Íslendingur

Issue

Íslendingur - 20.09.1940, Page 1

Íslendingur - 20.09.1940, Page 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118. XXVI. árgangur.j Akureyri, 20. september 1940 38. tölubl. Dýrtíðin vex Dýrtíðin heldur áfram að vaxa. Að vísu finnast þess dæmi, að vissar vörutegundir, sem fluttar eru inn í landið, hafi lækkað í verði, svo sem kol, olía. og sumar teg- undir kornvara. En allar þær vör- ur, sem framleiddar eru f landinu (að undanteknu síldarmjöli) halda áfram að hækka í vetði: Brauðin, mjólkin, eggin, kjötið, slátrið, kart- öflurnar o. s. frv. Nýlega kváðu eggin hafa kostað 5,80 krónur hvert kíló í Reykjavík og lambs- slátrið 5,50 krónur. Og eigi alls fyrir löngu tilkynnti Grænmetis- verzlun iíkisins í útvarpi og blöð- um, að heildsöluverð á kartöflum skuli vera 34 krónur tunnan frá 15. þ. m. til 31. október, og eru framleiðendur hvattir til að selja ekki undir þessu verði. í smásölu má svo smyrja allt að 35X á þetta verð. f fyira var heildsöluverðið á þessari vöru 21 króna tunnan, svo að það er hvo ki meira né minna en yfir 60% hækkun á kartöffunum. Þá hefir heyrst, að kjötið muni verða um þriðjungi dýrara í haust en það var á s. 1. hausti. Hin gífqrlega hækkun á inn- lendri framleiðslu hlýtur að hafa það í för með sér, að fólk kaupir minna af henni en áður, — minna kjöt, minna slátur, minni karföílur. Framleiðslunni gerir þetta e. t. v. ekkert til, því Bretar munu kaupa nokkuð af þessum vörum. Hin mikla verðhækkun afurðanna er oftast réttlætt með þvf, að Sram- leiðendurnir þurfi að fá hærri vinnulaun vegna verðhækkunar á öllu, sem þeir þuifa að kaupa. Vissulega er sú skoðun létt. En hitt er fullkomið íhugunarefni, hve sú verðhækkun, er framleiðandinn fær f sinn hlut, er lítill hluti af þeirri hækkun, er neytandinn verð- ur að taka á sig. Meginhluti verð- hækkunarinnar fer í aukinn dreif- ingarkostnað. Gott dæmi um þetta er mjólkur- verðið. Bændur hér í grenndinni munu hafa fengið 2—3 aura hækk- un á hvern mjólkurlítia, síðan út- söluverð mjólkur var hækkað hér f bænum. En til þess að þeir geti fengið þessa hækkun, verða neyt- enduinir að greiða 8 aurum meira en áður fyrir hvein lítra af neyzlu- mjólk. Pessi munur er lítt skiljanlegur nú, þegar vitanlegt er, að brezka setuliðið kaupir allmikið af mjólk, sem hlýtur að géra það að verk- um. að miklu meiri hluti mjólkur- innar en áður selzt sem neyzlu- mjólk, og að því skapi minna fer til osta- og skyrgerðar. Neytendurnir í bæjunum, sem verða hvað eftir annað að taka á sig nýjar og nýjar verðhækkanir á Iandbúnaðarafurðum vegna aukins framleiðslukostnaðar, vilja gjarna sjá þess einhvern vott, að bróður- partur hins hækkaða verðs fari raunverulega til framleiðslunnar, en hverfi ekki að langmestu leyti í aukinn milliliðakostnað. Það er hið marglofaða skipulag, sem drýgst- an þáltinn á í hinni gífurlegu verð- hækkun þeirra innlendu framleiðslu- vara, sem neytendur bæjanna verða að kaupa. Og svo dýrt getur þetta blessað skipulag orðið, að hvoiki framleiðendur ré neytendur fái undir risið. Frá sjóðþurrö- armálinu í Dagsbrún. Rannsókn í sjóðþurrðarmáli verka- mannafélagsins Dagsbiún í Reykja- vík, er lokið fyrir nokkru og hefir áður verið skýrt frá því hér í blað- inu, að bæði formaður og ráðs- maður félagsins reyndust hafa dregið sér fé úr sjóði félagsins. Notuðu þeir féð að miklu leyti til greiðslu persónulegra skulda. Stjórn Dagsbiúnar hefir síðan vetið enduiskipuð, eftir að sam- þykkt hafði verið með atkvæðum Sjálfsíæðismanna í stjórninni álykt- un þess efnis, að formaður hafi »fyrirgert formennsku sinni« og ráðsmaður brugðist svo í staifi sínu, að stjómin telji hann »sjálf- farinn úr því*. Alþýðuflokksfulitrú- arnir í stjórninni greiddu ekki at- kvæði. Þær breytingar urðu á stjórn fé- lagsins, að Sigurður Halldórsson varaformaður þess tók við for- mannsstörfum, en fyrsti varamaður í stjórn tók sæti í henni. í stað Marteins Gíslasonar, sem verið hafði ráðsmaður félagsins, var ráð- inn Alfreð Guðmundsson, sjálf stæðismaður, sem verið halði ann- ar starfsmaður félagsins áður, í sambandi við skrif blaðanna um sjóðþurrðarmálið, hafa koinið fram þijár málshöfðanir. Hefir Hússtjórn Good-Templarareglunnar í Reykjavík stefnt Alþýðublaðinu út af dylgjum í sambandi við sjóð- þmrðina í Dagsbtún. Þá hefir stjórn Alþóðuflokksins og Alþýðu- sambandsins stefnt Héðni Valdi- marssyni fyrir aðdróttanir í »Nýju- landi* og blaðinu »Vesturland* á ísafirði fyrir ummæli í sambandi við frásögn af sjóðþurrðarmálinu. Húsnæð- isekla. Óvenju rnikill skortur mun vera á fjölskylduibúðum hér í bænum nú í haust. Eru orsakir til þess einkum tvær: að engin hús eru byggð vegna dýrtíðarinnar og að Bretum hafa verið leigðar allmarg- ar íbúðir. Það er ef til vill eðli- legt, að húseigendur vilji gjarna leigja brezka hernum, því hvort- tveggja er, að hann mun greiða hærri leigu en venja er til og auk þess mun greiðslan vera talin ör- uggari hjá honum en tekjurýru al- múgafólki hér í bænum. Ekki er þó kunnugt um, að húseigendur hafi sagt leigjendum upp húsnæði í því skynij að leigja Bretum það fyrir hærra verð, enda er það ský- laust brot á húsaleigulögunum frá síðasta Alþingi, og geta því leigj endur kæit yfir, ef slíkt kemur fyrir, Samkvæmt húsaleigulögunum er ó heimilt að hækka húsaleigu, nema í henni hafi verjð innifalinn hiti, sem hækkað kolavetð réttlætir hækkun á, eða endurbætur hafi veiið gerðar á íbúðinni og loks í þriðja lagi, ef fasteignamatsnefnd viðuikennir, að leigan hafi áður verið of lág, miðað við leigu ann- ara íbúða á sama stað. Þá er og óheimilt samkværnt sömu lögum að segja leigjendum upp húsnæði, nema húseigandi þuifi á því að halda fyrir sjálfan sig eða sitt vandafólk, eða ef leigutaki stendur ekki í skilum með greiðslu eða týfur á annan hátt samninga. Hvort þeim mörgu fjölskyldum, sem nú eru í óvissu um að fá húsnæði, tekst það, leiðir tíminn í Ijós, en það er fullkomið alvöiu- mál, sem þarf opinberrar íhlutunar, ef dvöl brezka setuliðsins hér í bænum leiðir það af scr, að fleiri eða færri fjölskyldur bæjarins verða staddar á gölum úti og eiga hvergi þak yfii höfuðið, er veturinn geng- ur í garð. Brezk fiugvél nauð- lendir í óbyngðum. S. 1. föstudag lögðu tveir Bietar af stað í llugvél frá Kaldaðarnesi áleiðis til Akuteyiar. Ætiuðu þeir að fljúga beina leið yfir öræfin, en lentu í dunmviðii og sréru því við aítur, er þeir komu noiður á há- lendið. En skammt sunnan við Hofsjökul lentu þeir í loftþunnu túmi, svo flugvélin íéll, en við það stöðvaðist hreyfillinn. Urðu þeir því að nauðlenda skamint suður af Atnarfelli- Gekk lendingin svo NÝJA BIÓI Föstudags- og sunnudags- kvöld kl. 9: Ramona jTal- og söngvamynd í 10 þátt- um, öll tekin í eðlilegum htum. Aöalhlutverkin leika: Loretta Young, Don Ameché, Kent Taylor og Pauline Frederich. Fögur og tilkomumikil kvik- mynd tekin í eðlilegum litum í undursarnlegri náttúrufegurð víðsvegar í Californíu, full af rómantík og fögrum sönglögum og heillandi músik. — Ramona var sýnd hér sem þögul mynd fyrir rúmlega 10 árum og hlaut þá íeikna vinsældir. Nú fer Kamona sigurför um öll lönd í nýrri útgáfu og vekur sízt minni hrifningu en sú eldri. Laugardagskvöld kl. 9: Óvionr þjóð- félagsins TheLast Gangster Tal- og hljómmynd í 10 þátt um. Aðalhlutverkiö leikur hinn frægi »karakter< leikari Edward G. Robinson, fames Siewart og Rose Stander Ákaílega spennandi amerísk sakamálamynd, framúrskarandi 'vel leikin. Börn fá ekki aðgang. — Sunnudaginn kl. 5 • Tarzan Aukamynd: = Litskreytt teiknimynd. I I. O. O. F. == 1229207 = XX I. O. O. F. = 1229218 = XX. vel, að báðir sluppu ómeiddir. Héldu þeir síðan sleiðis fil byggða í Pjórsárdal. Á sunnudag mætfu þeir mönnum, sem gerðir höfðu vetið út til að leila þeirra, og varð þeim eigi meint af ferðinr..

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.