundi. sem haldihn var á Akureyri 9. jan. 1931.« Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Ennfremur kom fram svohljóðandi tillaga fra Páli Halldórssyni: »Fundurinn telur nauðsynlegt að kaupgjald kvenna. við fiskútgerð verði miðað við hlutdeild í afla eða prósentur, að svo miklu leyti, sem við verður komið á. hverjum stað, eins og*" tíðkast á sumum stöðum til dæmis í Ólafsfirði.< Tillaga þessi vár samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. P& var tekið fyrir: 6. Olíuinnkaup. Útgerðarmaður Jón Sigurðsson reifaði máliö með glöggri ræðu og benti á möguleika til olfukaupa frá Rússum, Eftir fjör- MÁLNIN G AVÖRBR: MATROIL (oliubundin þv.ottekta vatnsmálning) m a r g i r 1 i t i r. ^Ntoirí^rc (sterkir litir> 111 að lita með ívicliroil OLdlIlcrö Matroil Distemper). Löguð málning „Rose Brand”. „Perfecto”, glært lakk. Skipamálning (botnfarvi). Zinkhvíta o. m. fl. Fyrirliggjandi í heildsölu iijá: I BRYNJÓLFSSON & KVARAN. Akureyrí. ngar umræður um málið kom fram svohljóðandi fundaráljrktun: »Fundurinn ályktar að kjósa 3ja manna nefnd, er staríi fýrst um sinn að því að reyna að þrýsta niður söluverði á olíum og bénsíni til út- gerðarinnar, og í sambandi þar við að leita verðtilboöa hvar sem hún getur«. Fundarálit þetta var sam- þykkt í einu hljóði, og var síöan kosin nefndin og hlutu kosningu þeir: Jón Sigurðsson, Steíán Jónas- son og Þorvaldur Friðíinnsson, 7. Ut'rarbræösla. Framsögu- maður málsins, Vilhelm Vigfússon, innleiddi málið með stuttri ræðu. Eftir nokkrar umræður var sam- þykkt eítirfarandi fundarályktun: »Fundurinn ályktar að brýna nauðsyn beri til, aö hinar einstöku veiðistöðvar í fjórðungunum komi upp hjá sér nýtísku bræðslustöðvuin fyrir lifur, hver við sitt hæfi að stærð og gerð. í sambandi við þetta fer fundurinn þess á leit við Fiski- félags íslands: 1. Að það afli upplýsinga fyrir verstöðvarnar um kostnaðarhlið og innkaup bræðslutækja, svo og um- búðir um lýsið. 2. Að það leiðbeini verstöðvunum eftir megni um sölumöguleika á hverjum tíma og yfir höfuð hlynni að þessu máli á hvern hátt sem verða má. Felur fundurinn erindreka Fiski- félagsins að koma máli þessu áleiðis og styðja það eftir megni.« 8. Ljósmerki viö bysflinga, — Útgerðarmaður Lorbjörn Áskelsson innleiddi umræður' um mál þetta. Iíftir góðar undirtektir á málinu var samþykkt svohljóöandi tillaga: »Fundurinn skorar á Fiskifélag íslands að beita sér fyrir því að sett verði ljósmerki við Þystlinga við Látra í Grítubakkahreppi, með því að sker þetta er á fjölfarinni leið skipa og báta, er fara út og inu með ströndinni.c 9. Mótorvélaliaup. Útgeröar- maður Sigfús Úorleifsson hreyfði máli þessu og taldi nauðsynlegt aö útgerðermenn sameinuðu sig meira um vissar tegundir véla, sem vel reyndust. 1 málinu kom fram og var samþykkt eítirfarandi tillaga : »Fundurinn áminnir útgerðarmenn um það, að notfæra sér upplýsingar þær, sem Fiskifélag íslands kynni að geta geíið um val á mótorvélum og haga vélakaupum sínum í sam- ræmi viö þær. Eins telur fundurinn æskilegt að verksmiðjur þær, er flestar vélar hafa selt til Norður- landsins, hafi varahluti fyrirliggjandi hér á staðnum.* 10. Síldargeyinsluþrær, »Fund- urinn ítrekar samþykktir síöasta fjórðungsþings í máli þessu.* Á- lyktun þessi kom fram frá útgerðar- manni Jóni Sigurðssyni og var sam- þykkt í einu hljóði, 11. Kosin feröakostnaöarnefnd. Kosnir voru í nefnd þessa með gjaldkera Jóhannesi Jónassyni, þar sem forseti var fjærverandi, þeir Jón Sigurðsson, Páll Halldórsson og Einar Malmquist, Fundargrðin lesin upp og sam- þykkt. Fleira ekki fyrir tekið. — Fundi slitiö. Páll tialldórsson, jón Bencdiktsson.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.