Íslendingur - 23.06.1954, Page 2
2
ÍSLENDTNGUR
Miðvikudagur 23. júní 1954
af forsjálni og fyrirhyggju til
þeirra stofnað. Þólti og ferða-
mönnum, sem oft slógust í íör
með landpóstunum milli íjarlægra
héraða í misjöfnum veðrum, ör-
uggt að koma fram ferðinni í
fylgd með þeim.
Árið 1909 gekk Sigurjón að
eiga eftirlifandi konu sína, Guð-
rúnu JóhannsdóÞur frá Víðivöll-
um í Fnjóskadal, hinni mætustu
gáfukonu, sem þegar er þjóðkunn
af skrifum hennar í hlöð og ííma-
rit um margvísleg efni. Hófu þau
skömmu síðar húskap á Ásláks-
stöðum í Kræklingahlíð og
bjuggu þar myndarbúi fram yfir
1930, er þau fluttust til Akureyr-
ar. Komust þau í all-góð efni á
þessum árum. Þau voru bæði
dýravinir og gerðu því vel við
búpening sinn. sem hefir í staðinn
reynst þeim arðsamur og nytja-
drjúgur. Einkum þó'.ti þeim hjón-
um vænt um hestana sína, og
hefir frú Guðrún skrifað um þá
marga söguna í „Dýraverndar-
ann“, er allar lýsa ást og hugar-
hlýju íil málleysingjanna.
Eftir að Sigurjón hætti póst-
ferðum, vann hann mikið að
sveitarmálum í Glæsibæjarhreppi,
var m. a. í hreppsnefnd og skatta-
nefnd. Þótti hann jafnan tillögu-
góður og traustur í störfum. Var
oft þröngt í búi á þeim árum hjá
Glæsibæjarhreppi, og kom þá
fyrir, að Sigurjón hlypi sjálfur
undir bagga.
Sigurjón ialaði ágæta cnsku og
var um margra ára skeið leiðsögu
maður erlendra ferðamanna,
kvenna og karla. Var margt þetta
fólk hámenntað og þekkt vegna
andlegra afreka um flest Evrópu-
lönd og víðar. Sumt af þessu íólki
batt ævilanga iryggð við hjónin
á Áslákss'öðum og átti við þau
bréfaviðskipti.
Þegar Sigurjón var áttræður,
var hann sæmdur riddarakrossi
Fálkaorðunnar.
Þótt lífsbaráttan væri íslenzkri
þjóð erfið og hörð á síðari árum
19. aldar og fram ef'ir hinni tutt-
ugustu munu fáar stéttir hafa
fengið harðari reynslu af vosi,
kulda og erfiði en landpóstarnir á
vetrarferðum þeirra. Má því af
líkum ráða, að Sigurjón póstur
hafi tiltölulega snemma farið að
kenna þreytu eftir erfið ferðalög,
og þvi ekki óeðlilegt, að hann
hyrfi frá búsumstangi, er hann
var kominn á sjötugsaldur. En á-
hugi hans og andlegt þrek var ó-
bilað miklu lengur. Hann mal
æt.'ð mikils karlmennsku og hetju-
lund og hófsama lifnaðarhætti og
hélt órofa tryggð við hinar
„fornu dyggðir“. Ævikvöld hans
var bjart og friðsælt við hlið góðs
lífsförunautar á vel búnu og kyrr-
látu heimili.
Þau hjón áttu ekki börn caman
en ólu upp fósturson, Vigni Guð-
mundsson íollvörð.
Með Sigurjóni pósti er horfinn
af svið.'nu einn af hinum traustu
kjörviðum elari kynslóðarinnar,
sem nú fer mjög fækkandi.
Milcid cjni bíður næsta blaðs vegna
þrengsla
Stjórn Eimskips
eðo smlði
htimiíuð kaup
Iji skípo
Bxiittótekjur urðu um 80 millj. kr.
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags
íslands var haldinn laugardaginn
12. þ. m.
Formaður félagsstjórnarinnar,
Einar B. Guðmundsson hrl.,
minntist þeirra Ásmundar P. Jó-
hannssonar í Winnipeg og Hall-
gríms Benediktssonat formanns
félagsstjórnarinnar, sem látizt
liafa frá því síðasti aðalfundur
var haldinn. Risu fundarmenn úr
sætum í þakklætis- og virðingar-
skyni við þessa menn.
Formaður félagsstjórnarinnar
lagði því næst fram skýrslur
stjórnarinnar um starfsemi félags-
ins á s.l. ári og gjaldkeri félags-
stjórnarinnar, Birgir Kjaran hag-
fræðingur, las upp reikninga fé-
lagsins. Þar segir m.a., að netto
tekjur leiguskipa á árinu hafi
numið 326.273.42 kr. — Reks'ur
eigin skipa: Brutto tekjur skip-
anna nema kr. 79.244,512.78, en
brutto útgjöld kr. 70.162.702,27,
netto tekjur nema þá kr. 9.081,-
810.51.
Eignir félagsins eru kr. 108,-
375.969.42, en eignir umfram
skuldir eru kr. 66.256.620.70.
Reikningarnir og skipling árs-
arðsins var samþykkt.
Þá hófust kosningar í stjórn íé-
lagsins í s‘að þeirra, sem úr
gengu. í stað Hallgríms Bene-
diktssonar var kosinn til eins árs,
Bjarni Benediktsson, dómsmála-
ráðherra.
í stjórnina var kosinn sam-
kvæmt íilnefningu vestur-íslenzkra
hluthafa E. Grettir Eggertsson, cn
af hluthöfum búse'.tum hér voru
Einar B. Guðmundsson, Birgir
Kjaran og Richard Thors kosnir.
Þá hófust umræður og at-
kvæðagreiðslur um ýmis mál. Fé-
lagsstjórnin bar fram íillögur um
að fundurinn veitti henni heimild
til að kaupa eða láta smíða 3
millilandaskip, og að selja þau
skip, sem hún telur rétt að selja.
Samþykkt var breylingarlillaga á
reglugerð eftirlaunasjóðs og er
aldurstakmark þeirra manna og
kvenna, sem vinna á skipum og
eru í þjónustu. félagsins hækkað
um 5 ár eða í 65 ár.
Fundurinn samþykkti tillögu
frá Sveini Benediktssyni, útgerð-
armanni, sem var á þessa leið:
„Aðalfundur H.f. Eimskipafé-
lags íslands, haldinn 12. júní
1954 endurnýjar samþykkt þá, er
gerð var á aðalfundi félagsins 6.
júní 1953, þannig að stjórn fé-
lagsins sé he.'milt að innkalla öll
hlulabréf í félaginu og hluthafar
fái þá ný hlu’abréf sem verði að
fjárhæð tífalt núgildandi nafn-
verð bréfanna. Breytast þá sam-
þykktir félagsins sem hér segir.“
Þá samþykkti fundurinn að
minnast 40 ára afmælis síns með
því að verja 50 þús. krónum lil
menningar- og mannúðarmála,
eftir nánari ákvörðun við félags-
stjórnina. Ýmis fleiri mál voru
rædd og samþykkt.
Garðyrkjuráðunautur tilkynnir
Þar sem nú er farið að bera talsvert á arfa í kartöflugörð-
um þeim, sem bærinn leigir bæjarbúum, eru garðleigjendur
stranglega áminntir um, að hreinsa allt illgresi úr görðum
s'num nú þegar, því að annars verður það gert á kos'.nað
leigjenda. Ennfremur missir garðhafi rétt á garðlandi hjá
bænum framvegis.
Garðyrkjuráðunautur.
Happdrætti
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.
Sala miða er í fullum gangi. Miðar eru seldir í Bókaverzl-
un Axels og Útgerðarfélagi Akureyringa h.f. Dregið verður
3. júlí. Verið með frá byrjun.
Umboðsmaður.
ÁVEXTIR, niðursoðnir:
Ananas
Plómur
Apríkósur
Ferskjur
Perur
Jarðarber
Kirsuber
120 sýnisreilir
Fréttatilkynning frá
Búnaðarfélagi íslands
í maímánuði dreifðu ráðunaut-
ar Búnaðarfræðslu Búnaðarfélags
Islands áburði á sýnisreiti á
starfssvæðinu frá Austur-Skafta-
fellssýslu að Strandasýslu, að
báðum meðtöldum, en sýnisreit-
irnir eru samtals 120.
Nokkrar tafir urðu við dreif-
inguna sökum óhagstæðrar veðr-
áttu fyrri hluta maímánaðar.
Þess vegna varð að fá héraðs-
ráðunauta til aðstoðar við dreif-
ingu svo að lokið yrði í tæka tíð,
en grasvöxtur var svo ör síðari
hluta maí, að á ýmsum s'.öðum
mátti ekki verða dráttur á dreif-
ingu eftir að áburðurinn barst á
staðinn.
Hin hagstæða veðrátta gerði
það að verkum, að sláttur hlaut
að hefjast snemma. Varð því að-
eins nokkurra daga hlé frá því
dreifingu áburðar var lokið, unz
sláttur hófst í fyrstu reitunum,
en það var 10. júní.
Búizt er við, að Ijúka þurfi
slætti og uppskerumællngu á öll-
um sýnisreitum fyrir 1. júlí. Þess'
vegna eru ráðstafanir gerðar til
þess að fá héraðsráðunauta sendi-
áðunautunum til aðstoðar í
þessu starfi.
í samráði við formenn búnað-
arfélaga sveitanna er ráð fyrir
gert að boða til funda samtímis
og hver reitur er sleginn og upp-
skera vegin.
Við þetta tækifæri er íilefni
gott að ræða um áhrif mismun-
andi áburðarmagns á grasvöxt-
inn, um ræktunaraðferðir og
ræktunarástand, landþurrkun,
einkennisjurtir eftir rakastigi
landsins, illgresi, grasfræ, beit og
beitarskilyrði og annað, sem
tilheyrir framleiðslu fóðurs og
björgun þess.
Þess er vænzt, að bændur og
aðrir í hverri sveit, verji dagstund
til að ræða þessi mál um leið og
ráðunautarnir koma á hvern s’að
þar sem sýnisreitirnir eru. Til
þess að bændur eyði ekki óþarf-
lega miklum tíma til að mætast
og ræða þessi mál, eru það til-
mæli Búnaðarfræðslunnar, að
búnaðarfélagsformaður hverrar
sveitar tilkynni bændum, svo ná-
kvæmt sem unnt er, hvenær ráðu-
nauturinn verði að verki og til
fundar er efnt á hverjum s'.að.
Auglýsið í íslendingi
D
Perlon - sokkarnir
fást nú aftur.
D
Margar tegundir af
golftreyjmn
Nýjar gerðir.
D
Nylon-blússur
margar gerðir.
D
Telpu sundbolir
Drengja sund-
skýlur
Verzlunin Drífa
Sími 1521.
Amerískar
SUNDSKÝLUR
teygjusatín,
fyrir herra, nýkomnar.
Tjöld
2ja og 4ra manna
Bakpokar
3 gerðir
Svenfpokar
Brynj. Sveinsson b.f.
Áttrceð d morgun
Frú Jóhanna Jónsdóttir, Siglu-
firði, ekkja Stefáns Ó. Sigurðs-
sonar kaupmanns, á 80 ára af-
mæli á morgun. Hún fæddist að
Hofi í Vopnafirði 24. júní 1874,
en foreldrar hennar voru Jón
Jónsson pófastur og kona hans
Þuríður Kjartansdóttir. Heimili
prófasthjónanna var mesta menn-
ingarsetur héraðsins, og hafa
börnin, sem ólust þar upp, borið
svip þess, hvert sem leiðin hefir
legið.
Frú Jóhanna giftist ung Stefáni
Ó. Sigurðssyni, er lengi rak verzl-
un hér á Akureyri, en fyrir 20
árum síðan fluttust þau hjón til
Siglufjarðar, og þar lézt Stefán
fyrir 13 árum síðan.
Meðan þau hjón dvöldu hér á
Akureyri var frú Jóhanna ein af
driffjöðrunum í Kvenfélaginu
Framtíðin. Var hún lengi í stjórn
þess og vann þar mikið og gott
starf. Á hún hér í bænum margt
vina og kunningja frá þeim ár-
um, er hugsa til hennar á morg-
un.
Dýraverndunarjélagið á Akureyri
beinir þeim tilmælum til útgerðarmanna
og sjómanna, sem nú búa skip til síld-
veiða í Akureyrarhöfn að dæla ekki
úrgangsolíu í sjóinn vegna fuglalífsins
á Pollinum. Er nú með mesta móti af
æðarfugli hér um slóðir, en víða hefir
heyrst um sorgleg afdrif hans og ann-
arra sjófugla af völdum olíu, Eem flot-
ið liefir á sjávarborði.
Fyrir dömur:
Fleyghælaskór
í mörgum litum.
Skóverzlun
M. H. Lyngdal & Co
Skipagötu 1.
KAUPIÐ NESTIÐ
þar sem úrvalið er mest.
Nýi, ýölaturtu/w fy
HAFNARSTRÆT! /00 SIMI U70