Íslendingur


Íslendingur - 12.09.1951, Qupperneq 4

Íslendingur - 12.09.1951, Qupperneq 4
4 ÍSLENDINGUR MiSvikudagur 12. sept. 1951 Útgifufélag tsUnding* — Kemur út hvern miðvikudag — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson, Fjólug. 1, sími 1375 Auglýsingar og afgrciðsla: Eiríkur Einarsson, Holabraut 22, stmi 1743 Skrifstofa og afgreiðsla Gránufélagsgötu 4, sími 1354. Skrifstofutími kl. 10—12, 1—3 og 4—6, nema á laugardögum aðeins 10—12. — Prentað i Prentsmiðju Björns J&nssonar h.f. — Stærra Imí — Lægra verd Bréf um Matthíasarstofu. Þágiifalispest og ötmur málspell. Úr andaríkinu. Kolaverðið. Bilanir útvarpsins. Uni mánaðamótin síðustu gekk í gildi nýtt verð á mjólk og mjólkurafurðum. Hækkun þessara vara nemur nú, samkvæmt verð- lagsgrundvelli landbúnaðarafurða 14,6% miðað við verðlag haust- ið 1950. Þó hefir hækkunin á neyzlumjólk orðið meiri á þessu tímabili. Um verðlag á kjöti og garðávöxtum er enn ekki vitað. Hækkun þessara vara er mestöll afleiðing af kauphækkunum þeim, sem urðu á s. 1. vori, og fer það því eins og áður og öllum á að vera ljóst orðið, að hver kauphækkun dregur á eftir sér hækkun þýðingarmestu neyzluvara almennings, og kemur því fáum eða engum að notum, nema síður sé. Enda er nú svo komið, að almennirlgur hefir orðið að draga úr neyzlu landbúnaðarvara, svo að vart verður á skýrslum þar um. Enginn þarf að ætla að hér verði staðar nurnið. Miklu fremur er ástæða til að gera ráð fyrir ineiri verðhækkun landbúnaðaraf- urða í framtiðinni, en verðlagsgrundvöllurinn gerir ráð fyrir, því að á aðalfundi Stéttarsambands bænda að Hólum á dögunum var samþykkt tillaga uin að íela sljórn sambandsins að segja upp nú- gildandi verðlagsgrundvelli, ef hún telur það nauðsynlegt, þar eð ekki sé nægilegt tillit tekið til þess nú, hve vinnustundir bóndans eru margar, ábyrgð hans mikil og fjárfestingarþörf hans einstæð. Þá heyrast einnig raddir um það frá bændum (sjá grein Hauks Ingjaldssonar í Frey, ágústhefli 1951 um verðlagsmál landbúnað- arins), að kaup bænda ætti að miða við kaup iðnlærðra manna eða jafnvel iðnmeistara,en ekki ófaglærðra verkamanna og sjómanna, eins og gert sé í núgildandi verðlagsgrundvelli. Því verður ekki móti mælt, að fjárfestingarþörf lnadbúnaðarins er mikil og vaxandi, og því nauðsynlegt að taka fullt tillit til henn- ar. Hver bújörð útheiintir miklar og dýrar byggingar yfir fénað og fóður, yfir vélakostinn, til nýtingar áburðinum o. s. frv. í öllu jiessu hlýtur bóndinn að festa mikið fé. Hinsvegar verður jafnan erfitt að finna út sannvirði afurðanna til að tryggja lífsafkomu bóndans, eins og aðstaða hans er misjöfn eftir gæðum jarðanna, vélakosti, markaðsskilyrðum, samgönguskilyrðum, ræktun o. s. frv. Þótt þeir bændur, sem nú búa við hin beztu skilyrði, hafi með núgildandi verðlagi afurðanna tekjur á við iðnmeistara, er vafa- samt að hinir, sem enn heyja lífsbaráttuna á örreytiskotum fjarri öllum mörkuðum og þurfa að losa hvert strá með fruinstæðustu verkfærum, geri betur en draga fram lífið með ítrustu aðgæzlu. En verðlagsgrundvöllurinn er miðaður við svokallað meðalbú. Með aukinni ræktun og fleiri verkvélum mun meðalbúið smám saman stækka, en Jiað Jiýðir um leið lækkaðan framleiðslukostnað, — lægra afurðaverð. Það er því mikið þjóðfélagslegt hagsmunamál að fækka smábúunum en fjölga þeim stóru. Manntalsskýrslur sýna, að á 10 síðustu árum hefir ibúum allra sýslna á landinu fækkað. nema einnar, en íbúum bæja og þorpa fjölgað mjög. Þessi fólksflótli úr sveitunum á sér eldri og lengri sögu. Margir hafa talið þetta vott þess, að Jijóðin sé orðin afhuga þeim atvinnuvegi, er hefir brauðfætt hana og klætt í þúsund ár, og talið horfa til latidauðnar i islenzkum byggðum. En þess ber að gæta, að á sama tíma hefir ræktun landsins tekið risaskref, og af- kastageta hvers einstaklings, er að landbúnaði vinnur, niargfaldasl VEGNA ræklunar og nýtízku landbúnaðarvéla. Unga fólkið, sem flytur úr sveitinni á mölina, fer ekki nærri allt vegna óbeitar á landbúnaði. Mjög margt á ekki annars úrkosta vegna skorts á hent- ugu jarðnæði, því að flestar byggilegar jarðir eru ennjiá setnar. Og nú hin síðustu ár þarf áreiðanlega meira fjármagn til að kaupa jarðnæði og áhöfn en unga ,,flótta“-fólkið á yfir að ráða eða hefir aðgang að. Það er síður en svo, að ástæða sé til að flýja sveitirnar tiú. Verkvélarnar hafa auðveldað mörgum búskapinn og létt af mesta erfiði vinnunnar. Markaður innanlands betri og öruggari en áður, ef kaupgetan í bæjunum verður ekki gerð að engu. Hinu má að sjálfsögðu ekki gleyma, að landbúnaðurinn hefir hlotið mörg áföll og þung hin síðari ár. Fjárpestirnar, sem enn er ekki búið að sigr- ast á, vorharðindin 1949 og óþurrrkarnir í fyrra koma fyrst í hug- ann.- En reynslan sýnir, að Jjjóðin er nú betur búin við slíkum áföllum, en hún \'ar á blómaskeiði þeirra bænda, sem nú eru að af- henda sonum sínum jörð og bú. „UNI“ skrifar mér eftirfarandi: „Einhverntíma í vor var stungið upp | á |iví í miágrein í Islendingi, að Ak- ureyrarbær varðveitti minningu skálds- ins Matthíasar Jochumssonar með því að kaupa húsið Sigurhæðir og geyma þar allt, sem fundisl gæti til minja um hann og veru lians hér í bæ. Ekki hef ég orðið þess var, að neins- staðar væri lekið undir mál þetta, né nokkuð við því hróflað annars staðar. Eg er ekki fylgjandi tillögu greinar- höf. tum kaupin á Sigurhæðum. Húsið er allstórt og því að sjálfsögðu dýrt, en mjög vafasaml að unnl verði að ná sainan neina Jitlu af þeim húsmunum eða öðru úr eigu skáldsins, er það notaði á liérvistarárum sínum. Auk þess er liúsið illa staðselt sem minja- saín, þar sem ekki liggur að því auð- farinn vegur. En ég veit ekki betur en í ráði sé að koma upp bókhlöðu hér í bæ yið fyrsta tækifæri, er kennd verði við nafn skáldsins, og að þar eigi Amtsbókasafnið að varðveitast. Verði þetta nefnd Matthíasarbókhlaða, eins og hún hefir ltingað til verið kölluð, teldi ég eðlilegt, að í byggingunni yrði Matthíasarstofa, þar sem fyrir yrði komið því af húsgögnum, sem enn eru fáanleg úr búi skáldsins, lityndir af því og líkön, bækur þess allar, bréf, skjöl og annað, er finnast kann ritað af skáldinu o. s. frv. Yrði þetta bænum að mun kostnaðarminna en kaup á heilu húsi og rekstur þess, en minn- ingu skáldsins og kennimanns okkar Akureyrar sýnd viðhlítandi 6æmd og lieiður." * J'ÁGUKALLSPESTIN færist með ári hverju í aukana. Má heita, að ann- arhvor unglingur og nokkuð af full- orðnu fólki segist ekki „þora því" eða að „honum eða lienni langi“ til eins eða annars. Meira að segja eru víðles- in blöð ekki saklaus lengur af þessum leiða kvilla. Nýlega las ég skrítlu í einu dagblaðanna, þar sem stúlka nokkur fann þann ljóð á ráði piltsins síns, að hann „þyrði engu“. Onnur slæm málvilla sést öðru hverju í blöðunum og er algeng í talmáli unglinga. Það er að segja „ofan í“ fyr- ir „niðri í“. Dæmi úr blaði: „.... nam staðar OFAN í kvísl“, og er sama vill- an tvítekin í sömu grein. Það er hægt að detta ofan í poll, en ekki „vera ofan í pojli". RúJIupyJsa getur verið niðri í kjöttunnu en ckki „ofan í“ henni. Hún getur í mesla Jagi verið „ofan á“, „ofan til í" eða efst í tunnunni. Það er hægt að jnra ofnn en ekki vera ofan. * ANDARÍKLÐ í Grófargili er mikið og vaxandi. Ríkisstjóri þar er Kristján Geirmundsson, liinn sjálfmenntaði fuglafræðingiir og kunni dýravinur. — AÐEINS HEILDSÖLUVERÐ FLOKKAtí Ríkisútvarpið birti einhvern- thna á sumrinu tilkynningu írá F rainleiðsluráði landbúnaðarins um heildsöluverð á hrossakjöti og nautgripakjöti. Var heildsöluverð hrossakjöls í þrennu lagi, eítir aldri hrossanna, en nautgripa- kjölið í hvorki meira né minna en 11 ílokkum. Þessi tilkynning er aðeins sniðin fyrir framleið- endur, svo að þeir geti fyígst með, hvaða verð þeim beri að fá fyrir hvern ílokk, en neytendur fá enga tilkynningu um, hvað þeim beri að greiða fyrir liina sömu flokka, að þvt undanskildu, að ákveðið er stnásöluverð á súpukjöti af 4 dýrustu tegundum nautakjöts, en ekki minnst á smásöluverð á hrossakjötinu. Virðist því Fram- leiðsluráðið telja sér óviðkom- andi, hvað smásalinn selur neyt- endum hrossakjötið og hinar lé- legri tegundir naulgripakjöts. Alagning smásalans er ákveðin af Framleiðsluráði kr. 4,20—4,80 á nautakjöti, miðað við súpukjöt, en vitað er, að steikarkjöt af hin- um betri gripum er selt allt upp í Mjög liefir þrengst á andapollinum í sumar, því að margt er þar komið villianda, sem kunna vel við sig í veigj- unni. Þá bættust þrír álftarungar í safnið í sumar. Pollurinn er nú orðinn of lítill fyrir þenna stóra og fjölskrúð- uga fuglahóp, enda munu nú raddir vera uppi um að stækka hann við fyrstu hentugleika. Þótt dýralífið á andapolliniun sé mik- ið, er það þó meira á öðrum stað í bæjarlandinu. En það er á öskuhaug- unum uppi í göinlu mógröfunum. Eru haugar þessir venjulega hvítir til að sjá af veiðibjöllu og ýmsum máfateg- iinduni, og lieyrist vart inannsins mál, þegar ekið er þar fram lijá. * REYKJAVÍKURBLÖÐIN hafa að undanförnu minnst á hið óguriega kola- verð, sem þar syðra er nú 650 krónur. i Hér í bæ er það þó milli 50 og 60 krónum hærra. Hér er um að ræða pólsk kol, -em keypt liafa verið af illri nauðsyn vegna vöruskiptasamnings. — Pólverjar hækka kolaverðið eftir eigin geðþótta en neita að greiða meira fyrir okkar vöru en uppliaflega var um sam- ið. Ef halda á uppteknum hætti að kaupa kolin austan fyrir járntjald, hvaða okurverð, sem seljandanum þóknasl að setja á þau, meðan liægt er að fá kolin ódýrari frá Bandaríkjun- 28 krónur. Tíminn sagði um dag- inn, að 4 krónur væri ójiarflega há álagning á lambakjöt. Hvað Jjá um stórgrijiakjötið? Auk þessa hafa framleiðendur skýrt svo frá, að þeir*hafi ekki einu sinni feng- ið hið auglýsta verð fyrir gripi sína. En ekki er álagningin minni fyrir Jiað. Þá kannasl bæði framleiðendur og neytendur við hina nákvæmu flokkttn kindakjöts í haustkaup- tíð. Hinsvegar verða neytendur ekki vatir annars en I. flokks dilkakjöls í kjötbúðunr, þegar þcir biðja um kjöt þar, a. m. k. hvað verðlagið snertir. Framleið- endur verða þó að sætta sig við mjög stranga verðflokkun á öllu því .kjöli, er þeir leggja inn í kaupfélögin. Þegar dýrliðin er komin í þann algleyming sem nú er, getur Jjað skipt fátækt fólk miklu, hvort það Jjarf að greiða krónunni meira eða minna fyrir kjötkílóið. Það er ástæðulaust fyrir ])að að kaupa ætíð og æfinlega dýrasta kjötið. Þess vegna á það rétt á að fá kjöt af hinum ódýrari verðflokkum, meðan það er til. ef Jjað kýs held- ur. Ef framleiðsluráð landbúnað- arins lætur sig engu varða, hvað smásalinn selur neytandanum kjötið, eða hvernig hann flokkar það til verðs, Jjá verða neytendur að krefjast eftirlits með Jjví eða fulltrúa í nefnd Jjeirri eða „ráði“, sem þar um á að fjalla. * VARtíAR EKKI ALMENNING UM VERÐLAG? Framleiðsluráð landbúnaðarins hefir látið þylja verðflokkun sína upp í útvarpið, Jjar sem allar tölur og flokkaheiti fara inn um annað eyrað og út um hitt. Blöð hér í bænum lóktt Jjessa verðlagsaug- lýsingu upp í sumar, þar sem venja er til. að auglýsingar um verðlag, sem ákveðið er af opin- berum ráðum og nefnduin séu birtar í blöðunum, þar senr les- endur geta klippt þær úr 6g haft við hendina til að fylgjast með réttu verði. Ekki hefir Franr- leiðsluráðið fengist til að greiða þessa auglýsingu, og mun því líta svo á, að almenning varði ekkert um Jjað verð, er Jjað ákveður á einni algenguslu og um leið dýr- ustu neyzluvöru landsmanna. — Verður þessi afstaða ráðsins vart skilin á annan veg en þann, að það sé að draga einskonar „járn- tjald“ milli framleiðenda og neyt- enda til verndar milliliðunum. * ura um niiklu lengri veg, verður ríkis- sjóður að greiða niðiir mismuninn á verðinu. Slíkt er fullkomið sanngirnis- SÝNISHORN AF TÍMA-SANNLEIK I umræðum um utanfarir mál. * Á s. I. vori var tekinn í notkun nýr sendir hjá Ríkisútvarpinu, og liugðu fJestir gotl til skiplanna, því að þeim gamla var orðið bilunarhætt. En síðan nýi sendirinn kom, hafa útvarpstruflan- ir verið líðari en nokkru sinni áður. S. J. sunnudag keyrði þó úr liófi. Stöðv aðist útvarpið 3—4 sinniim, meðan á kvölddagskránni slóð, og síðast varð útvarpið að liætta við hina venjulegu útsendingu danslaga eflir síðari frétt- ir, „vegna bilunar á stöðinni“. sljórnmálamanna, sem farið hafa fram í sunnanblöðum nýlega, get- ur Tíminn þess með feitu letri, að Jóhann Hafstein liafi fengið „greiddan ferðakostnað og dag- peninga i margar vikur fyrir að mæta á StrassborgarJjinginu í einn dag.“ Hið sanna í þessu máli er, að Jóliann Hafstein fór utan á höf- uðborgarráðstefnu Norðurlanda á þessuin tíma, en var beðinn að mæta á Strassborgarþinginu setn staðgengill Jóh. Þ. Jósefssonar að

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.