Fréttablaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 2
20. júní 2011 MÁNUDAGUR2 Arnar, er líf þitt undirlagt af nagandi ótta? „Nei, það er ekkert sem nagar mig.“ Arnar Tómasson er með matjurtagarð í Elliðaárdal og hefur sett þar upp snjóvarnargirðingu til að bægja frá nagandi kanínum sem leika lausum hala í dalnum. HEILBRIGÐISMÁL Formaður HIV- Íslands – Alnæmissamtakanna á Íslandi, Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, hefur sagt af sér for- mennsku í félaginu. „Mér hefur ekki tekist að blása meðstjórnend- um mínum í brjóst þann ákafa sem ég hef til að berjast fyrir mannrétt- indum HIV-smitaðra fíkla sem nota sprautubúnað,“ segir Gunnlaugur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. „Alvarlegt ástand ríkir hér á landi í þessum efnum, þar sem þeim sem smit- ast af HIV-veir- unni við að deila nálum hefur fjölgað hratt síðustu mán- uði. Ég hef vilj- að fara af stað með gagnrýni og benda um leið á leiðir til að taka á þess- ari aukningu,“ segir Gunnlaug- ur í samtali við Fréttablaðið. Hann segir afar brýnt að HIV-smituðum sprautu- fíklum sé mætt á þeirra eigin for- sendum en slíkt sé ekki gert í dag. „Sprautufíklar sem smitast þurfa að mæta skilningi og fá strax lyfja- meðferð eins og allir aðrir. Það virðist vera skoðun heilbrigðis- yfirvalda á Íslandi að fíklar sem nota sprautubúnað séu þess ekki umkomnir að hefja lyfja meðferð við HIV þrátt fyrir augljósan ávinning.“ Haraldur Briem sóttvarna læknir segir það ekki rétt að sprautu fíklar fái ekki viðeigandi lyfjameðferð en hins vegar sé erfitt að viðhalda lyfjameðferð ef sjúklingur taki ekki lyfin sín og sinni ekki með- ferð, eins og oft sé tilfellið með fíkla í neyslu. „Það er hins vegar ekki rétt að sjúklingar komi að lok- uðum dyrum; okkar læknar reyna alltaf eftir bestu getu að sinna öllum sjúklingum og gera allt hvað þeir geta til þess,“ segir Haraldur. Á heimasíðu HIV Íslands kemur fram að lyfjameðferð HIV-smit- aðra hamli meðal annars fjölgun veirunnar í blóðinu, auk þess sem hún dragi úr hættu á smiti. Veiran getur hins vegar myndað ónæmi gegn lyfjunum ef lyfjataka er slitr- ótt eða dettur niður. „Yfirlýsing Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar og UNAIDS um „Alheimsaðgengi núna“ er skýlaus krafa um að allir eigi rétt á lyfja- meðferð gegn HIV og alnæmi. Þrátt fyrir þessa afstöðu WHO og UNAIDS er það svo hér á Íslandi, eftir minni bestu vitund, að einung- is einn af þeim sprautufíklum sem greinst hafa með HIV og enn eru í neyslu sé byrjaður á lyfjameðferð,“ segir Gunnlaugur. juliam@frettabladid.is Sprautufíklar þurfa að mæta skilningi Aðgengi HIV-smitaðra sprautufíkla að lyfjameðferð er ekki tryggt að mati Gunnlaugs I. Grétarssonar, sem sagt hefur af sér formennsku í Alnæmissam- tökum Íslands. Sóttvarnalæknir segir sjúklinga ekki koma að lokuðum dyrum. GUNNLAUGUR INGVALDUR GRÉTARSSON JAFNRÉTTISMÁL Forseti borgar- stjórnar, Elsa Hrafnhildur Yeo- man, lagði blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kven- réttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavíkurborg heiðrar minn- ingu Bríetar og baráttukvenna fyrir kvenfrelsi. Elsa flutti ræðu um líf og störf Bríetar og kórinn Graduale Nobili söng. Að lokinni athöfninni var boðið til kaffisamsætis að Hallveigarstöðum sem Kvenrétt- indasamband Íslands efndi til. - mmf Blómsveigur að leiði Bríetar: Reykjavík heiðrar Bríeti MINNING BRÍETAR HEIÐRUÐ Þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavíkurborg heiðrar minningu Bríetar. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG HARALDUR BRIEM Sprautufíklar sem smitast þurfa að mæta skilningi og fá strax lyfjameðferð eins og allir aðrir. GUNNLAUGUR I. GRÉTARSSON FORMAÐUR HIV-ÍSLANDS HÚSAKYNNI FÍKLA Fjöldi HIV-smitaðra tvöfaldaðist á síðasta ári. Það sem af er þessu ári hafa ellefu einstaklingar greinst með HIV-smit. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hætt við jarðarsölu Vegna óvissu um beitiland og vatnaveitingar á áhrifasvæði Skaftár hefur sveitarstjórnin hætt við áður ákveðna sölu á jörðinni Á og leigja hana frekar út. Þrjú kauptilboð bárust, þar af tvö í jörðina alla. Annað var upp á 12,9 milljónir króna og hitt upp á 13 milljónir. SKAFTÁRHREPPUR Ógnaði með hnífi Lögreglan handtók í gær mann sem hafði veist að starfsmönnum og viðskiptavinum Nóatúns í Austur- veri. Maðurinn var vopnaður hnífi. Hann var handsamaður skammt frá Grensáskirkju þar sem hann var í óða önn að rífa niður íslenska fánann sem blakti þar við hún. LÖGREGLUFRÉTTIR GRIKKLAND Georgios Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðið gríska þingið að hvetja til þjóðarsáttar vegna skuldavanda landsins, að því er fram kom í fréttum breska ríkisútvarpsins. Papandreú sagði að gjaldeyris- forði landsins yrði fljótlega verða urinn ef stjórnmálamenn gripu ekki til sinna ráða. Fjármálaráðherrar evrusvæðis- ins ætla að koma saman til fundar í Lúxemborg. Þar munu þeir ræða veitingu láns til Grikklands, en Grikkir þarfnast lánsins til þess að koma í veg fyrir vanskil á lánum sínum. Lánið er skilyrt þannig að ríkisstjórnin þarf að framkvæma erfiðar aðhaldsaðgerðir sem hafa valdið mótmælum á götum úti á höfuðborginni. Papandreú stokkaði upp í ríkis- stjórn sinni á föstudag þannig að fyrrverandi varnarmálaráðherra, Evangelos Venizelos, kom í stað fjármálaráðherrans, Georgios Papakonstantinú. Aðgerðin hafði jákvæð áhrif á hlutabréf grískra banka en friðaði ekki almenning. Papandreú sagði að endur- bætur væru nauðsynlegar á grísku stjórnmálakerfi og boðaði þjóðaratkvæðagreiðslu seinna á árinu auk mögulegra breytinga á stjórnar skránni. - mmf Gjaldeyrisforði Grikklands verður fljótlega upp urinn verði ekki gripið til aðgerða: Vill þjóðarsátt í Grikklandi GRIKKIR MÓTMÆLA Papandreú sagði að endurbætur væru nauðsynlegar á grísku stjórnmálakerfi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVÍÞJÓÐ Sænska lottósambandið hefur leitað árangurslaust að sigurvegara lottósins frá laugar- deginum 12. júní. Hinn heppni vinningshafi vann 105 milljón sænskar krónur, sem eru tæp- lega tveir milljarðar íslenskra króna. Sænska lottósambandið veit hver maðurinn er, þar sem hann keypti miðann með svokölluðu spilakorti. Hringt er í vinnings- hafann tvisvar sinnum á klukku- tíma. Vandamálið er bara að hann svarar ekki í símann. - mmf Vann milljarða í sænsku lottói: Vinningshafi sem svarar ekki FASTEIGNIR Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 319,6 stig í maí og hækkar þannig um 2,7 prósent frá fyrri mánuði, að því er fram kemur á vef Þjóð- skrár Íslands. Þar kemur fram að síðastliðna þrjá mánuði hafi vísitalan hækk- að um 3,7 prósent; síðastliðna sex mánuði hækkaði hún um 4,3 prósent og síðastliðna tólf mánuði hækkaði vísitalan um 3,5 prósent. - þj Þróun á fasteignamarkaði: Vísitala íbúða- verðs hækkar HÆKKUN Á MARKAÐI Vísitala íbúða- verðs hefur hækkað um 4,3 prósent á hálfu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS KJARAMÁL Samningafundur milli Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) í gær skilaði ekki árangri og stendur því enn boðað yfirvinnubann FÍA sem hefst næstkomandi föstudag. Næsti fundur verður sennilega á morgun. Í tilkynningu frá Icelandair er lýst yfir vonbrigðum með aðgerðir FÍH þrátt fyrir að fyrir tækið hafi boðið flugmönnum sínum sam- bærilegar hækkanir og aðrir laun- þegahópar hafa fengið að undan- förnu. Þar segir einnig að flug og ferðaþjónusta séu afar viðkvæm fyrir umræðu um röskun á ferð- um, nú á háannatíma, og vonast fyrirtækið til þess að samningar náist án truflana. Hafsteinn Pálsson, formaður stjórnar FÍH, segir í samtali við Fréttablaðið að viðræðurnar séu á viðkvæmu stigi en hann telji ekki mikið bera á milli aðila. Varðandi kröfur flugmanna segir Hafsteinn að málið snúist ekki alfarið um prósentu- eða krónutöluhækkanir sem slíkar. „Það er verið að vinna í ýmsum málum tengdum vinnufyrirkomu- lagi flugmanna og öðru sem miður hefur farið á síðustu misserum.“ - þj Kjaradeila Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair er enn í hnút: Vilja breytingar á vinnufyrirkomulagi STEFNIR Í AÐGERÐIR Flugmenn Iceland- air hafa boðað yfirvinnubann frá og með föstudeginum, hafi samningar ekki tekist í millitíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Karlmaður um fimmtugt fannst látinn tæpa tvo kílómetra frá sumarhúsi sínu við Selsund við Heklurætur á tíunda tímanum á laugardagskvöld. Talið er að maðurinn hafi orðið bráð- kvaddur. Maðurinn fór frá sumarhúsi sínu og ætlaði að hlaupa til Hellu, sem er í um 25 til 30 kílómetra fjarlægð, og hitta fjölskyldu sína. Maðurinn var vanur langhlaupum og í góðu formi. Þegar hann skilaði sér ekki til Hellu var farið að grennsl- ast fyrir um hann. Leit hófst fljótlega eftir hádegi. Kallað var eftir aðstoð Landhelgisgæsl- unnar og tvær þyrlur tóku þátt í leitinni. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins á þessari stundu. Karlmaður fannst látinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.