Fréttablaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 72
9. júlí 2011 LAUGARDAGUR48
sport@frettabladid.is
PEPSI-DEILD KARLA verður áberandi um helgina en þá fara
fram þrír leikir. Breiðablik tekur á móti Þór í dag og hefst leikurinn
klukkan 16. Á morgun taka Eyjamenn á móti FH og hefst sá leikur líka
klukkan 16. Klukkan 20 fer síðan fram leikur Fylkis og KR.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona
Frjálsar íþróttir flokkast að
forminu til sem einstaklings-
íþróttir en í mínum huga er það
alls ekki svo. Jú vissulega fer ég
ein út á hlaupabrautina og inn í
kúluvarpshringinn. Ég get ekki
stólað á að liðsfélagi minn komi
mér til bjargar þegar ég lendi í
vandræðum og úrslitin, hversu
hratt ég hleyp eða langt ég kasta,
velta eingöngu á minni eigin
frammistöðu og engum öðrum.
Raunin er samt sú að að baki
mér standa svo ótalmargir sem
leggja sitt af mörkum svo ég geti
náð sem bestum árangri. Árang-
ur minn er í rauninni afsprengi
af samvinnu milli mín og allra
þeirra sem koma að mínu lífi með
einhverjum hætti.
Svo að nokkur dæmi séu tekin
þá skipuleggja þjálfararnir mínir
þjálfunina, kenna mér réttu
tæknina og leggja línuna sem ég
reyni að fylgja. Læknir, nudd-
ari og sjúkraþjálfarar gera allt
sem í þeirra valdi stendur svo
að líkaminn minn þoli álagið og
sálfræðingurinn hjálpar mér að
halda geðheilsu.
Umboðsmanninum mínum
tekst að sannfæra styrktar aðila
um að styðja við bakið á mér
fjárhagslega og stendur sig með
miklum sóma því ég fæ stuðning
úr öllum áttum. Vinir og æfinga-
félagar hvetja mig dyggilega
áfram og gera lífið skemmti-
legra. Síðast en ekki síst er það
svo fjölskyldan sem er líklega
minn stærsti styrktaraðili á
öllum sviðum lífsins.
Þessi upptalning er alls ekki
tæmandi og ég sé strax að ég er
að gleyma liðinu mínu, Glímu-
félaginu Ármanni og öllu því
fólki sem stoppar mig úti á götu
og óskar mér góðs gengis.
Ég veit fyrir víst að ég gæti
aldrei staðið í þessu ein. Ég spyr
mig að því á hverjum einasta
degi hvort ég verðskuldi virki-
lega allan þann stuðning sem
ég fæ og hvernig í ósköpunum
standi á því að ég sé svo heppin
að fá þetta tækifæri.
Ég kem líklega aldrei til með
að getað þakkað nægilega fyrir
allan þann stuðning, hjálp og
hvatningu sem ég fæ á hverjum
einasta degi. Það eina sem mér
dettur í hug að ég geti gert er að
afreka eitthvað stórkostlegt og
vona að það gleðji öll þau hjörtu
sem hafa hjálpað mér í gegnum
tíðina – það ætla ég að gera!
Ómetanlegur stuðningur
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI ÍÞRÓTTIR
Meiri Vísir.
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Aron Einar Gunnarsson stóðst
læknisskoðun hjá Cardiff City í gær
og skrifaði að henni lokinni undir
þriggja ára samning við félagið.
Cardiff á nú aðeins eftir að ganga
frá greiðslu á uppeldisbótum til
Coventry.
„Félagið er búið að vera í baráttu
um sæti í efstu deild síðustu tvö ár
og varið miklum fjármunum í liðið.
Völlurinn er góður og æfingaað-
staðan mjög flott. Maður finnur
fyrir því að þetta er stærra batterí
en hjá Coventry,“ segir Aron Einar
hæstánægður með nýja samning-
inn sem hann segir mun betri en
hjá Coventry.
Aron spilaði upp yngri flokka
með Þór á Akureyri áður en hann
gekk til liðs við AZ Alkmaar í Hol-
landi árið 2006, sautján ára gam-
all. Tveimur árum síðar gekk Aron
til liðs við Coventry þar sem hann
hefur spilað undanfarin þrjú tíma-
bil.
Aron segir enska boltann henta
honum vel en lið í Hollandi og
Þýskalandi sýndu honum einnig
áhuga. Hann segir miklu máli hafi
skipt hversu mikinn áhuga Malky
Mackay, þjálfari Cardiff, sýndi
honum.
„Þjálfarinn hringdi fjórum sinn-
um í mig í fríinu. Hann er búinn að
tala mikið við Heiðar Helguson en
þeir voru saman hjá Watford. Hann
sér mig sem varnarsinnaðan miðju-
mann fyrir framan vörnina. Ég
spilaði þar mitt fyrsta tímabil með
Coventry sem var mitt besta hjá
félaginu. Mér líst vel á þetta og vona
að ég geti verið hluti af liði sem fer
upp í úrvalsdeildina,“ segir Aron.
„Það var alltaf leiðinlegt að spila
við Cardiff og núna er maður orð-
inn hluti af þessu liði,“ segir Aron
og hlær.
Cardiff hefur verið grátlega
nálægt því að komast upp í ensku
úrvalsdeildina undanfarin ár. Á
síðasta tímabili komst liðið í umspil
um sæti en datt út í undan úrslitum.
Árið áður komst Cardiff alla leið
í úrslitaleikinn en beið lægri hlut.
Liðið hefur misst sterka leikmenn
úr hópnum frá því á síðasta tímabili.
„Jú, við misstum nokkra en það
er líka búið að semja við sex leik-
menn á síðustu vikum. Þjálfarinn er
líka nýr og mér líst vel á hann. Í gær
fengum við Robbie Earn shaw frá
Nottingham Forest sem hefur skor-
að grimmt fyrir það lið og velska
landsliðið.“
Aron Einar, sem er 22 ára gamall,
segir líf atvinnumannsins erfitt að
því leyti að menn geti verið á stöð-
ugum flutningi.
„Ég var búinn að koma mér vel
fyrir í Coventry og átti góða félaga
í liðinu sem ég á eftir að sakna. En
svona er fótboltinn. Ég skipti líka úr
AZ Alkmaar á sínum tíma þar sem
ég átti marga vini. Í fótboltanum
þarf maður að breyta til og fórna
ýmsu. En ég lít á þetta sem jákvæð-
an hlut og reyni að koma mér inn
í þetta fljótt,“ segir Aron fullur til-
hlökkunar.
Spurður hvort það sé einhver
veitingastaður eða ísbúð á horninu
í Coventry sem hann kveðji með
söknuði hlær Aron Einar. „Nei,
það er enginn Brynjuís þarna í
Coventry.“
Síðasta tímabil hjá Aroni Einari
var óvenju langt. Að loknu tíma-
bilinu í Englandi tóku við lands-
liðsverkefni sem lauk með Evrópu-
mótinu í Danmörku. Hann segist
hafa slakað vel á í Dubai undan-
farnar tvær vikur þar sem hann lá
á sundlaugarbakkanum og hreyfði
sig lítið sem ekkert.
Aron Einar hélt í morgun í
æfingaferð til Spánar með nýju liðs-
félögum sínum.
„Það er vakning klukkan fjögur
(í morgun) þannig að ég kíki rétt
heim til Coventry og næ í hreinar
nærbuxur. Svo bruna ég aftur til
Cardiff, upp á hótel og síðan beint
upp í vél,“ sagði Aron í léttum dúr.
Hann var nýkominn úr læknis-
skoðun klukkan fimm að staðar tíma
en skoðunin tók tæpar átta klukku-
stundir. Bíltúrinn til Coventry og til
baka til Cardiff tekur um fimm tíma
og því er líklegt að Aron hafi lítið
sofið í nótt.
Aron Einar sem hefur spilað 22
landsleiki fyrir Íslands hönd er ekki
kominn með treyjunúmer hjá nýja
félaginu. Hann veit þó hvað hann
vill.
„Það er ekki búið að úthluta núm-
erum. En það er enginn númer
sautján sem var hjá liðinu í fyrra
þannig að ég ætla að reyna að fá
hana,“ segir Aron.
kolbeinntd@365.is
Enginn Brynjuís í Coventry
Aron Einar Gunnarsson skrifaði undir þriggja ára samning við Cardiff City í
gær. Aron hélt í morgun í æfingaferð til Spánar með nýjum liðsfélögum.
VINSÆLL Í COVENTRY Aron Einar var valinn besti leikmaður Coventry af stuðnings-
mönnum félagsins á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Eiði Smára Guðjohnsen
stendur til boða tveggja ára
samningur við nýliða Swansea í
ensku úrvalsdeildinni. Þetta kom
fram í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi.
Samkvæmt heimildum stöðvar-
innar er tilboð Swansea mjög gott
en staðsetning félagsins í Wales
stendur í Eiði Smára. Ferðalagið
frá London til Cardiff tekur tvær
og hálfa klukkustund með lest.
Auk Swansea standa Eiði til
boða samningar við bandarísku
atvinnumannaliðin New York Red
Bulls og New England Revolution.
- hm, ktd
Swansea vill Eið Smára:
Gott tilboð á
borðinu
LIGGUR UNDIR FELDI Eiður er með
nokkur járn í eldinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1. deild karla
KA - ÍA 1-4
0-1 Guðjón Heiðar Sveinsson, 0-2 Ólafur
Valur Valdimarsson, 0-3 Hjörtur Hjartarson, 1-3
sjálfsmark, 1-4 Hjörtur Hjartarson
Víkingur Ólafsvík - BÍ/Bolungarvík 4-1
0-1 Nicholas Deverdics, 1-1 Artjoms
Goncars, víti, 2-1 Artjoms Convars, víti, 3-1 Guð-
mundur Steinn Hafsteinsson, 4-1 Eldar Masic
Upplýsingar frá fótbolti.net.
ÚRSLIT
GOLF Íslensku landsliðin í golfi
töpuðu viðureignum sínum á
EM áhugamanna í golfi í gær.
Íslenska kvennalandsliðið sem
spilar í Austurríki beið lægri hlut
gegn Ítalíu, 2:3. Signý Arnórs-
dóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir
unnu sína leiki í tvímenningi.
Karlaliðið sem keppir í Portú-
gal beið einnig lægri hlut gegn
Ítalíu, 1:4. Guðmundur Ágúst
Kristjánsson vann sinn leik en
aðrir leikir töpuðust. Tapið þýðir
að karlaliðið þarf að fara í for-
keppni fyrir EM að ári.
Bæði landsliðin leika um 15.
sætið í dag. Karlarnir mæta Eng-
lendingum en konurnar Tékkum.
- ktd
Spila um 15. sæti á morgun:
Bæði lið töp-
uðu gegn Ítalíu
STAÐAN
ÍA 10 9 1 0 29-4 28
Selfoss 10 7 1 2 23-10 22
Þróttur R. 10 5 2 3 13-12 17
Víkingur Ó. 10 4 3 3 14-12 15
Fjölnir 10 4 3 3 17-19 15
Haukar 10 4 2 4 14-12 14
Grótta 10 3 4 3 8-11 13
BÍ/Bolungarv. 10 4 1 5 12-19 13
ÍR 10 3 2 5 12-18 11
KA 10 3 1 6 11-19 10
Leiknir R. 10 0 4 6 10-17 4
HK 10 0 4 6 11-21 4
FÓTBOLTI Skagamenn sóttu þrjú
stig norður yfir heiðar á Akur-
eyri í gærkvöldi þegar liðið lagði
KA með fjórum mörkum gegn
einu. Liðið er enn ósigrað í deild-
inni að loknum tíu leikjum, hefur
skorað flest mörk og fengið á sig
fæst. Miðað við spilamennsku
liðsins í sumar er fátt sem getur
komið í veg fyrir að félagið kom-
ist upp í efstu deild á nýjan leik.
Hjörtur Júlíus Hjartarson
skoraði tvö marka Skagamanna í
gærkvöld. Hjörtur hefur skorað
tíu mörk í deildinni, eða mark
að meðaltali í leik og er marka-
hæstur.
Í hinum leik gærkvöldsins
unnu Víkingar í Ólafsvík stór-
sigur á BÍ/Bolungarvík 4-1. -ktd
Skagamenn skora mörkin:
Ósigraðir og í
frábærri stöðu
SJÓÐANDI HEITUR Það er ekki að sjá að
Hjörtur sé á 37. aldursári.