Íslendingur - 22.03.1950, Side 1
Góður arangur á stjórnmálanámskeiði
IfnMAoiv ‘‘
Stjórnmáia- og mælskunámskeiði á vegum „Varðar",
félags ungra Sjálfsfæðismanna er milli 20 og 30 Varðar-
félagar tóku þáft í, er nú nýlokið, Árangur námskeiðs
þessa var mikiil og góður og komu þar fram mörg efni-
leg ræðumannsefni. — Því var slitið með hófi að Hótel
Norðurland 16. marz s. I.
,, VARÐ AR‘ ‘-félagar!
Næsti fundur í mál-
fundahópnum er n. k.
rnánudag kl. 5.30 e. h.
á skrifstofunni.
Sklðamót Akureyrar
Bergur Eiríksson ftöklcmeistari.
K.A. vann sveitalceppnina.
Þeir Gunnar Helgason, erindreki
og FriSrik Sigurbjörnason, slud. jur.
hafa nýlokiS hér í bæ námskeiSi í
stjórnitiálum og mælskulist á vegum
Várðar. Námskeiðið var fjölsótt,
umræður fjörugar, og mikill áhugi
ríkti meðal jiáttlakendanna. Tilhög-
unin var sú', að á daginn milli kl. 5
—7 e. h'. fluttu þeir félagar erindi
fræðilegs eðlis um innlend og erlend
stjórnmál, skýrðu helztu stjórnmála-
stefnur sem nú eru uppi, röktu sögu
flokka og inálu og gáfu víðtæka
- ■
fræðslu um þau málefni, sem nú ber
hæst meðal þjóðarinnar. Fyrirjestrar
þéirra fjölluðu m. a. um eftirfarandi
efni: Ræðumennska, Stjórnskipan ls-
lendinga, Kotnmúnisminn, Fram-
sóknarilokkurinn, Erlend stjórnmála-
saga, Utanríkismál, Sjálfstæðisstefn-
an, Blaðamennska, Verklýðsmál, ís-
lenzk stjórnmálasaga o. fl. Einnig
flutti Eggert JónsSon, héraðsdóms-
löginaður, nokkra fyrirlestra. Að
kvöldinu voru síðan almennar
mælskuælingar, J>ar sem allir tóku
til máls, og fluttu ýmist framsögu-
ræður um hin margvíslegustu mál-
efni eða deildu og rökræddu málin.
Það mátti greinilega sjá hinn
mikla mun, sem var á málflutningi
ræðumanna í upphafi og að nám-
skeiðinu enduðu, og báru lokaræður
þeirra þess greinilegan vott, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefir eignazt þrótt-
mikla og ótrauða málsvara, er munu
í framtíðinni beita sér fyrir stefnu
hans og gengi út á við jafnt sem inn
á við. '
Námskeiðinu var slitið sl. fimmtu-
dag með hófi að Hótel Norðurlandi.
Voru þar margar ræður fluttar, leið-
beinendunum þakkað ágætt starf, og
menn hvatlir til að standa enn fastar
saman um stefnumál og markmið
Sjálfs:æðisstefnunnar. Það má óliik-
að segja. að námskeið þetta hafi'náð
tilætluðum árangri enda ríkir nú
mikill áhugi innan Varðar fyrir efl-
ingu félagsins og viðgangi Sjálf-
stieðisflokksins.
Þátttakendur á stjórnmála- og mcelskunámskeiSi Varðar. Nokkra vantar á
myndina. — Ljó'sin.: E. Sigurgeirsson.
Öílug starísem! „Varðar“
Ánægjuiegur útbreiðsluiundur aö Hötei
Noröuriaudi s.l. sunnudag.
Mikið fjör er nú í starfseini
„Vaiðar'4, félags ungra Sjálfstæðis-
manna. Nýlega gekkst félagið fyrir
stjórninálanámskeiði með mjög góð-
um árangri, eins og skýrt er frá á
öðrum stað hér í blaðinu, og s. 1.
sunnudag var svo haldinn útbreiðslu-
fundur að Hótel Norðurlandi. þar
sem átla ungir Varðarfélagar, sem
tekið höfðu þátt í nátnskeiðinu,
fluttu mál sitt mjög skörulega og
gerðu fundarmenn góðan róm að
máli Jieirra allra.
Fyrslur tók til rnáls form. „Varð-
ar“, Gunnar G. Schrarn. Ræddi hann
á víð og dreif um stefnumál Sjálf-
sta“ðisflokksins og nauðsyn þess, að
stéttir og einstaklingar væru ein-
huga nú, þegar tekið væri að halla
undan fæti í atvinnumálum þjóðar-
innar. Taldi hann það bezt mundu
verða gert undir kjörorði Sjálfstæð-
isstefnunnar: „Stétt rneð stétt“.
Næs’ur talaði Daníel Gestsson.
Fjallaði mál hans um vandamál þau,
sem nú steðja að aðalatvinnuvegi
þjóðarinnar, sjávarútveginum. Taldi
hann það mikilvægasta verkefni Al-
þingis og ríkisstjórnar, að koma
honum á fastan grundvöll, þannig,
að ekki þyrfti að reka hann með
tapi.
Þá talaði Einar Frederiksen. Benti
liann á hinn öra straum æskumanna
um land allt í félÖg ungra SjálÍ9tæð-
ismanna og þýðingu þess fyrir sér-
hvern stjórnrnálaflokk að hafa jafn-
an á að skipa hóp ungra og áhuga-
samra æskumanna.
Vignir Guðmundsson tók næstur
til máls. Ræddi hann um verzlunar-
mál og minntist ineðal annars á
óeðlilega útþenslu samvinnufélag-'
anna. Aleijt hann að öllum, sem verzl-
un rækjti, ætti að gera jafnhátt und-
ir höfði, livað snertir skattaálögur
og önn.ir útgjöld.
Sigurður Stéindórsson ræddi um
atburóina 30. marz sl„ jiegar komm-
únist .r lientu grjóti úr fótstalli Jóns 1
SiguvSssonar að Alþingishúsinu. —
Taldt liann að kornmúuistar hefða
varpað greinilega af sér lýðræðis-
grímunni _og 'sýnt sitt rétta andlit.
Magnús Óskarsson talaði um ut-
anríkismál og afgreiðslu þeirra á
Alþingi og í ríkisstjórn. Benti hatin
á. að aðeins einn flokkur, S álfstæð-
isflokkurinn, hefði í þeioi málum
staðið saman heiil og óskiptur, á
meðan h\er höndin hefði verið uppi,
á móti annarri í öðrum flokkum. —
Kvað Magnús það sýna, að einungis
Sjálfstæðisflokkurinn megnaði að
veita þjóðinni trausta og örugga
stjórn, ef hann fengi hreinan meiri-
hluta á Alþingi.
Óskar Friðriksson ræddi utn mis-
notkun sósíalistisku flokkanna á
verkalýðssamtökunum og nauðsyn
þess, að algjörlega yrði komið í veg
fyrir slíkt.
Síðastur talaði Halldór Jónsson.
Fagnaði hann því, að tekizt hefði að
mynda þingræðisstjórn og lýsti
ánægju sinni yfir því að tillögur þær,
sem ríkisstjórn Sjálfstæðismanna
lagði frarn til viðreisnar atvinnuveg-
unum, hefðu náð fram að ganga.
Fundarstjóri var Eggert Jónsson.
Þakkaði hann í fundarlok ræðu-
mönnum fyrir ágæta frammistöðu.
GENGISSKRÁNINGAR-
FRUMVARPIÐ
AFGREITT SEM LÖG
FRÁ ALÞINGI
Síðaslliðinn sunnudag staðfesti
forseti Islands lög um gehgisskrán-
ingu o. fl„ sem Alþingi afgreiddi
daginn áður. Nokkrar hreytingar
\oru gerðar á einskökum greinum
frumvarpsins, en 1. greinin, um livað
skrá skylili íslenzka kaónu gagnvart
erlendri mynt, var samþykkt óbreytt.
VefSui' sfofnaður vinnu
flokkur ungiinga?
Fyrir fundi bæjarráðs 16. ji. tn. lá
erindi frá Fegrunarfélagi Akureyrar
þar sem lagt er til að bærinn stofni
vinnuflokk handa 10—15 ára ungl-
ingutn. Bæjarráð lagði til að erind-
inu yrði vísað til Barnaverndarnefnd-
ar til umsagnar og að ennfremur sé
fengin utnsögn Barnaverndarfélags
Akureyrar.
Önnur keppni Skíðamóts Akur-
eyrar fór frarn s.l. 3\tnnudag. Var
keppt í stökki við Miðhnsaklappir.
Veður og færi var hið ákjósanleg-
asta og áhorfendur allmargir. Kepp-
endur voru alls 18, og er það gleði-
legur vottur aukins áhuga á þessari
fögru íþrótt. Keppni var mjö.g hörð
um hinn fagra Morgunblaðsbikar
milli í. M. A„ sem var handhafi
hans og hefði unniÖ hann til eignar
með sigri nú, og K. A. sem árið 1946
hafÖi sömu möguleika til að vinna
hann til eignar eins og í. M. A. nú.
Því miður hafði hvorugt þessara fél-
aga alla sína beztu stökkmenn, þar
sem Þórarinn Guðmundsson (M.A.)
var veikur og Vignir Guðinundsson
(K.A.) bilaÖur í baki, og Guðmund-
ur Guðnuuidsson fjarverandi. En
úrslit urðu þessi:
A- og B- f-lokkur:
1. Bergur Eiríksson K.A. (27 og
27VÍ m.) 217,2 slig. 2. Magnús
Ágástsson Í.M.A. (284^ og 28 m.)
216,3 stig. 3. Baldvin Haraldssoit
K.A. (27 og 271/2 m.) 211,7 stig.
Er Bergur Eiríksson því stökk-
meistari Akureyrar 1950.
17 — 19 ára:
1. Hermann lngiinarsson ÞÖR
(27 og 27 m.) 220 slig. 2. Haukiir
Jakobsson K.A. (23!/4 og 26 ! j
212,8 s'.ig. 3. Kjartan Kristjánsson
Í.M.A. (241/2 og 26 m.) 212,2 st-ig.
Úrslit í sveitakeppni urðu þessi:
1. K.A. A-sveit 641,7 stig. 2. Í.M.A,
639,1 stig. 3. ÞÓR A-sveit 623,4
stig.
í keppninni um Morgunblaðsbik-
arinn hafa Í.M.A. og K.A. unnið
hann þrisvar hvort.
N.k. sunnudag verður keppt í
bruni og svigi, og skulu keppendur
í bruni mæta kl. 10 árd. á auglýstum
keppnisstað.
1