Íslendingur - 04.10.1950, Blaðsíða 1
tliö fyrirhugaða iþróttasvæði neðan Brekkugötu
Mynd þessi er af íþróitasvxðinu nýja, sem þegar er komiö vel á veg, fyrir neðan Brekkugötuna. — TJm slðustu
áramót mun hafa verið búið aö leggja til iþróttasvæóisius um 130 þús. krónur, en þar af hafði íþróttasjóður
ríkisins lagt fram txpar 30 þús. kr. — 1 sambandi við frjálsíþróttamót og knattspyrnmnát, sern nýlega hafa
verið haldin hér verður mönnum ósjálfrátt á að hugsa til þess, hve brýn nauðsyn sé til þess að full-
gera íþróttasvæðið hið fyrsta, svo að íþróttamönnum hér verði búin sómasamleg skilyrði til íþróttaiðkana og
keppni, en eins og að llkum lætur hefur allur aðbúnaður liér og aðstxður verið þeim hinn versti þrándur í götu.
Mikil undur.
Þeir, sem venja komur sínar í
veitingasali Hótel KEA, til kaffi-
drykkju eða kaupa lífsviöurværis,
urðu heldur en ekki forviða nú um
s. 1. mánaðarmót yfir þeim breyting-
um, sem þar höfðu á orðið.
Þar hafði á einni nóttu orðið
stakkaskipti. Fyrst og fremst liafði
nýr hólelstj óri lekið við, ungur
maður, sem stendur framarlega á
sviði hótelreksturs,, menntaður með
útlenzkum í fagi sínu, en síðan geng-
ið í gegnum eld reynslunnar við
hótelrekstur og veitingamenningu í
Reykjavík
Og til þess nú að sanna máltækið
að nýir s'ðir komi alltaf með nýj-
um herrum, þá sá hinn hugumstóri
hótels.jóri, að hann yrði að leiða
stórfellda siðabót inn fyrir múra
einokunaraðslöðu KEA í hótel-
rekstri hér á Akureyri, núna eftir að
Hótel Norðurland hefur hætt greiða-
sölu og hótelrekstri í bili.
Áudvitoð hagur
neytendanna.
Og hann var djarfur, þar eð hann
hefur umbótaferil sinn með stórfelld-
um hækkunum á öllum veitingum.
Auðvimð hefur hækkunin verið gerð
í samráði við hinn stóra forystu-
rnann kaupfélagsins hér; forystu-
mennina, sem reka alla verzlun og
viðskipti og þá auðvitað veitinga-
sölu líka, eingöngu með hag neyl-
endanna fyrir augum, selja allt svo
að segja á kostnaðarverði, og alls
staðar þar sem þeim hefur verið
veitt aðstaða til hafa þeir með ein-
skærri vizku sinni og verzlunarslægð
getað pressað verðlag niður, neðar
og neðar. svo að be!:ur sé borgið
hag neytendanna!
Og vitaskuld hafa þessir lausnarar
í viðskiptamálum okkar hrjáðu þjóð
ar nú séð. að það var elngöngu hag-
ur fyrir reytendurna að hækka nú
verulega veitingar á hótelinu sínu,
það myndi augljóslega leiða til þess,
að þeim mun Kkulegri fengju þeir
greiddan arðinn!
Itf'álpræði
samvinnufræðslunnar.
Ef til vill hefur þeim líka orðið
hugsað til þeirra ólánssömu manna,
sem ekki hefðu enn notið þeirra
menningars-rauma og þeirrar
fræðslu og þekkingar á grundvallar-
atriðum samvinnuhreyfingarinnar,
sem eitt gæti veitt þeim sáluhjálp,
og því hafi þeir ekki talið það úr
vegi að auka nú tekjuafgang kaup-
félagsins, en eins og allir vita, sem
Iesið hafa Dag að undanförnu, þá
er nokkrum hluta tekjuafgangsins
varið til fræðslustarfseminnar.
En hverjar svo sem ástæðurnar
er.u, þá er það eitt víst, að veitingar
á Hótel KEA hafa stigið óskaplega
í verði, eins og öllum, sem þurfa að
kaupa sér mat og kaffi hér í þessum
bæ mun nú orðið ljóst, og var þó
reyndar svo komið áður, að engum
hefur líklega þótt á verðið bætandi.
Sýnishorn verðsins.
komlega nákvæman lista um verð á
einstökum tegundum þeirra dýrindis
krása, sem á boðstólum eru, enda
hefur mér virzt að ekki gæti enn al-
veg fullkomins samræmis í verðlagi
hjá öllum afgreiðslus'.úlkunum, en
þeim er það alls ekki láandi; það er
annað en gaman að glíma við háar
lölur og oítast í huganum.
Eg drakk þó kaffi um daginn og
fékk með því eina franskbrauðsneiö
og eina jólakökusneið, voru þær
hvorugar nokkurn skapaðan hlut
þykkri en vant var. en þetta kostaði
þó aðeins 9,20 kr. Molakaffi kostar
nú 4.00 kr., rjómakaka 2.60 kr.,
jólakökusneið 2,30 kr. og smákaka
60 aura.
Tveir vinir mínir voru óvenju
svangir og hugðu að bezt væri að
fá eitthvað kjarngott og und rslöðu-
mikið með kaffinu. Þeir báðu því
um sínar tvær hrauðsneiðarnar
hvor, og var kjölflís . hverri. Þetta
kostaði ekki nema 37,50 kr. Fasta-
fæði mun vera nálega 950,00 kr. á
mán.
Dregið úr magninu.
Samhliða því, sem hagur neytend-
anna hefur verið stórbættur á þenn-
an frumlega hátt, þá hefur um leið,
vafalaust i sama skyni, verið dregið
mjög úr magni því, sem menh fá,
fyrir hið fasta verð. Smjörið eða
smjörhlandan er nú skammtað mjög
nánasarlega, ein smá smjörkúla með
hverri brauðsneið, svo að nærri
stappar að ekki sé meira en var í
: Englandi á mestu feitmetisskorts-
tímunum þar í landi eftir stríðið.
Molasykur er skammtaður eða að
minnsta kosti sparaður mjög. Vilji
þeir, sem drekka mjólk, fá örlítinn
dreitil meir, en skammtað er í fyrstu
þá þarf að greiða það sérslaklega að
auki.
BiSira lengist.
Til þess nú að auka tekuafganginn
enn meir svo að hægt verði að
greiða þeim mun ríflegri arð næst,
þá hafa hótelsljórnendurnir enn
fundið það ágætis ráð að fækka
starfsslúlkunum eitthvað. Það leiðir
Framhald á 4. síðu.
Kappróður
Síðastliðinn sunnudag kl. 5 síð-
degis fór fram hinn árlegi kappróð-
ur Æskulýðsfélags Akureyrarkirkju.
Norðanátt var, begar róðurinn hófst,
um fjögui vindstig, og hafði það’ sín
áhrif á róðurinn. Eftir að mótið var
selt, hófst keppnin. Keppendur voru
50 í tíu sveitum. Vegalengdin var
500 metrcr. Keppt var um verð-
launabikar, sem þeir Kristján Sig-
urðsson, Geir Þormar og Jón Sigur-
jónsson gerðu og gáfu félaginu.
Fyrst varð sveit Sigtryggs Sig-
tryggssonar á 2 mín. 37 sek., stýri-
maður Haukur Jakohsson. í sveit-
inni voru auk þeirra: Höskuldur
Goði Karlsson, Hreinn Þormar og
Óskar Eiríksson. Þessi sveit vann
einnig bikarinn i fyrra. Onnur varð
sveit Svavars Jóhannessonar á 2
mín. 48.6 sek., stýrimaður Gunnar
Jónsson.
í 2. deild varð fyrst sveit Jóhanns
S. Sigurðssonar á 2 mín. 52.3 sek.,
Æ F A K
stýrimaður Sveinn Óli Jónsson. í 3.
deild varð fyrst sveit Sigurðar Ing-
varssonar á 3 mín. 02.7 sek., stýri-
maður Gunnar Hjartarson (í þeirri
sveit voru eingöngu drengir úr Gler-
árþorpi). Idjá nýliðum urðu fyrstir
sveit Magnúsar Stefánssonar á 3
mín. 04.5 sek., stvrimaður Jón Guð-
mundsson.
Fegurðarverðlaun vorú veitt fyrir
bezt róðrarlag í keppninni. Dómari
var Herluf Rvel skipasmiður, en
hann var eitt sinn landsmeistari Dan-
merkur í kappróðri. Fegurðarverð-
launin fékk sveit Magnúsar Stefáns-
sonar, en i þeirri sveit eru auk hans
og stýrimannsins: Hallgrímur Bald-
vinsson, Hörður Steinþórsson og
Sveinn Kristinsson.
Tímaverðir voru þeir Haraldur
Sigurðsson og Halldór Helgason. —
Þrátt fyrir hið óhagstæða veður fór
mótið vel fram, en það stóð yfir í
eina og hálfa klukkustund.