Íslendingur

Issue

Íslendingur - 18.11.1953, Page 1

Íslendingur - 18.11.1953, Page 1
XXXIX. árgangur Miðvikudagur 18. nóvember 1953 49. tbl. Óþolandi tdmlæti vegramala- §tjórnarinnar nm §am- göngur Morðlendingfa Fjöldi vöruflutningabíla brýzt á degi hverjum yfir heidarnár í ófaerð, en snjóýtur sjást ekki Tregða vegamálastjórnarinnar í því að halda íjallvegunum milli Norður- og Suðurlands opnum fram eftir vetri hefir nú reynt til fulls á þolinmæði manna hér norðanlands, alll frá Hrútafirði til Eyjafjarðar. Dag eftir dag hafa fleiri eða færri flulninga- vörubílar verið klukkutímum sam- an að brjóíast yfir Holtavörðu- heiði, sem nú er þungfærasti kaflinn á leiðinni Reykjavlk — Akureyri. Snjóýta hefir ekki sézt á þessum slóðum, þótt eftir hafi verið leiíað við vegamálastjóra. Þrældómur ökumannsins. Vegna hinna strjálu siglinga til hafna á Norðurlandi en síaukinn- ar flutningaþarfar, fara vöru- flutningar frá Reykjavík til Norð- urlandsins æ meira fram á land- leiðinni. Stórir vöruflutningabíl- ar fullhlaðnir dýrum förmum fara a. m. k. 6—10 sinnum yfir Holtavörðuheiði, meðan fært er. Til dæmis um þetta skal 'tekið fram, að s. 1. föstudag fóru héð- an frá Akureyri 6 vöruflutninga- bílar, og voru þeir 6 klukkustund- ir að brjótast yfir Holtavörðu- heiði. Á laugardag fóru 9 slíkir bílar yfir heiðina á 5 klukku- stundum. Á mánudagsmorgun lögðu 8 bílar á heiðina að sunn- an og norðan, en þeir sem að norðan komu, sneru við vegna ófærðar, en lögðu aftur á heiðina undir kvöld og voru 4þ£ klst. yfir hana. Dag eftir dag slíta ökumenn bifreiðanna kröftum sínum við að moka snjó, sem snjóýta gæti fjarlægt á örskömm- um tíma. Og um leið og þeir slíta kröftunum í ófærðinni slitna farartækin óeðlilega mikið, og dýrmætur tími fer í súginn. Ein snjóýta sparar því ekki aðeins þrældóm ökuinannanna, heldur og viðhaldskoslnað á ökutækjum fjölda manna og tímann, sem eyð- ist í hinar tafsömu ferðir vegna tregðu vegamálastjóra. Þingmerm skerast í leikinn. Þeir, sem hér áttu hagsmuna að gæta í sambandi við vöru- flutninga um Holtavörðuheiði, sneru sér nýlega til þingmann- anna Jónasar Rafnar, Jóns Sig- urðssonar og Jóns Pálmasonar og sýslumannanna Guðbrandar ísberg, Sig Sigurðssonar, Frið- jóns Skarphéðinssonar og Júlíus- ar Havs'.een, og óskuðu éftir, að þeir skærust í leikinn. Áttu þeir allir tal við samgöngumálaráð- herra dr. Kristin Guðmundsson, og mun hann hafa falið vegamála- s'jóra að verða við óskum norð- anmanna um aðstoð við að halda Holtavörðuheiði akfærri fyrir vöruflutningabíla, meðan imnt væri. En þegar. ekkert bólaði á aðgerðum, kölluðu alþingismenn- imir þrír ásamt samgöngumála- ráðherra vegamálastj óra á sinn fund, og mun hann þá loks hafa lofað að senda snjóýtu norður á Holtavörðuheiði. Hafa þing- mennirnir því brugðist vel við og haldið rösklega á málum. Meðan akfært er í byggð, ber að halda heiðunum færum. Færi hefir alltaf verið gott á láglendi, og nær því ekki nokk- urri á’t að láta nokkra snjóskafla á Öxnadals- eða Holtavörðuheiði tefja eða stöðva samgöngur á milli landshluta, þegar Vegagerð ríkisins á stórvirk íæki til að halda heiðunum færum. Auk þess sem sýslunum á Norðurlandi er rík nauðsyn á að halda uppi vöru- flutningum á bifreiðum, sem nú eru taldir ódýrari en flutningar á sjó, er beinn sparnaður að snjó- hreinsun með ýtu, eins og hér að framan eru færð rök að. Og tæplega mundu snjóýturnar lok- aðar inni, ef ófærð gerði á veg- unurn í næsta nágrenni höfuðstað- arins. Pólitísk hefndarráðstöfun: Bjarna Arasyni, ráðunaut SNE, sagt upp starli Þau fáheyrðu tíðindi gerðust hér í Eyjafirði í vikunni sem leið, að stjórn Sambands Nautgripa- ræktarfélaga Eyjafjarðar kom saman til fundar og samþykkti að segja ráðunaut sambandsins, Bjarna Arasyni frá Grýtubakka, upp starfi sínu með 6 mánaða fyrirvara. Það, sem gerir tíðindi þessi fáheyrð er sú staðreynd, að daginn áður en uppsögn- in var ákveðin, kom út hér í bœnum málgagn hins ný- stojnaða Þjóðvarnarjélags Akureyrar, og var Bjarni Arason ábyrgðarmaður þess, auk jjess sem lmnn á sœti í stjórn félagsins. starfi og geðþekkan í viðkynn- ingu, og að framangreind ráð- stöfun stjórnarinnar sé í fullri óþökk við bændur í héraðinu. Það verður því ekki litið a þessa ráðstöfun á annan veg en pólitíska hefndarráðstöfun gegn manni, sem ekki hefir getað fund- ið sig eiga samleið með vinnu- veitendum sínum í viðhorfi til þjóðmála. Að slíkur skoðana- munur geti haft háskaleg áhrif á þau slörf, er Bjarni Arason vinn- ur fyrir S.N.E., eiga þeir bágt með að skilja, er til þeirra þekkja. Stjórn S.N.E., sem samþykkti uppsögn Bjarna Arasonar, skipa bændurnir Halldór Guðlaugsson Það er ekki vitað, að fyrir Litla-Hvammi og Ketill Guðjóns- liggi sú fyrirkomulagsbreyting á son Finnastöðum ásamt Jónasi starfsemi S.N.E., sem geri ráðu- Kristjánssyni samlagsstjóra. - nautsstarfið óþarft, né heldur, að Hvatvísi þeirra með þessari Bjarni Arason hafi sýnt sig óhæf- J hefndarráðstöfun er því furðu- an til að hafa starfið á hendi, legri, að mennirnir hafa jafnan enda ekkert tekið fram um það í uppsagnarbréfinu. Hitt er í al- mæli, að bændum í sambandinu liggi vel orð til ráðunautsins, telji hann prýðilega vaxinn sínu verið taldir gegnir og greindir. Samstarfsmaður Bjarna Ara- sonar hjá S.N.E. hefir sagt upp starfi sínu í mó'mælaskyni við þessa ofsóknarráðstöfun. . Snorri Sturluson. Málverk eftir Hault Stefánsson. MíMosýÉg Houks ðeitins Stefónssenar var opnuð siðastliðinn sunnu- dag í Samkomuhúsinu að við- stöddum fjölda manns. Flutti Björgvin Guðmundsson frændi málarans nokkur ávarpsorð til ges’anna, er síðan gengu um hin- ar þrjár sýningarstofur og skoð- uðu málverkin og myndirnar. Alls eru á sýningunni hartnær 150 myndir, og vantar þó mikið á, að þar sé um nokkra heild að ræða. Myndir Hauks heitins eru dreifðar um allt Iand, en ekki hafa verið fengnar lánaðar mynd- ir til sýningarinnar frá öðrum eigendum en þeim, er búsettir eru á Akureyri og í næsta nágrenni bæjarins. Einn af gestum sýningarinnar hafði orð á því við þann, er þetta ritar, að það mundi vera fátítt nú til dags að koma inn á málverka- sýningu, þar sem menn fengju aðeins að sjá myndir, en ekki misjafnlega litaða þríhyrninga, ferninga og trapisur, þar sem lín- urnar væru dregnar með reglu- stiku. Haukur Stefánsson elti enga „isma“ í list sinni. Hann málaði myndir úr hinni fjölbreytilegu náttúru með hennar eigin litum. Bera myndir hans vott um ríkt fegurðarskyn og hugmyndaauðgi. Þess vegna Iíður manni vel, er maður horfir á myndir hans, en fyllist ekki óhugnaði eins og þeg- ar maður stendur frammi fvrir konumynd með einu auga á miðju enni. Langmest ber á málverkum á sýningunni, en þó eru þar einnig nokkrar vatnslitamyndir og svart- krítarteikningar. Viðfangsefnin eru fjölþætt: Landslagsmyndir, mannamyndir, helgimyndir, mynd ir úr fornsögum vorum og þjóð- sögum, uppstillingar og hug- myndir. Þar eru og sýndar mál- aratrönur Hauks heitins, og í þeim stendur helgimynd, er hann var að vinna að, þegar hann var sva skyndilega burtkallaður úr þessu lífi 28. marz s. 1. Það, sem mann furðar mest á, er maður lítur yfir hinar allt að 150 myndir á sýningunni, og veit jafnframt, að tugi málverka Hauks vantar þar, eru vinnuaf- köst málarans. Allir kunnugir vita, að hann hafði húsamálning- ar að atvinnu og vann oft lengur að þeim en venjulegan vinnudag. Auk þess málaði hann leiktjöld og allaristöflui', sem mikinn tíma hefir þurft til, og var um nokkur ár aðalkennari Félags frístunda- málara á Akureyri. Hvenær hefir hann málað allar þessar myndir? verður manni á að spyrja. Og svarið getur ekki orðið nema á einn veg: Um nætur, þegar aðr- ir sváfu, á helgidögum, þegar aðrir fóru í skemmtiferðir, á síð- kvöldum, þegar aðrir sátu að Fram.liald á 6. siðu.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.