Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 20
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR20 K emur mynd af okkur í blaðinu?“ Spyrjandi og eftirvæntingarfull andlit mæta blaða- manni og ljósmyndara þegar þau ganga inn í sumarlegan garðinn í Reykjadal. Þá má vart á milli sjá hverjir eru starfsmenn og hverjir gestir, því allir skarta heimatilbúnum índíanafjöðrum. Indíánaþema með pokahlaupi og indíanasöngvum er á dagskránni í dag. „Þau eru búin að bíða síðan snemma í morgun og finnst voða- lega spennandi að fá heimsókn,“ segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir, forstöðumaður sumarbúðanna. Pokahlaupið er byrjað og krakk- arnir keppast við að hvetja hvert annað áfram að indíánasið. Með brosin að vopni stilla þau sér ófeimin upp við myndavélina og fullvissa okkur um að það sé alltaf líf og fjör í Reykjadal. Líf og fjör í Reykjadal Sumarbúðir lamaðra og fatlaðra í Reykjadal fengu Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í vor. Álfrún Pálsdóttir og Haraldur Guðjónsson ljósmyndari fengu að kíkja við í Mosfellsdalinn og taka þátt í indíánaleik með hressum krökkum í Reykjadal. AF LÍFI OG SÁL Sólveig Hlín Sigurðardóttir er forstöðukona Reykjadals, en hún er menntaður líffræðingur og byrjaði í Reykjadal sem sumarstarfsmaður með námi. „Það má segja að maður sé í þessu af lífi og sál. Gleðin og andinn hérna smitar út frá sér og ég get ekki hugsað mér sumar án Reykjadals.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HAG SÖNGSTUND Einbeitingin var mikil inni í índíánatjaldinu, þar sem sungnir voru söngvar á borð við „Kalli litli kónguló“ og „Litli Óli í skógi“. EKKI LOFTHRÆDD Þessi unga stúlka var lipur á leið sinni yfir. NÓG AÐ GERA Garðurinn í Reykjadal býður upp á ýmiss konar leiki. ÓFEIMIN VIÐ MYNDAVÉLINA Sumarbúðir lamaðra og fatlaðra í Reykjadal eru ómissandi hluti af tilverunni hjá börnunum enda býður hver einasti dagur upp á ný ævintýri. Daglegar sundferðir, reiðtúrar, kvöldvökur og veiðiferðir er bara hluti af því sem börnin fá að gera á meðan á dvöl þeirra stendur. „Ég man að eitt sumarið fór ég til Spánar og ég saknaði Reykjadals svo mikið að ég gerði mér sér- staka ferð hingað um leið og ég kom heim til að heilsa upp á krakkana,“ segir Herdís Sólborg Haraldsdóttir stjórnmálafræðingur, en þetta er fimmta sumarið sem hún vinnur við sumarbúðirnar í Reykjadal. „Það er sérstakur andi sem myndast hérna meðal starfsfólks- ins. Við höfum öll mikinn metnað fyrir starfinu enda er ekki annað hægt. Þetta er bæði gaman og krefjandi og það vilja allir gera það besta fyrir börnin,“ segir Herdís og bætir við að það sé eiginlega merkilegt hvað lífið í Reykjadal gengur smurt fyrir sig, en starfs- fólkið gistir í litlum sumarbústað við hliðina á aðalbyggingunni og eyðir því miklum tíma saman. „Ég held að vandfundinn sé svona góður starfsandi eins og myndast hérna á milli okkar og öllum þykir mjög vænt um stað- inn,“ segir Herdís. Hún á örugglega eftir að vera viðloðandi Reykjadal um ókomna tíð. Sérstakur andi meðal starfsfólks HERDÍS SÓLBORG HARALDSDÓTTIR ■ Árið 1959 hóf Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekstur á sumarbúðum fyrir fötluð börn, en starfsemin hefur verið í Reykjadal í Mosfellssveit frá árinu 1963. ■ Árið 1969 var starfræktur heimavistarskóli í Reykjadal sem mætti þörfum fatlaðra barna. Sex árum seinna var skólakerfið tilbúið að taka á móti börnum með sérþarfir og sumarbúðir tóku við af heimavistinni. ■ Í dag hljóðar starfsemi Reykjadals upp á tveggja vikna sumarbúðir á sumrin og helgar- dvalarstað á veturna fyrir fötluð börn og ungmenni. ■ Árlega dvelja í Reykjadal um 200 börn víðs vegar að af landinu. ■ Sund og leikur í vatni hefur ávallt verið mikilvægur hluti starfsins í Reykjadal, en þar hefur verið sundlaug frá árinu 1965. Ný sundlaug var tekin í notkun árið 1994 en þá hafði staðið yfir söfnun frá árinu 1989. Heimild: www.slf.is ■ UM REYKJADAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.