Íslendingur - 31.03.1954, Page 6
6
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 31. marz 1954
Sfór verkstæðisbraggi
ó Gleróreyrum
er ril sölu.
Semja ber við undirritaðan.
Gunnar H. Kristjánsson
Traktorl & B
\m
V. 4. í bezta lagi,
til sölu.
Yfirsængurdúnn
Hólfdúnn
Dúnhelt léreft
margir litir
Fiðurhelt léreft
hvitt og rautt.
Verzlun
Eyjaf jörður li.f.
Upplýsingar gefur
Gunnar H. Kristjánsson
Nkattalagfíi'
fruinvsirpið
Framhald aj 1. síðu.
meiri en persónufrádrœtli þeirra
nemur.
7. Jarðræktarstyrkur sé ekki
skattlagður.
8. Sjómenn á fiskiskipum fái
sérstakan frádrátt vegna hlífðar-
fatakaupa og fæðiskos’.naðar og
leigjendur, er búa við óeðlilega
háa húsaleigu fái frádrátt eftir
nánar ákveðnum reglum.
9. Frádráttur frá hreinum tekj •
um, áður en ska'.tur er á lagður,
hækki frá því sem verið hefir og
verði:
Fyrir einstakling kr. 6500.00
Fyrir hjón kr. 12000.00
Fyrir hvert barn kr. 4500.00
Skattstiginn.
Skattgjald einstaklinga verður
samkvæmt fruinvarpinu:
Ef skattskvidar tekjur qru und-
ir 1000 kr., greiðist enginn skalt-
ur.’ Af 1—2 þús. kr. greiðist 1%.
Af 2— 5 þús. kr. greiðisl 10 kr. af 2 þús. og 2% af afg.
— 5— 9 — — — 70 5 3%
— 9— -20 — 190 9 4%
— 20— 30 — 630 20 6%
— 30- 40 — 1230 30 10%
— 40— 50 — — — 2230 40 15%
— 50- 60 — 3730 50 20%
— 60— 70 — 5730 60 25%
— 70— 100 — 8230 70 30%
— 100— 130 — 17230 100 35%
— 130 þús. og vfir — 27730 130 40%
Hjónaskaftur. hjá hjónum, sem hafa háar tekj
Mjög hefir verið um það rætt,
að hjón, sem bæði vinna fyrir
góðu kaupi utan heimilis, yrðu
hart úti með skattgreiðslur, þar
sem tekjur þeirra hafa verið lagð-
ar saman og skattlagðar sameig-
inlega eins og um einstakling
væri að ræða. Þess vegna er nú
gert ráð fyrir sérstökum ska’.t-
stiga fyrir hjón. Um þetta segir
svo í athugasemdum um frum-
varpið:
Á það hefir verið bent og að
því fundið, að vegna samsköttun-
arinnar og stighækkunar tekju-
skattanna borgi hjón hærri skatta
en tveir einhleypir menn með
samanlagt jaínmiklar tekjur. f
því skyni að breyta þessu hafa
verið bornar íram tillögur um að
heimila giftum konum að telja
fram til sérstakrar skaltálagning-
ar þær tekj ur. sem þær vinna fyr-
ir utan heimilis. Sá galli fylgir
þessari aðferð, að þá yrðu léttari
skattgreiðslur hjá þeim konum,
sem vinna ^fyrir tekjum utan
heimilis, en hjá hinum, sem vinna
að öflun tekna innan heimila
sinna. Tvö heimili með jafnmikl-
ar tekjur og sömu fjölskyldustærð
mundu þá t. d. greiða mismun-
andi mikla skalta, ef bæði maður-
inn og konan ynnu í annarra
þjónustu fyrir skattskyldum tekj-
um á öðru heimilinu, en aðeins
annað þeirra á hinu. Þessi aðferð
mundi þannig hafa í för með sér
ósamræmi og misrétti.
Þá hafa eirmig komið fram til-
lögur urn að skipta tekjum hjóna
að jöfnu og reikna skatt af þeim
í tvennu lagi. Sú aðferð mundi
valda mjög mikilli skattalækkun
ur. Þá skattalækkun væri ekki
hægt að vinna upp með breytingu
á skattstiganum, þar sem ska’.tar
hjá einhleypu fólki yrðu þá óeðli-
lega háir, enda verður ekki talið
sanngjarnt, að einhleypingar
borgi hlulfallslega jafnmikið og
hjón, sem haía helmingi hærri
tekjur. Þessi leið, að skipta tekj-
um allra hjóna í tvo hluta og
reikna skatt þeirra sem tveggja
einstaklinga, þykir þess vegna
ekki fær.
Hins vegar liggur Ijóst fyrir,
að skattgreiðslur hjóna eru nú of
háar í samanburði við skatt-
greiðslur einhleypra.
Stungið hefir verið upp á því
að skipla tekjum hjóna upp að
vissu marki og reikna skatt af
þeim í tvennu lagi, en á saman-
lagðar tekjur hjóna þar fram yfir
yrði lagður jafn hár skattur og á
tekjur einstaklinga. Tekjumarkið,
sem skiptingin miðaðist við, yrði
t. d. sett nokkru hærra en sem
nemur meðallekjum hjóna og
tæki breytingum í samræmi við
vísitölubreytingar.
Að athuguðu máli hefir sú nið-
urstaða orðið að leggja hér til, að
lögleiddur verði sérstakur skatt-
stigi, er farið verði eftir við út-
reikning á skatti af tekjum hjóna,
og er það nýmæli. Eftir þessum
skattstiga borga hjón lægri skatt
en einstaklingur af allt að 45 þús.
kr. skattskyldum tekjum, en það
samsvarar 66 þús. kr. nettótekjum
hjá hjónum með tvö börn á fram-
færi.
Dæmi um skattalækkun hjóna
frá núgildandi reglum.
1. Ómagalaus hjón:
Skattur af 20 þús. kr. nettó-
tekjum lækkar um 39%.
Skattur aí 25—70 þús. kr.
nettótekjum lækkar um 20—
28%.
2. Hjón með tvö börn á fram-
íæri:
Ska'.tur af 40—60 þús. kr.
nettótekjum lækkar um 31—
37%.
Skaltur af lægri tekjum
lækkar hlutfallslega meira.
Orðið hjón í frumvarpi þessu
merkir að ájálfsögðu eingöngu
giftar persónur.
Ýms nýmæli
í réttlætisótt.
Um aðrar breytingar og ný-
mæli í frumvarpinu segir svo í
athugasemdum:
Ýmis nýmæli og tillögur um
breytingar á tldri ákvæðum eru í
frumvárpinu, er miða að því að
létta ska’.tabyrðar og koma á betra
samræmi í skattálagningu. Má
þar til nefna: hækkun á persónu-
frádrætti, sérstakan skattstiga að
því er snertir tekjur hjóna, nokk-
urn frádrátt hjá fjölskyldum, sem
gjalda háa húsaleigu, aukinn frá-
drátt vegna keyptrar heimilisað-
stoðar, frádrátt vegna kostnaðar
við stofnun heimilis, frádrátt
vegna sérstaks hlífðarfatakostnað-
ar og fæðiskostnaðar fiskimanna,
frádrátt vegna kostnaðar við
lengri ferðir til atvinnusóknar,
undanþága fiá skattgreiðslu af
framlagi ríkisins vegna jarðrækt-
arlaga, aukningu heimildar til
frádráttar iðgjalds til lífeyris-
trygglngar og lífsábyrgðar. Loks
má nefna skattfrelsi sparifjár,
sem er algjör nýlunda hérlendis.
Verður nánar vikið að hverju
þessu atriði síðar.
Skattstofan í Reykjavík hefir
gert áætlun um það, hvaða áhrif
þær tillögur, sem frumvarpið fel-
ur í sér, muni, ef að lögum verða,
hafa á heildarútkomu skattanna.
Örðugt er vitanlega að segja um
þessi áhrif öiugglega, þar sem
* suma liðina tr torvelt að áætla.
En skat'stofan telur, að lil jafn-
' aðar verði lækkunin 29%, að því
er skatta af tekjum snertir, hjá
persónulegum skattgreiðendum.
Þeir, sem þessarar lækkunar
njóta, eru fyist og fremst fjöl-
skyldufólk, og því meiri lækkun-
ar sem ómagar eru fleiri, hjón,
sem stofna beimili, fiskimenn,
fólk, sem þarf að leita atvinnu
lengra til, þeir, sem verja nokkru
af tekjum sínum til þess að
tryggja sér eða sínum lífeyri, og
fólk, sem með sparnaði leggur til
fé handa bönkum og spaíisjóðum
í úllán.
Hér er ekki rúm að sinni að
fara nánar út í að rekja.frum-
ALF ERLING — 24
Bræður myrkursins
Eftir lát mannsins hafði frú von Emden flutt allar eignir sínar
með sér frá Berlín til Pétursborgar, en húsmunir hennar voru mjög
margir og vandaðir. Hún hafði komið þeim fyrir í mörgum her-
bergjum, en auðvitað stóðu líka mörg auð. Ei. það kom ekki að
sök. Hún kaus það miklu fremur en að þurfa að búa í nábýli við
annað fólk.
Já, að öllu þessu athuguðu var enginn vafi á því, að frú von Em-
den var einstakur sérvitringur, þótt hún, eftir því sem dyravörður-
inn sagði, væri bæði ung og fögur.
„Sjakalinn varð auðvitað að vita full deili á húsinu við Neva-
götu 11, og þegar hann heimsótti dyravörðinn kvöldið eftir atburð-
inn í kjallaranum hjá Föður Hep, varð hann mjög hissa á því, hve
auðvelt var að fá þær upplýsingar, sem hann bjóst við að þurfa ið
hafa mikið fyrir. Dyravörðurinn gaf honum greið svör við öllum
spurningum, meira að segja virlist Cerberus gamli gangast upp við
því að vera spurður. Hann bauð „Sjakalnum“ inn í herbergi sitt og
leysti þar frá skjóðunni um frú von Emden.
Hann átti ekki nægileg lofsyrði um hana í fórum sínum.
— Getur maður ekki fengið að sjá íbúð frúarinnar? spurði Ivan
Disna, en þessi nærgöngula spurning virtist gamla, málgefna dyra-
verðinum á engan hátt furðuleg, sennilega af þeirri ástæðu, að
gamli maðurinn var einn af þeim, sem hefir yndi af að heyra sjálfan
sig tala.
— Sjálfur vildi ég gjarna sjá hana, svaraði hann. — Ég hef
aldrei farið þangað upp, og ég tala aldrei við frúna. Á hverjum
morgni sendir hún herbergisþernuna niður til mín, ef hún þarf að
blðja mig einhvers. Nei, hún er afar kynleg. Ég hef aðeins einu
sinni talað við hana, — það var þegar hún fékk nýja arininn í her-
bergið hérna uppi yfir mínu. Hm! — Já, írúin er sérleg. Hún er
merkileg kona. Hugsið yður, hún vildi hvað sem tautaði fá arin í
herbergið, þótt hún gangi aldrei um það.
Ivan Disna hlýddi með mestu eftirtekt á mál gamla, skrafhreifa
dyravarðarins.
— Og þér haldið, að ógjörlegt sé að fá viðtal við frúna? spurði
hann og laumaði rúblu í lófa gamla mannsins.
— Gjörsamlega, svaraði dyravörðurinn. — Frúin tekur alls ekki
á móti neinum. Fortakslaust engum. Hún hatar mennina og fer
hvorki út né tekur á móti nokkurri manneskju.
— Það er einkennilegt, sagði Ivan Disna, — ég fór nefnilega
hérna yfir götuna í nótt og sá frú v. Emden koma hingað akandi og
fara inn í íbúðina.
— Þekkið þér þá frúna?
— Nei, en ég þykist vita, að það hafi verið hún, sem ég sá, svar-
aði Sjakalinn.
Dyravörðurinn hristi höfuðið.
— Þar hefir yður skjátlast, sagði hann. — Það hefir sjálfsagt
verið Rut heibergisþerna. Hún hefir frí einu sinni í viku og fer þá
alltaf til fjölskyidu sinnar, sem býr hérna fyrir utan borgina.
— En konan var mjög vel klædd, sagði Sjakalinn. — Hún var
dökkklædd, í dvrri loðkápu og bar marga skartgripi.
— Það hefir verið Rut, sem þér hafið séð, endurtók dyravörður-
inn. — Það hef ir verið Rut.
— Það er ómögulegt. Rut getur ekki haft efni á að ganga þannig
klædd, sagði Sjakalinn og fannst jörðin vera farin að rugga undir
honum.
Dyravörðurinn hló.
— Nei, Rut hefir vissulega ekki efni á að ganga í loðkápu og
hlaða á sig gimsteinum, sagði hann. — En yður að segja hef ég
tekið eftir því, að Rut veigrar sér ekki við að nota klæðnað frúar-
innar, skar'gripi og fleira á frídögum sínum. Frúin notar þetta
nefnilega aldrei sjálf. Rut er skollans skepna, sem er í alls konar
karlmannsstússi.
— Og þér hafið ekki vakið eftirtekt frú von Emden á þessu?
spurði Ivan Disna og leit rannsakandi augum á hann.
Dyravörðurinn yppti öxlum.
— Rut hefir ekki lílið að segja, og ég er hræddur um, að ef ég
segði eltthvað um Rut við frúna, þá mundi Rut sjá um að ég missti
stöðu mina.
Ivan Disna lofaði dyraverðinum að láta móðan mása. Það voru
sem sé mikil líkindi til, að kona-sú, sem hafði leitað hælis í kjallar-
anum hjá Föður Hep, væri ekki frú von Emden, heldur herbergis-
þerna hennar.
Sem snöggvast flaug honum í hug, hvort hann ætti að fara á fund
Sarkas fursta og ráðfæra sig við hann, en vék þeirri hugsun frá
sér. Hann vildi vinna upp á eigin spýtur og var hræddur um, að
hugsanlegar fyrirskipanir furstans mundu færa hann fjær því spori,
er hann hafði fundið.
varpið eða greinargerð þess, en
þess má að lokum geta, að gengið
er út frá að skattur álagður í vet- gjöf, er Alþingi afgreiðir nú.
ur af tekjum ársins 1953 verði
reiknaður eftir þeirri skattalög-