Íslendingur - 01.11.1940, Síða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.
Akureyri, 1. nóvember 1Q40
tölubl.
Steinn Steinsen, bæjarstjóri:
Um virkjun Laxár oy aukningu
Rafveitu Akureyrar.
Ritstjóri íslendings hefir farið
fram á við mig,r að ég ritaði í
blaðið um Laxárvirkjunina, og þar
sem stofnkostnaður fyrirtækisins
hefir nú að mestu verið gerður
upp og nokkur reynsla fengin um
rekstur þess, finnst mér létt að
verða við beiðninni.
Eftir að Olerárstöðin tók til
starfa varð fljótt vart við, að hún
gat alls ekki fullnægt rafmagnsþörf
bæjarins. Vatnsafl ’ stöðvarinnar er
330 hestöfl, ef nægilegt vatn er á
vélarnar, en út af þvi vildi oft
bregða. Auk þess er 165 hestafla
mótor, svo stöðin er alls tæp 500
hestöfl mest.
Á árunum 1934 til 1937 lét bæj-
arstjórnin rannsaka hvernig bezt
yrði bætt úr raforkuþörf bæjar-
ins. —
Eftir að gerð hafði verið all-
ýtarleg rannsókn á þeim fallvötn-
um, er talið var að gæti komið til
greina að virkja, var það álit þeirra
sérfræðinga, er rannsókn málsins
höfðu með höndum, að réttast
væri að virkja Laxá úr Mývatni
fyrir ofan Orenjaðarstað,
Vegamálaskrifstofu ríkisins og
Rafmagnseftirliti ríkisins var falið
að'geraláætlanir um^tilhögun verks-
ins og kostnað við það.
Áætlanir um byggingarhlutann
gerði Árni Pálsson byggingaverk-
fræðingur, en rafmagnshlutann á-
ætlaði Jakob Oíslason rafmagns-
verkfræðingur.
Jafnframt því að gerðar voru á-
ætlanir um virkjunina, lét bæjar-
stjórnin leitast fyrir um lán til
hennar, og sótti til Alþingis um
ríkisábyrgð fyrir láni tit framkvæmd-
anna.
Á Alþingi 1937 voru samþykkt
lög um virkjun Laxár úr Mývatni,
en með þeim lögum var þó eigi
veitt ríkisábyrgð fyrir láni. Áriö
eftir samþykkti Alþingi að heimila
ríkisstjórninni að ábyrgjast allt að
tveggja miljón króna lán til raf-
magnsveitu fyrir Akureyri, eða
jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri
mynt, þó ekki yfir af stofn-
kostnaði.
Lán til virkjunarinnar var leitast
fyrir um í Englandi, Svíþjóð og
Danmörku. Var loks samið við
Kjöbenhavns Handelsbank í Kaup-
mannahöfn og nokkur dönsk firmu
um aðallánið til hennar, og jafn-
framt við firmun um kaup á efni
og framkvæmd verksins. Lán þetta
nam 1700000 dönskum krónum,
það er til 25 ára, alborgunarlaust
fyrstu 3 árin en endurgreiðist svo
á 22 árum, með jöfnum greiðslum
afborgana og vaxta. Raunverulegir
vextir af láninu eru ca. 52%.
Firmu þau, sem þátt tóku í lán-
inu lögðu til efni til virkjunarinnar
og eitt þeirra, firmað Höjgaard &
Schultz tók að sér að gera bygg-
ingarhlutann í ákvæðisvinnu.
Samningar um lánið við Hand-
elsbanken og um virkjunina við
firmun voru undirritaðar í Kaup-
mannahöfn í júlí 1938, var þá þeg-
ar byrjað á verkinu, en þvf var
lokið 14. október 1939. Pá var f
fyrsta sinn veitt rafmagni frá stöð-
inni til bæjarins.
Virkjuninni var f aðalatriðum
hagað eftir áætlunum þeim, sem
nefndar eru hér að framan, en
nokkrar breytingar voru þó gerðar
frá þeim. Virkjunin var t. d. gerð
nokkru stærri, en fyrst var gert
ráð*fyrir.
Tilhögun virkjunarinnar er í að-
alatriðum þannig:
Laxá er stífluð efst í gljúfrunutn
fyrir ofan Orenjaðarstað. í stífl-
unni eru gerðar 2 inntaksþrær fyr-
ir vatn það, sem virkja á. Stífla
og þrær eru úr steinsteypu. Fyrst
um sinn verður aðeins önnur inn-
taksþróin notuð, en frá þeirri þró
liggur 2,4 metra víð trépípa niður
að stöðvarhúsinu, sem er rúmlega
700 metra frá stíflunni. Pípan er
gerð úr tréplönkum, girt rr.eð járn-
gjörðum, Fallhæð vatnsins er 38
metrar. í vélahúsinu er ein vatns-
aflsvél uppsett ásamt tilsvarandi
rafmagnsvél, spennubreytum og
öðrum nauðsynlegum áhöldum til
framieiðslu rafmagsins.
Pegar virkjunin var prófuð reynd-
ist stöðin að geta gefið 2415 hest-
öfl við mesta álag.
Frá Laxá er rafmagnið leitt eftir
30000 volta háspennulínu til Akur-
eyrar. Línustrengirnir hvfla með
50 til 60 metra millibili á tréstaur-
um, sem standa í einfaldri röð.
Á Akureyri liggur háspennulínan
í aðal .pennustöð, þar sem spennan
er lækkuð niður í 6000 volt.
í aflstöðinni við Laxl er autt
rúm, sem ætlað er fyrir nýjar vtll-
ar til viðbóíar þeim, sem fyrir
eru.
Vorið 1938, þegar fyrir lágu til-
boðin í virkjunina, gerðu þeir Á’ni
Palsson verkfræðingur og Knut
Otterstedt rafveitustjóri áætlun um
kostnað við virkjnnina, miðað
við að tilboðinu væri tekið og
verkið framkvæmt eins og í tilboð-
uuum var gert ráð fyrir.
Stofnkostnað L’xárvitkjunarinnar
áætluðu þeir alls 1995000,00 kr.
Jafnframt gerðu þeir ráð fyrir, að
til aukningar bæjarkerfisins yrði
varið 260000,00 kr., en svo bætt
við það síðar eftir því, sem ástæð-
ur leyfðu-
Stitla og Inntakspró.
Á myndinni sézt frá vínstri til hægri: Austurendi stíflunnar, byrjun á
laxastiga, sem gert er ráö fyrir að gera síðar, 2 inntaksþrær, önnur
með vatnsleiðslupípu, en hin með stút til þess að tengja við, skurður
frá botnloku (lokan sézt ekki), 3 gegnumrennslisop og loks langt yfir-
fallsop vestast. (Myndina tók Edvard Sigurgeirsson).
NÝJA mól
Föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 9:
„Pcijar Ijói Iji
á Bd
(On the Avenue)
íburöarmikil og hrífar.di skemmti-
leg amerísk tal- og söngva-
mynd með músik eftir hið
heimsfræga tízkutónskáld Irvirtg
Berlín (höfund Alexander Rag-
time Band)
Aðalhlutverkin leika: DICK
POWELL, ALICE FAYE,
MÁDELEINE CAROLL og
hinir óviðjafnanlegu háð-
fuglar RITZ BROTHERS.
Ennfremur taka þátt í mynd-
inni ymsir frægir kraftar trá
útvarpi og fjölleikahúsum í
Ameríku. —- Skemmtimynd
sem setur alla í sólskinsskap,
Laugardagskvöld kl. 9:
Ensk leynilögreglumynd tekin
eftir skáldsögunni »Dark Eyes
of London' eftir Edgar Wallace \
Aðalhlutverkin Ieika: BELA
LUGOSl, HUGH WILLIAMS
og GRETA GYNT.
Geysi spennandi og viðburða-
rík morðsaga og vátrygginga
svikastarfsemi í ósviknum reif-
arastíl.
Börnum bannaöur aðgangur.
Sunnudaginn kl. 5«
Bðrn Hardys
dömara.
Qreiddur stofnkostnaður Laxár-
virkjunarinnar nam um síðustu ára-
mót samtals 2002950,15 kiónum
auk gengislaps vegna verðfalls ís-
lenzku krónunnar og þess fjár,
sem lagt var í aukningu innanbæj-
arkerfisins.
Gengistap Laxárvirkjunarinnar
nam 372080,65 krónum.
Eitthvað mun hafa verðið ógreilt
af virkjunarkostnaði um sfðustu