Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 4
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR4 Í frétt um verð á vegabréfum í Fréttablaðinu í gær var ranglega sagt að það kostaði 1.540 krónur að fá vegabréf á Íslandi. Hið rétta er að það kostar 1.540 krónur fyrir hvert ár sem vegabréfið gildir. Vegabréfið gildir í fimm ár og kostar 7.700 krónur. Í Fréttablaðinu í gær var því ranglega haldið fram að skiptastjóri Fons hefði stefnt þremur fyrrverandi stjórnar- mönnum til greiðslu þriggja milljarða skaðabóta. Hið rétta er að hann hefur einungis kallað eftir afstöðu þeirra til bótaskyldunnar en ekki hefur verið tekin ákvörðun um málshöfðun. LEIÐRÉTTING Í frétt af guðlaxi í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að annar guðlax hefði verið sendur í uppstoppun norður í land árið 1991 en aldrei skilað sér til baka. Haraldur Ólafsson, sem sérhæfir sig í uppstoppun á fiskum, vill taka fram að hann kom ekki að því máli, enda ekki byrjaður að stoppa upp fiska á þeim tíma. ÁRÉTTING DÓMSMÁL Stórtækur fíkniefna- smyglari, Junierey Kenn Par- dillo Juarez, var í gær dæmdur í Héraðs dómi Reykjavíkur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir að flytja nær 37 þúsund e-töflur og 4.471 skammt af LSD til landsins. Þetta er með þyngri dómum sem burðardýr hefur hlotið í fíkniefna- máli. Maðurinn var handtekinn í mars við komuna til landsins frá Kanaríeyjum. Fíkniefnin fundust í tveimur töskum hans en í þeim var falskur botn. Við upphaf yfirheyrslna var framburður mannsins mjög á reiki. Þegar mynd tók að koma á málið lá ljóst fyrir að Juarez hafði tekið að sér að fara til Kanaríeyja í því skyni að sækja fíkniefni og flytja þau til landsins. Fyrir þetta átti fíkniefnaskuld hans að lækka um nokkur hundruð þúsund krón- ur. Þá fékk hann hálfa milljón fyrir ferðakostnaðinum. Að auki kvaðst hann hafa fengið 200 þús- und krónur frá ónafngreindum einstaklingi og hefði átt að fá hálfa milljón króna við afhendingu efn- anna. Þar sem Juarez var staddur í Las Palmas var hringt í hann. Eftir það kom Spánverji inn á hótel herbergi hans með tvær ferðatöskur og þeir skiptust á töskum. Juarez sagðist hafa séð að mað- urinn opnaði falskan botn í ann- arri töskunni og þar hefði verið plastpoki. Sjálfur hefði hann talið að hann ætti að sækja kannabis- efni. Héraðsdómur sagði á hinn bóginn að Juarez hafi látið sér í léttu rúmi liggja hvaða fíkniefni var um að ræða og magn þeirra. Um mjög mikið magn hefði verið að ræða og styrkleiki e-taflanna yfir meðallagi. - jss Átti að fá hálfa milljón við afhendingu efnanna og lækkun á fíkniefnaskuld sinni: Stórtækur dópsmyglari fékk sex og hálft ár JUNIEREY KENN PARDILLO JUAREZ Var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi. SLYS Fjögur ungmenni sluppu ómeidd eftir að bát sem þau voru í hvolfdi seint á miðvikudags- kvöld. Fólkið hafði verið á kvöldsigl- ingu á Meðalfellsvatni og hvolfdi bátinum. Það náði að koma sér í lítinn hólma í vatninu og kalla eftir aðstoð. Björgunarsveitir af Kjalarnesi og úr Reykjavík fóru á staðinn ásamt slökkviliði. Ung- mennin voru flutt á slysadeild enda köld og hrakin, en þau voru útskrifuð af spítala að lokinni aðhlynningu. - þeb Ungmenni sluppu ómeidd: Hvolfdu báti á Meðalfellsvatni LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð borgarsvæðinu leitar nú rottweiler- hunds og eiganda hans eftir að sá fyrrnefndi réðst á gervihvítabjörn á Laugaveginum síðdegis í gær. Myndir náðust af geranda og eiganda hans, sem hurfu á braut. Dýrið er í eigu verslunar neðar lega í götunni. „Ísbjörninn særðist nokkuð mikið og þarfn- ast sauma,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni, sem áréttar að hundar eru bannaðir víða í borg- inni, þar með talið á Austurvelli, Austurstræti, Bankastræti og Laugavegi. „Skiptir þá engu um stærð hunda eða geðslag þeirra, eitt verður yfir alla að ganga,“ segir lögreglan. - sv Lögreglan leitar bitvargs: Hundur réðst á ísbjörn og beit Teppa á Suðurlandsvegi Mikil og þung umferð var á Suður- landsvegi í gærkvöldi og hreyfðist hún afar hægt. Fjöldi manns var á leið austur á Bestu útihátíðina sem hófst á Gaddstaðaflötum við Hellu í gær. Búist er við hátt í tíu þúsund gestum. UMFERÐ VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 26° 28° 21° 25° 27° 22° 22° 25° 20° 30° 30° 33° 20° 23° 21° 24°Á MORGUN víða hæg breytileg átt, hvassara við NA-stöndina MÁNUDAGUR 3-8 m/s 11 11 13 8 10 9 7 8 11 11 12 2 3 2 4 4 3 22 5 3 2 12 12 13 13 11 13 18 17 11 12 VÍÐA BJART Lítur út fyrir bjarta helgi um mest allt land þó e.t.v. ekki fyrir austan fyrr en á mánudag. Dá- lítil væta A-til í dag og á morgun og stöku seinniparts- skúrir S-til. Hæg breytileg átt víðast hvar næstu daga og komin SV-átt á mánudaginn með bjartviðri og ágætum hita. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður GENGIÐ 08.07.2011 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,3763 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 116,03 116,59 185,09 185,99 165,38 166,30 22,17 22,30 21,349 21,475 18,215 18,321 1,4247 1,4331 184,25 185,35 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ÞÓR HF REYKJAVÍK - AKUREYRI Sláttutraktorar Reyk j av í k : K r ó k h á l s 1 6 Á r m ú l a 1 1 S í m i 5 6 8 - 1 5 0 0 Aku r ey r i : L ó n s b a k k a S í m i 5 6 8 - 1 5 5 5 w w w. t h o r. i s SUÐUR-SÚDAN Undanfarna daga hafa íbúar í Suður-Súdan búið sig undir stofnun nýs ríkis í sam- ræmi við niðurstöður þjóðar- atkvæðagreiðslu sem haldin var í janúar síðastliðnum. Sjálfstæði verður formlega lýst yfir í dag. Leiðtogar margra Afríku- ríkja verða viðstaddir hátíðar- höldin ásamt Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og Colin Powell, fyrr- verandi utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Sex ár eru síðan meira en tutt- ugu ára borgarastríði lauk með friðarsamkomulagi. Partur af því samkomulagi var að íbúar í sunn- anverðu landinu, sem aðhyllast ýmis afrísk trúarbrögð og kristni, fengju að kjósa um aðskilnað frá norðurhlutanum, þar sem arab- ískumælandi íbúar eru í meiri- hluta og alls ráðandi. Nánast allir íbúar suður hlutans samþykktu sjálfstæði í kosning- unum í janúar. „Stjórnin á samt mikið verk óunnið,“ segir Albino Gaw, einn íbúanna í suðurhlutanum. „Annars verður allt hérna eins og það var áður.“ UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vekur athygli á því að ríflega helmingur íbúa þessa nýja ríkis er á barnsaldri. „Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þessari „sjálfstæðiskynslóð“ að lifa af og blómstra,“ segir í yfir- lýsingu frá UNICEF. Sigríður Víðis Jónsdóttir, upp- lýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi, var sjálf á þessu svæði sem blaða- maður fyrir sex árum, stuttu eftir lok borgara stríðsins sem kostaði tvær milljónir manna lífið. „Þá bjuggust fáir af þeim sem ég ræddi við við því að friðurinn myndi halda, hvað þá að kosning- arnar fengju að fara fram – hvað þá að úrslitin yrðu virt,“ segir hún. „Nú hefur þetta allt hins vegar gengið í gegn og ég trúi því bara varla.“ Veruleg spenna er enn á milli norðurs og suðurs og hefur vaxið eftir að sunnanmenn samþykktu í janúar síðastliðnum að stofna sjálfstætt ríki. Deilt er um legu landa mæranna og auðlindir í jörðu, einkum olíu og gas sunnan landamæranna, sem norðanmenn hafa haft veru- legar tekjur af. Óttast er að átök geti brotist út hvenær sem er, en reynt hefur verið að grípa til ráðstafana til að vinna gegn því. Meðal ann- ars samþykktu fulltrúar beggja um síðustu mánaðamót að her- laust svæði verði meðfram landa- mærunum til að draga úr spennu. Þá samþykkti Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna í gær að 7.900 manna alþjóðlegt friðargæslulið verði í Suður-Súdan, þar af 7.000 hermenn og 900 lögreglumenn. gudsteinn@frettabladid.is Nýtt ríki stofnað í suðurhluta Súdans Íbúar Suður-Súdans lýsa formlega yfir sjálfstæði í dag. Suður-Súdan á erfitt verk fyrir höndum. Fátækt er mikil, innviðir fábreyttir og vaxandi spenna á norðurlandamærum hins nýja ríkis. Helmingur íbúanna er á barnsaldri. ÆFA SIG FYRIR HÁTÍÐARHÖLDIN Börn í Suður-Súdan búa sig undir dansatriði sem þau ætla að sýna í dag. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Tveir hálfþrítugir menn hafa verið dæmdir í fimm mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn ungri stúlku á Flúðum sumarið 2009. Mennirnir fóru óboðnir inn í tjald þar sem stúlkan, fimmtán ára gömul, lá sofandi ásamt vini sínum. Annar káfaði á brjóstum hennar innanklæða og reyndi að kyssa hana á munninn á meðan hinn strauk læri hennar við kyn- færin. Stúlkan vaknaði og hljóp grátandi út úr tjaldinu. Tvímenningarnir neituðu sök og sögðu stúlkuna ljúga en dómara þótti framburður þeirra einkar ótrúverðugur. Þeir voru jafnframt dæmdir til að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í bætur. - sh Snertu sofandi 15 ára stúlku: Dæmdir fyrir káf á tjaldstæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.