Íslendingur - 05.07.1940, Blaðsíða 1
XXVI. árgangur.l
LENDINGUR
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
Akureyrí, 5. júlí 1940
28. tölubl.
Eru höftin len
ur nauðsynle
Tímamenn hafa oft fundið Sjálf-
stæðismönnum það til foráttu, að
þeir væru á móti innflutningshöft-
unum. Barátta þeirra fyrir frjálsri
verzlun væri hagsmunabarátta fá-
mennrar klíku innan flokksins, —
svonefndrar »heildsalaklíku«, sem
vildi fylla landið af allskonar glingri
og óþarfavarningi, meðan þjóðin
hefði ekki gjaldeyri til brýnustu
nauðsynja. En Framsóknarmenn
væru höftunum fylgjandi, af því að
þau sköpuðu þessari vandiæðastétt
hæfilegt aðhald.
Pað er ekki ósennilegt, að marg-
ar endurtekningar þessa efnis hafi
komið sumum kjósendum »hinria
dreifðu byggða* til að leggja á
þæi nokkurn trúnað. En vanda-
laust er að finna dæmi þess, að
minna greinir á í þessu efni milli
flokkanna, en Tímamenn hafa hald-
ið fram.
Sjálfstæðismenn, sern telja frjálsa
verzlun skilyrði fyrir hóílegu vöru
verði og fullkomnu réttlæti í öllum
viðskiptamálum, hafa oft og mörg-
um sinnum lýst því yfir, að það
ástand hafi verið ifkjandi hér í
landi um skeið, er fyllilega réttlætti
innflutningshöft. í »Stefnumálum<
flokksins, er út voru gefin fyrir 3
árum segir svo:
»Sjálfstæðisílokkurinn lítur á inn-
flutningshöftin og gjaldeyrisskömmt-
unina sem illa nauðsyn, sem sjálf-
sagt sé að létta af svo fljótt, sem
auðið ei«.
Og r.ú, þremur árum síðar, er
svohljóðandi samþykkt gerð á að
alfundi Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga, þar sem meiri hluti
fulltrúanna var úr hópi Tíma
manna :
».......lýsir fundurinn yfir þvf,
að hann telur innflutningshöftin
hafa hir.drað eðlilegan vöxt kaup-
félaganna, og þó að hann telji að
þau hafi verið og séu, eins og enn
er ástatt, óhjákvæmileg þjóðarnauð
syn, er hann því eindiegið fylgj-
andi, að þe'm verði aflétt jafnskjótt
og viðskipta- og fjárhagsástæður
landsins leyfa*.
Pað sýnist ekki b.-ra mikið á
milti um álit Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarmanna á höftunum. Það
virðist eimóma skoðun allra, er
við verz'un fást, jafnt samvinnu-
manna og kaupmanna, að höft n
séu ill nauð'jyn, er bæri að aflétta,
óðar og fært þykir.
En hver nauðsyn er nú til þess,
að höftunum sé haldið? Pað er á
allra vitoið', að hið háa verð á
öllum aðfluttum vö-um gerir það
að verkum, að engir kaupa annað
en það er þeir þarfnast. Enginn
innflytjandi teldi sér hag í að
kaupa inn glingur og glysvarning
til að liggja með óselt Öll við-
skipti eru nú staðgreiðsluviðskipti
og því ekki unnt að flylja inn vör-
ur nema greiða þær jafnharðan og
loks getum við ekki, vegna styrj
aldarástandsins, verzlað nema við
örfá lönd.
Rökin fyrir innflufningshöftunum
eru nú fallin í grunn, og þar sem
allir þeir, er við verzlun fást og
nokkra verzlunarþekkingu hafa,
viðurkenna, að höftin séu >i)l
nauðsyn*, ætti að geta fengist
samkomulag um afnám þeirra- Hví
skyldum við halda áfram að ala
þýðingarlausa nefnd á almannafé
og kosta dýrum dómum alóþarft
skipulag á verzlunarmálunum, —
skipulag, sem stendur eins og
múrveggur í vegi góðrar samvinnu
hinna ábyrgu stjórnmálaflokka í
landinu á þessum alvarlegu tímum?
Er nokkuð til, sem getur réttlætt
það?
halldór ber höfð-
inu við sfeininn.
Gambrið um ísafjörð.
NÝJA BIÓI
Föstudags- laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Spámað-
urinn
Tal- og hljómmynd í 10 þátt-
um. Aðalhlutverkin leika:
Ameríski skopleikarinn
foe E. Brown,
Mari&n Marsk og
Tred Keatlng.
Sptenghlægileg og spennandi
amerísk gamanmynd.
AUKAMYNDIR:
Paradís selanna o»
GamaneráHawali
Sunnudaginn kl. 3 I
Höfuðskelin á Halldóii okkar Fiið-
jónssyni er eflaust orðin þykk og
seig af áralöngu stangi gegn öllum
staðreyndum, En vara má hann sig
á því að dauðrotast ekki, ef hann
heldur áfram að lemja höfðinu í
þann harða stein, áð ísafjörður sé
betri og meiri framtaksbær en
Akureyri.
Það þýðir ekki, þegar sósíalistar
eiga í hlut, að ætla að sannfæra þá
með rökum eða sannleika. Þeirra
þátttaka í opinbcum málum er
ekki gerð til þess að láta sannfær-
ast heldur til að mynda sem mest-
an hávaða og endurtaka fjarstæð-
urnar svo oft, að einhvetjir fáist til
þess að irúa þeim.
Til þess nú að prófa það, hvoit
Halldór tiúir sjálfur lofi sínu um
paradísar-sælu rijá sósíalistunum á
ísafirði, á móts við ástandið á Ak-
ureyri, geri ég það að úrslita- og
sáttatillögu í deilu þessaii, að Hall-
dór flytjist vestur í þetta sæluríki
bolsevismans og dvelji þc.r, — við
skulum segja svo sem tveggja ára
tíma. Vitanlega er það sjálfsagf, að
hann flytji ekki þangað sem jötu-
gemlingur eða pelabarn A'þýðu-
flokk.sins, heldur sem réttur og
sléttur verkamaður eða sjómaður
og fái á þann hátt að ptófa hvernig
verkafólki og sjómönnum líðut undir
handarjaðii hinnar sósfalistisku for-
sjónar á ísafirði. Mín spá er sú, að
Halldór komist aldrei út árið í
nýju vistinni og myndi fljótlega
koma heim til Akmeyrar aftur, sji-
andi þá fánýti og blekkingar þessa
gamburyrða moldviðris um hafiörð.
Vitanlega hefir einhver vesalingur
leltt Halldór út á þann hála ís, að
bera ísafjörð saman við Akurtyri.
Hirði ég ekki að grenslast nánar
eftir því, hver hann er, En líkast
er því, sem það hafi verið flott-.
ræfill, sem ómögulega geti sagt satt.
Grunar margan, að heimildarmaður
Halldórs sé Hannibal nokkur Valdt-
marsson núverandi skólastjóii sósí-
alista á ísafirði.
Hér í blaðinu hefir áður verið
bent á stærstu blekkingarnar og ó-
sannind:n í gamburyrðum Alþýðu-
mannsins um ísafjörð, og þessu
aðeins bætt við nú, sem Halldór
gelur svo leikið sér við að leggja
út af eða hugleiða með sjálfum sér.
1. Samkvæmt útsvarsstiganunr á
ísafirði greiðast 90% f aukaútsvar,
eft'r að komið er yfir 12 þúsund
k'ónur útsvarsskyldar tekjur.
2. Á ísafiiði slarfar ekkert eld:-
viðai vinnslu'élag. Pau tvö félög sem
staifa, eiga bæði heima í Eyrar-
hrepp'; þakkað sé foisji sósíalista-
broddanna, og atvinnan við þessa
mótöku er svo til eingöngu í
höndum Eyrhreppínga.
3. Á síðustu árum hafa verið
smfðaðir níu vélbátar á ísafirð'.
12-18 smal. að stæið, (en ekki 18
eins og Alþýðumaðurinn segi ).
4. Vmna við saltfisksvetkun á
ísafiiði veiður ekki teljmdi á yfir-
standandi sumri. Veldur þar hvort-
tveggja um, að þar eins og annar-
staðar í vetur og vor hefir aflinn
verið seldur til útflulnings jafnóðum
að mestu, og svo hitf, að sá hluti
afla báta Samvinnufélags ísfirðinga,
sem verkaður var í sah, var seldur
svo til allur út úr bænum, vestur
á Þingeyri og út í Hnffsda'. Hvað
ætli Halldór segði um slíka ráðs-
Á leið til hanv
ingju.
Niðursett verð! Síðasta sinn !
mennsku af hendi »íhaldsins« hér á
Akureyri.
Við þetfa má svo bæta þvf. að
allmargir trillubátanna á ísafirði, liafa
nú í vor selt afla sinn út í
Arnardal.
Petta eru svona einstakar leiftur-
myndir um sannleikann í gambri
Alþ.m. um sósíalistana áísafirðiog
forsjá þeiria, Halldór sæll Af nógu
sliku er að taka, og mikið meira
en ísl. heíir rúm fyrir, ef hreyfa ætti
alvarlega við óhappa- og óskapnað-
arferli sósíalistanna á Isafirði, sem
virðast hugsa um það eitt að út-
vega broddunum hæg og feit em-
hætti.
Z
(Grein þessi hefir beðið vegna
þrengsla).
Ferðafélcig Akureyrar fer
skemmtiferð til Austurlands 13.
þ. m. Helztu viðkomustaðir verða:
Ásbyrgi, Dettifoss og Eiðaskóli.
Þaðan farið upp um Fljótsdals-
hérað beggja megin Lagarfljóts —
að Hallormsstað og Valþjófsstað
— og svo til Seyðisfjarðar og
Reyðarfjarðar. — Þátttakendur
verða að gefa sig fram við form.
ferðanefndar (Þ. Þorsteinsson)
fyrir 10. þ. m. og gefur hann nán-
ari upplýsingar um ferðina.