Íslendingur


Íslendingur - 31.03.1954, Qupperneq 1

Íslendingur - 31.03.1954, Qupperneq 1
XL. árgangur Miðvikudagur 31. marz 1954 15. tbl. Umferðafræðsla Búnaðarfélags íslands nýtur mikilla vinsælda Áburðartflraunir veröa gerðar í hverjum hreppi. Rætt við ráðunautana Agnar Guðnason og Sigfús Þorsteinsson. Umferðaráðunautar Búnaðarfélags Islands, þeir Agnar Guðnason og Sigfús Þorstemsson, luku fundahöldum í Eyjafjarðarsýslu síðast- liðinn föstudag, og höfðu þá haldið 12 fundi í öllunr hreppum sýsl- unnar, Akureyri og Siglufirði. Tíðindamaður blaðsins náði tali af ráður.autunum, áður en þeir fóru héðan, og spurði þá um tildrög og tilgang þessarar um- ferðafræðslu. — Það er upphaf þessa máls, að viss hundraðshluti af fjárfram- lögum Marshallaðstoðarinnar til íslands, var lagður til hliðar í þeim tilgangi að nota hann í leið- beininga- og tilraunaskyni fyrir landbúnaðinn. Á fjárlögum fyrir árið 1954 veitti Alþingi 750 þús- und krónur til þess að koma á fót þessari umferða- og leiðbeininga- fræðslu, og hefir Búnaðarfélag íslands tekið að sér þessa starf- seini, sem verður kostuð að tveim þriðju hlutum af framlagi ríkis- sjóðs og einum þriðja af Mars- hallframlaginu. — Hvernig er svo þessari upp- lýsinga- og leiðbeiningastarjsemi háltað? — Fræðslukerfi þetta á að standa í tvö ár, og hafa verið ráðnir til að annast fundahöld og aðrar framkvæmdir úti á landi fjórir ráðunautar, og á þessu ári ferðast þeir um Norður- og Aust- urland en á næsta ári um Suður- og Vesturland. Yið höfum svæðið frá Strandasýslu að Eyjafjarðar- sýslu að báðum meðtöldum, en Ornólfur Örnólfsson og Egill Jón- asson fára um austursvæðið. För- um við í hvern hrepp á umferða- svæðinu, og iiöfum við tveir lokið fundahöldum í 41 hreppi. Þegar þessum fundahöldum er lokið, förum við aftnr í hvern hrepp, og komum upp áburðartilraunum á einurn bæ í hverjum hreppi, merkjum reiti og berum á þá. Síð- ar förum við og sláum þessa reiti tvisvar sinnum og vigtunr af þeim uppskeruna, og síðasta umferðin verður svo í haust, og þá aftur haldnir fundir í hverjum hreppi, þar sem rneðal a nnars verður rætt um árangur ábrarðartilraunanna. j ing Er það lokaþá tturinn í þessu fræðslukerfi á umferðasvæði okk- verkum þannig, að annar okkar (Agnar) íalar um jarðræktartil- raunir, áburðarnotkun, kartöflu- rækt, eyðingu illgresis og fleira, en hinn okkar (Sigfús) ræðir um fræðslustarfsemi í landbúnaðin- um, heyskap. súgþurrkun, vot- heysgerð. búfjárrækt, einkum sauðfjárrækt og fleira. Þá höfum við með okkur skuggamýndavél og sýnum skuggamyndir af línu- ritum yfir ræktunarframkvæmd- ir, uppskeru túna, búfjárfjölda í hverjum hreppi, áburðartilraunir og fleira, og auk þess myndir af erlendum og innlendum búfjár- kynjum. Tilhögun fundanna hefir verið sú, að við höfum báðir í fundarbyrjun flutt framsöguræð- ur, hvor um sitt efni, en síðan hafa verið almennar umræður og fyrirspurnir um erindin og fleira, er1 bændur haía áhuga fyrir, og reynum við að svara eftir beztu getu. Varðandi fundarsóknina er það að segja, að hún hefir yfirleitt verið ágæt. Fundirnir hafa venju- lega staðið írá 4—8 klst. og í þeim 41 hreppi, er við höfum til þessa haldið fundi í, hafa mætt um 1200 manns, aðallega bænd- ur, og hér í sýslunni hefir svo að segja hver bóndi sótt fundina og fjölmargir fleiri. -— Vm hvaða mál snúast hinar almennu umrœður á fundunum helzl? — Hvað málefnum Agnars við- kemur, hafa þær helzt snúizt um djúpvinnslu á mýrum, framræslu, notkun eyðingarlyfja illgresis, á- burðarnotkun, tilraunastarfsem- ina, grasfræbiöndun og fleira. Af málaflokki Sigfúsar snúast um- ræður og fyrirspurnir helzt um súgþurrkun, votheysgerð, ræktun beitilands og beit á ræktað land, afurðagetu sauðfjárins, nýjungar í nautgriparækt eins og innflutn- holdanautgripa og rnargt fleira. Annars getum við sagt það, að þátttaka í umræðum á fundun- ar. urn hefir yfirleitt verið góð og Hvert er, hlutverh fundanna, sérs'aklega í Austur-Húnavatns- og hvernig haja þeir verið sóttir? ^ sýslu og Skagafirði. Okkur hefir — Við skiptum með okkur|virzt, að áhugi væri mjög vak- andi fyrir þessari starfsemi, og hafa bændur haft mikinn áhugá fyrir því að fá gerðar áburðartil- raunir hjá sér. en vegna kostnað- ar eru ekki möguleikar á að fram- •kvæma þær víðar en ráð er fyrir gert í áætluninni. — Hvernig líkar ykkur svo þetta starj? — Við höfum bæði haft á- nægju og gagn af þessu ferðalagi okkar um Norðurland í vetur. Báðir erum við ungir menn með stutlan starfsferil að baki, þannig að við höfum ýmsan fróðleik að sækja til þeirra, sem við eigum að fræða, og sem stunda framleiðslu- störfin í sveitunum. Okkur hefir hvarvetna vcrið vel tekið og stjórnir búnaðarfélaga og búnað- arsambanda greitt götu okkar í hvívetna, auk þess sem fas'.ir ráðunautar héraðanna hafa lagt okkur lið í þessu starfi með því að koma á fundina og taka þált í umræðum, til dæmis hér í Eyja- firði þeir Ólafur Jónsson, Bjarni Arason og Ácni Jónsson íilrauna- stjóri. Rúðubrofr og gripdeild. í vikunni sem leið var stór rúða í sýningarglugga Véla- og vara- hlutadeildar KEA brotin að næt- urlagi, og úr glugganum gripið forkunnar vandað og dýrt við- tæki. Fólk í næsta húsi vaknaði við brolhljóðið og gerði lögregl- unni aðvart. Mætti hún ölvuðunr manni syðst í Brekkugötu með viðlækið í fanginu og tók hvort tveggja til handargagns. Rausnarleg gjöf. í tilefni af 60 ára afmæli Kven- félagsins Framtíðin hefir félagið gefið kr. 2000.00 í sjúkraflugvél- arsjóð og aðrar 2 þús. kr. í orgel- sjóð Akureyrarkirkju. FYRSTI KJARNORKU-KAFBATURINN Frú Eisenhou'er, jorselafrú Bandaríkjar.na, „skírir“ kafbát- ir.n NAUTILUS, sem nýlega var hleypt af stokkunum í Landaríkjunum, en það er jyrsti kajbáturinn, sem knúinn er aiómorku. ShattalagalrQmvarpið nýjo Skattalækkun. — Skattasamfærsla. — Fródráttar- liðum fjölgað. — Persónufrádráttur hækkaður. — Sparifé skattfrjálst. Stj órnarfrumvarp um breyt- ingu á skattalögunum, sem lengi hefir verið beðið eftir, var lagt fram á Alþingi í vikunni sem leið. Fiirðuleg nami^kkt í liandritamsílinu íslenzkir stúdentar í Kaupmannahöfn setja of- an í við Albingi fyrir að gleypa ekki við tillögum um skiptingu íslenzku handritanna miili íslend- inga og Dana. fslendingi hefir borizt ályktun frá Félagi íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn, varðandi hand- ritamálið, er samþykkt var á fé- lagsfundi 17. þ. m. með 29 — tuttugú og níu — atkvæðum gegn 2. — Álvktunin er svohljóðandi: „Fundur haldinn í Félagi ísl. stúdenta í Kaupmannahöfn mið- vikudaginn 17. marz 1954 lýsir undrun sinni á því, að Alþingi íslendinga og rlkisstjórn skyldi vísa tillögum dönsku s'jórnarinn- ar um lausn handritamálsins svo skjótlega á bug að lítt rannsökuðu máli. Fundurinn telur að hlutskipti Framhald á 8 siðm Miðar það að því tvennu: Að draga úr ofurþunga skattabyrð- anna og gera framkvæmd skatt- álagningarinnar einfaldari í vöf- um. Helztu breylingarnar samkvæmt frumvarpinu eru þessar: 1. Tekjuskattsviðauki og stríðs- gróðaskatlur falli inn í tekjuskatt- inn og hverfi þannig sem sérstak- ir skatlpós'ar. 2. Sparifé og vextir af því verði skatt- og útsvars-frj álst. 3. Umreikningur sá, sem gilt hefir við álagningu tekjuskatts, falli úr gildi. 4. Sérstakur skattstigi gildi fyr- ir hjón. 5. Sérstakur frádráttur verði gefinn við stofnun heimilis. 6. Börn innan 16 ára mega telja fram sem sjálfstæðir skattgreið- endur, hafi tekjur þeirra orðið (Framhald á 6. síðu.)

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.