Íslendingur


Íslendingur - 23.06.1954, Blaðsíða 8

Íslendingur - 23.06.1954, Blaðsíða 8
Kirkjan. MessaS á Akureyri n. k. sunnudag kl. 2. □ Rún — 5954247 — Jónsm:. Rós:. Aðalfundur Akureyrardeildar Rækt- unarfélags Norðurlands verður að Hót- cl KEA í kvöld og liefst kl. 9. Kosnir verða fulltrúar á aðalfund Ræktunar- félag ins, sem verður á Akureyri laug- ardaginn 26. þ. m. Hjálprœðisherinn. Sunnudag 27. júní kl. 4 úlisamkoma; kl. 8.30 opinber samkoma. Verið velkomin. Slysavarnajclagskonur á Akureyri. Farin verður skemmtiferð í Vaglaskóg með Akraneskonum á laugardag'nn kl. 1.30 e.h. O.lum konum deildarinnar cr he!mil þátttaka, en tilkynnið þátttöku strax til stjórnarinnar. Gjörið svo vel að taka með ykkur bollapör. Dánardœgur. Þann 15. þ. m. varð bráðkvaddur að heimili sínu í Hrísey Filippus Þorvaldsson útbiússtjóri.Hann var 47 ára gamall. Snœjaxi. Ilin nýja Douglas-flugvél Flugfélagr íslands hefir hlotið nafnið Snæjaxi. Minnismerki um Garðar Svavarsson. Bæjarstjórn Húsavíkur hefir í tilefni af 10 ára afmæli lýðveldisins stofnað sjóð með 10 þús. króna f.amlagi í því skyni að koma upp minnismerki um Garðar Svavarsson, sem fyrstur manna dvaldi vetrarlangt á Ilúsavík, og land- ið var heitlð eftir um tíma. Ausljirðingajélagið á Akureyri hefir ákveðið að fara skemmtiferð til Vopna- fjarðar laugardaginn 10. júlí n. k., ef nægileg þátttaka fæst. Væntanlegir þátttakendur, Auslíirðingar og aðrir, eru beðn.'r að lilkynna þátttöku til Ei- ríks Sigurðssonar, sími 1262 eða Bjarna Ilalldórssonar, s'mar 1134 og 1267 fyrir 4. júlí næstkomandi. Gjöf til Krabbameinsfélags Akureyr- ar til minningar um Kristján Tryggva- son, Viðarholti, Glerárþorp', kr. 500.00 frá Bernolínu Krisljánsdóttur, Siglu- vík. — Kærar þakkir. Þ. Þ. Seinvirk þjónusta. Þann 20. þ. m. bartt blaðinu greidd póstkrafa úr hér- aði norðanlands, sem næstum al't árið mega teljast daglegar samgöngur við. Póstkrafa þessi, sem var að upphæð rúmar 40 krónur, var send frá blaðinu 4. ágúst 1953, og heflr því innheimtan tekið 329 daga. Sandhólasöfnunin. í gær höfðu safn- azt hjá Rauða-Krossdeildinni hér í bæ tæpar 50 þús. kr. Iðnþingið Iðnþing íslendinga, hið 16. i röðinni, verður sett hér á Akur- eyri næstkomandi laugardag 26. þ.m. kl. 2 síðdegis. Fer setningar- athöfnin fram í Varðborg, en að öðru leyti fara þingstörf fram í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Gert er ráð fyrir, að þingið s‘andi í 4 —5 daga. Þingfulltrúar eru milli 50 og 60, víðs vegar að af land- inu. Iðnþingið mun fjalla um ýms vandamál iðnaðarins, svo sem tollamál og útvegun lánsfjár til iðnaðarþarfa. Þetta mun vera í annað sinn sem iðnþing er háð hér á Akureyri. Miðvikudagur 23. júní 1954 »Fínnið til skylduiiiiar ogr Kirðvciíið hug: ykkar frjálsaii« — Frá skólaslitum Menntaskólans á Akureyri Þórarinn Björnsson skólameist- ari sleit Mennlaskólanum á Akur- eyri 17. þ.m. Hann gat þess, að skólinn hefði nú verið haldinn í 74 ár, en hús skólans er nú fimm- tugt. í skólanum voru s.l. vetur 247 nemendur i 11 bekkjardeild- um. Þar af voru 82 stúlkur. í heimavist bjuggu 131, og s’.óðst á endum umsóknir og húsrými, en 30 rúm bæ'ast við í haust. Lands- próf þreyttu 32, og hlaut hæsta einkunn Haraldur Sveinbjörnsson af Ströndum, 8.94. í vetur var að frumkvæði nemenda stóraukið bókasafn skólans og komið á fót bókmenntakynningu. Nýr eink- unnastigi er nú kominn í stað Örstedskerfis. 35 nemendur gengu undir stúdentspróf, og hlu'u þess- ir hæstar einkunnir í máladeild: Haukur Böðvarsson 9.18, Þröstur Laxdal 8.81 og Edda Kristjáns- dóttir 8.57 og í stærðfræðideild Sveinn Jónsson 9.54, Helgi Sig- valdason 9.04 og Guðmundur Ó. Guðmundsson 8.68. 10 ára stúd- entar færðu skólanum málverk eftir Sigurð Sigurðsson af Vern- harði Þorsteinssyni, og flutti Páll Árdal Vernharði og skólanum heillaóskir. 25 ára s'.údentar gróðursettu 7 iré á lóð skólans. Skólameistari ávarpaði nýstúd- enta í stórsnjallri ræðu, sem hér er ekki kostur að rekja. Fyrst og fremst bað hann þó að finna til skyldunnar, sem á manninum hvílir, og varðveita huga sinn frj álsan. Máladeild: Ágúst N. Jónsson, ísaf. 8.10 Áslaug Eiríksdóttir, Mýr. 8.27 Bergþóra Sigfúsdóttir, S.-Múl. 7.75 Edda Kristjánsdóttir, Ak. 8.57 Ilaukur Böðvarsson, Borg. ág. 9.18 Jóhanna Skaftadóttir, Sigluf. 7.60 Jón Bjarman, Ak. 5.85 Krist.'n Pétursdóttir, Sigluf. 7.22 Kri:tín Tryggvadóttir, Ef. 7.70 Lárus Guðmundsson, ísaf. 7.34 Loftur Magnússon, Strand. 7.75 Margrét Guttormsdóttir, S.-Múl. 8.15 Sigríður Erlingsdóttir, Rvík 7.05 Skúli Steinþórsson, Ak. 7.54 Svanhildur Hermannsd., S.-Þing. 7.59 Svava Stefánsdóttir, Ak. 8,50 Þröstur Laxdal, Ak. 8.81 Utanskóla (eftir cinkunnastiga Or- steds): Óttar Eggert Pálsson, Rvík 4.29 Stœrðjræð ideild: Edda Thorlacius, Sig’.uf. 8.02 Friðleifur Stefánsson, Sigluf. 7.29 Guðmundur Guðmundsson, Skagaf. 8.68 Guðmundur Ilalldórsson, ísaf. 7.96 Helgi Sigvaldason, Barð. ág- 9.04 Iljörtur Jónasson, N.-Þing. 7.34 Ingvar Níelsson, Neskaupst. 7.81 Jón Olver Pétursson, Snæf. 7.39 Kristján Gissu.war;on, S.-Múl. 7.09 Lárus Jónsson, Barð. 8.54 Slgurður G. Sigurðsson, ísaf. 8.01 Sigurpáll Vilhjálmsson, N.-Þing. 7.48 Sveinn Jónsson, Ak. ág- 9.54 Sverrir Georgsson, Rvík 7.64 Valdimar Jónsson, Rvík 7.44 Vilhjálmur Einarsson, S.-Múl. 7.94 Orn Baldvinsson, Ef. 7.80 Flugvallargerð hafin í Flatey Síðas’liðinn laugardag fór Skjaldbreið héðan til Flateyjar á Skjálfanda með jarðýtu, dráttar- vél og fleiri tæki til flugvallar- gerðar, og hófst vinna þar við flugvallargerð á sunnudaginn. •— Haraldur Jónsson á Einarsstöðum hefir tekið verkið að sér. Mikill fögnuður var í eyjunni, er Skjald- breið lagði þar að með þenna flutning. Þriðju tónleihar TónEistarfélagsins voru haldnir í Nýja Bíó slðast- liðið miðvikudagskvöld. Kom þar fram hinn ungi og vel þekkti cellósnillingur Erling Blöndal Bengtsson og lék verk eftir 9 höf- unda. Þeirra á meðal voru Bach, Chopin, Mozart, Weber, Saint- Saens og Rimsky Korsakoff. Ung- frú Guðrún Kristinsdóttir annað- ist undirleik, en hún hefir nýlok- ið námi við konunglega iónlistar- skólann í Kaupmannahöfn og leik- ið opinberlega í Danmörku við hinar heztu viðtökur og dóma. Var samleikur þeirra öruggur og vakti einkum hrifni í sónötu Cho- pins, en í heild var tónleikunum tekið af miklum fögnuði. Aðsókn var góð, og urðu þau Bengtson og Guðrún að leika nokkur auka- lög. Bárust þeim margir blóm- vendir frá þakklátum áheyrend- um. fQSSSQQGQQ® Munið samnorrænu sundkeppnina. Dr. Ásm. Guðmundsson vígður til bishups Síðastliðinn sunnudag fór fram hátíðleg alhöfn í dómkirkjunni í Reykjavik, er hinn nýkjörni bisk- up yfir íslandi, dr. Ásmundur Guðmundsson, var vígður til em- bættisins. Hófst hún með orgel- sóló Páls ísólfssonar, en sr. Frið- rik Friðriksson las bæn úr kór- dyrum. Þá lýsti Magnús Jónsson prófessor vígslu, en sr. Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti ræðu. Vígsluvottar, fjórir að tölu, lásu sinn ritningarstaðinn hver, en þeir voru: Sr. Friðrik J. Rafnar vígslubiskup og prófastur í Eyja- fjarðarprófas'sdæmi, sr. Jakob Einarsson prófastur að Hofi, sr. Þorsteinn Jóhannesson prófastur í Vatnsfirði og sr. Jón Auðuns dómprófastur. Þá fór fram vígsla biskups, er sr. Bjarni Jónsson framkvæmdi. Altarisþjónustu önn- uðust prófessor Björn Magnússon og sr. Óskar J. Þorláksson. Að lokum prédikaði hinn nýkjörni biskup. Milli áðurnefndra atriða var mikill víxlsöngur og kórsöngur, er lauk með þjóðsöngnum. _ * Sj ómannadagurinxi í Ólafsfirði Sjómannadagshátíðahöldin hóf- ust kl. 9 með hópsiglingu trillu- báta um fjörðinn. Síðan fór fram kappróður, sem 4 sveitir tóku þátt í. — Urslit urðu þessi: 1. varð sveit m.s. Kristjáns, skipstjóri Kristján Ásgeirsson, og reri hún vegalengdina á 1:42.2 mín. 2. sveit m.s. Sævaldar, skipstj. Eins og auglýst er á öðrum stað í blaðlnu í dag, hækka iðgjöld samlagsmanna úr kr. 25.00 í kr. 30.00 á mánuði frá og með 1. júlí. Hækkun þessi var samþykkt með a'.kvæðum allra stjórnar- manna samlagsins, enda lögð fram áætlun um tekjur og gjöld, er leiddi í ljós að yrði eigi að því ráði horfið að hækka iðgjöldin, myndi verða halli á árinu, sem næmi rúmlega kr. 400.000.00 — fjögur hundruð þúsund krónur. Þar sem hækkun þessi kemur ekki til framkvæmda fyrr en á miðju ári; verður samt ekki komizt hjá reksturshalla. Tekjuafgangur árs- ins 1953 varð aftur á móti rúm- lega 225 þúsund krónur. Hækkun þessi stafar svo að segja eingöngu af aukningu legu- daga við starfsrekstur hins nýja sjúkrahúss, en ekki af því að dag- '900O0OO0O0CO00O0O0O00Q0I Annall Islendings Hlaða með 80 hestum af heyfirning- urn brennur hjá bóndanum Jóni Stef- úns.yni í Möðrudal. Guðfræðideild Háskólans sæmir biskupinn yfir íslandi, herra Ásmund Guðmundsson, doktorsnafntbót í guð- fræði. Synodus haldið í Reykjavík. Hófst með vígslu 6 guðfræðikandidata: Bjarna Sigurðssonar til Mosfellspresta- kalls, Gríms Grímssonar til Sauðlauks- dalsprestakalls, Kára Valssonar til að- stoðarprests að Vatneyri V. ísafj., Óskars Finnbogasonar til Staðarhrauns prestakalls, Þóris Stephensen til Stað- arhólsprestakalls og Arnar Friðriksson- ar til Skútustaðaprestakalls. Ilinn síð- astnefndi flutti predikun að lokinni vígslu. Við prestkosningu í Mosfellspresta- kalli hlaut Bjarni Sigurðsson 188 atkv. sr. Bragi Friðriksson 140, Árni Pálsson 102, Sigurður H. Guðjónsson 40 og sr. Sigurður Einarsson 26. Togarinn Egill rauði frá Neskaup- stað bjargar áhöfn af brennandi fiski- skipi færeysku á Grænlandsmiðum og flytur til Færeyingahafnar. Halldór Halldórsson dósent ver dokt- orsritgerð um íslenzk orðtök við Há- skólann og hlýtur doktorstitil að henni lokinni. Jón Sigurpálsson, á 1:42.6 mín. 3. sveit trillubáta á 1:43.0 min. 4. sveit m.s. Einars Þveræings, skipstjóri Ásgeir Frímannsson, á 1:45.5 mín. Klukkan 2 e.h. hófst sundmeist- aramót íslands í sundlauginni og fjölmenntu sjómenn þangað. Um kvöldið hélt sjómannadagsnefnd- in og íþróttafélagið Leiftur dans- leik, þar sem verðlaun voru af- hent fyrir kappróðurinn. Afli trillubáta hefir verið mjög góður allt frá 20. maí s.l. Héðan hafa og gert út 5 trollbátar, en afli þeirra hefir verið fremur treg- gjöld hafi hækkað frá fyrra ári, þau eru hin sömu eða kr. 70.00 á dag. En allt útlit er fyrir að legu- dögum á vegum samlagsins muni fjölga um 90—100% eða sjúkra- húskostnaður aukast um allt að kr. 600 þúsund á þessu ári. Margir sjúklingar hafa beðið eftir rannsóknum, sem eigi verða framkvæmdar að dómi læknanna, betur á annan hátt en þann, að þeir leggist inn á sjúkrahús um tíma, og einnig hefir oft orðið að neita sjúklingum um rúm á sjúkrahúsi vegna þrengsla, og það sjúklingum sem oft og tíðum hefir verið nauðsyn að kæmust á sjúkrahús til lengri dvalar. Sjúkrasamlag Akureyrar vænt- ir þess að samlagsmenn taki hækk- un þessari með skilningi og greiði iðgjöld sín skilvíslega. ur. G. J. Ird Sjúkrascmlagí Aknreyror

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.