Íslendingur - 18.10.1940, Page 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.I Akureyrí, 18. október 1940 | 43. tölubl.
Hættuleg skrif
Undanfarið hefir verið litið svo
á, að hér á landi væri aðeins um
tvö flokksbrot að ræða, sem orðið
gætu sjálfstæði landsins hættuleg:
Annarsvegar kommúnistar en hins-
vegar nazistar. Báðar þær mann-
tegundir setja þjónkun við erlent
vald ofar hagsmunum og heili eig-
in þjóðar. Báðar reka fúslega er-
indi hins erlenda valds fyrir fé eða
vonir um mannaforráð. Hinir fyrr-
nefndu eru oft kenndir við Kuusinen
hinn finnskai er frægur varð af
föðurlandssvikum skömmu fyrir
síðustu jól, en hinir síðarnefndu
við Quisling hinn norska, er gekk
á hönd þýzka innrásarhernum í
Noregi 9. maí s. I., gegn þjóð
sinni. Pessi tvö nöfn munu um
næstu aldir verða noluð um þá
menn, sem reka erindi erlends
valds í frjálsum löndum, — föður-
landssvikara og drottinssvikara, —
þau munu órjúfanlega verða tengd
við sögu Júdasar frá Karíot og
alstaðar nefnd með fyrirlitningu,
meðan virðingin fyrir frelsi, réttlæti
og drengskap er við líði.
Vér íslendingar höfum ekki átt
kost á að sannprófa, hvort slíkir
menn eru til á meðal vor, og von-
andi komumst vcr alveg hjá því
En ólíklegt mundi flestum þykja,
að svo væri, þeim er þekkja sögu
íslands frá upphafi, orsökunurr. til
landnáms þess, kúgun þess gegn-
um margar aldir og frelsisbaráttu
þess, sem í aðalatriðum má telja
nýlokið.
En er þá sjálfstæði landsins eng-
in hætta búin innan frá, ef erind-
reka Sovét-Rússlands og Pýzka-
lands skortir skilyrði til að vinna
því tjón?
Pví miður er nokkur ástæða til
að ætla, að þriðja stórveldi álfunn-
ar eigi líka sína erindreka meðal
innlendra manna, en þetta stórveldi
er Bretland, sem hertók landið 10.
maí s, I. með þeim ummælum, að
það með því vildi koma í veg
fyrir, að Pjóðverjar settu hér lið á
land. Pess hefir orðið nokkuð
vart, að íslenzkir menn, jafnvel
háttsettir menntainenn, hafi látið
sér hernámið vet líka og látið í
Ijósi feginleik yfir því. Og nokkru
áður en hernámið fór fram, sknf-
aði Héðinn Valdimarsson grein í
blað sitt »Nýtt land«, þar sem hann
kvað hafa stungið upp á, að ísland
gengi inn í brezka heimsveldið.
Pessari uppástungu Héðins var
lítill gaumur gefinn, enda hafði
blaðið lítinn lesendahóp en grein-
arhöf, »utangátta« í stjórnmálahtim
inum, nýkominn úr ársvist hjá
flokki Kuusinens. En hinn 20.
sept. í haust birtist í brezka blað-
inu »Spectator« grein eftir íslenzk-
an mann, Snæbjörn Jónsson bók-
sala í Reykjavík, urn ísland og
styrjöldina, þar sem tekið er mjög
eindregið undir tillögu Héðins
Valdimarssonar. Er því haldið
fram þar, að gáfuðustu mönnum
hér á landi sé ljóst, að ísland
þurfi á vernd einhvers stórveldis
að halda og að hernám Breta á
íslandi hafi »gert mönnum Ijóst,
hver yrði bezti vörður frelsis ís-
lands og öryggis landsins*. Pá
segir höfundur ennfremur:
»------Pdð er líklega rétt, að
íslenzka þjóðin hefir ekki ennþá
myndað sér ákveðnar óskir um
framtíð landsins. Peir sem hallast
á sveif draumóra og skortir raun-
sæi kunna ennþá að hugsa um
það sem lýðveldi, án nokkurs
stjórnmálalegs sambands við nokk-
urt erlent ríki og verndað af hinni
eilífu ró yfirlýsts hlutleysis. Pað
er samt nokkurnveginn öruggt að
segja, að yrði tilraun gerð í þessa
átt, myndi vegna praktiskra ástæða,
verða að hveifa frá henni. Peir,
sem gæddir eru meira raunsæi,
óska þess, að Island yrði full-
valda meðlimur brezka sam-
veldisins«. (teturbr. hér).
Pá minnist höf. á grein Héðins,
og lætur í Ijósi það álit, að þar
sem íslenzk blöð hafi ekki gert til-
raun til að hrekja röksemdir hans,
sé »niðurstaðan óhjákvæmilega sú,
að blöðin og stjórnmálamennirnir
hafi álitið þær óhrekjandi*. Og
hann bætir við:
»Það er leiðinlegt, að greinar
hans hafa ekki verið þýddar á
ensku, því að fyrr eða síðar hlýtur
að reka að því. að lillaga þessi
verði viðfangsefni, er krefst úr-
lausnar brezkra stjórnmálamanna
og að almenningur í Bretlandi
verði að skipa sér með henni
eða móti«. (ibr.hér). Og enn segir
hann: »Petta er einasta leiðin, sem
sumir okkar íslendinga sjáum til þess
að vernda frelsi íslands«.
Meðan tillögur brezksinnaðra eða
rússnesksinnaðra íslendinga um að
ísiand »gangi inn í« brezka heims-
veldið eða Sovétríkjasambandið
bi.tast aðeins í litlum, íslenzkum
blöðum, er tiltölulega lítil hætta á
ferðum. En þegar flutningsmenn
þeirra eða fylgismenn koma fram
með þær í erlendum stórblöðum,
er málið orðið alvarlegra. Peir
eru sjálfsagt ekki margir þeir ís-
lendingar, er þykir »leiðinlegt*, að
greinar Héðins skyldu ekki vera
þýddar á ensku. Fleiri munu þeir
vera, sem telja ekki aðeins »leiðin-
Iegt«, heldur háskalegt og vítavert,
að grein Snæbjarnar Jónssonar
skyldi vera send til birtirrgar í
ensku stórblaði.
Það er líklegt, að ísland eigi
ekki margt raunsæismanna, ef
mælikvarði Snæbjarnar er notaður.
Ef það eru ekki annað en draurn-
órar, að smáþjóð geti sjálf ráðið
málum sínum og veiið óháð yfir-
ráðum eða »vetnd« einhverrar stór-
þjóðar, þá er ekki annað sýnilegt,
en að þrír stærstu stjórnmálaflokk-
arnir í landi voru séu byggðir upp
af tómum draumóramönnum, að
forvígismenn sjálfstæðisbaráttu vorr-
ar, að meðtöldum Jóni Sigurðssyni,
hafi einnig verið draumóramenn,
en kommúnistarnir, sem svo oft
hafa heimtað »vernd« einhvers
stórveldis íslandi til handa, séu
hinir réttu raunsæismenn á ineðal
vor.
Ef styrjöld þeirri, er nú geisar,
lýkur með sigri þeirra aðila, er
viðurkenna létt smáþjóðanna til
sjálfstæðis, ættum vér íslendingar
að geta skipað málum vorum á
þann veg, er »draumóramennirnir«
hafa óskað og óska eftir. Pá ætti
það ekki að vera komið undir »úr-
lausnum brezkra stjórnmálamanna«,
og því síður »almennings« í Bret-
landi, hvort við viljum vera sjálf-
stæð og óháð þjóð eða ganga inn
í eitthvert stórveldasamband. Og
vafalaust rná telja, að þrátt fyrir
hernámið í vor og útþurikun sjálf-
stæðra smáríkja í Evrópu um
sömu mundir ber yfirgnæfandi
meiri hluti þjóðarinnar þá von í
brjósti, að ísland megi sem fyrst
losna við hið vopnaða erlenda iið
og allt, sem minnir á eilenda
»vernd« og urnsjá, en að hið yfir-
lýsta hlutleysi verði þess svetð
og skjöldur um ótalin ár.
Væntanlega sjá íslenzk stjórnar-
völd svo um, að »almenningi« í
Bretlandi verði gert það Ijóst, að
Snæbjörn Jónssön hafi ekki mælt
fyrir munn íslenzku þjóðarinnar í
grein sinni í »Spectator«.
Gagntræðaskóli Akureyrar
var settur í Skjaldborg s. 1. mið-
vikudag (15. þ, m) — Aðsókn að
skólanum er nií meiri en nokkru
sinni áður. V'erða nemendur nm
110 og kennt í 5 deildum. Hefir
skólinn keypt húsnæöi af Oddfellotv-
um (neðri hæð Verzlunarmannahúss-
ins) þar sem kennsla mun fara fram
í vetur auk fundarsals verzlunar-
manna, sem leigður hefir verið í
sama skyni eins og að undanförnu.
Nýir tímakennarar við skólann verða
Geir Jónasson magister og Toiíi
Guðmundsson stúdent,
Áheit á Akureyrarkirkju: Kr.
50.00 frá N. N. Þakkir Á. R.
N-ÝJA bióBHBHI
Föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 9:
Börn Hardys
ddmara.
Tal- og hljómmynd f 10 þátt-
um. — Aðalhlutverkin leika:
Mickey Rooney, cecilia
Parker og Lewis Sione.
Skemmtileg og spenaandi gam-
anmynd.
Laugardagskvöld kl. 9:
LlfsgleOi
(Joy of Lifing)
Tal- og hljómmynd í 10 þátt-
um. -- Aðalhlutverkin leika:
Irene Dunne og Douglas
Fairbanks fr.
Fjörug og fyndin amerísk
söngva- og gamanmynd. —
Aukamynd:
Wait Disney, teiknimynd
Sunnudaginn kl. 3 I
Hnefaleikarinn
KIRKJAN: Messað verður kl. 12
á hádegi næstkomandi sunnudag
í Lögmannshlíðarkirkju.
□ Rún 594010237 - Fjh.
I. O. O. F. = 12210189 = O
Kantötukór Akureyrar heldur
aöaljund sinn í Skjaldborg föstu-
daginn 18. þ. m. kl. 9 síðdegis. Al-
varleg mál á dagskrá. Mœtið!
/
Iðnskóli Akureyrar verður sett-
ur föstudaginn 18. október kl. 8
síðdegis.
S/ysfarir.
Á mánudaginn varð lónas Gunn-
ars9on smiður hér f bæ fyrir því
slysi, að falia ur stiga úr 8 álna
hæð, þar sem hann var að vinna
við aðgerð á Iðnaöarmannahúsinu.
Brotnaði hann á hægri hatidlegg upp
við ö.xl og hælbeinsbrotnaði að
auki Liggur hann í sjúkrahúsinu
hér.