Fréttablaðið - 20.06.2011, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 20. júní 2011 23
’Coca-Cola’,’Coke’ and the ‘Coca-Cola’ contour bottle are trademarks of The Coca-Cola Company. © 2011 The Coca-Cola Company.
Coca-Cola® er stoltur stuðningsaðili
íslenska U-21 árs landsliðsins.
Gylfi Sigurðsson
Framherji
Valitor-bikar kv. 8 liða úrsl.
ÍBV - Völsungur 4-0
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (2 mörk), Danka
Podovac, Hlíf Hauksdóttir.
Þór/KA - Fylkir 0-1
0-1 Anna Björg Björnsdóttir (33.)
Sindri - Afturelding 0-2
Elín Svavarsdóttir, Kristrún Halla Gylfadóttir.
Stjarnan - Þróttur R. 5-0
1-0 Gunnhildur Yrsa (6.), 2-0 Kristen Edmonds
(33.), 3-0 Kristrún Kristjánsd.(35.), 4-0 Þórhildur
Stefánsdóttir (62.), 5-0 Ashley Bares (87.)
Fjölnir - Grindavík 0-5
Shaneka Gordon 3 (3., 38., 44), Saga
Finnbogadóttir (25.), Dernelle Mascall (78.)
Selfoss - KR 3-4
Anna Þorsteinsdóttir 2 (60., 90.), Anna María
Friðgeirsd.(54.) - Dagmar Mýrdal Gunnarsd. 3 (8.,
38., 75.) Freyja Viðarsd. (90.)
Breiðablik - Valur 0-1
0-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir (6.)
FH - ÍA 8-0
Aldís Kara Lúðvíksdóttir 3, Sigrún Ella
Einarsdóttir 3, Bryndís Jóhannesdóttir 2.
ÚRSLIT
Efstu þjóðir (2 efstu fóru upp)
1. sæti Ísrael, 490 stig
2. sæti Kýpur, 469 stig
3. sæti Moldóvía, 440 stig
4. sæti Ísland, 411 stig
5. sæti Bosnía, 390 stig
Íslendingar á topp þrjú
Björgvin Víkingsson 400 m grind
3. sæti á 52,96 sekúndum 13 stig
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkast
1. sæti með 55,18 metra 15 stig
Bergur Ingi Pétursson sleggjukast
3. sæti með 66,79 metra 13 stig
Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarp
3. sæti með 18,75 metra 13 stig
Fjóla Signý Hannesdóttir 400 m hlaup
3. sæti á 57,52 sekúndum 13 stig
Kristinn Torfason langstökk
2. sæti með 7,78 metra 14 stig
Kári Steinn Karlsson 5000 m hlaup
3. sæti á 14:29,49 mínútum 13 stig
Bjarki Gíslason stangarstökk
3. sæti með 4,80 metra 13 stig
Helga Margrét Þorsteinsdóttir kúluvarp
2. sæti með 13,90 metra 14 stig
Hafdís Sigurðardóttir langstökk
2. sæti með 5,99 metra 14 stig
Kári Steinn Karlsson 3000 m hlaup
3. sæti á 8:21,17 mínútum 13 stig
EM Í FRJÁLSUM
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Ísland
lenti í fjórða sæti í 3. deild í
Evrópubikarnum í frjálsum
íþróttum sem fram fór á
Laugardalsvelli um helgina.
Ísland hlaut 411 stig sem er ellefu
stigum meir en liðið hlaut á sama
móti á Möltu fyrir ári. Unnur
Gunnarsdóttir verkefnastjóri
landsliðsins og Evrópubikarsins
var mjög ánægð með
frammistöðu íslenska liðsins.
Hún sagði Ísland þó hafa liðið
fyrir fjölþrautarmót í Tékklandi í
vikunni þar sem Einar Daði Lár-
usson var meðal keppenda. Hann
treysti sér ekki til að hlaupa í 110
metra grindahlaupi vegna þreytu.
Þá hefði ungt fjölþrautarfólk
staðið sig vel á Norðurlandamóti
í Finnlandi um helgina. Sumt
þeirra hefði styrkt íslenska liðið.
Unnur sagði skipulagningu
mótsins, sem er hið stærsta sinn-
ar tegundar sem haldið hefur
verið hér á landi, hafa tekist
einkar vel. Allar tímasetningar
hefðu staðist og í raun hefði
veðrið verið of gott ef eitthvað
var. „Ég hefði alveg verið til í rok
og rigningu. Það hefði hjálpað
okkar liði,“ sagði Unnur. Ísrael
og Kýpur lentu í efstu sætum og
unnu sér sæti í 2. deild. - ktd
Ísland í fjórða sæti á EM:
Rok og rigning
hefðu hjálpað
KÁRI STEINN KARLSSON Náði í 26 stig
fyrir Ísland um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
FÓTBOLTI Valskonur héldu sigur-
göngu sinni áfram í bikarnum í gær
þegar þær unnu 1-0 sigur á Breiða-
bliki í leik liðanna í 16 liða úrslitum
Valitor-bikars kvenna á Kópavogs-
vellinum.
Valsliðið hefur unnið bikarinn
undanfarin tvö ár og var að slá
Breiðablik út úr sextán liða úrslitun-
um annað árið í röð. Auk Vals kom-
ust Grindavík, KR, FH, Stjarnan,
Fylkir, ÍBV og Afturelding áfram í
átta liða úrslitin um helgina.
Bikarsigurinn á Breiðabliki
boðar líka gott fyrir Valskonur því
að síðustu fimm bikarmeistarar
eiga það sameiginlegt að hafa sleg-
ið út Blika á leið sinni að titlinum,
þ.e. allir bikar meistarar síðan
Breiðablik vann bikarinn síðast
haustið 2005. Kristín Ýr Bjarna-
dóttir skoraði sigurmark Vals strax
á 6. mínútu.
Shaneka Gordon skoraði þrennu
fyrir Grindavík í 5-0 útisigri á
Fjölni, Dagmar Mýrdal Gunnars-
dóttir skoraði þrennu fyrir KR í 4-3
sigri á Selfossi og þær Aldís Kara
Lúðvíksdóttir og Sigrún Ella Ein-
arsdóttir voru báðar með þrennu
fyrir FH í 8-0 sigri á ÍA í Kapla-
krika. - óój
Sextán liða úrslit Valitor-bikars kvenna í fótbolta fóru fram um helgina og átta liða úrslitin eru klár:
Bikarsigur á Blikum boðar gott fyrir Valskonur
EITT MARK NÓG Valskonur komust áfram eftir 1-0 sigur í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG