Íslendingur - 12.09.1951, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 12. sept. 1951
ÍSLKlf DINGUR
5
Friðrik Sigurbjörnsson:
Sjójoriste undfln íslandsstrindim
Útvarpse indí flutt 1. júní s.l.
Bismarck sekkur
Niðurlag.
Tuttugu mínútum síðar voru
ótal margar tundurskeytaflugvél-
ar sendar frá Ark Royal, og í
þetta sinn höfðu þær heppnina
með sér. Eitt tundurskeytið hæfði
Bismarck miðskips, og annað
hitti skipið á stjórnborða aftar-
lega, en áhrií þess urðu þau, að
Bismarck sigldi skyndilega í tvo sem
hringi á sjónum, og hraði hans
hafði minnkað að mun að nýju.
Stýrisumbúnaður skipsins mun
hafa iaskazt allverulega við þess-
ar árásir, og síðar hefur það
fregnast, að kapteinninn á skip-
inu bauð hverjum þeim skips-
manni, sem komið gæti stýrisum-
búnaðinum í lag aftur, að hann
yrði sæmdur járnkrossinum
æðstu gráðu, fyrir vikið, en allt
kom fyrir ekki, — skipið lét mjög
illa að stjórn eftir þetta.
Þetta mánudagskvöld var einn
ig ráðisl að Bismarck af flota
deild tundurspilla undir stjórn
Vians flotaforingja, sem þá var
kapteinn að tign, en er nú að-
míráll og stjórnar brezka heima-
flotanum, og gerðu tundurspill- val
arnir tundurskeytaárás á Bis-
marck. Hittu tvö þeirra í mark,
og virtist eftir það koma upp eld
ur frammi á skipinu.
Árásum þessum var haldið áfram
fram yfir miðnætti og alveg til
klukkan hálf þrjú á þriðjudags
morgun. Klukkutíma síðar var
það tilkynnt af skipum, sem eftir
Bismarck fylgdu, að svo virtist,
sem hann hefði stanzað, og var
skipið þá statt 400 mílur í vestur
frá Brest, og hafði eltingaleikur-
inn þá náð yfir 1750 mílur. Stuttu
seinna var þó tilkynnt, að Bis-
marck mjakaðist enn áfram með
um ö inílna hraða, og enn var
sjáanlegt, að skotmenn skipsins
gátu sent frá sér hættuleg og mjög
rétt miðuð skeyti. Þegar dagur
rann, var enn send flugvéladeild
á vettvang frá Ark Royal, en af
árásinni gat ekki orðið vegna
slæms skyggnis.
En nú leið óðfluga að enda-
lokunum. Tundurspillar áttu enn :
höggi við Bismarck, og beiti-'
skipið Norfolk skiptist á nokkr-
um skotum við það.
Og nú iiefst síðasli þáttur þess-
arár sjóorustu, og er þá bezt að '
áta einn sjónarvottinn að henni
segja fi á.
Sá sem ritað hefir frásögn þá, |
hér fer á eflir um þenna
lokaþátt, var liðsforingi i brezka
flotanum, sem mestallan tímann
staddur í aðmírálsbrúnni í
orustuskipinu King George V, en
þar var aðmíráll eins og fyrr get-
Tovey, sem var yfirmaður
brezka heimaflotans þá.
Kemur hér svo frásögn liðs-
foringjans:
„Alla nóttina hiðum við á að-
mírálsbrúnni í orustuskipinu
King George V
Við stóðum þar eða hölluðum
okkur fram að rúðunum. Kol-
dimm nóttin umlukti okkur.
allur af stað, blaðabunki rýkur út i ina á þýzka skipinu og nálguð-
i loftið, og allt eru þetta áhrif frá i umst það óðfluga.
Aðmírállinn sagði stöðugt:
„Siglið þið nær, ennþá nær, ég
Ég beini sjónauka minum að! sé ekki nógu mörg skotin okkar
Bismarck. Það er skotið úr öllum hæía í mark.“ Og svo færðumst
hinum gífurlega loftþrýstingi,
sem fallbyssuskotin valda.
fjórum frambyssum hans. Þjóð- við nær óvininum.
verjarnir hafa orð fyrir að hitta! En þótt við gætum ekki séð,
vel í mark með fyrstu skotunum. : þegar kúlurnar hæfðu, þá hæfðu
"^0* iS,)i0nntir- j Spenningurinn er gífurlegur um! þær skip.ð engu að siður. Ein-
hvar skot þessi lendi, og þótt! hvern tíma eftir áttundu skothríð-
maður dragi varla andann á með- ina sásl eldur frammi á skipinu,
an, er eins og heil eilífð líði. þar sem virtist stíga upp í turninn,
Stormur var talsverður og rign- .. . , „ , . , ... | . .. .. -
^ ^ ° j til þau falla fyrir framan stjorn- ’og einn sjonarvottur sagði mer,
turn Rodneys, en hinum megin | að hann hefði séð stóra stálplötu
höfuðborgarráðstefnunni lokinni
en þá var gert ráð fyrir, að vika
væri eftir af þinginu. En vegna
þess, að þinginu var slitið fyrr en
til hafði verið ætlast, var komið
undir þingslit, er Jóhann kom
þangað, en hann kom á þingið
þaiyj dag, sem um hafði verið
talað. Ferðakostnað fékk hann
engan greiddan, áður en hann
fór, og er hann greiddur hlutfalls-
lega við ferðakostnað fulltrúa
hinna flokkanna við uppgjör. —
Þessi feitletraða klausa Tímans
er því nærtækt dæmi um hinn svo-
nefnda Tíma-sannleik eða hag-
ræðingu þess virðulega blaðs á
sannleikanum, sem Dagur, í barns
legu trúnaðartrausti, gerir síðan
að uppislöðu í forystugrein.
íng. Enginn okkar man lengur,1
hvort kalt var i veðri.
Klukkan tvö um morguninn
komið með kókó til okkar.
Við drukkum það með þakklátum
hug, en eins hefði mátt bjóða
okkur tjöru. Við hefðum tæpast
orðið varir við neinn mismun, —
svo mikil var eftirvænting okkar.
Loksins þagaði. Kaldur regn-
skúr, dauf sól, napur norðanvind-
ur og talsverð alda. Við sigldum
hljóðir cnn um stund, en settum
svo upp hjáhnana. Beitiskipið
Norfolk birtist nú á bakborða.
Það sendir okkur skeyti og segist
sjá óvininn um 12 mílum sunnar.
Við breytum stefnunni örlítið.
Rodney birtist nú einnig á bak-
borða og tilkynnir líka, að þeir
sjái óvininn. Eg get ekki kornið
auga á hann, en liðsforingjarnir,
sem slýra skotum skipsins hátt
uppi í stjórnturnunum, sjá hann.
Og allt í einu birtist hann augum
okkar, hulinn regnmóðu, eins og
eitthvert draugaskip. Skipið sýn-
ist mjög breitt og kemur siglandi svo
beint í flasið á okkur.
Það breytir um vindátt allt í
einu, og regnið fer íram hjá okk-
ur.
Yfirforinginn, Tovey, sér óvin-
inn fyrstur, og gefur skipun um
að breyta stefnunni. Hann setur
upp hjálminn, og um leið skvett-
ist sjór yfir hann í gegnum op-
inn gluggann. En hann brosir
aðeins og sýnir engin skapbrigði,
hvorki vegna þessa né neins ann-
ars í þessum 5 daga eltingaleik.
sem frábær dómgreind hans og
foringjahæfileikar leiddu til hins
mikla lokasigurs.
Það heyrist ógurlegur hávaði
á bakborða. Rodney hefur hafið
skothríð með 16 þumlunga fall-
byssum sínum, og augnabliki
síðar sendir King George V frá
sér skothríð úr sínum 14 þuml-
unga fallbyssum. Áttavitinn fer
ið skipið.
þeytast aflur úr turninum. Skip-
Mér þykir leitt að segja það,! ið stakkst á endum af völdum
en við hugsuðum allir það sama: j skothríðarinnar, sem ég hugsa,
■ „Guð sé oss næstur! Ætlar
hann virkilega að skjóta á Rod-
ney?“
En næsta hugsun mín er sú, að
ég myndi sjálfur hreint ekki
kæra mig um að standa andspæn-
is níu 16 þumlunga fallbyssum og
tíu 14 þumlunga, eins og Bis-
marck. Sjónauki minn er sem
að hafi verið einhver sú mesta,
sem nokkurt skip hefir orðið fyr-
ir af þvílíkum ógnarskotum sem
þeim, sem þarna var skotið á Bis-
marck.
Það var ekki um nokkra und-
ankomu að ræða fyrir skipið.
Félagar okkar héldu aðeins áfram
að „punda“ á það skotunum í
límdur við Bismaick. Fyrsta! stöðugum hrottagný frá fallbyss-
skothríðin frá Rodney kom í sjó-
inn fyrir framan Bismarck, og
gaus upp 120 feta hár vatnsstrók-
ur, sem hæglega hefði getað
sökkl heilum tundurspilli „með
manni og mús“, ef hann hefði
verið þar staddur.
Næstu skothríð sá ég ekki,
nema eitt skot, sem mér virtist
koma frá King George V. Síðan
leit ég lil Rodney til að vila, hvort
skipið hefði orðið fyrir skoti, en
r ekki, heldur lá skipið
þarna á haffletinum eins og ram-
ger klettaborg og sendi nú frá
sér ógurlega skothríð.
Mér virtisl ég sjá þessi fall-
stykki þjóta í gegnum loftið eftir
að þau þutu út úr byssunum eins
og boltar, sem sveigðu upp á við
og hátt í loft. Og ég er viss um,
að 4 eða 5 kúlur hæfðu skipið.
Það kom aðeins einn strókur upp
úr sjónum, og gusugangurinn
sýndi, að kúlurnar mundu hafa
hitt skipið undir vatnsfleti, og
sennilega hafa sumar borað sér
leið gegnum brynjuna frá Krupp
eins og hún væri ostur, en til allr-
ar hamingju vissi ég ekki, hverju
þær höfðu valdið um leið og þær
sprungu inni i skipinu.
Bismarck sneri í norðurátt og
sigldi með 12—14 lmúta hraða.
Við sigldum ýmist norður eða
suður til að rugla miðunarmenn-
unum.
•Reykjarmökkur gaus upp, og
var þá ef til vill verið að revna
að hylja skipið, en blés fljótlega
frá af vindinum, og tók ég þá
eflir því, að tveir aftari skotturn-
ar skipsins héldu enn áfram að
skjóta að okkur. Mér fannst eins
og titringur fara utn skut skips-
ins okkar, og ég leit í þá áttina til
að sjá, hvort kúla hefði hæft skip-
ið, en það var ekki sjáanlegt.
Stultu síðar heyrði ég hvininn frá
15 þumlunga kúlum frá Bis-
marck. Þær þutu vfir stjórnpall-
inn, ein of stutl, en tvær of langt.
Ég velti því fyrir mér, hvort
fjórða kúlan myndi hada, og áð-
ur en ég vissi af. hafði ég leitað
til útgöngudyra, en sá svo, að
slíkt var hlægilegt ,og tók aftur
að horfa á Bismarck og hvernig
honum reiddi af.
Alveg einstök sjón bar fyrir
augu. Orustan hafði staðið í tutt-
ugu inínútur og það varð séð, að
tveir af stærstu skotturnum skips-
ins og nokkrar minni fallbvssur
héldu enn uppi skothríð, e. t. v.
nokkuð reikulli og ónákvæmri,
því að ekkert skip okkar megin
gaf til kynna. að það hefði orðið
fyrir skoti. Og það sem við sá-
um, voru örsmáar mannverur,
sem þutu eftir þilfarinu á Bis-
marck og klifruðu síðan út fyrir
borðstokkinn, litu snöggvast um
öxl, en létu sig svo falla í sjóinn.
Aðrir höfðu ekki svo mikið við
að líta til baka, heldur hentu sér
útbyrðis, einn af öðrum.
Nú tóku minni fallbyssur okk-
ar að skjóta niður vfirbyggingu
óvinaskipsins, og sterkur blossi
gaus upp í brúnni og teygði sig
ofurhátt til himins, og vafalaust
hafa allir menn þar farizt. Eng-
inn reykur sást, — hitinn hafði
brennt allt. Enn var skotið á okk-
ur úi lílilli fallbyssu. og enn virt-
ist skipið mjakast áfram, en hall-
aðist þó örlítið á bakborða.
Ekki var um annað að ræða en
að skjóta byssurnar í ömurlegar
rústir. Það var leiðinlegt að sjá
svona voldugt og mikið skip gert
að þvílíku rekaldi. Það sem gaf
því lífsmark, var, að það hreyfð-
ist, og menn sáust stöðugt henda
sér fyrir borð. Einhver varð að
gera út af við skipið, því að
gunnfáni þess var enn við hún i
siglutoppnum.
Orustuskipið okkar sneri nú
við, en beitiskipið Dorsetshire
sigldi til skipsins til að gera að
fullu út af við það með tundur-
skeyti. Þegar við vorum um það
bil 10 mílum undan, hvolfdi skip-
inu. og sneri kjölurinn upp góða
stund. en síðan lyftist stefnið, og
áður en nokkurn varði, var allt
horfið í djúpið--------.“
Þetta var frásögn liðsforingj-
ans af King George V af endalok-
um Bismarck en þá mun klukkan
hafa verið lítið yfir ellefu þann
27. maí.
Skömmu áður sendi þýzki að-
mírállinn, Liitjens, skeyti til
þýzku herstjórnarinnar svohljóð-
andi: „Skipið lætur ekki að
stjórn. Við munum berjast þar
til yfir lýkur. Lengi lifi foring-
inn!“ Undirskrift: „Lútjens
flotaforingi."
Þannig
lauk 5 daga orustu
milli mestu og stærstu skipa
þýzka og brezka flotans. Hún
hófst undan ströndum íslands, en
endaði úti á víðáttum Atlants-
hafsins.
Afgreiðsla íslendings
er opin hvern virkan dag kl. 10—12
f.h. og 4—6 e.h. Laugardaga kl. 10
—12.