Íslendingur - 26.07.1946, Side 1
XXXII. árg.
Föstudaginn 26- júlí 1946
32. tbl.
Ekið um
örætiu-
Ferðafélag Akureyrar efndi
til ferðar 6. júlí s. 1. suður úr
Mývatnssveit hjá Grænavatni,
og var ætlunin, eins og áætlun
í „Ferðum“ ber með sér, að
aka bifreiðum yfir Ódáðahraun
suður Dyngjufjalladal, austur
með Dyngjufjöllum að sunnan
og norður vikursandanna vest-
an Jökulsár og yfir hraunið
austan Herðubreiðar, niður í
Herðubreiðarlindir, en þangað
austur hefir verið ekið nokkur
síðastliðin ár frá Mývatnssveit
um Námaskarð og Grafarlönd.
Var því ætlunin að koma eft-
ir fimm daga aftur til Mývatns-
sveitar og þá úr austurátt til
Reykjahlíðar.
I ferðinni voru 6 stúlkur og
19 karlmenn. Fararstjóri Þor-
steinn Þorsteinsson.
Ekið var á þrem bifreiðum:
Rifreið Ferðaféiagsins, og ók
henni form. félagsins, Sigurjón
Rist. Setuliðsbifreið Hólmsteins
Egilssonar, sem var og bilstjór-
' inn. Sú þriðja var jeppi, eigandi
Sigurst. Steinþórsson, benzín-
afgr. KEA, ökumaður Páll Ara-
son úr Reykjavík, sá,- sem ók
þesa leið fyrstur manna á sinni
eigin bifreið s. 1. sumar.
Ferðin gekk með ágætum
suður á fjöllunum, og laust
upp úr hádegi á fimmtudaginn
heimsóttu leiðangursmenn brú-
arsmiði við Jökulsá á Fjöllum,
þá brúnir í andlitum eftir
sterkt sólskin, allir í sólskins-
skapí 0g íétu vel af förinni.
Hafði verið gengið í öskju
um Suðurskarð og vestan öskju
vatns og á barm Vítis, en það-
an snúið út um öskjuop. Á
sama tíma höfðu bílstjórar ekið
bílunum frá Suðurskarði, norð-
hr með fjöllum að austan til
móts við leiðangursmenn úr
öskju. ^
Með hringferðum sem þess-
um gefst þátttakendum kostur
á að kynnast þessu stórbrotna
öræfasvæði á undra-auðveldan
hátt.
Um næstu helgi efnir Fo^rða-
^lagið til ferðar í Hólmatungur
að Dettifossi. Hólmatungur
er staður, sem er rómaður fyrir
anc*sUgSfegUrð og fjölbreyttan
gróður.
Veíttar verða upplýsingar um
heiti blómplantna og annars
gróðurs í Hólmatungum.
Frá starfsemi Flugskóla
Akureyrar. ”
Nýr'golfvöllur á
Akureyri
Fyrir um 11 árum fðkk Golf-
klúbbur Akureyrar til umráða
landsvæði nokkurt við Glerár-
ósa til golfiðkana. Land þetta
er að mörgu leyti vel fallið til
þeirra nota, en sá galli á, að
eigi er þar rúm fyrir meira en
6 holur, en fullnægjandi golf-
völlur hefir 9 holur. Undu með-
limir Golfklúbbsins þessu eigi
vel, svo að í fyrra var ráðizt í
að kaupa nýtt land. Festi Golf-
klúbburinn í því sambandi kaup
á landareignum ,,Nýrækt“, hér
ofan við bæinn, fyrir 60 þús. kr.
1 vor var hafizt handa um gerð
9 holu vallar og fenginn hingað
til að skipuleggja völlinn enskur
golfsérfræðingur, Mr. Treacher,
sem staddur var hér á landi á
vegum Golfsambands íslands.
Vegna manneklu sóttist vallar-
gerðin fremur seint, en völlur-
inn þótti þó vera' orðinn það
góður nú, að fæi't væri að halda
hér landsmót. I' framtíðinni má
vænta þess, að völlurinn verði
afbragð, enda lét Mr. Treacher
svo um mælt, að fullgerður
yrði hann hinn ágætasti af sínu
tagi á Islandi og fyllilega sam-
keppnisfær við beztu velli er-
lendis.
Meðlimir Golfklúbbsins hafa
hér unnið merkilegt og ötult
starf, og gefst nú Akureyring-
um gott tækifæri til þess að
leggja stund á þessa góðu og
hollu íþrótt.
Nýtí skip
Laugardagskvöldið 13. júlí
var nýju 64 smálesta skipi hleypt
af stokkunum í skipasmíðastöð
KEA, sem Gunnar Jónsson veit-
ir forstöðu. Var smíði þess haf-
in.um mánaðamótin febr.—marz
sh, og hefir smíði skipsins því
verið lokið á tæpurn 5 mánuð-
um. Hefir smíði jáfn-stórs skips
sennilega aldrei áður verið lok-
ið á jafnskömmum tíma hér á
landi.
Eigendur skipsins eru Magnús
Gamalíelsson, út^erðarmaður í
Ólafsfirði, og Ásgeir Frímanns-
son, sem verður skipstjóri á skip
imi. —- Skipið fór á síldveiðar
föstudaginn 19, þ. m.
í skipinu er 150 liestafla Juné
Munktell véL og er það búið öll-
um nýtízku tækjum og liið vand-
aðasta að öllum frágangi.
Hlaut skipið nafnið Einar
þveræingur.
Landskeppni
I golíi.
íslandsmeistari Sigtryggnr
Júliusson, Akureyri.
Landsmót í golfi fór fram
hér á Akureyri dagana 21.—23.
þ. m. Keppendur voru alls 20,
þar af 10 frá Akureyri, 5 úr
Vestmannaeyjum og 5 úr
Reykjavík. Voru alls leiknar
72 holur (8 hringir). Fyrir-
komulag þessa móts var nokk-
uð frábrugðið því, sem tíðkazt
hefir hingað til hér a- landi. —
Tii þessa hefir verið höfð út,-
sláttarkeppni, en að þessu sinni
léku allir þátttakendur með frá
upphafi til enda keppninnar,
eins og siður er erlendis. Bezt-
um árangri á mótinu náði
Sigtryggur Júlíusson, Akureyri,
og er hann því Golfmeistari Ss-
lands árið 1946. Hér á eftir
fara heildar niðurstöðutölur frá
mótinu:
1. Sigtryggur Júlíusson A 343 högg
2. Jón Egilsson V .346 —
3. Lárus Ársælsgon V. 351 —
4. Þorvaldur Ásgeirsson Rvík 355 —•
5. Axel Halldórsson V. 367 —
6. Björn Pétursson Rvík 368 —
7. ÞórSur V. Sveinsson A. 375 —
8. Helgi Skúlason A. 390 —
9. Jörgen Kirkegaard A. 394 —
10. Arnþór Þorsteinsson A. 398 —
11. Georg Gíslason V. 402 —
12.—13. Jón Benediktsson A 405 •—
12.—13. Gunnar Bjarnason V. 405 —
14. Sigmður GuSjónsson Rvík 409 —
15. Anton Bjarnason V 410
16. Stefán Árnason A ^ 412 —
17. Jakoh Gíslason A 425 -V-
18. Danjel Fjeldsted Rvík 426 —
19. —20. St. Ág. KrisljáBss." A 429 ,—-
19.-^20. Ásgrímur Ragnars Rví 429 —
Þess skal getið, að nú um
mánaðarmótin fer fram í Sví-
þjóð Norðurlahdamót í golfi.
Taka þátt í því fáeinir Islend-
ingar, þar af tveir frá Akureyri,
þeir Gunnar Hallgrímsson og
Jörgen Kirkegaard.
Fréttatilkynning frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Skrifstofur sendiráðs Islands
í London flytja þann 18. þ. m.
frá 6, West Eaton Place S.W. 1,
í 17, Bnckingham Gate, S. W. 1.
Reykjavík, 17. júlí 1946.
Eins og lesendum þessa blaðs
er kunnugt, hóf Flugskóli Akur-
eyrar starfsemi sína & s.l. liausti
með 2 litlum kennsluflugvélum.
Síðar bætti skólinn við sig 1
farþegaflugvél og 1 æfingavél,
en næstu daga verður byrjað að
setja saman 2 nýjar kennsluflug-
vélar, ei’ skólinn hefir keypt frá
Bandáríkjunum.
Blaðið átti viðtal við Árna
Bj arnarson, Lramkvæmdarstjóra
•Flugskólans, um þessi efni, og
fer það hér á eftir:
Er mikill áhugi fyrir flugmál-'
um hér norðanlands?
Mikill áhugi er nú ríkjandi
fyrir flugmálum, meðal yngri
sem eldri, hér á landi og fer ört
vaxandi. Otal ungra manna sæ^-
ir'um upptöku í flugskóla okkar,
og umsóknir hafa borizt frá fjar-
lægustu stöðum, eins og Vest-
mannaeyjum, Vestfjörðum, Aust
fjörðum, auk margra umsókna
frá Akureyri og nálægum sýsl-
um. Stunda nú um 20 menn nám
við Flugskóla Akureyrar, en í
háust munum við að líkindum
hafa allt að því 50 nemendur í
skólanum. m
Hvað hefir skólinn marga
flugkennara?
Við höfum aðeins 2, þá Krist-
ján MikaelssOn, og Njál Guð-
mundsson, en nauðsynlegt mun
þó að bæta þeim þriðja við í
haust, ásamt vélamanni, er við
höfum tekið hinar nýju flugvél-
ar í notkun.
Hafa nokkrir neinendnr lokið
prófi við skólann ennþá?
Sex nemendur hafa lokið hinu
svonefnda „sóló“-prófij en það
veitir aðeins rétt til einflugs und-
ir eftirliti kennara. Þeir eru:
Gísli Ólafsson, lögregluþjónn,
Steindór Hjaltalín, útgerðarmað
ur, Aðalbjörn Kristbjarnarson,
bílstjóri, Viktor Aðalsteinsson,
aðstoðartollvörður, Stefán Sig-
urðsson, útvarpsvirki og Jón
Ólafsson, bílstjóri frá Gilsá. All-
ir þe&slr menn æfa nú flugið af
miklu kappi, og hafa þeir fullan
hug á, að ljúka A-prófi í haust.
Það próf veitir þeim rétt til
flugs án eftirlits kennara, og
mega þeir þá fljúga með einn
farþega án endurgjalds.
Hvar hefir skólinn aðsetur?
Á Melgerðismelum í Eyja-
firði, sem er um 20 km. frá Ak-
ureyri. Er það mjög bagalegt að
hafa flugvöllinn svo langt frá
bænum, sérstaklega yfir vetrar-
mánuðina. Við höfum nýlega
keypt bifreið, sem er í förum
með nemendur og kennara á
milli Melgerðismela og Akur-
eyrar, en nú ér ákveðið að dval-
izt verði þar fremra meðan á
námskeiðum stendur. Höfum
við tekið á leigu hermannaskála
og innréttað þar skrifstofu,
svefnluís og eldhús.. Verður þar
heimavist, og eru sumir nemend-
ur þegar setztir þar að.
— Er hugmyndin að kaupa
fleiri flugvélar og færa út starf-
semina á næstunni?
Já, áreiðanlega. Við höfum
fullan hug á því að auka starf-
Framhald á 2. síðu.
Hin nýja jarþegaflugvél Flugskóla Akureyrar.