Fréttablaðið - 20.06.2011, Síða 15

Fréttablaðið - 20.06.2011, Síða 15
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Herborg Eðvaldsdóttir er á leið í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sýningin Hlutirnir okkar stendur nú yfir í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Þar gefur að líta fjölbreytt úrval af safngripum í eigum safnsins. Má þar nefna verðlaunalampann Heklu frá 1962 eftir Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson húsgagna- hönnuði sem safnið fékk að gjöf í tilefni sýningarinnnar. Spennandi tækifæri Þ etta verður skemmtileg upplifun,“ segir Her- borg Eðvaldsdóttir, einn þriggja nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík sem valdir voru í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. Tilkynnt var um valið á alþjóð- legu sýningunni DMY í Berlín á dögunum, þar sem sjö nemendur skólans sýndu verk sín. „Við fáum fullan aðgang að verkstæðum, efnum og sérfræðingum verksmiðjunnar í þrjár vikur. Það hljómar ekki langur tími en ofnarnir eru öfl- ugir og vinnuferlið gengur hraðar en hér,“ segir Herborg. Hún segir spennandi að fá að kynnast starfsemi svo stórrar verksmiðju og að starfs- námið geti opnað ýmsa möguleika í framtíðinni. Herborg sýndi samsettan blómavasa í Berlín. „Ég var orðin leið á að leita eftir vasa sem hent- aði undir blómvendi. Ég gerði því vasa sem hægt er að stækka og minnka eða raða saman eins og skúlptúr. Eins er hægt að snúa stykkjunum við og nota sem kertastjaka,“ segir Herborg, sem sér sjálf um framleiðslu vasans. „Ég er að koma mér upp vinnuaðstöðu og kemst vonandi af stað í haust. Draumurinn er auðvitað að láta fjöldaframleiða hann.“ Nánar má kynna sér verk nemendanna á síðunni www. atriptothefactory.com. heida@frettabladid.is Listh Nýir svefnsófar - margar gerðir 12 mánaða vaxtalausar greiðslur Gleðilegt grillsumar www.weber.is Bonito ehf. Friendtex Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is Opnunartími: mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 Lokað laugardaga ÚTSALA MIKIÐ ÚRVAL AF FALLEGUM FATNAÐI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.