Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 6
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR6
FRÉTTASKÝRING
Hvað tefur fyrir byggingu nýs
fangelsis?
Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru
ekki sammála um hvaða leið beri
að fara við byggingu nýs fangelsis.
Mikill fjöldi brotamanna, sem hlot-
ið hefur dóma, gengur laus þar sem
ekki er pláss fyrir þá í fangelsum
landsins.
Innanríkisráðherra, Ögmundur
Jónasson, hefur sagt að hann vilji
að framkvæmdin sé fjármögnuð af
ríkinu. Það væri ódýrari kostur en
ef einkaaðilar fjármögnuðu verkið.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir hins vegar að bjóða
eigi fjármögnunina út. Þá gætu líf-
eyrissjóðir eða einkaaðilar boðið
í hana. Heimildir Fréttablaðsins
herma að Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra sé sömu skoðun-
ar, en ekki náðist í hann við vinnslu
fréttarinnar.
„Ég vil fara þá leið sem flýtir
þessu mest; að bjóða fjármögnun-
ina út. Þá gætu lífeyrissjóðirn-
ir fjármagnað verkið og ríkið
síðan borgað árlega leigu. Þetta
var gert nýverið varðandi fjölgun
hjúkrunar rýma. Við gætum tekið
ákvörðun strax á morgun ef það
næðist samstaða um þessa fjár-
mögnunarleið. Það er mikilvægt
að menn séu ekki að halda í hug-
myndir sem ekki eru raunhæfar,“
segir Jóhanna.
Þessum orðum hlýtur að vera
beint að Ögmundi Jónassyni, en
hann hefur talað fyrir því að fram-
kvæmdin sé sett á fjárlög. Fyrir
ríkisstjórn liggur tillaga þess efnis.
„Mér finnst það vera hið eina
eðlilega í stöðunni, enda er sú leið
í heildina mun ódýrari og þar af
leiðandi hagkvæmari fyrir skatt-
greiðendur. Menn ætla að munur-
inn gæti verið á bilinu 300 til 500
milljónir króna,“ segir Ögmundur.
Jóhanna segir að sé ætlunin að
fara þá leið verði að svara því hvar
eigi að skera niður eða afla tekna á
móti. Alls er um 2 milljarða króna
framkvæmd að ræða.
„Það þýðir ekki að koma með
inn á borðið tillögu um 2 milljarða
útgjöld og skilja eftir á borði ríkis-
stjórnarinnar. Menn verða að segja
hvar á að skera niður og hvar á að
skattleggja í staðinn. Við búum
við mikinn fjárlagahalla og höfum
þurft að skera niður í velferðar-
kerfinu. Við munum þurfa að sýna
mikið aðhald áfram í fjármálum,“
segir Jóhanna, en kostnaður við
framkvæmdina mundi leggjast á
þetta ár og næsta.
Ögmundur segir hins vegar
ekki þörf á niðurskurði eða skatta-
hækkunum. Hann vill að tekið sé
lán fyrir framkvæmdinni og samið
um frest á afborgunum. „Það er
nákvæmlega það sama og mundi
gerast ef einkaaðili tæki málið að
sér. Hann mundi ekki greiða af
sínum lánum fyrr en ríkið hæfi
greiðslu á leigu.“ Eðlilegast sé að
hefja framkvæmdina og fá fjár-
heimild á næsta ári.
Ögmundur segir að á endanum
muni ríkissjóður borga hverja
einustu krónu sem fer til verks-
ins, hver sem umgjörðin verður.
Því hljóti menn að horfa til þess
að það geti munað frá 300 milljón-
um upp í hálfan milljarð á leiðun-
um. „Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
var mjög áfjáður í að hafa ríkis-
bókhaldið í jafnvægi, en ef menn
ætla út í þessa framkvæmd kemur
þetta á einn stað niður fyrir raun-
verulegar greiðslur úr ríkissjóði.
Jóhanna og Ögmundur eru sam-
mála um að framkvæmdin sé brýn
og að enginn ágreiningur sé um það
innan ríkisstjórnarinnar.
Jóhanna segir vel koma til
greina að forsætisráðherra þurfi að
höggva á hnútinn til að leysa málið.
kolbeinn@frettabladid.is
jss@frettabladid.is
Deilur tefja nýtt fangelsi
Deilur innan ríkisstjórnar tefja fyrir því að farið hefur verið í útboð á nýju fangelsi. Tekist á um útboð fjár-
mögnunar eða lántöku ríkisins. Fjöldi hættulegra afbrotamanna gengur laus vegna plássleysis í fangelsum.
ÖGMUNDUR JÓNASSON JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
„Staðan í fangelsunum eins og hún er nú veldur því að við veigrum okkur
oft við að gefa út handtökubeiðnir,“ segir Erlendur S. Baldursson afbrota-
fræðingur hjá Fangelsismálastofnun.
Alls bíða 310 eftir að hefja afplánun, þar á meðal eru
dæmdir nauðgarar og ofbeldismenn, en ekki er pláss
fyrir þá í fangelsum landsins.
„Þegar þetta er svona þröngt og oft yfirfullt, og
tvímennt í mörgum klefum, gefur auga leið að við
getum ekki gefið út handtökubeiðnir til lögreglu. Í það
heila tekið er afar erfitt að vinna við þessar aðstæður og
starfsfólk orðið svo langþreytt á þessu ástandi að það
er þyngra en tárum taki.“
Ástæður, aðrar en plássleysi, eru fyrir því að sumir
hinna dæmdu hafa ekki hafið afplánun. Einhverjir hafa
sótt um náðun og hefja ekki afplánun fyrr en búið er að
hafna beiðninni. Aðrir geta beðið um frest á afplánun, sem Fangelsismála-
stofnun er heimilt að veita. Til þess úrræðis hefur verið gripið í æ ríkari mæli
gagnvart brotamönnum sem ekki eru taldir hættulegir umhverfi sínu, vegna
plássleysis í fangelsunum. Enn aðrir eru í framsali eftir að hafa farið af landi
brott og þó nokkrir með handtökubeiðni á sér.
Starfsfólk langþreytt á ástandinu
ERLENDUR S.
BALDURSSON
AÞENA, AP Fjármálaráðherra
Grikklands segir að hópur lög-
fræðinga og endurskoðenda verði
ráðinn í ráðuneytið til að elta uppi
10 þúsund alvarlegustu skatt-
svikin í landinu.
Talið er að um 900 þúsund
Grikkir og grísk fyrirtæki skuldi
landinu um 41 milljarð evra
vegna skattsvika. 90 prósent af
þeirri fjárhæð eru vegna 14.700
skattgreiðenda og fyrirtækja. - sv
Grikkland leitar að svikurum:
Skulda 41 millj-
arð evra í skatt
MÓTMÆLI Í GRIKKLANDI Fjármálaráðu-
neyti Grikklands hefur nú leit að
umfangsmestu skattsvikurunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NAPÓLÍ, AP Aðalritari NATO,
Anders Fogh Rasmussen, segir
ekkert benda
til þess að
hryðjuverka-
samtök in al
Kaída séu
starfrækt í
Líbíu.
Rasmussen
sagði við fjöl-
miðla í gær að
stjórnvöld í
Líbíu þyrftu að
ná lengra í að ná sáttum þar sem
engin hernaðarlausn sé til staðar.
Varðandi ástandið í Sýrlandi,
efast Rasmussen um að NATO
muni taka þátt í að leysa deilurn-
ar þar í landi. - sv
Aðalritari NATO um al Kaída:
Engin tengsl
inn í Líbíu
ANDERS FOGH
RASMUSSEN
Vilt þú íbúðarbyggð í
Vatnsmýrinni?
Já 24,1%
Nei 75,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Gætir þú hugsað þér að kaupa
litla rafmagnsvespu?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
úrskurðaður til að sæta nálgunar-
banni í þrjá mánuði. Má hann ekki
koma nálægt heimili fyrrverandi
eiginkonu sinnar og sambýlis-
manns hennar, né þeim sjálfum.
Maðurinn er grunaður um að
hafa áreitt fólkið með ýmsum
hætti. Hann hafi stolið farsíma
frá konunni, sett þjófavarnarkerfi
á heimili hennar í gang, kastað
grjóti í rúðu og skemmt bifreiðar
fólksins. Enn fremur er hann
grunaður um að hafa sprautað í
læsingu á útidyrahurð, auk hótana
um líkamsmeiðingar og stöðugt
ónæði með símhringingum og
smáskilaboðum. - jss
Nálgunarbann í þrjá mánuði:
Stöðugt ónæði
og eignaspjöll
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Póstdreifing
hefur tekið yfir starfsemi Póst-
hússins, sem séð hefur um
dreifingu Fréttablaðsins. Bæði
fyrirtæki eru hluti af fjölmiðla-
samsteypunni 365, en breytingin
er liður í endurskipulagningu sam-
steypunnar. Breytingin tók gildi
um mánaðamótin.
„Það hefur varla liðið sá dagur
að ekki komi fólk til okkar að ná
í póstsendingar og við þurft að
beina þeim annað. Póstdreifing er
meira lýsandi orð fyrir þá þjónustu
sem við veitum,“ segir Hannes A.
Hannesson, framkvæmdastjóri
Póstdreifingar
en áður Póst-
hússins.
Í tilkynningu
frá fyrirtækinu
segir að breyt-
ingin sé hugs-
uð sem liður í
undirbúningi
fyrir þær breyt-
ingar sem verða
á r e k s t r a r -
umhverfi póstþjónustu á Íslandi
árið 2013 þegar einkaréttur
Íslands pósts á dreifingu bréfa
rennur út. Um leið sé verið að
móta áherslur um aukið sjálfstæði
í rekstri og aðgreiningu frá móður-
fyrirtækinu, þar sem dreifingar-
deild Fréttablaðsins rennur nú
aftur inn í 365 miðla.
Dreifikerfi fyrirtækisins mun
í kjölfarið taka breytingum til að
aðlaga það nýjum aðstæðum. Einn-
ig munu viðbætur í þjónustuþáttum
líta dagsins ljós á næstu mánuðum,
segir enn fremur í tilkynningunni.
Um 500 manns starfa hjá Póst-
dreifingu eftir breytinguna.
Dreifikerfi fyrirtækisins tekur til
alls höfuðborgarsvæðisins, Reykja-
ness og Akureyrar. - mþl
Skipulagsbreytingar hjá dreifingaraðila Fréttablaðsins:
Póstdreifing dreifir nú Fréttablaðinu
ÖRYGGISMÁL Horn Hávallagötu og
göngustígs þar er afar varhuga-
vert, segir Helga E. Jónsdóttir leik-
kona en hún lenti í hjólreiðaslysi á
þeim stað í þarsíðustu viku. Hún
handleggs- og rifbeinsbrotnaði þá í
árekstri við annan hjólreiðamann.
„Þetta er svo þröngt hérna og
í raun sér maður ekki þann sem
kemur fyrir hornið fyrr en hann
skellur í fangið á manni,“ segir
hún. Það var nokkurn veginn þann-
ig sem hún mætti hjólreiðamannin-
um. „Þegar ég er að fara fyrir horn-
ið birtist hann allt í einu og skellur
á framhjólinu hjá mér svo ég dett á
olnbogann,“ segir hún.
Hún mælist til þess að settar
verði upp grindur við hornið þann-
ig að þeir sem fari um það verði að
hægja verulega á sér. „Þannig að
einhver sem gleymir sér á hjólinu
sínu aki ekki niður börn til dæmis
sem hann gæti mætt á þessu var-
hugaverða horni,“ bætir hún við.
Hún segir að hinn hjólreiðar-
manninn hafi ekki sakað svo hún
viti en hann hafi verið alveg miður
sín vegna slyssins en þó hafi hann
ekki áttað sig á þeim meiðslum sem
hún hlaut í því. „Ég stóð nefnilega
strax upp og hélt að allt væri í besta
lagi, fór jafnvel að spjalla við ferða-
langa sem áttu leið hjá um öryggis-
mál. Svona eftir á að hyggja var það
kannski full léttúðugt svona miðað
við allt,“ segir hún og hlær við. - jse
Helga E. Jónsdóttir leikkona lenti í hjólreiðaslysi á stað sem hún varar við:
Varhugavert horn í miðbænum
Á HORNINU VARHUGAVERÐA Leikkonan á slysstað með hendina í fatla. MYND/HARALDUR
VIÐSKIPTI Matsfyrirtækið Moody‘s
hefur ákveðið að lækka lánshæfis-
einkunn Orkuveitu Reykjavíkur
(OR). Einkunnin fer úr Ba1 í B1
með neikvæðum horfum.
Breytingin hefur ekki áhrif á
rekstur eða skuldastöðu OR, segir
í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Þar segir einnig að samkvæmt
aðgerðaáætlun þess til 2016 sé ekki
gert ráð fyrir erlendri fjármögnun
á tímabilinu. Moody’s segist í til-
kynningu hafa áhyggjur af nokkr-
um áhættuþáttum sem valdið gætu
OR vandræðum á næstu árum. - mþl
Orkuveita Reykjavíkur:
Moody‘s lækk-
ar einkunn OR
BRETLAND, AP David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, segir
nauðsynlegt að stofna nýja óháða
fjölmiðlanefnd. Nefndin eigi að
fylgjast með því
hvort fjölmiðlar
fari eftir siða-
og fagreglum.
Ummæli
Cameron koma
í kjölfar þess
að fy r r ver -
andi fjölmiðla-
fulltrúi hans,
Andy Coulson,
var handtekinn í gær. Coulson var
áður ritstjóri æsifréttablaðsins
News of the World en komið hefur
í ljós að blaðamenn þess stunduðu
að brjótast inn í farsíma fólks í von
um að fá efnivið í fréttir.
Cameron hefur verið sakaður
um dómgreindarleysi fyrir að ráða
Coulson til sín. - gb
Hlerunarhneyksli í Bretlandi:
Cameron vill
fjölmiðlanefnd
HANNES
HANNESSON
DAVID CAMERON
KJÖRKASSINN