Íslendingur


Íslendingur - 23.12.1948, Blaðsíða 23

Íslendingur - 23.12.1948, Blaðsíða 23
ERLENDAR SKÁKFRÉTTIR: Aðal-frétt úr skákheiminum 1948 er vitanlega keppnin um heimsmeistaratitilinn. Keppni þessi hófsl í Haag 3. marz og lauk í Moskvu 16. mai. Keppendur voru 5. Rússneski skáksnillingurinn Mikhail Botvinnik bar glæsilegan sigur úr bítum, en hann fékk 14 af 20 mögulegum vinningum og var hann 3 vinningum fyrir ofan næsta keppandann, sem einnig er Rússi, Smyiov að nafni, hann hlaut 11 vinninga. Ameríkumaðurinn Reshevsky og Eistlendingurinn Keres hlutu 10^2 vinninga og Hollendingurinn Euwe 4 vinninga. Keppni þessi vakti feikna efthlekt um all- an heim. Dagana 18.—29. ágúst var haidið Skákþing Norð- urianda í örebro í Svíþjóð. Frá tslandi var aðeins einn keppandi; Baldur Möller,, en hann' tefldi í lands- liðsflokknum. Keppni þessari lauk þannig að Baldur Möller bar sigur úr bítum og er þvi Skákmeistari Norðurlanda 1948. Frammistaða Baldurs var glæsi- leg og megum við landar hans vera hreyknir af. INNLENDAR SKÁKFRÉTTIR: t landliðskeppninni 1948 tóku þátt 11 af okkar beztu skákmönnum. Sigurvegari var Baldur Möller, er hlaut 8>4 vinning alls. Hann einn tapaði engri skák. Baldur er því Skákmeistari tslands 1948. Næst- ir honum komu Guðmundur Pálmason með 7 vinn- inga og Ásmundur Ásgeirsson með 6 vinninga. Á Skákþingi Reykjavíkur 1948 voru alls 14 kepp- endur í meistaraflokki. Baldur Möller sigraði enn glæs’lega og hlaut 11 af 13 mögulegum vinningum og titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 1948. Næstur hon- um lcom hinn gamli baráttumaður Eggert Gilfer, sem enn er hættulegur andstæðingur okkar beztu skák- manna. Skáklíf á Akureyri var með hi-essasta móti árið 1948. Margir og vel sóttir fundir voru haldnir og á- hugi vaknandi. Félagsmeistari var Júlíus Bogason, sem einnig sigr- aði i meistaraflokki á Skákþingi Norðlendinga, en varð annar á Skákþingi Akureyrar. Þar bar sigur úr bítum Unnsteinn Stefánsson. Verðlaunaskák Líkt og í fyrra birtist nú verðlaunaskák. Fyrir rétt svar verða veittar 50 krónur. Ef fleiri rétt svör ber- ast,, verður dregið á milli þeirra. Þrautin er í því fólg- in að setja rétta leiki inn þar sem spurningarmerk': eru fyrir (þá leiki; sem í þessari skák voru leikniri. Ráðningar þurfa að berast fyrir janúarlok EVANSBRAGÐ: Hvítt: Svart 1. e4 e5 2. R-f3 Ei-c6 3. B-c4 B-c5 4. b4 Bxb4 5. c3 B-c5 6. 0-0 d6 7. d4 exd4 8. cxd4 B-b6 9. d5 R-a5 10. ? R-e7 11. B-d3 j 0-0 12. R-c3 R-g6 13. R-e2 c5 14. Et-d2 f6 15. K-hl c4 16. B-c2 Bhc7 17. Rf-d4 R-e5 18. f4 R-g4 19. h3 R-h6 20. f5 a6 21. R-f4 ? 22. Rf-e6 Bxe6 23. Rxe6 Hf-e8 24. H-f3 R-f7 25. H-g3 R-g5 26. H-fl Rxe6 27. fxc6 R-h8 28. ? ? 29. ? ? 30. ? ? 31. ? ? 32. B-f6 mát. JÓLABLAÐ ÍSLENDINGS 1948 21

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.