Íslendingur - 31.03.1954, Page 4
4
i •'w;t1
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 31. marz 1954
—
Kemur út
hvorn miðvikud&a.
Útgefandi: Útgájujílag ítlendingi.
Ritstjóri og íbyrgðarmaður:
JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1
Sími 1375.
Skriístofa og afgreiðsla f Gránuíélagsgötu 4, ofmi 1354.
Skrifatofutimi:
KL 10—12, 1—3 og 4—6, á laugardögum aðeius 10—12.
PrtnumiBjm Björru Jánstonmr kj.
Nii er það af sem áður var
Samþykkt Félags íslenzkra s’údenta í Kaupmannahöfn um hand-
ritamálið, sem skýrt hefir verið frá í blöðurn undanfarið, hefir
mjög borið á góma manna á meðal hér heima'og vakið undrun.
Gengur samþykkt þessi út á það að setja ofan í við „Alþingi ís-
lendinga og ríkisstjórn“ fyrir að hafa vísað tillögum dönsku stjórn-
arinnar um lausn málsins svo skjótlega á bug ,,að lílt rannsökuðu
máli" eins og stúden’arnir orða það, og eins er lögð áherzla á, að
„hlutskipti“ íslenzkra fræða og Háskóla íslands hefði batnað til
stórra muna, ef tillögurnar hefðu náð fram að ganga.
Ályktun þessi bendir til þess, að íslenzkir stúdrntar í Kaupmanna-
höfn þekki lítið til þessa máls. Þeir telja, að Alþingi og ríkisstjórn
hefðu átt að velta tillögunum fyrir sér nokkurn tíma og rannsaka
þær betur. Tillögurnar voru ákveðnar, og álits ríkisstjórnarinnar
leitað um þær, og eftir að danskt blað hefir skýrt opinberlega frá
þeim, var ekki eftir neinu að bíða með að lýsa áliti rikisstjórnar-
innar á þeim. Hún átti ekki að þurfa langan tíma til að svara því,
hvort hún vildi að íslendingar og Danir ættu handrilin sameigin-
lega. Ríkisstjórn, sem sagt hefði já og amen vrð slíku tilboði, hefði
fljótt mátt fara að taka saman dótið sitt. Og það er furðulegt, að
jafn menntaðir menn og íslenzkir stúdentar skuli einblína á það,
að „hlutskipti íslenzkra fræða“ mundi batna frá þvi sem nú er við
heimflu’ning helmings handritanna, en loka augunum fyrir því, að
samþykkt dönsku tillagnanna af hálfu íslands þýddi endanlega
lausn málsins. Hún hefði þýtt það, að Alþingi og ríkisstjórn gœfi
að þjóðinni forspurði annarri þjóð, — að vísu skyldri og vin-
veittri, — helminginn af dýrmætasta menningararfi íslendinga.
Danir hafa á síðustu tímum vaknað til skilnings á gildi íslenzku
handritanna. Fræðimenn beirra hafa efnt til sýningar á þeim, án
þess að geta uppruna þeirra, en íalið þau dýrmætustu þjóðareign
Dana. íslendinga var að engu getið í því sambandi. Þessir fræði-
menn, sem telja handritin verðmætustu e.’gn dönsku þjóðarinnar,
hafa þó enn ekki beitt áhrifum sínum til að fá þessa dýrgripi
geymda á öruggum s’að, þar sem loku væri fyrir það skotið, að
eldtungur fengju öðru sinni að sleikja um þá.
Við vitum, að danskir háskólaprófessorar og ýmsir aðrir danskir
lærdómsmenn vilja halda handritunum fyrir okkur. En okkur kem-
ur mjög á óvart, að íslenzkir stúdentar í Höfn skuli ætlast til þess,
að við látum kröfur okkar um endurheimt fornritanna niður falla.
Það er af, sem áður var, er íslenzkir Hafnarslúden’ar stóðu fremst-
ir í flokki, þar sep íslendingar sóltu fram til aukinna réttina og
sjálfstæðis.
Ný skattalöggjöí í deiglunni
í síðustu viku Iagði ríkisstjórnin fram á Alþingi frumvarp til
laga um breytingu á lögum um íekju- og eignaskatt og annað um
breytingu á útsvarslögunum. Nái skattalagafrumvarpið fram að
ganga, eins og milliþinganefndin hefir frá því gengið, verður um
lækkun skatta að ræða hjá einstaklingum allt að 30% að meðaltali.
Ekki hefir verið gengið frá breytingum á skatts’iga félaga en til
bráðabirgða lagt til að reikna skatt þeirra út á sama hátt og áður,
en lækka hann súðan um 20 af hundraði.
Gert er ráð fyrir að útsvarslögin breytist í það horf, að ekki
megi leggja útsvar á sparifé eða vexti af því. — Einnig er
lagt til, að niðurjöfnunarnefndum sé gert skylt að „leggja fram
með útsvarsskrá skýrslu um þær reglur, sem hún hefir farið eftir
við álagningu útsvaranna, svo sundurliðaða og skilmerkilega, að
hver gjaldandi eigi að geta reiknað út útsvar sitt“. Einnig sé nefnd-
inni skylt að gefa hverjum gjaldanda, sem þess óskar, upplýsingar
um, hvernig á hann hefir verið lagt.
Þegar samningurinn var gerður um samstjórn núverandi stjórn-
arflokka lögðu Sjálfstæðismenn megin-áherzlu á, að endurskoðun
ska'talöggjafari.mar yrði lokið sem fyrst og frumvarp um breyting-
ar á skattalöggjöfinni lagðar fyrir Alþingi það, sem nú situr. En á
Alþingi 1952 fengu Sjálfstæðismenn samþykkta þingsályktunartil-
lögu um skipun milliþinganefndar til að endurskoða skattalöggjöf-
ina, og skipaði fjármálaráðherra nefnd þessa litlu síðar. Væntu
'Abstraktmálverk, atómljóð og
geðsjúklingalist. — Beztu kýrnar.
— Algengustu bœjanöfnin. —
Kvarlað undan of löngurn kajfi-
tíma.
FRÆG er sa"an af því, er sænskíi
stúdentarnir sálu við það eina nótt aö
rctja saman Ijóðabók með því að yfir-
fara gamlar ljúðabækur og notuðu
innihald þcirra til að raða saman nýj-
um ljóðum. Fengu þeir þenna „ljóða-
hræring" sinn út gefinn og vel greidd-
an, en ritdómarar blaða og tímarita
vegsömuðu verklð og hugðu nýja spá-
menn upp risna. Sjálfir komu höfund-
arnir upp um leyndarmáiið, cr þeim
blöskraði glámskyggni landa sinna.
ÞESSI SAGA rifjast alltaf upp fyr-
ir mér, er ég sé myndirnar í sunnan-
blöðunum af , málverkum" hinna yngri
„listamanna", því að það má telja
hreina tilviljun, ef skoðandinn sér ein-
hverja mynd á striganum. Mér er þó
ekki ljóst, hvort blöðin sjálf kosta gerð
myndamótanna og ráða valinu eða
„listamennirnir" rjálfir gera það. En
myndum þessum hcfir ^kunnur málari
af eldri skólanum lýst af stökum næm-
lcika í opinberu blaði nýlega á eftir-
farandi hátt:
„UNDANFAIIIN ÁR, og þá einkum
á haustin .... hafa menn nokkrum
sinnum getað séð í dagblöðunum
myndir af ungum rnönnum, sem hafa
„stlllt sér upp“ framan við ferhyrnda
fleti, hlutaða sundur í misjafnlega
dökkar og ljósai spildur, rétthvrndar,
skakkhyrndar, aflangar, oddhvassar
eða hlykkjóttar og e. t. v. aðgreindar
með ljó ari eða dekkri rákum. Stund-
um hafa þessir ferhyrndu fletir verið í
römmum. — Þegar mönnum hefir orð-
ið Ltið á þessar myndir blaðanna, hef-
ir þeim dottið í hug annað tveggja, —
að mönnum þessum hafi verið úthlutað
byggingalóðum af bæjaryfirvöldunum,
og að hér gæti að l.’ta hinar óbyggðu
lóðir þessara ungu manna, ásamt skik-
um nágrannanna, — ellcgar, að menn
þessir hafa vcrið ráðnir hjá kortagerð
hins opinbera, eða lóðaskrárritara, eða
bæjarverkfræðingi. Menn hafa þó
undrast, hve f.ágangur allur hefir ver-
ið hirðuleysislegur og 'miklum mun
viðvaningslegri og hroðvirknislegri
heldur en hjá þecsum virðulegu starfs-
mönnum Reykjavíkurbæjar."
í ÖÐRU BLAÐI (Norðurljósinu) er
nýlega skýrt írá merkilegum tilraunum
tii að kanna „skilning" listdómara á
verkum hinna nýiri listmálara, — sem
virðast mála eftir líkum lögmálum og
flórkýrin slettir hala sínum, — og ljóð-
um Æru-Tobba nútímans. Er frásögn
blaðsins á þessa leið:
„Eftlr því sem stórblað.ð „New York
Times" liermir, hefir sálfræðideild há-
rkólans í Vín gert mjög athygl.sverða
rannsókn. Prófessorarnir tóku fimmtán
málverk eftir núlíðar „surrealist" mái-
ara og fimmtárt myndir, sem geðbilað-
ir menn í geðveikrahælum höfðu reynt
að mála, hver eflir sínu liöfði. „Sur-
realisl" málarar eru þeir, sem þykjast
mála eftlr því, sem liinn innri maður
segir þcim til, eftir því sem þeir þykj-
ast sjá, eða þeim dettur í hug. Þannig
kemur það fyrir hjá þeim, til dæmis,
að mynd af mannsandliti er lireinasta
skrípamynd. Ef þeim dettur í liug að
cetja annað augað í munnvikið, þá
gera þeir það, og eyrað getur verið .á
enninu, eða það kemur í staðinn fyrir
auga.-------Sáltiæðingar þessir i Vín-
arháskóla fengu 158 listdómara til að
athuga þessar 30 myndir, og þeir áttu
að segja, hvaða myndir væru eftir
fræga ,.listmálara“ og hverjar væru efl-
ir vitfirringa. Þeir gerðu hið bezta, sem
þeir gátu, en þeim tókst ekki betur en
svo, að þeim skiátlaðist um 50%! —
— Þá gerðu sálfræðingar þessir enn
tilraun. Þeir lögðu fram tíu kvæði.
Fimm voru efti: viðurkennd nútíðar-
skáld, þrjú voru eftir vilfi.ringa, en tvö
voru lausar setningar og orðtæki, grip-
in úr lausu lofti án samhengis. Nú létu
þeir dómarana rcyna sig. Þeir áltu að
finna kvæðin, sem „skáldin" höfðu
ort. En þeim tókst það ekki, þeim
skjátlaðist líka um 50%! — — Dr.
Ileinrich, sem stjórnaði þcssum rann-
sóknum, sýndi við annað tækifæri sex
„surrealist" myndir með Lkuggamynda-
vél og bað áhorfendur að geta sér til,
hvað myndirnar áttu að tákna. „Mál-
ararnir" höfðu gef.ð upp, um hvað
myndirnar væru, að þeirra dómi. En
útkoman varð sú, að tvcir aj hundraði
gátu hitt á það, sem „málarinn" vildi
gefa til kynna með mynd sinni!“
í BÚNAÐAitBLAÐlNU „FREY“,
marz-hefti þ. á. ei ský.sla um nythæstu
og afurðabeztu kýr nautgriparæktarfé-
laganna á árunum 1950—52. Eru þar
birt nöfn og foreldranöfn nokkurra ó-
venjulegra kostagripa, sem slegið hafa
Islandsmet í nythæð, fitumagni og fitu-
einingamagni á hverju nefndra ára. Af-
urðamesta kýrin á þessum árum var
Gráskinna Ræktunarfélags Norður-
lands, sem árið 1950 gaf af sér 27787
fitueiningar. Margar kýr voru nyt-
hærri, en meðalfita mjólkurinnar var
5.74, og er þessi Gráskinna „íslands-
meistari" í tveim greinum það ár: Fitu-
magni og fitueiningamagni. Methafi í
nythæð er liins vegar Gyðja Eiðs Jóns-
sonar bónda á Grýtu í Eyjafirði.
Mjólkaði hún 6083 kg. árið 1952, og
geta Eyfirðingar verið stoltir af þess-
um kostagripum sínum, sem vel mundu
sóma sér í keppni á alþjóðavettvangi,
ég tala nú ekki um, ef árið 1949 væri
tckið með, er Ljómalind á Skarði
mjólkaði 6297 kg. — Sunnlendingar
eiga hins vegar kúna, sem hæst meðal-
tal hefir í fitueiningum frá fyrsta burð-
ardegi til ársloka 1952. Er það Skjalda
nokkur i Iljálmholti með meðaltalið
22403 fitueiningar.
NÝLEGA HEYRÐI ÉG tvo menn
ve'ra að ræða um, hvaða bæjanöfn
mundu vera algengust á íslandi, og
vildi hvorugur slá neinu föstu þar um.
Va:ð þetta umtal þeirra til þess, að ég
fékk mér að láni „Bæjatal á íslandi
1951“, og gerði lauslega athugun á
þessu vandamáli. Komst ég þar að
þeirri niðurstöðu. að Grund væri al-
gcngasta bæjanafnið, og hétu ekki
færri en 46 bæir og býli á landinu því
nafni. Næstur er Hvnmmur (41), þá
IIóll (38), Bakk! (36), Brekka og Hlíð
(34), Tunga (3?) og Ás — Ásar (30).
26 bæir lieita Ilof og jafnmargir Holt
en 23 G:öf. Eftirtalin bæjanöfn finnast
hvert um sig a 15—20 slöðum: Mið-
hús, Reykir (19). Borg, Fell, Garður,
Hraun, Þverá (18), Bjarg, Hólar, Ós
(17), Höfði Nýjabær (og Nýlbær),
Skarð, Sólbakki. Vík (16), Foss, Nes,
Vellir (15). Þá eru 14 Skógar og Upp-
salir, 13 Ártún. og meðal bæjanafna,
sem finnast á 10—14 stöðum eru
Breiðabólsstaður, Skeggjastaðir, Vatns-
endi og Sunnuhvoll. Ketilsstaðir finn-
ast á 8 stöðum, Hrafnabjörg á 7 stöð-
um (en aðeins 1 Ilrafnagil). Þorvalds-
staðir eru 6 og Vinaminni 5. Og nöfn
eins og Kjaransstaðir, Klúka, Sjólyst
og Vorsabær finnast hvert um sig á 4
stöðum. Og ekki finnast nema á einum
stað þessi nöfn: Bláfeldur, Butra, Býla,
Feilsdalur, Ilokinsdalur, Gaul, Kjapp-
eyri, Kluftir, Kurfur, Kúskerpi, Kvern-
grjót, Skjálg, Strýta, Pula og Purku-
gerði, Brakandi og Grýta. Roðgúll er
nú horfinn úr bæjatalinu og fleiri ó-
nefni bæja, en í staðinn komin fork-
unnar fögur nöfn úr Eddu. Og sjálf-
SjálfstæSismenn þess, að nefndin hefði lokiS s’.örfum fyrir siSasta
Alþingi, en svo varS ekki. Nú, þegar nefndin hefir loks lokiS starfi
sínu og ríkisstjórnin lagt fram tillögur hennhr á A.lþingi í frum-
varpsformi, reynir Tíminn aS telja lesendum sínum trú um, aS
fjármálaráðherra og Framsókn hafi beilt sér fyrir endurskoðun
skattalaganna, með því að benda á, að fjármálaráðherra hafi skip-
að milliþinganefndina og flokksþing Framsóknar á síðastliðnu
vori hafi samþykkt að vinna að ska'talækkun! Við þelta er þó það
að athuga, að fjármálaráðherra hefði enga nefnd skipað, ef Sjálf-
stæðismenn hefðu ekki komið tillögunni um skipun hennar gegn-
um þingiö, og flokksþingið samþykkir að beha sér fyrir skatta-
lækkun, þegar nefndin var langt komin endurskoðuninni, sem rniða
átti að skatlalækkun og Sjálfstæðismenn höfðu knúið fram. Er
þarna einkar augljóst dæmi um málsmeöferö Tírnans, þegar hann
er að t.'na sér skraulfjaÖf'ir á Framsóknarflokkir.n í landareign ann-
arra flokka.
Á öðrum stað í blaðinu í dag er nánar skýrt írá helztu breyting-
unum, sem nýja skaltalagafrumvarpið gerir ráð fyrir.
cagt munu
Býla, Kurfur, Kúskerpi,
Kverngrjót, Pula, Strýta,
Butra, Kluftir, Brakandi,
Bláfeldur og Grýta
einnig taka sér önnur nöfn, áður en
lýkur, nema e. t. v. hið síðasttalda
vegna sögulegra minninga, sem nafn-
inu cru tengdar.
„TÍMABUNDLNN" skrijar mér eft-
irjarandi: „Ég er einn þeirra tiltölu-
lega mörgu manna, sem fer stundum
inn á Hótel KEA á fjórða límanum
um daginn til að fá mér kaffisopa. En
fyrir nokkrum dögum varð ég að fara
Framhald á 7. síðu.