Fréttablaðið - 09.07.2011, Síða 44
Gunnar Sverrir
862 2001
gunnar@remax.is
Ástþór Reynir
899 6753
arg@remax.is
Um er að ræða sérstaklega glæsilegt einbýlishús alls 500,9 fm. með auka íbúð ásamt innbyggðum 30,8
fm. bílskúr og 60,9 fm. hesthúsi.
Komið er inn í rúmgóða forstofu/hol með skápum. Á þeirri hæð er herbergi auk þvottaherbergis með innangengt inn í bílskúr.
Svo er gengið upp hálfa hæð, þar er eldhús með miklum innréttingum með granít borðplötum og vönduðum eldhústækjum. Í
borðstofunni er sérsmíðað granít borð. Stofan er rúmgóð með útgengi út á stórar svalir (ca. 60fm) með glæsilegu útsýni.
Hjónaherbergið er með stórum fataskápum, sér baðherbergi með baðkari og sturtu, flísar á gólfi og veggum. Einnig er gengið út
á svalirnar úr hjónaherberginu.
Á neðrihæðinni er fjölskyldustofa með arni og heitum pott, 3 svefnherbergi eru á hæðinni öll með útgengi út í garð. Einnig er
baðherbergi með sturtu og innréttingu ásamt stórri geymslu.
Af neðri hæðinni er gengið niður fjórar tröppur, en þar er kaffistofa með fullbúinni eldhúsinnréttingu. Innaf því er hesthús
innréttað fyrir 8 hesta, mjög vandað með flísum á gólfi. Möguleiki að nýta rýmið fyrir til vinnustofu eða aðra íbúð.
Á miðhæðinni er sér 3ja herbergja íbúð með sérinngangi sem skiptist í góða stofu, eldhús með vönduðum innréttingum og
granít borðplötu. Baðherbergi með sturtu og innréttingu þar er gert ráð fyrir þvottavél. Svefnherbergið eru með fataskápum.
Hægt er að opna úr íbúðinni inn í aðalíbúðina.
Lóðin er mjög snyrtileg fullfrágengin með timburpalli, fallegum gróðri og steyptar stéttar.
Asparhvarf18
203 Kópavogur
Opið hús mánudaginn 11. júlí kl. 18:00 - 18:30