Íslendingur


Íslendingur - 12.09.1951, Síða 8

Íslendingur - 12.09.1951, Síða 8
Vörður, félag ungra bjálfslæöis manna heldui uúaljund n.k. niánudag, 17. þ.m. í iitla salnuin á iiútei ÍNorÖui iand ki. ö.3U e.h. Venjuieg aöaiiund- arslörf og iéiagsmái. — Stjúrnm. 1. O. 0. l'. — Kb.st. 2 — 999128Vii— 1. O. O. í'. — 1339148Vá — Sjötugur varð 8. þ.m. Júnas Jbúr for stjúxi. ______ Wtf Hjáskapur. Ungirú Margrét Guð iaugsdúttir verziunarmær Akureyri og Aðiis Kemp byggingameistari Keykja- vík. _ __ Aheit á Strandarkirkju kr. 60. O. S. tílaðstjórnin vill, að gefnu tilefni, taka íram, að grein Eiríks Einarsson- ar í síðasta töiublaði „islendings-1: „Árásirnar á Ásgeir Markússon bæjar- verkfræðing" er ekki skrifuð að tii- hiutan hennar. b'íladeljía. Samkomur í Lundargötu 12 fimmtudaga og sunnudaga ki. 8.30 e.h. Allir velkomnir. Kantötukúr Akureyrar efnir tii hlutaveltu á sunnudaginn kemur ki. 3 e.m. að iiútei Norðuriandi. — Þeir vin- ir og veiunnarar kúrsins, sem mundu viija gefa muni á hlutaveltuna, eru vin- samlegast beðnir að koma þeim til Kristjáns Rögnvaldssonar, biúmabúð- inni i’iúru, fyrir föstudagskvöld. Samkomur í Zíon 6unnudag kl. 8.30 e.h. Björgvin Jörgensson kennari taiar. Aliir velkomnir. Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkj u n.k. sunnudag kl. 5. —- P. S. Hjónabönd. Ilinn 30. ágúst voru geí- in sainan í hjúnaband ungfrú Húim- fríður Guðmundsdóttir og Jón Gylfi Hinriksson véifræðingur. Heimili þeirra er að Langholtsveg 141 Keykja- vík. llinn 1. september: Ungfrú Gerður Sigurðardóttir og Oriygur Axeisson. Heimili þeirra er að Holtagötu 10 Ak- ureyri. — Sr. Pétur Sigurgeirsson gaf bæði brúðhjónin saman. Hinn 30. ágúst voru gefin saman hjónaband af séra Birni Stefánssyni ungfrú Þórný Þórarinsdóttir og Hauk- ur Eiríksson stúdent. Heimili þeirra er að Klapparstíg 1 Akureyri. KappróSrarmót Æ.F.A.K. verður á laugardaginn kemur kl. 5 á Akureyrar- polli. Nánar í götuauglýsingum. Skipahomur. Andreas Boye 1. sept. kom með sement. Þyrill 4. með olíu. Arduity 4. að taka karfamjöl í Krossa- nesi. Um sl. helgi kom hingað sæusk- ur tundurspillir, Bredskár að nafni. Hefir tundurspillir þessi verið til eftir- lits sænskum síldveiðiskipum hér fyrir Norðurlandi í sumar. 6. kom Esja að austan. 7. kom Harðbakur af veiðum og fór til Englands. Selur í dag. 8. kom Þyrill með olíu. 9. kom Hekla að vestan. 9. kom Dettifoss að sunnan með vörur. 10. kom Arnarfell. Lestar fisk. 011 síldveiðiskip frá Akureyri eru liætt veiðum. Svalbakur er á ísfiskveiðum. Kaldbakur fer á veiðar um næstu helgi. S A U M U R Tek að sníða og sauraa buxur karlmanna, drengja og kvenna. Milliskyrtur, sloppa og ýmsan annan léltari saum. Einnig gert við hreinleg föt. Odýr saumur. — Fljót afgreiðsla. Hajnarstrœti 86A, niðri Miðvikudagur 12. sept. 1951 fréttflbréj frd Húsavík Húsavík 9. sept. Undanfarnar þrjár vikur hafa verið hér stöðugar rigningar að heita má. Grasspretta var góð í sumar en heyþurrkun hefir geug- ið erfiðlega vegna ótíðar svo og ýmis útivinna. Lömb eru talin vera í góðu meðallagi, og horfur eru á góðri jarðeplauppskeru í haust. Fiskafli hefir yfirleitt verið góður í sumar. Sjómenn hafa lagt afla sinn í hið nýja frystihús Fiskiðjusamlags Húsavíkur, og einnig hefir mikið verið saltað. Að minnsta kosti sjö ný íbúð- arhús eru í smíðum auk annarra sem byrjað var á í fyrra og nú er verið að fullgera. Byggingar þessar eru allar á vegurn einstakl- inga. Mjög mikið hefir verið unnið að endurbótum og við- haldi eldri húsa hér í sumar og sýnir það glögglega vaxandi framtak einstaklinga, samfara vaxandi vörumagni á frjálsum markaði, þrátt fyrir mikla dýr- tíð. Hafin var bygging sundlaugar í ágúst í sumar. Húsavíkurbær og íþróttafélagið Völsungur standa að því verki. Laugin sjálf verður 16.67x7 mtr. Fyrirhugað er að byggja yfir laugina svo fljótt sem unnt er. -— hallur. Fyrrv. gjaldkeri T óbakseinkasö] u ríkisins dæmdur í tveggja ára fangelsi Nú í vor skýrðu dagblöðin frá því, að komizt hefði upp um stór- felldan fjárdrátt hjá fyrrverandi gjaldkera Tóbakseinkasölu rikis- ins, Erni Matthíassyni. Nam fjár- drátturinn fullum 473 þús. krón- um og náði yfir 12—13 ár. Var hann framkvæmdur með því móti, að gjaldkeri dró á langinn innfærslur á póstkröfum og ávís- unum, og komst fjárdrátturinn fyrst upp, er skipt var um bók- haldskerfi hjá fyrirtækinu. Þann 1. þ. m. var dómur kveð- inn upp í málinu, og Orn dæmd- ur í 2ja ára fangelsi fyrir fjár- drátt og brot í opinberu starfi. Auk þess að endurgreiða fyrir- tækinu um 450 þús. krónur ásamt vöxtum og bera allan sakarkostn- að. Strax og uppvíst varð um fjár- dráttinn, játaði Örn brot sitt, er hann taldi óreglu eiga sök á. Hefði þetta fyrst byrjað í smáum stíl og ætlun sín verið að endur- greiða upphæðina, en í stað þess hefði hún vaxið ár frá ári. Síðan rannsókn málsins hófst, hefir hann endurgreitt um 23 þús. kr. af upphæðinni. Nýr dósent í íslenzku við háskólann Halldór Halldórsson magister, sem kennt hefir íslenzku við Menntaskólann hér, hefir verið skipaður dósent við Háskóla ís- lands í íslenzku og íslenzku- kennslu. Mun hann taka við starfi sínu í haust. Alls sóttu 6 íslenzku- fræðingar um embættið. Frá Golfklúbbi Akureyrar Keppni fór fram laugardaginn 1. september um nafnlausa bikar- inn. Sigurvegari varð Jóhann Þorkelsson, en næstur honum Jakob Gíslason. Þó má geta þess, að klúbbnum hefir borizt bikar að gjöf frá Kristjáni Sigurðssyni hótelstjóra, sem ætlaður er til keppni fyrir nýliða og má vænta þess, að fyrsta nýliðakeppni fari fram á næstunni. Á Meisfaromófi Akureyrar, sem ekki var lokið, er síðasta blað kom út, urðu þessi úrslit í síðustu greinunum: 4x100 m. hlaup: 1. Sveit K. A. 46.3 sek. 2. Sveit Þúrs 47.0 — 4x400 m. hlaup: Sveit K. A. 3.43.3 mín. Fimmtarþraut: Akm. Einar Gunnlaugss. Þór 2271 stig 2. Þorv. Snæbjörnsson KA 2213 — 3. Haraldur Jóhannsson KA 2036 — Stöðugir óþurrkar norðan lands og austan. Undanfarnar 3—4 vikur hafa verið stöðugir óþurrkar um Norð- urland og Austurland. Hefir all- mikið rignt á þessu tímabili, eink- um austanlands, þar sem rigning- in hefir valdið vatnavöxtum og skemmdum á vegum og brúm, t. d. í Borgarfirði og Vopnafirði. Eru mikil hey úti á öllu svæðinu og það elzta orðið mjög skemmt. Einn þurrkdagur hefir komið á- þessu tímabili (7. sept.), en lítið mun hafa náðst upp af heyjum þann dag, enda kemur einn ein- asti þurrkdagur að litlum notum á þessum tíma. Ef ekki bregður til þurrviðra nú í vikunni, horfir til stórvandræða um fóðuröflun á öllu óþurrkasvæðinu. Engin síldveiði hefir verið að undanförnu, sem talizt getur, og munu nú flest skip hætt síldarleit fyrir Norðurlandi. EIMSKIP KAUPIR VÖRUFLUTNINGASKIP Nýlega hefir Eimskipafélag ís- lands h.f. fest kaup á vöruflutn- ingaskipi í Ítalíu í stað Fjallfoss, er félagið seldi nýlega til Ítalíu. Skip þetta er tæplega 4 ára gamalt, byggt í Ítalíu eftir ströng- ustu kröfum. Lengd þess er alls 298 fet, breidd 41 fet og djúp- rista 17 fet. Skipið er Dieselskip með 1790 hestafla vél, og fer 12 —13 mílur á klst. Kostnaðarverð skipsins með flokkunarviðgerð og öðru mun nema allt að 13 millj. króna. Það sem hin blöðin segja í ágústhefti íþróttablaðsins, sem blaðinu hefir nýlega borizt, er grein um Samnorrænu sund- keppnina, er lýkur með þessum orðum: „Hvernig sem þessi keppni fer, þá megum við íslendingar þegar vel við una, þar eð almenningur sýndi aðdáunarverðan áhuga við sundiðkanir og þátttöku. Mýmörg dæmi má nefna þessu til stuðnings. Hér eru nokkur: Einn mesti athafnamaður ísa- fjarðar gaf sér tíma til að læra að synda og hætti ekki fyrr en hann gat synt 200 metrana. Lögfræðingur á Siglufirði, sem uppalinn er í Reykjavík og hafði aldrei komið þar í laug, tók sig nú til og lærði að synda og tók 200 metrana. Verkamaður á Sauðárkróki fór á hverju kvöldi um nokkurn tíma fram að Varmahlíð til þess að læra að synda og tók 200 metr- ana. Vegalengdin milli sundstað- ar og heimilis 20 km. — Kvenfé- lagið á Suðureyri leigði sér bíl og fór hópferðir til sundlaugar- innar í Súgandafirði, 5 km. leið, og þann 19. júní tóku margar 200 metrana. Frá Flatey á Skjálfanda, þar sem eru 106 íbúar, fóru 31 á báti til Húsavíkur 2*/2 tíma ferð, og þaðan 19 km. leið í bíl að Hvera- völlum. Tveir eyjaskeggjar lágu við í 2 sólarhringa að Lauga- skóla, æfðu sig og tóku 200 metr- ana. Vitað er um tvo karlmenn á ní- ræðisaldri, sem tóku að æfa sig. Annar hafði ekki komið í vatn í 40 ár.“ Þessar frósagnir Iþróttablaðs- ins af virkum sundáhuga eru þess virði að geymast, en þó mætti sjálfsagt tína fleiri til hliðstæðar, og gæti verið gaman að eiga þær allar saman komnar í prentuðu máli. —^ 1 <— Annáll fslendings Á G Ú S T : Reykvísk kona, Ragna Fossberg Craven, ferst í fellibyl á Jamaica ásamt eiginmanni og lítilli dóttur. Einkaflugvél hlekkist á í lendingu á Korpúlfsstöðum og mölbrotnar. Tveir menn, flugkennari og nemi, sluppu við alvarleg meiðsl. Listasafn ríkisins opnað 27. ágúst í húsakynnum Þjóðminjasafnsins. Erf- ingjar Markúsar ívarssonar járn- smíðameistara afhenda safninu milli 40 og 50 málverk að gjöf úr safni föð- ur síns. Ræður við athöfnina flytja Valtýr Stefánsson, formaður Mennta- málaráðs og Björn Ólafsson mennta- málaráðherra. Kveðja lesin frá forseta Islands. Nýr togari „Sólborg“ kemur til ísa- fjarðar og verður gerður út af ísfirð- ingum. Knattspyrnufélagið Valur vinnur Reykjavíkúrmeistaramótið með 5 stig- um, og er það í 11. sinn er félagið hlýt- ur meistaratitilinn. Islendingar taka að fullu og öllu við almennri flugstjórn á Keflavíkurflug- velli, og síðustu starfsmenn Lockheed- flugfélagsins hverfa af landi burt. Lifrarbræðslupottur í togaranum Goðanesi springur. og brennist bræðslumaðurinn, Jóhann Sveinsson, svo illa, að hann læzt tveim dögum síðar. Tveir menn verða fyrir bifreið á Víf- ilsstaðavegi 4. september. Annar þeirra, Jóhannes Jóhannesson, lézt skömmu síðar í sjúkrahúsi í Ilafnar- firði af meiðslum, og hinn, Jónas Sig- urðsson frá Suðureyri, meiddist einnig mikið. Tugþrautarmeistaranum Erni Clau- sen boðið á íþróttahátíð í Aþenu, þar sem færustu iþróttamenn Evrópu keppa. Vinnur þar sigur í 110 metra grindahlaupi. BRENNISTEINS- VINNSLA Á ÞEISTAREYKJUM OG í NÁMAFJALLI Húsavík, 8. sept. 1951. Mikið er hugsað og rætt um brennisteinsvinnslu hér. Stofnað hefir verið hlutafélag um málið, og er það skrásett í Reykjavík til bráðabirgða. Hlutafé er ákveðið 100 þús. krónur og skiptist í 100 eitt þúsund króna bréf. Sýslan tnun kaupa 10 bréf og Húsavíkur- bær 5. Akveðið hefir verið að flytja út 300 lestir af hrásteini í haust, og verður sumt af því magni tek- ið á Þeistareykj um en hitt i Náinafjalli. Fyrirhugað er í framtíðinni að vinna brennisteininn, ásamt mörgum öðrum dýrmætum efn- um, úr gufu. Ætlunin er að leiða hana í pípum til verksmiðj unnar, sem Baldur Líndal verkfræðingur telur hagkvæmast að reisa á Húsa- vík. Hann hefir sem kunnugt er unnið að og séð um tæknilegan undirbúning þessa máls. — hallur. Mikið efni bíður næsta blaðs vegna þrengsla í blaðinu í dag.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.