Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 6

Fréttablaðið - 20.06.2011, Side 6
20. júní 2011 MÁNUDAGUR6 Sumarjógúrt með mangó frá MS. Frábær í útileguna, í bústaðinn eða hvar sem þú ert á ferðinni í sumar. ms.is BANDARÍKIN Robert Gates, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, hefur staðfest að bandarísk stjórnvöld eigi nú ásamt fulltrúum annarra ríkja í viðræðum við talibana í Afganistan um hvernig hægt sé að binda enda á stríðsátökin í landinu. Hann ítrekar að þrátt fyrir viðræð- urnar megi ekki búast við því að brottflutningur bandarískra hermanna frá Afganistan gangi hraðar fyrir sig. Stríðið í Afganistan hefur staðið yfir í um tíu ár og hefst brottflutningur bandarískra her- manna í næsta mánuði. Bandarísk stjórnvöld: Hefja viðræður við talibana ROBERT GATES VIÐSKIPTI Kröfuhafar Byrs spari- sjóðs eru mjög ósáttir við framferði stjórnar nýja Byrs og saka hana um að halda frá þeim upplýsingum um afkomu bankans. Þá segja kröfu- hafar stjórnina hafi stigið á tær þeirra með því að grípa inn í val slitastjórnar og kröfuhafaráðs á ráðgjöfum sem áttu að sjá um sölu á bankanum. Eins og fram hefur komið ákvað stjórnin að ganga til samninga við fjármálafyrirtækið Arctica Fin- ance um söluna. Stefán Þór Bjarna- son, framkvæmdastjóri og einn eigenda Arctica Finance, er eigin- maður Evu Bryndísar Helgadótt- ur, formanns slitastjórnar Byrs. Móður bróðir hennar er stjórnar- formaður Arctica Finance og jafn- framt í hópi eigenda fyrirtækisins. Áætlað er að þóknun Arctica Fin- ance við söluferlið geti legið á milli sjötíu og 140 milljóna króna. Kröfuhafar Byrs sparisjóðs eiga 95 prósenta hlut í nýja Byr. Þeir hafa ekki fengið eignarhlut sinn afhentan heldur er hann í umsjón fjármálaráðuneytis. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í vikunni hefur ráðuneytið ekki kallað eftir upp- lýsingum um val stjórnar Byrs á ráðgjöfum við söluferlið. Stjórn Byrs telur ekkert óeðlilegt við það að Arctica Finance hafi orðið fyrir valinu þrátt fyrir fjölskyldu- tengslin. Slitastjórnin boðaði fjögur fjár- málafyrirtæki á fund í Lundúnum í mars með það fyrir augum að velja ráðgjafa við söluna á Byr. Fyrir- tækin sem þar kynntu starfsemi sína voru Arctica Finance, H.F. Verðbréf, Straumur og breska ráð- gjafafyrirtækið THM. Kröfuhafar ósáttir við söluferlið á Byr Ekkert er athugavert við að hjón sitji beggja vegna borðs við sölu á bankanum, að mati stjórnar Byrs. Tveir af ráðgjöfum Arctica Finance sem unnið hafa að söluferlinu voru yfirheyrðir vegna milljarðamillifærslna frá Landsbankanum. FRAMAN VIÐ ÞRÖSKULD BYRS Kröfuhafar segja stjórn nýja Byrs troða sér um tær. Þeir hafi engar upplýsingar um afkomu bankans og fái lítið að segja um söluferli hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Jón Þorsteinn Oddleifsson, fyrrverandi forstöðumaður fjárstýringar hjá gamla Landsbankanum, og Þórir Örn Ingólfsson, fyrrverandi yfirmaður áhættustýr- ingar hjá sama banka, eru á meðal þeirra fjögurra ráðgjafa Arctica Finance sem komið hafa að söluferlinu á Byr. Þeir eru ekki á skrá yfir starfsmenn Arctica Finance en eru með tölvupóstföng fyrirtækisins. Þeir voru báðir hand- teknir í janúar síðastliðnum og yfirheyrðir í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á 35 milljarða króna millifærslum frá Landsbankanum til fjárfestingarbankans Straums og MP banka þremur mínútum áður en Geir H. Haarde flutti ávarp þar sem hann Guð að blessa þjóðina í október 2008. Jón Þorsteinn kemur víða við í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þar er hann sagður lykilmaður í ástarbréfaviðskiptunum við Seðlabanka Íslands. Viðskiptin leiddu til þess að Seðlabankinn varð tæknilega gjaldþrota. Tveir ráðgjafar huldumenn með netföng NEYTENDUR Sala á nautakjöti jókst um 2,8 prósent í maí miðað við sama mánuð í fyrra, að því er fram kemur í yfirliti Bænda- samtaka Íslands. Á sama tíma jókst framleiðsla einnig um 1,4 prósent en fleiri virkir dagar voru í maí í ár en í fyrra. Framleiðsla og sala nautakjöts hefur hins vegar minnkað sé horft til síðustu þriggja mánaða, miðað við árið 2010. Framleiðsla hefur minnkað um 0,5 prósent og sala um 1,4 prósent. Heildar- sala annarra kjöttegunda hefur einnig minnkað. - mmf Minna selst af kjöti: Meira selt af nautakjöti í maí Fyrir hálfum mánuði ákvað stjórn Byrs hins vegar að semja við Arctica Finance. Þolinmæði fulltrúa breska ráðgjafafyrirtæk- isins mun vera á þrotum og fund- uðu þeir nýverið með Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskipta- ráðherra, vegna málsins. Kröfuhafar Byrs segjast hafa viljað að slitastjórnin fengi að sjá um söluna. Stjórn nýja Byrs hafi hins vegar skilið kröfuhafa eftir úti í kuldanum. Ekki er vitað til þess að stjórn nýja Byrs hafi átt í viðræðum við önnur fjármálafyrirtæki en Arctica Finance um ráðgjöf við söluferlið. Eftir því sem næst verð- ur komist var þeim ekki kunnugt um viðræður slitastjórnar við fjár- málafyrirtækin fjögur í Lundún- um. jonab@frettabladid.is DANMÖRK Nítján ára piltur lét lífið á Ríkisspítalanum í Kaupmanna- höfn í gærmörgun eftir átök á skemmtistað. Hann hlaut hnefahögg í höfuðið og virðist hafa lent illa með fyrr- greindum afleiðingum. Í tilkynningu frá lögreglu í gær voru leiddar líkur að því að hann hefði látist af innvortisáverkum. Árásarmaðurinn hvarf af vett- vangi en annar nítján ára piltur gaf sig fram við lögreglu um hádegisbilið vegna málsins og er í varðhaldi. - þj Sviplegur dauði í Danmörku: Lést eftir högg á skemmtistað VERÐLAUN Frú Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hlaut verðlaun Jóns Sig- urðssonar forseta árið 2011. Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í gær. Ásta R. Jóhannesdóttir, for- seti Alþingis, afhenti verðlaunin. Alþingi veitir verðlaunin í minn- ingu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga. Frú Vigdís Finnbogadóttir fékk verðlaunin meðal annars fyrir að efla og styrkja vináttu milli Íslands og Danmerkur sem ötull talsmaður menningarsamskipta þjóðanna. - mmf Hátíð haldin í Jónshúsi: Vigdís tók við verðlaunum STYRKTI VINÁTTU Frú Vigdís Finnboga- dóttir hlaut verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. SKIPULAGSMÁL Eigendur húss við Fjallalind í Kópavogi þurfa nú að standa skil á alls kyns fram- kvæmdum sem ekki eru í sam- ræmi við samþykktar teikn- ingar. Á síðasta fundi skipulags- nefndar Kópavogs voru þessi atriði færð til bókar. Kemur fram að stoðveggur nær út fyrir lóðarmörk, steypt mannvirki, veggir og plata norðvestan við húsið þykja benda til þess að verið sé að byggja bílskúr í leyfisleysi, gluggar á svokölluðu óútgröfnu rými og benda til að það verið tekið í notkun. Þá er umfang svala og súlur við þær í ósamræmi við teikningar. Skúr og „framkvæmd“ við eitt horn hússins eru heldur ekki á teikn- ingum. - gar Vilja skýringar húseigenda: Hús þandist út fyrir teikningar Er kvótafrumvarpi Jóns Bjarna- sonar við bjargandi? Já 36,8% Nei 63,2% SPURNING DAGSINS Í DAG Eiga kanínur tilverurétt í íslenskri náttúru? Segðu þína skoðun á visir.is NEYTENDUR Sigurður Kristinsson, eigandi Team Hairstudio, er afar ósáttur við framgang verðlags- eftirlits Neytendastofu. Stofan fékk fimmtíu þúsund króna sekt í lok mars sökum þess að verðmerking- um var ábótavant. „Það kom hingað starfsmaður frá Neytendastofu og gerði athuga- semdir við verðmerkingar. Síðan kemur hann aftur og ítrekar málið. Við settum þá upp verðlista daginn eftir. Þrátt fyrir það fengum við 50 þúsund króna sekt 31. mars,“ segir Sigurður. „Það kom enginn starfs- maður Neytendastofu til þess að kanna hvort við værum búin að setja upp verð- lista. Við erum mjög ósátt. “ Sigurður hringdi á Neyt- endastofu um leið og sektin barst og segir að þar hafi mætt sér kulda- legt viðmót. „Þau vilja fá skriflega kvörtunarbeiðni, sem ég mun senda. Þetta er Neytendastofu hreinlega til skammar.“ Þórunn Anna Árnadóttir hjá verð- lagseftirliti Neytendastofu segir ástæðu sektarinnar þá að enginn hafi svarað fyrirspurn Neytenda- stofu um hvort búið væri að koma verðmerkingum í samt lag. „Við fórum tvisvar í heimsókn og sendum tvisvar bréf,“ segir hún. „Við fórum fram á skrifleg svör, þau bárust ekki og því sektuðum við.“ Þórunn segir eigendur Team Hairstudio geta farið með málið til áfrýjunarnefndar neytendamála. „En mál sem við höfum unnið með þessum hætti hafa ekki verið felld úr gildi,“ segir Þórunn. - sv Eigandi hársnyrtistofu ætlar að kvarta undan framgangi Neytendastofu: Ósáttur við að vera sektaður SIGURÐUR KRISTINSSON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.