Íslendingur - 25.10.1940, Síða 2
2
ISLENDINGUR
Verkamaðurinn dreg-
ur dár að Rússum.
777 prentmeistara
<f) d d o oB j, ö ■z- w o | o 'H a 't-,
Akureyri.
Aldni vinur, unga sál!
eina bjarta heillaskál!
sumargleði sumarbarni,
sál þó mæti ís og hjarni.
Vorsins rnögur, veili þér
vorið allt, sem fegurst er.
Lifðu heill við Ijós og hljóma
ljóssins barna heigidóma.
HULDA.
Bo*o®o*oeoeceoKíflcfloec«ca(8 »M<=«»<=s®csŒc>(E<=5œ<=>ac=o<=œ<=>sc>Bc=Bc>aa
Fj7rir hálfu öðru ári siðan var
samþjrkkt á fundi i Sósialistafélagi
Akureyrar átyktun, þar sem skorað
var á ríkísstjórnina að »gera þegar
tilraun til að fá einhver hinna lýð-
ræöissinnuðu stórvelda til að tryggja
sjálfstæði íslands gegn erlendum
yfirgangi*.
5*6351 ályklun er frá þeim tíma,
er kommúnistar vissu ekki betur en
Stalin húsbóndi þeirra væri höfuð-
óvinur nazismans og einn hinna fáu,
er Hitler heföi nokkurn beyg af.
Þeir töldu þá nokkra hættu á, að
fjóðverjar hefðu augastað á íslandi,
og af því er þessi ályktun sprottin.
Svo langt gekk ótti þeirra, aö þeir
vildu láta gera ráðstafanir til að fá
hingað herskip frá Bretlandi eða
Bandaríkjunum, til verndar landinu,
er þýzkt herskip kom hingað í
heimsókn!
En tímarnir breyttust. Stalin
gerði kommunum þann grikk að
gera samning við höfuðóvininn og
koma með því af stað hinni ægi-
legu styrjöid, sem nú er í fullum
gangi. Og eitt hinna »lýðræðis-
sinnuðu stórvelda*, sem kommúnist-
ar vildu íá til að vernda sjálfstæði
íslands sendir hingað setulið óbeðið,
til að koma í veg fyrir, að ]?jóð-
verjar yrðu fyrri til, eins og her-
stjórn þess hefir tilkynnt þjóðinni.
En kommúnistum var þá öllum lok-
ið. Þeir vildu nú ekkert með
þessa »vernd* hafa, er þeir skömmu
áður höfðu beðið um. Og ástæðan
er engin önnur en sú, að það var
allt annað stórveldi, sem þeir vildu
fá hingað, eius og greinilegast
kemur í ljós í síðasta blaði Verka-
mannsins. Þar segir svo:
»Hún (þ. e. ríkisstjórnin) gerir
engar ráðstafanir til að hindra, að
ísland verði vlgvöllur styrjaldar-
aðilanna. Hún veit, að með venju-
legu stjórnmála- og viðskiptasam-
bandi við Sovétríkin væri bægt að
koma í veg fyrir þetta. Það er
hægt með slíku sambandi, vegna
þess aö báðir styrjaldaraðilar vilja
forðast, í bili að minnsta kosti, átök
við Sovétly;ðveldin«(!)
Þannig er þá komið. Síðan Stal-
in gerði samninga sína við Hitler
hefir skipt um tón í blöðum komm-
únista hér, Áróðri sínum gegn
Hitlerismanum hættu þau snögglega,
en tóku í þess stað upp áróður
gegn Bretum. Og ríkisstjórnina
skamma þau daglega fyrir að hún
skuli ekki reka brezka herinn af
höndum sér! Ríkisstjórnin á að
gera samninga við Stalin. Það á
að vera nóg til þess, að Bretar
mundu haía sig heim héðan, Banda-
ríkin ekki þora «ð róta sér og
f’jóðverjar »halda sig á mottunni*.
Og þetta stafar allt af hræðslu
stríðsaðilanna við Rússa, — her-
veldið, sem var 372 mánuð að ná
sér í litla sneið af Finnlandi, þótt
það hefði 50 manns á móti 1 Finna,
— herveldiö, sem reyndi að fá
Eistlendinga til að hjálpa sér í
þeirri viðureign, — herveldið, sem
stakk rýtingnum í bakiö á Pólverj-
um meðan þeir hörfuðu undan ofur-
efli hins þýzka hers og lagðist síð-
an á hverja smáþjóðina eftir aðra í
skjóli styrjaldarinnar, -- herveldið,
sem braut griðasáttmálann við nauð-
stadda nágrannaþjóö, þegar það
taldi sér beztan leik á borði og
hefir síðan lifað fj'rir það eitt aö
græða sem mest á styrjöldinni í
Vestur Evrópu.
Það er löngu ljóst orðið öllum
sjáandi mönnum, að kommúnista
dreymir stóra drauma um innlimun
íslands í Sovét-lýöveldi Austur-
Evrópu. Ilvað um ísland hefir ver-
ið bollalagt í samningagerö einvald-
anna í Moskva og Berh'n er ekki
vitað, en afstaða kommúnista til
Breta í seinni tíð vekur grun um,
að aðgerðir Breta hér í Norður-
höfum komi í bága við fyrirætlanir
Rússa, En hvað sem um það e.r,
þá er hitt víst, að ekkert blað hér
á landi hefir flutt naprara háð um
Sovétlj'ðveldin en Verkamaðurinn
gerir í áminnstri klausu á laugar-
daginn. Sjálfsagt gerir hann það
óviljandi.
Sunnudagaskólinn Sjónarhæð
byrjar á sunnudaginn kl. 1.
Islendingar ennsendir
til Englands.
Sjö af íslendingunum, sem komu
með Esju frá Petsamo, var haldið
eftir í skipinu á Reykjavíkurhöfn
eftir að hinir höfðu fengiö landgöngu-
leyfi, Voru þeir síðar fluttir um
borð í Ægi, en Esju leyft að leggj-
ast að bryggju. Fjórir af þessum
sjö hafa nú verið látnir lausir: Jón
Matthíasson loftskeytamaður á Gull-
fossi, sem kvað hafa veriö haldið
eftir í misgripum fyrir annan mann,
frú Þóra Árnadóttir, kona Bjarna
Jónssonar læknis, er varö eftir meö
manni sínum, aö eigin ósk og Fritz
Kjartansson og H. J, Hólmjárn for-
stjóri, er báðir voru látnir lausir
gegn 200 þúsund króna ábyrgð, er
ríkisstjórnin og einstakir menn létu
í té. En þrír af þessum sjö íslend-
ingum veröa fluttir til Englands til
framhaldsrannsóknar. Eru það Bjarni
Jónsson læknir og tveir sjómenn, er
komu um borð f Esju 1 Þrándheimi.
Hefir brezka herstjórnin ekkert gefið
upp um ástæður fyrir þessum flutn-
ingi, en tilkynnt, að ef ekkert finnist
athugavert viö menn þessa, yrðu
þeir sendir heim aftur.
Lessi ákvörðun Breta varpar
dimrnum skugga á gleöi íslendinga
yfir að heimta landa sína heim frá
Norðurlöndum, og kemur flestum
furðulega fyrir sjónir. Munu íslend-
ingar yfirleitt eiga örðugt með að
skilja, að ekki skyldi unnt að rann-
saka mál þessara manna hér heima
Viötal við Sig. Eggerz
bæjarfógeta.
Reglur þær, sem brezka setuliös-
stjórnin setti um umferð báta á sjó
hér við Eyjafjörð um myrkurtímann
lögðu mjög mikla tálmun á vetrar-
vinnu sjómanna og smáútvegsmanna
hér í bæ. En eins og sjá má af
tilkynningu hér í blaðinu í dag, hefir
brezka setuliðsstjórnin breytt regl-
unum til bóta fyrir þá er fiskveiðar
stunda á innanverðum firöinum
Átti íslendingur tal við Sig.
Eggerz bæjarfógeta f gær um þau
mál, er tilkynningin fjallar um og
fórust honum orö á þessa leið.
Ég hreyfði þessu máli við setu-
liðið brezka um 20. september 23.
september fékk ég aö vita, að breyt-
ing gæti ekki oröið á þessu strax,
en hinsvegar varð ég þess var, að
góöur vilji var til þess að luga það.
25. september fékk ég enn bréf frá
setuliðinu, og kom þá fram eindreg-
inn vilji til aö taka óskir sjómanna
til greina.
.13. október var svo haldinn fund-
ur hjá foringja setuliðsins Hafði
hann óskað eftir að ég og fulltrúar
sjómanna og útgerðarmanna sætu
fundinn. Mættu þar af há'íu sjó-
manna Tryggvi Helgason og Sveinn
Sveinbjörnsson og af hálfu útgerðar-
manna Gunnar Larsen. Fundirm sátu
einnig 3 enskir liðsforingjar.
Á þessum fundi varð sú niður-
staða, sem hér er birt í blaðinu.
— En hvað um siglingar flutninga-
báta um myrkvunartímann? spyr
blaðiö.
— Enn er ekki fengin lausn á
því máli, svarar bæjarfógeti, en ég
vonast eftir, að hún fáist mjög
bráðlega.
Dvöl 3. hefti, 8. árg.
hefir blaöinu verið send. Er hefti
þetta myndarlega úr garði gert og
fjölbreytt aö efni. Af innlendu efni
má nefna tvær smásögur, aðra eftir
Kolbein frá Strönd, hina eftir
Grímni. Kvæði eru þar eftir Tóm-
as Guðmundsson, Heiðrek Guðmunds-
son og Jón frá Ljárskógum’ grein-
ar eítir f’óri Baldvinsson og Stef-
án Jónsson skólastjóra. Loks eru
margar þýðingar, og má þar fyrst
nefna höfundana: Galsworthy, Sien-
kiewich og J. B. S. Haldane. Auk
þessa eru umsagnir um bækur,
kímnisögur og margt smávegis.
Ritstjóri Dvalar er Þórir Baldvins-
son.
Auglýsið í Isi.
Sendið börnin ykkar.
Pað tilkynnist vinum og vandamönnum, að eiginkona
mín, móðir okkar og amma,
* '
Guðrún Arnadóttir,
andaðist 18. þ. m. Jarðarförin er ákveðin fimmtudoginn
31. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili okkar kl. 12 á hád.
Steinkoti 20. október 1940.
Eiginmaður, börn og barnabörn.
Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð
og hluttekningu við fráfall og jarðarför móður okkar,
Onnu Magnúsdótður, Pverá.
Börn hinnar látnu.