Íslendingur - 06.01.1954, Blaðsíða 1
XL. árgangur
Miðvikudagur 6. janúar 1954
1. tölublað
ÞRÍ R STÓRIR
loseph Lanicl lorsœlisráSherra Frahka (lil vinsiri), Dwight D. Eiscnhowc
íorseti Bandaríkjanna (í miðiÖ) og Winston Churchill jorsœtisráðherra
Breta (til hœgri). Myndin er tekin á veggsvölum jiess húcs í Bcrmuda, þar
tem þessir heimskunnu stjórnmálamenn komu saman 4. desember síSast-
liðinn á jjögurra daga ráðstejnu um heimsástandið.
Ilönnuleg: slys iiiu Jölin
og* aramötf in
Slysfarir á liðna árinu með mesta móti
Árið 1953 var uto margt gjöf-
ult og gott, einkum til landsins.
En einnig mun þess minnst hér á
landi sem óvenjulegs slysaárs.
Urðu m. a. nokkur átakanleg slys
um jólaleytið og áramótin.
Drengur brennur inni.
Þann 29. des. varð sá sorglegi
atburður að Ileiði í Gönguskörð-
um, að eldur kom upp í loflhæð
íbúðarhússins, og brann þar inni
7 ára drengur, sonur bóndans,
Agnars Jóhannessonar og konu
hans Ástu Agnarsdóttur.
Hjónin höfðu farið með 10
börn sín á mannamót inn á
Reykjaströnd kvöldið áður, þar
sem yngsta barn þeirra var ekírt.
Kom fólkið ekki heim fyrr en kl.
7 að morgni, nema ein átján ára
dóltir, er varð eftir á samkomu-
staðnum við hreingerningu. Á-
kvað nú bóndinn, að sofa til kl.
9, áður en hann færi til gegninga,
og háttuðu allir og sofnuðu. —
Börnin sváfu flest á loftinu, og
tók eitt þeirra kerti upp með sér,
og er álitið, að það hafi orðið
orsök eldsins, sem fólkið vaknaði
fyrst við, er hann var farinn að
breiðast út um loftið. Bóndanum
varð fyrst íyrir að bjarga yngsta
barninu í útihús, en konan fór á
meðan upp á loftið að bjarga
stálpaðri börnunum, sem þar
sváfu. Hlaut einn drengurinn
nokkur brunasár, er hann brauzt
út úr eldinum og móðirin brennd-
ist nokkuð á höndum. En dreng-
urinn, sem ekki bjargaðist, svaf í
herberginu, sem eldurinn kom
upp i.
Mikið eignatjón.
Auk þess að missa eitt bama
sinna í eldinum, urðu hjónin
fyrir miklu eignatjóni. Veður var
all-hvasst og æsti eldinn. Læsti
hann sig í gamalt fjós, sem var
áfast við íbúðarhúsið. í því voru
kindur, senr tókst að hleypa út í
tæka tíð. Brann fjósið og áfast
hey, sem í munu hafa verið um
200 hestar. Ennfremur hænsna-
skúr með 30—40 hænsnum. Ekk-
ert bjargaðist út úr húsinu, en
fjölskyldan stóð yfir brunarúst-
unum á nærklæðum einum. Þótt
slökkvilið væri sent frá Sauðár-
króki og hjálp bærizt úr nágrenn-
inu fljótlega, varð ekki við neitt
ráðið. Fjársöfnun er hafin af
hálfu Rauða-Krossins og Skag-
firðingafélaganna til styrktar
hinni örhjarga fjölskyldu.
Piit'ur og stúfka drukkna
á Vatnsleysuströnd.
Daginn eftir að brunaslysið varð
að Heiði, drukknuðu tvö frænd-
systkin á Vatnsleysuströnd við að
bjarga kindum frá að flæða í
skeri. Voru það 11—12 ára dreng
ur frá Litlu-Vatnsleysu og móð-
ursystir hans frá Stóru-Vatns-
leysu, rúmlega tvítug. Engir karl-
menn voru heima við, og er fólk
varð þess vart, að kindur voru
komnar fram í flæðiskerið og
Framhald á 8 sísí"-
Ný dietlun
Kosið í niður-
jöfnunarnefnd og
yfirkjörstjórn
Á bæjarstjórnarfundi hinn 22.
des. sl. var kosið í niðurjöfnunar-
nefnd fyrir árið 1954:
Þessir hlutu kosningu:
Sigurður M. Helgason, fulltrúi
Hallur Sigurbjörnsson, skattstj.
Björn Jónsson, ritstj. Verkam.
Tómas Björnsson, kaupmaður.
Til vara:
Torfi Vilhjálmsson, verkam.
Arngrímur Bjarnason, skrifst,-
stj óri
Áskell Snorrason, tónskáld
Gunnar H. Kristjánsson,kaupm.
Á sama fundi var kosið í yfir-
kjörstjórn við næstkomandi bæj-
arstj órnarkosningar.
Þessir hlutu kosningu:
Sigurður M. Ilelgason, fulltrúi
Brynjólfur Sveinsson, mennta-
skólakennari
Tómas Björnsson, kaupmaður.
Til vara:
Jón Þorsteinsson, lögfræðingur
Björn Bessason, endurskoðandi
Kristján Árnason, kaupmaður.
Enn hefir ekki verið valið í
undirkjörstjórn.
Sprengiefni stolið d
Sigtufirði jyrir jól.
Óttast um að nota ætti
það á gamlárskvöld
Skömmu fyrir jól varð þess
vart á Siglufirði, að farið hafði
bæjarins, sem stendur skammt ut-
an við bæinn, og þaðan tekið all-
mikið magn af dynamiti, kveikju-
þræði og hvellhettum. Var óttast
um, að unglingar hefðu verið hér
að verki og hyggðu á að nota
sprengiefnið til áramótaspreng-
inga. Vann lögreglan kappsam-
lega að því að hafa uppi á þýfinu
og heimsótti í því tilefni alla eða
flesta húsráðendur í bænum.
Einnig var samkomubann sett á
í bænum eitt kvöld.
Meginið af sprengiefninu hefir
nú fundizt, en sex unglingspiltar,
14—19 ára, hafa játað á sig
verknaðinn.
Einnig var um svipað leyti stol-
ið nokkru af sprengiefni á ísa-
firði.
um hruólrysiús fyrir
bffjarstjórn
Nefndin leggur til að Útgerðar-
félag Akureyringa h.f. annist
málið
Samtal við Helga Pálsson, formann
Hraðfrystihússnefndarinnar
Helgi Pálsson formaður Hraðfrystihússnefndar bæjarins kom um
miðjan desember heim eftir tveggja vikna dvöl í Reykjavík, en
þangað fór hann til að sitja Fiskiþing og athuga um möguleika á
byggingu og s’arfrækslu hraðfryslihúss á Akureyri. Hefir blaðið
ált tal við Ilelga um för hans og leilað upplýsinga um árangur
hcnnar varðandi hraðfrystihússmálið.
Kom með teikningar
og áætlanir.
— Ámeðan ég dvaldi í Reykja-
vík, segir Helgi, — átti ég nokkr-
um sinnum viðræður við Gísla
Hermannsson verkfræðing, sem
unnið hefir að teikningum og á-
ætlunum um hraðfrystihús fyrir
hraðfrystihússnefndina, en hana
skipa auk min Friðjón Skarp-
héðinsson bæjarfógeti, Ilaukur P.
Ólafsson frystihúss'jóri og
Tryggvi Helgason útgerðarmað-
ur.
Áður en ég fór úr Reykjnvik,
lauk Gísli teikningum sínum og
áætlunum um byggingu og rekst-
ur, og kom ég með þær norður.
— Er nokkuð því til fyrir-
stöðu, að þú segir blaðinu frá
þeim í aðalatriðum?
— Það tel ég ekki vera, þar
sem nefndin hefir nú gengið frá
sínum tillögum í því sambandi og
sent bæjarstjórn.
Þær teikningar, sem nú liggja
fyrir, eru miðaðar við, að húsið
sé s'.aðsett við syðstu bryggju
Tangans, svonefnda Ilöepfners-
bryggju. Ráðgert er að byggja
tvær álrnur. Verður önnur álman
(B-álma) 27x15 metrar, tvær
hæðir, en hin (A-álman) 25x15
m. og 5 m. af því 2 hæðir en 20
m. ein hæð. Auk þess horn 2
hæðir, þar sem álmurnar mætast,
og bygging fyrir vélar 10.5x8 m.
í krikanum á milli þeirra. Enn-
fremur skúrbygging 6 m., er tengi
núverandi skúr við þá álmu, sem
liggur meðfram Sjávargötu. Nú-
verandi skúrbygging verði fyrir
allsherjar-fiskmótlöku. Fiskþvolt-
ur og hreistrun fari fram í nýja
Helgi Pálsson.
skúrnum, milli núverandi skúr-
byggingar og vesturálmu hússins.
Vinnsla á flökun, snyrtingu og
pökkun verði á neðri hæð í B-
álmu, og er henni ætlað þar 25x
15 m. pláss. Uppi yfir þessu plássi
er að hluta ætluð geymsla fyrir
umhúðir o. fl. 20x10 m.
Þegar varan er tilbúin, er hún
flutt með lyftum upp á aðra hæð
og fryst og kössuð þar, en þaðan
gengur hún í geymsluklefa í A-
álmu. Á horninu, þar sem áhn-
urnar mætast, er ætlunin að hafa
uppgöngu, snyrtiherbergi og
skrifstofu. í A-áhnu eru ætlaðar
2 frystigeymslur, önnur 1400
rúmmetrar, er tekur 800 tonn af
frystum flökum. Hin geymslan cr
450 rúmmelrai og er ætluð fyrir
250 tonn af ís Gert er ráð fyrir,
að sett verði upp ísvél, er vinni 15
tonn af ís á sólarhring. Verður
hún slaðsett í turni yfir ísgeymsl-
unni.
Framhald á 8. síðu.