Íslendingur - 25.10.1940, Blaðsíða 1
XXVI. árgangur.l
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
Akureyri, 25. október 1940
44, tölubl.
í Kristiansand 9. apríl 1940.
Frásögn sjónarvotts Guðjóns Guðbjðrnssonar, stýrimanns.
Meðal íslendinga þeirra, er komu
heim frá Norðurlöndum með Esju
á dögunum, var skipshöfnin 4 e- s.
Snæfell, flutningaskipi útgerðarfé-
lags KEA, að undanteknum skip-
stjóranum Gísla Eyland, sem eftir
Guðjón Guðbförnsson
varð í Svíþjóð til að sjá um skip-
ið. Á laugardagsmorgun komu
skipverjar í bifreið að sunnan.
Hefir blaðið náð tali af 1. stýri-
manni, Guðjóni Guðbjörnssyni, og
spurt hann frétta af dvölinni á
Norðurlöndum. Fer frásögn hans
hér á eftir:
Pegar Pjóðverjar gerðu innrásina
í Noreg, lágum við í Kristianssand,
sem er syðsti bærinn í Noregi og
vorum að lesta þar tunnustaf. Lá
Snæfellið við bryggju. Um klukk-
an fjögur á þriðjudagsmorgun 9.
aprfl vöknuðum við við skotdynki
utan frá sjónum. Heyrðum við að
skothríðinni var svarað fráOddyrö
vígi, sem er þar rétt utan við
hafnarmynnið. Við snöruðum okk-
ur á fætur og biðum átekta. Viss-
um við þegar, að hér var um her-
skipaárás að ræða. Skothríðin fór
nú vaxandi og færðist nær. Flug-
vélar flugu innyfir og vörpuðu
sprengjum yfir vígið og höfnina,
svo allt lék á reiðiskjálfi. Klukkan
sjö varð sprenging f skotfæra-
geymslu Oddyrövígisins og eld-
blossana og reykhafið bar við
himin. Um sama leyti taka fall-
byssukúlur að springa allt í kring-
um »Snæfell«, og fer þá skipshöfn-
in að hafa sig í land. Héldu flestir
hópinn og komust á óhultan stað
vestan við bæinn. F.n ég og 3
aðrir skipverjar urðum nokkru
seinna fyrir, og er við vorum að
stfga upp á bryggjuna. lenti kúla í
skipinu. Hristist það og skalf og
var líkast eins og verið væri að
brjóta það í spón. Við hlupum
upp í bæinn og gengum þar eftir
sundi milli tveggja gdmalla húsa.
Lendir þá sprengja í öðru húsinu,
og rigndi þakflísum og sprengju-
brotum í kringum okkur. Ein
sprengjuflís kom í öxl Axels
Björnssonar kyndara, reif frakka
hans og jakka, en særði hann ekki.
Við komumst nú inn í kjallara á 5
hæða vörugeymsluhúsi úr stein-
steypu. Voru nokkrir Norðmenn
þar fyrir. Þarna höfðumst við við
til kl. 8, en þá féll skothríðin
skyndilega niður. Áræddum við
þá að fara út. En þar var allt á
tjá og tundri. Öll flutninga- og
farartæki voru yfirfull af flóttafólki,
sem leitaði burtu úr bænum, eitt-
hvað út í óvissuna. íbúar bæjar-
ins voru um 23 þúsund, en álitið
var að 17 þúsund hefðu flúið bæ-
inn þenna dag. Á götunum varð
ekki þverfótað fyrir glerbrotum,
þakflísum, spýtnabraki og kúlna-
brotum. Það var ömurlegt yfir að
líta. Víða kom upp eldur, og var
slökkviliðið á þönum allt til kvölds.
Margt bæjatbúa hafði látið lífið og
fjöldi særst, Annars var tala þeirra
aldrei gefin upp.
Við fórum nú aftur um borð í
skipið. Var þar ófagurt um að
litast. Fallbyssukúla hafði 'hitt
skipið aftarlega bakborðsmegin og
rifið 4 plötur úr afturþilfarinu, öldu-
stokkinn og öldustokksplötuna, og
lá partur úr henni uppi á bryggj-
unni. Göt voru á tveimur bátun-
um og stjórnklefanum og »kapp-
inn« yfir afturgeymslunni allur
beyglaður. Töldum við milli 30
og 40 göt gegnum skipshliðina
stjórnborðsmegin eftir kúlnaflísar,
og víða var skipið dalað og rifið
eftir þær. Við athuguðum, hvort
leki hefði komist að skipinu, en
svo var ekki.
Á ellefta tímanum um morgun-
inn komu mörg þýzk hetskip og
herflutningaskip inn á höfnina og
lögðust að bryggju. Var Iið þeg-
ar sett á land, er dreifði sér f smá-
hópum um bæinn, og gekk land
setningin undra fljótt. Hervörður
var settur við allar opinberar bygg-
ingar í bænum samtímis og þýzki
stríðsfáninn dreginn að hún á
Oddyrövíginu, (sem gefist hafði
upp eftir fyrirmælum frá Osló að
sagt var) á ráðhúsinu og víðar.
Við skipstjóri fórum nú upp í bæ-
inn til að hitta skipamiðlarann, en
hann fannst ekki. Hafði flúið úr
bænum eins og fleiri. Þá fórum
við heim ^Jil ræðismannsins en
fengum ekki að hitta hann. Var
hervörður við hús hans, og sagði
hann okkur að koma kl. 4 sama
dag. Það gjörðum við- Erindi
okkar var að fá leyfi til að senda
skeyli heim til útgerðarféiagsins og
flylja skipið út úr höfninni, en
Þjóðvetjar synjuðu um hvorttveggja
að svo stöddu.
Tvívegis um kvöldið var gefið
merki um loftárásarhættu, en eng-
um sprengjum var varpað á bæinn.
Hafði sézt til nokkurra enskra
flugvéla, og var skotið á þær. 12.
apríl gerðu tólf enskar flugvélar
sprengjuárás á höfnina og bæinn.
Lentu flestar sprengjurnar í höfn-
inni og gerðu ekki mikið tjón.
Þann dag tókst okkur loks að fá
leyfi til að senda skeytið heim og
litlu síðar leyfi til að iáta gera við
skipið. Var farið með það í þurr-
kví skammt frá bænum og gert
við skemmdirnar. Þegar viðgerð-
inni var lokið, fengum við leyfi til
að halda áfram að lesta skipið og
voru horfur á að við mundum
innan skamms komast heim með
farminn. 10. maí erum við búnir
að fylla lestarnar. En þá er okkur
sagt, að eigi þýði neitt að halda
áfram. B etar hafi hertekið ísland
og fararleyfi munum við því ekki
fá fyrir skipið.
Vilhjálmur Finsen var okkar önn-
ur hönd við að útvega heimfarai-
leyfi, en þegar það fékkst ekki
lengur, þá reyndum við að fá leyfi
til að fara til Svíþjóðar. Það leyfi
fengum við loks 24. júní- Sigldum
við þá til Lysekil í Svíþjóð, en það
er smábær skammt frá Götaborg.
Komum við þangað 25. júní og
vorum þar til 1. október, en þá
fórum við til Stokkhólms og slóg-
umst í för með öðrum löndum
vorum, er fengið höíðu heimfarar-
leyti frá Norðutlöndum.
— Fenguð þið nokkrar fregnir
að beiman? spyrjum vér að lok-
um.
— Ekki geíur það talist. Við
heyrðum í danska útvarpinu um
ályktanir Alþingis frá 10. apríl, og
mánuði síðar skýrði útvarpið í
Osló frá hernámi Breta á íslandi
og mótmælum tíkisstjórnarinnar
gegn því. Annað heyrðum við
aldrei varðandi ísland. Til Reykja-
víkurútvarpsins gátum við • aldrei
heyrt, enda mikið um truflanir.
Oort lávarður
sem var yfirhershöfðingi Breta í
Frakklandi s. 1. vor, er kominn hing-
að til lands. Tfl Akureyrar kom
hann á mínudaginn var, og hafði
brezka setuliðið ýmsan viðbiínaö til
að gera móttökur hans sem virðu-
Iegastar, Lávarðurinn hefir nú yfir-
umsjón meö breska hernum og nýt-
ur mjög mikils álits og virðingar.
NÝJA BTÓ
Föstudags- og
kvöld kl. 9:
Farið
tornu dyggðir
Frönsk söng- og gamanmynd
eftir hið fræga leikritaskáld
LOUIS VERNEUIL.
Aðalhlutverkið leikur og syng-
ur hinn heimsfrægi gamanvísna-
söngvarí og kvennagull
Maurice Chevalíer.
Skemmtileg, fjörug og fyndin
gamanmynd.
Laugardagskvöld kl. 9:
Tal- og hljómmynd í 10 þátt
um. — Aðalhlutverkin leika:
fohn Howard og
/. Carrol Naish.
Afar spennandi og viðburðarík
»Sapper«-leynilögreglumy.nd,
Aukamyndir: Fréttakvikmyndir
og Skipper Skrcek teiknimynd.
Börn fá ekki aðgang.
Sunnudaginn kl. 5 I
Lifsgleði
Séra Magnús Helgason
fyrrv, skólastj. Kennaraskólans lézt í
Reykjavík 21. þ. m. Verður þessa
mæta manns nánar minnst síðar.
Dánariregn, Hinn 15. þ m.
andaðist f Reykjavík Helgi Laxdal
lögfræðingur (fi á Tungu á Svalbarðs-
strönd) tæpl. þrítugur að aldri.
KIRKJAN: Messað verður í Ak-
ureyrarkirkju n. k. sunnudag kl.
2 e. h. Vetrarkoma.
MessaS í Glœsibœ sunnud, 27.
okt. og á Möðruvöllum í Hörgár-
dal sunnud. 3. nóv., á báðum stöð-
um KL. 12 Á HÁDEGI.
Guösþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli: Hólum, sunnudaginn
27. okt., kl. 12 á hádegi. — Saur-
bæ, sama dag, kl. 2 e. h. — Grund
sunnudaginn 3. nóv., kl. 12 á hád.