Íslendingur - 21.06.1940, Blaðsíða 3
ÍSLENDINGUR
3
Vacuum Oil Co.
líður jíur:
Mobilohur: »A«, »AF«, »BB«, »B«, »Arctic«
Gearfeiti: »C«, »CW«,
Öxulieiti: Mobilubrucant soft og medium.
Undirvagninn (chassis) Mobilgrease no. 1 — 5
Fjaðrastrekkjaraolía — fyrir Delco-Remy -
Stöddæmperolie »Special«
Ryðolía: Voco Penetrating Oil.
Bremsuvökva: Voco Brake Fluid.
Hnéliðaolíu: Gargoyle Shock Absorber.
Bí/agljáa: Mobil Gloss.
Bíla vax: Mobil Wax.
Ennfremur allar tegundir af smurningsolíum og
feiti fyrir frystivélar, gufuvélar, rafmagnsvélar,
oiíuvélar, benzínvélar og verkstæðisvélar. —
Að olían sé frá Vacuum Oil Co. tryggir gæðin.
Vacuum 011 Co.
fl. Benedlktsson & Co., Reykjavlk
Aðalumboð.
Umboðsmaöur fyrlr Akureyrl oq Eyjafjörð:
Verzlunin Eyjafjöríur
Kr. Árnason.
Efnileg lista^
kona.
í okkar fámenna þjóðfélagi verð-
ur það að teljast með stórviðburð-
um, þegar fram koma meðal okkar
vfirburða hæfileikar á hvaða sviði
sem er, og þó enganveginn sízt á
listrænum vettvangi, því að enga
spádómsgáfu þarf til að sjá það í
hendi sér, að einungis á andlegum
sviðum getur smáþjóð eins og við
unnið sér orðstír á heimsvísu. Slík-
ir viðbuiðir ættu því að vekja al-
mennan fögnuð og þjóðarmetnað,
og jafnframt vilja og viðleitni al-
þjóðar í að stuðla til brautargengis
þess yfirburða fólks sem um er að
ræða í þann og þann svipinn. Og
þyrfti þar litlu öðru en áhuganum
einum til að kosta, væri hann eins
almennur og einhuga fyrir okkar
eigin listafólki eins og, segjum allra
þjóða kvikmyndaleikurum, því að
engir slíkir sem listafólk geta jafn
hjartanlega tekið undir með postul-
anum sem sagði: »Silfur og gull
á ég ekki, en það sem ég hefi, það
gef ég þér«. Engir slíkir sem lista-
fólk eru jafn örlátir á aleigu sína.
Miðvikudagskvöidið 12 þ, m. bauð
uhgfrú Margrét Eiríksdóttir okkur
upp á píanóhljómleika í Samkomu-
húsi bæjarins. Viðfangsefni hennar
voru mjög fjölbreytt, allt frá Beet-
hoven til Debussy. M. a. tilbrigða-
sónata Hallgríms Helgasonar, Op-
us 1, nútíma tónsmíð í húð og
hár, og þar heyrði ég Procession
eftir fyrverandi kennara minn Her-
bert Howells, og er Margiét, að
því er ég best veií, fyrsti íslending-
ur sem túlkar verk eftir hann.
Annars álít ég það nauðsynjalítið
að gefa sundurliðaða skýrslu á við-
fangsefnum þessara hljómleika eða
túlkun listakonunnar á þeim, heldur
vil ég aðeins vekja athygli fólks á
því að hér er tvímælalaust um
upprennandi listakonu að ræða,
túlkim hennar var yfirleítt góð og
sumstaðar með ágætum, leikurinn,
eins og raunar framkoman öll, af-
burða látlaus, en þó, nærri ótrúlega
fastur, miðað við aldur, eða öllu
heldur æsku listakonunnar, og
gneistandi af listrænni tjáningu í
»tíma« en ekki »ótíma« og var því
leikurinn aldrei yfirdrifinn.
Um tækni listakonunnar má
sömuleiðis flest gott segja, enda á
hún að baki sér óvenju glæsilegan
námsferil, þar sem hún, m. a. hefir
hlotið tvenn verðlaun við einn
merkasta Músík háskóla veraldarinn
ar »the Royal Academy of Musik«
í London. En ætti ég eitthvað að
vanda um við ungfrúna væri það
helst, að mér virðist veikur ásláttur
hennar (pianissimó) standa þeim
sterka (fortissimo) að baki, svo að
tónarnir yrðu misveikir nokkuð og
sumstaðar jafnvel hveifandi einkum
í hægum lagrænum pöitum. Og
því ekki svara íyllilega til þess list-
ræna þroska, sem hvergi ko/n skýr-
ar í Ijós en á slíkum stöðum, En
einrnitt það. að listræna og tækni
haldist nokkurnveginn í hendur, er
öiuggasta þroska og framfara skil-
yrði allrar listamenn ku- En þetta
var ekki til neinna stóilýla, enda
fannst það á, að ungfrúin náði
föstum tökum á tilheyrendum sínum.
Kom það ótvírætt fram, bæði í
grafþögulli athygli og innilegu
klappi. En filheyrendur voru, því
miður, allt of fáir.
Ég veit vel, að þess er tæplega
að vænta, að íslensk alþýða, yfir-
leitt, hafi að svo komnu öðlast
skiln’ngsbundinn áhuga á píanótón
list eða fjölþætfum og flóknum tón-
listarformum yfirleitt. En á meðan
svo er háftað, verður að finna aðra
ástæðu til að skapa áhuganrt, því
að listrænn áhugi kemur ekki yfir
fólk eins og þjófur á nótlu, heldur
aðeins við marg endurtekna við-
kynningu, en þá er líka víst að
hann kemur. Nú er líka hitt vísf,
að menn styðja hin og önnur mál-
efni, svona af ýmsum ásfæðum, án
nokkurs brennandi áhuga á þeim
sjálfum til að byrja með a. m, k„
og því skyldi ekki það sama gela
átt sér stað um listir og bókmennt-
i ? Pað er þó áreiðanlega ein al-
menn og sameiginleg kennd, sem
ætti að geta orðið sterkasta sfoð
undir hverSkonar menningarlega við-
leitni sem er, og það er þjóðernis-
kenndin. Og þessvegna vil ég að
lokum vekja athygli á þeim for-
sendum, sem ég hóf þessa hug-
leiðingu á- Sannur þjóðarmetnaður
e ails ekki fó'ginr. f því að hæh
sér af fjrlladýrð og annari nátfúru-
fegurð ættjarðarinnar, því að ekki
höfum við skapað landið, það er
aðeins ræktun þess sem við getum
hiósað okkur af, en fyrst verðum
við þá að rækta það, og það gerum
við skjótast og best með því að
sfyrkja þá til verks, sem til þess
liafa bæði vilja og getu að gera
það. Hvort sem um andleg eða
efnisleg verðmæti er að ræða, þá
lúta þau sömu lögum, þessvegna
er sú sama þjóðfélagslega rækt
fyrst og síðast í því fólgin að styðja
yfirburðafolkið til vegs og gengis,
til að tryggja það, að þvi, með at-
höfnum sínum auðnisi, ekki ein-
asta að gera garðinn frægan út á
við, heldur, það sem er enn þýð-
ingarmeira, að lyfta allri þjóðinni
stig af stigi til þroska og fullkomn
unar móli heiðum himni og hækk
andi sól, þá mun hún uppskeia
tiúrrar þjóðar verðlaun, og verða
drottning meðal þjóðanna.
Akureyri 15. júní.
Björgvin Ouðmundsson.
Áheit á Alrureyrar kirkju —
50 kr. frá ónefndum.
Þakkir Á. R.
Mancliett-skyrtur,
með 2 flibbum frá
kr. 9,oo.
Drengjaskyrtur
frá kr. 1,90. —
Brauns Verzlun.
Pált Sigurgeirsson.
Hópur skákmeistara til Ak.
A sunnudaginn koma hingað 20
menn úr laflfélagi Reykjavíkur og
teíla við Skúkfélag Akureyrar á
Hótel Gullfoss niðri þá um kvöldið.
Meðal Reykvfkinganna eru meistar-
arnir: Einar Porvaldsson, Jón Guð-
mundsson, Sæm. Ólafsson, Hafsteinn
Gislason, Guðm. S. Guðmuudsson
Sturla Pétursson, Áki Pétursson,
og Konráð Árnason. Auk þeirra erú
12 I. og II. flokks menn. Áhorf-
endur geta fengið aðgang að keppn-
inni gegn vægu gjaldi. Verðurváía-
laust spennandi að sjá til meistar-
anna.
Nokkra poka af
völdum kartöflum
hef ég til sölu.
EGGERT E/NARSSON:
Lítil íbúð
oskast í haust. R. v, á.
Skiiinlúffur töpuðustáíeiðinni
fráCHelga-Magra-
stræti að lystigarðinum. Fir.nandi
skili gegn fundarlaunum í Helga-
Magrastræti 2.
HfÁLPRÆÐISHERINN. Sunnudg.
kl. II Morgunsamkoma. Kl. 4 0g
kl. 8, útisamkoma á torginu, Kl.
8,30 Hjálpræðissamkoma í salnum.
Á þriðjudag kl. 8,30, útisamkoma á
torginu, það er að segja útisam-
komur yerða, ef veður leyfir.
Prentsmiðja Bjöms Jónssonar.
Skófatnaður
nýkominn.
Mikið úrval af karlm.skóm.
Ennfremur kvenskór og von
á meiru með naestu ferðum.
Strigaskór. Unglingaskór.
Gúmmístígvél. VAC-bússur.
Gúrnmískór. Allsk. vinnu-
fatnaður. Vettlingar. Kven-
og karlm.- sokkar. Unglinga-
leistar. —
Verzl. Péturs H. Lárussonar