Íslendingur


Íslendingur - 01.10.1947, Side 3

Íslendingur - 01.10.1947, Side 3
Miðvikudaginn 1. október 1947 ISLENDINGUll 3 eira helgiha skemmtanalíf. Áfyktanir héraÖstundar Skagatjarðar- prótastsdæmis. Héraðsfundur Skagafjarðar- prófastsdæmis var haldinn ao Glaumbæ sunnudaginn 14, sept. s. 1. og hófst með guðsþjónustu í klrkju staðarins kl. 2 síðdegis. Sóknarpresturinn sr. Gunnar Gíslason þjónaði fyrir altari, en sr. Bjartmar Kristjánsson á Mælifelli prédikaði. í messulok flutti Jón H. Þorbergsson bóndi á Laxamýri erindi um safnaðar- líf. Síðan sátu fundarmenn og aðrir kirkjugestir kaffiboð á heimili prestshjónanna i Glaum bæ, en eftir það hófst fundurinn og voru mættir á honum allir prestar héraðsins, 8, og 7 safn- aðarfulltrúar. Opinbert söngmót kirkjokóra. Prófastur hóf fundinn með á- varpi til fundarmanna og gaf síðan skýrslu um hag íslenzku kirkjunnar á síðasta ári og Skagafjarðarprófastsdæmis sér staklega. — Gat prófastur þess, að upphitun væri nú í öllum kirkjum héraðsins nema dóm- kirkjunni á Hólum. Einnig mint ist hann örðugleika sumra safn- aða héraðsins með kirkjusöng. Þá minntist hann komu sr. Friðriks Friðrikssonar dr. theol. h'ngað í héraðið, og sendi fund- urinn séra Friðrik svohljóðandi símskey ti: „Héraðsfundarmenn í Skaga- fjarðarprófastsdæmi þakka þér innilega fyrir komuna og óska þér blessunar Guðs.“ Lagðir voru fram reikningar Elliheimilissjóðs Skagafjarðar, og er hann nú að upphæð kr. 35.314.81. Hafa verið gefin út minningarspjöld til ágóða fyrir sjóðinn. Eyþór Stefánsson, formaður kirkjukórasambands Skagafj., skýrði fundinum frá því, að á- kveðið væri að halda opinbert söngmót allra kirkjukóra hér- aðsins í nóvember n.k. og taldi vel viðeigandi, að þar yrðu flutt ar stuttar ræður kristilegs efn- is. Var því boði tek'.ð með þökk- um og kosnir menn til að undir- búa þetta með honum. Aðalmál fundarins var helgi- hald og skemmtanalíf. Var á héraðsfundi 1946 kosin milli- fundanefnd ,,til að íhuga mögu- ieika og gera tillögur um, hvern ig unnt væri að efla helgihald safnaðanna og vernda r'étt kirkjulífs og kristnihalds, eink- um með tilliti til skemmtanalífs- ins.“ 1 nefnd þessa höfðu verið kosnir sr. Guðbrandur Björns- son, prófastur, sr. Helgi Kon- ráðsson, sr. Lárus Arnórsscn, Jón Sigurðsson, alþm., og Jón Björnsson skólastjóri. Jón S'g- urðsson alþm. var framsögu- maður nefndarinnar og bar fram tillögur hennar, er síðan voru ræddar og svo samþykkt- ar einróma. Voru þær þannig: Vilja aukið helgihald. I. Fundurinn lítur svo á, að helgihald í prófastdæminu sé stórlega ábótavant, sérstaklega að því leyti, að kirkjan sé ekki sótt, vinna sé stunduð á helgi- dögum þjóðkirkjunnar og óheil- brigt skemmtanalíf iðkað. Fyrir því beinir fundurinn þerri áskorun til allra íbúa pró- fastsdæmisins, að efla helgihald sunnudagsins og annarra holgi- daga kirkjunnar með því: 1) Að friða messudag hvers safnaðar fyrir öllu, er truflar kirkjusörig og guðsþjónustu- hald. — Skv. því vill fundur'nn beina þeim tilmælum til allra þeirra, er standa fyrir almenn- um fundum í héraoinu eða skemmt'samkomum að hefja þetta ekki fyrr en kl. 4 síðdegis þessa daga. 2) Að menn sæki sóknarkirkju sína eftir f.öngum, og láti hvorki skemmtanir né v'nnu, sen verð ur hjá komizt aftra því. 3) Að sóknarnefndir skipu- leggi, í samráði við sókharprest, kirkjuferð'r með bifreiðum, þar sem auðvelda þarf mönnun kirkjusókn. 4) Að starfandi sé við hverja kirkju meðhjálpari, örganleik- ari og söngflokkur, og mæt: þessir aðilar, ef ekki hamla for- föll. — Safnaðarmenn hafi ætíð með sér sálmabækur og fylgist með söngnum. II. Fundurinn bein'.r þeirri á- skorun til þeirra aðila, sem standa fyrir skemmtisamkom- um, að þeir geri ráðstafan'r til að samkomurnar hafi einhvern menningar-tilgang. I því sam- bandi vill fundur'nn benda á sönglist, upplestur, stutt erindi, góðar kvikmyndir og stutta sjón leiki. Þá vill fundurinn benda á hópferðir til faguira staða, sem liolla og heilbrigða skemmtun. III. Fundurinn skorar á þá að'.la, sem skv. lögreglusam- þykkt Skagafjarðarsýslu ber réttur til að leyfa skemmtisain- komur, en það eru: bæjarfóget- inn á Sauðárkróki og lirepp- stjórarnir í Skagafjarðarsýslu, að framfylgja stranglega ákvæð um lögreglusamþykktarinnar á- hrærandi opinberar skemmti- samkomur, svo sem: 1) Að leyfis sé ávalt aflað til samkomuhalds, 2) Að tryggt sé af hálfu leyf- ishafa lögboðið eftirlit með hverri samkornu. 3) Fundurinn æskir, þess, að í hverri auglýsingu um almenna skemmtisamkomu sé tekið frarn að ölvun sé bönnuð á samkcm- unni. 4) Um tímatakmörk skemmti samkomu hverrar vill fundur- inn beina þeirri áskorun til framangreindra embættis- manna, að þeir veiti ekki leyfi til opinberra skemmtana á að- í'aranóttum sunnudaga lengur en til kl. 1, er megi þó fram- lengja til kl. 2 eftir miðnætti, en aðra daga aðeins til kl. 12 i iágnætti. Þetta gildir yfir sumar mánuðina, en yfir vetrarmán- uðina megi skemmtanalíf standa einni klukkustund leng- ur. Sérreglur um sæluvikuna. Fundurinn beinir þe'rri áskor un til sýslunefndar Skagafjarð- arsýslu og bæjarstjórnar Sauð- árkróks að setja inn í lögreglu- samþykktir sýslunnar og fcæjar- ins það ákvæði, að leyfa opin- berar skemmtisamkomur aldrei lengur en til kl. 2 aðfaranótt sunnudaga, en til ld. 12 aðrar nætur. — Um vetrarrnánuðina megi þó veita leyfi einni stund lengur. — Þetta ákvæði sé sett til samræmis milli einstakra hreppa sýslunnar og milli sýsl- unnar og bæjarins. Þó sé hér- aðsfagnaður Skagfirðinga hald- inn á Sauðárkróki („Sæluvik- an“) undanþeginn þessu ákvæði enda sé ákvæðum lögreglusam- þykktanna um eftirlit þar stranglega fylgt. / 1 dymbilviku séu engar skemmtanir leyfðar. Fundinum lauk svo með því, að prófastur flutti stutta ræðu og bæn og sungið var „Son Guðs ertu með sanni“. Síðan var aft- ur gengið heim á prestssetrið og þar þegnar góðgerðir. □ Héraðsfundiir Eyjafjarðar- prófastódærnss vsll afnema prestskosivngar. Mælir með að gera Akureyri að tvímennings- prestakalli. Fyrri föstudag vdr hér- rðsfundur Eyjafjarðarprófasts- dæmis haldinn í kapellu Akur- eyrarkirkju. Prófastur, séra Friðrik J, Rafnar, vígslubiskup, stjórnaði fundi, en séra Pétur Sigurge'.rs- son var fundarritari. I fundar- byrjun var sunginn sálmur og lék Björgvin Guðmundsson, tó:i- skáld, undir. Prófastur bauð fundarmenn velkomna og flutti síðan yfirl'.t um kirkjulega atburði s. 1. árs, einkum varðandi Eyjafjarðar- prófastdæmið. Prófastur gat þess, að nýr prestur hefði nú verið kjörinn i Grímsey, séra Róbert Jack, en séra Ingólfur Þorvaldsson í Ölafsfirði hefr þjónað Grímscy í 10 ár. Þá drap prófastur nokkuö á kirkjulega löggjöf frá síðasta alþingi. Samþykktar voru beiðnir frá nokkrum sóknum um hækkun kirkjugjalda. Ályktanir: 1. Séra Stefán Sævarr lagöi fram ályktun Vallasóknar umaðskora á Mrkjustjórnina að koma því til leiðar, að vísi tasíulaunum prófasta yrði létt af ldrkjum, en sá kostn- aður framvegis gre'ddur úr ríkissjóði. Fundurinn lýsti •2. sig hlynntan þessari ályktun. Svohljóðandi ályktun var samþykkt um frumv. Sig. Bjarnasonar og Gylfa Gísla- sonar um prestskosningar: „Héraðsfundur Eyjafjarðar- prófastsdæmis, haldinn á Akureyri 19. sept. 1947, rnælir með því, að frv. það, er lá fyrir síðasta alþingi urn afnám prestakosninga veröi samþykkt óbreytt í öllum að alatriðum eins og það er borið fram af flutningsmönn um.“ Séra Ingólfur Þorvaldsson bar fram svohlj. tillögu: „Héraðsfundur Eyjafjarðar- prófastsdæmis 19. septemb. 1947 telur æskilegt að yf'.r- stjórn kirkjumálanna á Is- landi vinni að því að árlega verði á fjárlögum veitt nokk ur upphæð til kristilegrar æskulýðsstarfsemi meðal safnaða landsins.“ Prófastur cg Steingrim'ur Jónsson, fv. bæjarfógeíi minntust á það áhugamál safnaða Akureyrarpresta- kalls að fá þangað tvo presta, þar eð preststörf þar yrðu að teljast ofvaxinn e'n- um manni. Svohlj. till. var samþ. „Pléraðsfundur Eyjafjarðar- prófastdæmis mælir ein- dregið með væntanlegri um- sókn Akureyrarprestakalls um að gera það að tvímenn- ingsprestakalli.“ I fundarslitaræðu sinni ræddi prófastur nokkuð um safnaöa- og kirkjulíf almennt og minnt- izt sérstaklega á þýðingu kristi- legrar starfsemi meðal æskulýðs ins. Að fundi loknum flutti séra Pétur Sigurgeirsson stutt erind'. um reynslu sína í sambandi við unglingastarfsemi í þágu kirkj- u.nnar og gildi kvikmynda við þá starfsemi. Sýndi hann kvik- mynd frá Vesturheimi í nýrri rýningarvél, sem Kvenfélag Ak- ureyrarkirkju hefir gefið kirkj- unni. Fundarmenn sátu að lokum kaffiboð hjá prófastshjónunum. Fundinn sátu 3 prestar auk prófasts og 10 safnaðarfulltrú- ar. Einnig Kristján Sigurðsson, sóknarnefndaroddviti, Akureyri og Björgvin Guðmundsson, tón- skáld. VÖÍIUSKSPTAJÖFNUÐUR HÁGSTÆÐUR I ÁGÚST Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst- mánuSi var hagstæður um 19.4 milj. kr. Er þetta í fyrsta sinn síðan í júlímánuði 1945, sem vöruskipta- jöfnuður hefir verið hagstæður. Fyrstu átta mánuði ársins hefir vöruskiptajöfnuðurinn verið óhag- stæður um 148 milj. kr. Fluttar hafa verið inn vörur fyrir 303.8 milj. kr., en út vörur fyrir 156 milj. kr. Hinn hagstæði verzlunarjöfnuður í ágústmánuði er fyrst og fremst því að þakka, að þá var flutt út síldar- lýsi og ýmsar síldarafurðir fyrir rúmar 30 milj. kr. VSS'TALA BYGGSNGAR- KOSTNAÐAR. Samkvæmt útreikningi Hagstof- unnar er vísitala byggingarkostnað- ar í kaupstöðum og kauptúnum nú 433 stig og 521 stig í sveitum, mið- að við árið 1939. Mikið hey brennur að Naustum. Síðastliðinn föstudag kvikn- aði í töðuheyl á Naustum, skammt fyrir sunnan og ofan Akureyri. Slökkvilið Akureyrar kom þegar á vettvang, en mjög erfitt var um slökkvistarf, þvi að ekkert vatn var í nánd og varð að flytja það að á bifrcið- um. Hey:ð var áfast við hlöðu og fjós. Brann allt lausaheyið, þak á fjósi og hlöðu, og heyið í hlöðunni ónýttist. íbúðarhús, sém þarna var áfast við og ann- að fjós, tókst að verja. Þarna brann og ónýttist af reyk og vatni um 300 hestar af heyi. Er þetta því tilfinnanlegt tjón. — Jón Guðmundsson á Naustum átti eignir þessar.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.