Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 18.11.1953, Síða 6

Íslendingur - 18.11.1953, Síða 6
6 ÍSLENDINGtJh Miðvikudagur 18. nóvember 1953 GÆSADÚNN 1. fl. yfirsængurdúnn. HÁLFDÚNN LAKALÉREFT SÆNGURVERA- DAMASK DÚNHELT LÉREFT FIÐURHELT LÉREFT Verzlun Drengjohúfurnar komnar aftur. Fjölbreytt úrval. Verzlun Eyjafjörður h.f. Eyjaf jörður h.f. Sjöiugur N Ý G A T A Hinn 11. þ. m. átti sjötugsaf- mæli einn af þekktustu iðnaðar- mönnum bæjarins, Jónatan M. Jónatansson, skósmíðameistari. Iðn sína lærði hann hjá Guð- mundi sál. Vigfússvni kaupmanni og skósmíðameistara, og telur Jónatan, að það hafi orðið undir- s'aða velfarnaðar hans í lífinu, að hafa komizt til Guðmundar og notið góðs atlætis á hinu ágæta heimili þeirra hjóna. Skósmíða- verkstæði hefir Jónatan rekið um áratugi í Strandgötu 15, og er vandvirkni hans og smekkvísi til fyrirmyndar. Jónatan er kvæntur ágætri konu, Guðnýju Jósefsdóttur öku- manns Jónssonar, sem var kunn- ur borgari á sinni tið. Gestkvæmt var á heimili þeirra hjóna í Glerárgötu 6 á afmælisdaginn, og fjölmargar vinarkveðjur bárust afmælisbarninu úr bænum og frá kunningjum og skvldfólki víðs- vegar að. Jónatan er enn, þrátt fyrir langan vinnudag, glaður í anda og hinn hressilegasti. Bæjarstjórn hefur samþykkt að áður ónefnd gata, sem liggur frá austri til vesturs, næst norðan Víðivalla, skuli hljóta nafnið Grenivellir. Bygginganefnd hafði gert tillögur um eitthvert þess- ara nafna: Blómsturvellir, Greni- vellir, Glæsivellir, Hagavellir. ___*____ ÞAKKARORÐ. Beztu þakkir flyt ég eftirtöld- um bókaútgefendum og einstakl- ingum, sem gefið hafa bækur í bókasafn Æskulýðsheimilis templ- ara á Akureyri: Barnablaðið „Æskan“, Reykja- vík, Þorsteinn M. Jónsson, hóka- útgefandi, Akureyri, Arni Bjarn- arson, bóksali, Akureyri, Bókaút- gáfa „Máls og menningar" Rvík, Kristján Sigurðsson, kirkjuvörð- ur, Akureyfi, Halldór Friðjóns- son, fyrrv. rits'jóri, Akureyri. — Akureyri, 6. nóv. 1953. — F. h. Æskulýðsheimilis templara. — ___*____ Hér og þax -]¥ýja-Bíó - í kvöld kl. 9: LADY LOVERLY amerísk stórmynd, gerð eftir leikritinu „The Last of mrs. Cheyney.“ Aðalhlutverk: Greer Garson °g Michael Wielding Um helgina: NAUÐLENDING norsk kvikmynd úr siðasta stríði. — Guðrún Brunborg. — Skemmfiklúbhurinn „ALLIR EITT" Dansleikur í Alþýðuhúsinu laugardaginn 21. þ. m. kl. 9 e. h. Félagsskírteini afgreidd laugar- dagskvöld frá kl. 8—9 á sama stað. - BORÐ EKKI TEKIN FRÁ. STJÓRNIN. Dömur, athugiö! Fyrir heimasaum: Klæði, beltissylgjur og hnappa. Kósar settir á belti í Gránufélagsgötu 11. (Geymið auglýsinguna.) Framhald af 5. síðu. Ritstjóra Dags fer þarna líkt og manninum, sem „skaut i hópinn“. Frásögn íslendings af atburðin- um 28. október er nákvœmlega jajnlöng og frásögn Dags um svipað efni 11. apríl siðastliðinn, eða 21 lina að meðtalinni fyrir- sögn, en ekki allt að 100, eins og hann segir. Hefir ritstjórinn því séð allt að því fimmfalt. Stærra blað cg stærri viðburður. Ritstjóranum finnst, að íslend- ingur hefði átt að láta sér nægja tvo fimmtu hluta af því rúmi, er hann notar undir fregnina, af því Dagur hefði verið 20 síður vik- una, sem skýrt er frá úrsögn úr Sjálfstæðisfélaginu, en íslending- ur aðeins 8 síður vikuna, sem úr- sögn Marteins barst! En hér kem- ur bara annað til athugunar Urn Ieið. Sá atburður, er tveir hátt- settir trúnaðarmenn yfirgefa fé- lag si‘t (og gerast fám dögum síð- ar formenn félagsskapar í öðrum stjórnmálaflokki), er svo óendan- lega mikið fréttnæmari atburður í augum fólksins en sá, sem gerð- ist í Sjálfslæðisfélagi Akureyrar í apríl s!ðastliðnum. Endurskoðun skattalag- anna gæti tekið mörg ór. Tíminn er nú farinn að búa GLUGGASTENGUR (stormjárn) KANTLAMIR BLAÐLAMIR STABLA-HENGSLI HENGILÁSAR LÁS-HESPUR HURÐARKRÓKÁR HURÐARLAMIR (sænskar) 3)/2 x 3% SKÁPLÆSINGAR og SKRÁR FATASNAGAR HILLUVINKLAR GARDINUGORMAR Verzlun Evjaf jörður h.f. rkkur undir að taka því rólega, þótt endurskoðun skat'alaganna drag!st nokkuð á langinn. I leið- ara sínum s. 1. laugardag ræðst hann að þeim Sjálfstæðisþing- mönnum, er fluttu á síðasta þingi ivær eða þrjár breytingartillögur við skatlalögin, „þar sem lögin voru í endurskoðun,“ en segir síðan: „.... endurskoðun skatta- og útsvarslaga er mjög vandasamt verk, svo flókin sem sú löggjöf er og margt í henni, sem ágreiningi getur valdið. Erlendis þykir það ekki tíðindum sæta, þótt endur- skoðun slkrar Iöggjafar taki mörg ár, enda eru þar mörg rann- sóknarefni og nauðsynlegt að leita upplýsinga margra aðila, einkum þeirra, er framkvæmdina annast og mesta reynsluna hafa. Það mun lika verða á takmörkum, að milliþinganefnd geti skilað áliti það tímanlega, að hægt sé að afgreiða-ný lög á þessu þingi.“ Sé svo, að endurskoðun skatta- laganna eigi að dragast nokkur ár enn, sem málgagn fjármálaráð- herrans virðist jafnvel gera ráð fyrir og telja eðlilegt, hvað er þá til fyrirstöðu því, að Alþingi hefli verstu agnúana af skattalög- gjöfinni þegar í stað, eins og frv. Sjálfstæðismanna á þinginu í fyrra gerði ráð fyrir? Málverkasýning Framhald af 1. síðu. spilum eða slörðu á kvikinyndir. Og öllu þessu hafði hann afkast- að í tómslundum rösklega fimm- tugur að aldri. Nemendur Hauks heitins báru mikla virðlngu fyrir honum, og með honum og þeim tókst gagn- kvæ;m vinátta. Tveir þeirra hafa unnið ötullega að því, ásamt öðr- um vinum málarans hér í bæ og nágrenni, að koma þessari sýn- ingu upp. Eiga forgöngumenn hennar þakkir skilið. Af myndum á sýningunni eru 45 til sölu, og seldist um fjórði hlu'i þeirra á fyrsta sýningar- degi. Sýningargeslur. slípað alumínium, komnar aftur. Lítið í gluggann. Verzlun Eyjaf jörður h.f. PHKKMIir galvaniseraður nýkominn Verzlun Eyjafjörður h.f. ALF ERLING — 10 Bræður myrkursins — Nei, í nótt vil ég heldur ganga í prjónasokkum, svaraði ívan Disna og gaut augunum til dyranna, er Ploch lokaði á eftir honum. Ploch hló. — Jæja, svaraði hann. — Lá'ið mig sjá stígvélin. Ivan Disna settist og togaði annað háa stígvélið af sér. — Þarna eru göt, sjáið þér, sagði hann. — Göt rétt við sólann. Snjórinn fer þar i gegn. Getið þér sett bætur á þau? Ploch þreifaði með þumalfingri um götin og horfði á stígvélin með svip læknis, er rannsakar sjúkling. — Þau eru slæm, sagði haníi. — Þyrftu að fá almennilegan plástur. Hvenær þurfið þér að nota þau? — Ég á aðeins þessi stígvél, og fyrir dögun þurfa þau að vera tilbúin, svaraði Ivan Disna. — Fyrir dögun?‘Ég ætti sem sé að gera við þau í nótt? — Já. — Það er ómögulegt. Eg hef margt annað að gera. — En þér megið til með að gera þetta fyrir mig. Eg greiði eins og þér setjið upp. — Þér hefðuð átt að koma fyrr. — Það gat ég ekki, svaraði Ivan Disna, og tók Ploch eftir því, að hann skotraði augunum til dyranna. — Ploch virti manninn fyrir sér, og hann deplaði litlu augunum í sífellu. — Það er svo mikill asi á yður, að maður gæti ætlað, að sjálf- ur myrkrahöfðinginn væri á hælum yðar, sagði hann hlæjandi. — Já, næstum því, svaraði Ivan Disna og gekk fram að dyrun- um. — Hvað er um hurðina? spurði Ploch, sem fylgdist af athygli með hreyfingum hans. — Ég er að athuga hvort hún er lokuð. — Óttizt þér lögregluna? spurði Ploch og Ieit á hann rannsóknar- augum. — Ivan Disna kinkaði kolli. — Eg hef peninga, sagði hann og hvarf frá dyrunum. — Gerið við stígvélin mín og leyfið mér að gista hérna hjá yður. Ég greiði eins og það kostar. Ploch horfði á hann og klóraði sér í hnakkanum. Honum var sjáanlega um og ó að hýsa ókunna manninn. — Þér hafið kannske gert eitthvað af yður, sagði hann. — Gert eitthvað af mér? endurtók Ivan Disna. — Já, eitlhvað, sem gæti veitt yður smáferðalag til Síberíu? — Nú, þannig meint, sagði Ivan Disna hlæjandi, og Ploch sá hann aftur gjóta augum til dyranna. — Jæja, jafnvel þótt svo væri, munduð þér ekki hafa neinn áhuga á að framselja mig lögreglunni, þegar þér fáið góða greiðslu fyrir verkið og fyrir að lofa mér að vera hér þangað til birtir. — Ploch kímdi og sagði: — Fyrir hvað ætti ég svo sem að segja til yðar? Ég veit ekki, hver þér eruð, né livað þér hafið gert. En þér getið fengið að vera hér, meðan ég geri við stígvélin. — Eg þakka vinsemd yðar, sagði Ivan Disna og stakk silfurrúblu í lófa skósmiðsins. — Ifvert þó í .... Eruð þér svona vel fjáður? spurði Ploch. Þá gef ég glas af tei með brennivíni í kaupbæti. Ploch, sem var dálítið haltur á öðrum fæti, hökti að veggskáp og tók þar fram brennivínsflösku. Teketillinn stóð á glóðarkerinu. Ploch hafði ánægju af að tala við fólk, og honum virtist bvo margt grunsamlegt við Ivan 4Disna, að það hlyti að vera skemmtilegt að spyrja hann spjörunum úr. Ploch var, eins og aðrir forvitnir menn, gjarn á að þaulspyrja náungann. — Setjist niður, og við skulum rabba ögn saman, sagði Ploch og skákaði brennivínsflöskunni á borðið. — læ ég ekki það fljóta viðgerð á stígvélunum, að ég geti kom- izt héðan í birtingu? spurði Ivan Disna. — Það er meiri skollans asinn á yður, sagði Ploch og hellti teinu í glösin.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.