Fréttablaðið - 20.06.2011, Page 17
FASTEIGNIR.IS
Inná www.landmark.is er hægt að panta
verðmat eða selja í sölu.
...Og við höfum samband um hæl!
Landmark fasteignasala
- Þú hringir – við seljum!
KÍKTU INNÁ WWW.LANDMARK.IS – ÖFLUGUR HÓPUR SÖLUMANNA!
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
20. JÚNÍ 201125. TBL.
Hraunhamar fasteignasala hefur til sölu
glæsilegt einbýli á einni hæð með sérstæðum
bílskúr í Hafnarfirði.
E inbýlið stendur við Steinahlíð í Hafnarfirði og er í heildina 168 fermetrar.Góður inngangur er á húsinu og komið er
inn í rúmgóða flísalagða forstofu með vönduðum
skápum. Gott herbergi er inni af forstofu.
Björt stofa er í húsinu og falleg borðstofa. Einnig
er rúmgóður sjónvarpsskáli með útgangi út á suður-
verönd. Eldhúsið er með vandaðri innréttingu. Gott
þvottaherbergi með sérútgangi er einnig í fasteign-
inni.
Í svefnálmu eru tvö góð barnaherbergi með skáp.
Þá er rúmgott svefnherbergi með skáp og útgangi út í
garðinn. Einnig er flísalagt baðherbergi með baðkari,
sturtuklefa, vandaðri innréttingu og glugga.
Innfelld halógenlýsing er í stofu, borðstofu og sjón-
varpsskála. Þar er einnig hvíttaður askur á loftum og
eikarparkett á gólfum.
Rúmgóður 32,8 fermetra bílskúr stendur við fast-
eignina. Þá er garður auk verandar með skjólgirð-
ingu og heitum potti. Fyrir utan er hellulagt bílaplan
með hita.
Einbýli á rólegum stað
Eignin er fullbúin og vönduð.