Íslendingur - 14.04.1955, Side 8
Áheit á Strandarkirkju (gamalt) kr.
200.00 frá ónefndri konu.
Skemmtiklúbbur templara heldur
skemmtikvöld að Varðborg föstudag-
inn 15. þ. m. kl. 8.30. Til skemmtunar:
Félagsvist, gamanvísur (Hjálmar Gísla
son) og dans. — S. K. T.
I. O. G. T. Stúkan Ísafoid-Fjallkon-
an no. 1 heldur fund í Skjaldborg
mánudaginn 18. ap.íl kl. 8.30 s.d. —
Fundarefni: Vígsla nýliða; reikningar;
kosningar á Umdæmis- og stórstúku-
þing og í húsráð; mælt með umboðsm.
6t.; hagnefndaratriði. Þess er fastlega
vænzt að félagar fjölmenni, rérstaklega
eru eldri félagar stúkunnar beðnir að
mæta. — Æt.
Frá Bridgejélagi Akureyrar. Nýlok-
ið er parakeppni í bridge á vegum re-
lagsins. Tíu pör tóku þá:t í keppninni
og urðu 5 efstu: Nr. 1. Soffía Guð-
mundsdóttir og Þórir Leifsson 172 stig.
Nr. 2. Agnete og Jóhann Þorkelsson
154(4 stig. Nr. 3. Þorbjörg og Þórður
Björnsson 14614 st'g. Nr. 4. Lilja Sig-
urðardóttir og Ágúst Óiafsson 14414
stig. Nr. 5. Margrét Jónsdóttir og
Ragnar Skjóldal 143 í tig.
Frá Goljklúbb Akureyrar. Grecn-
somekeppni verður háð n.k. sunnudag
og hefst kl. 8 f.h. Þátttakendur eru al-
varlega áminntir um að mæta stund-
víslega kl. 7.45, þar sem ekki er hægt
að draga saman fyrr en allir eru mætt-
ir. — Kappleikanefndin.
I. O. O. F. 136415814 —
Kaldbakur kom inn í fyrrinótt með
um 80 lestir af saltfiski. Liggur hann
hér í höfn óafgreiddur vegna verkfalls-
ins. Er hann fyrsta Akureyrar kipið, er
stöðvast af völdum þess.
Leiðrétting á þýðingu við greinina:
„Erum vér jarðarbúar einir í alheimin-
um“, er birtist í afmælisblaðinu 9. þ.m.
í öðrum dálki í 10. línu að neðan um
hita á Marz átti að standa: H- 60—70
stig um nætur (þ.e. kuldi). í öðrum
dálki í 14. línu að neðan: komplice-
rede (ekki kompliverede). — Þýð.
Karlakór Akureyrar heldur sam-
söngva í Nýja Bíó þriðjudaginn 19.
apríl og miðvikudaginn 20. apríl n. k.
Samsöngvarnir hefjast kl. 9 síðdegis.
Söngstjóri er Áskell Jónsson. Einsöng
og tv.'söng syngja Jóhann Konráðsson,
Egill Jónasson, Jósteinn Konráðsson
og Guðmundur K. Óskars:on. Við
hljóðfærið er Ingimar Eydal. Nánar
auglýst á götunum.
Peningabudda með nokkru af pen-
ingum, fundin yzt í afnarstræti. Eig-
andi vitji hennar tll Svanbergs Einars-
sonar.
Bólu-Hjálmars kvöld heldur Skag-
firðingafélagið á Akureyri 6ÍSasta
vetrardag kl. 8.30 í Varðborg. Verður
auglýst nánar í gluggum verzlana.
Basar. Kristniboðsfélag kvenna heflr
bazar og kaffisölu í Zíon föstudaginn
15. apríl kl. 3—8 e.h. Allur ágóði renn-
ur í kristniboðssjóð. Styðjið gott mál-
efni. Drekkið síðdegi kafflð í Zíon.
Á skákþingi Reykjavíkur varð Ingi
R. Jóhannsson hlutskarpastur með 5
vinninga cg er því skákmeistari Reykja
víkur 1955. Næstir voru Arinbjörn
Guðmundsson og Jón Þorsteinsson
með 414 vinning hvor. Hraðskákmeist-
ari Reykjavíkur varð Hörður Ágústs-
son.
Annáll Islendings
OOOOCOOOOPOOOOOOOOOOOO«
Vöruskiptajöfnuðurinn 2 fyrstu mán-
uði ársins óhagstæður um 17.8 millj.
krónur.
Húsaleiguvísitalan fyrir mánuðina
apríl—júní reiknast 214 stig, en það er
1 stigs liækkun frá næsta ársfjórðungi
á undan.
Skipverji á togaranum Sólborg á Isa-
firði höfuðkúpubrotnar og hlýtur fleiri
meiðsl við það, að gilsblokk fellur í
höfuð honum.
Islandsmót í bridge fer fram í
Reykjavík. 10 sveitlr keppa, þar af 3
utan af landi. Sigurvegari varð sveit
Vilhjálms Sigurð.sonar Reykjavík.
Fiskafli í verstöðvum sunnanlands
með langmesta móti.
yrði hlu'ur flokkslns og aðstaða
öll sterkari í væntanlegum við-
ræðum og samningaumleitunum
við hina vins'.ri flokkana.
Karlohórinn »Geys!r«
hélt söngskemmtun í Nýja-Bíó
á 2. páskadag með aðstoð ungfrú
Ingibj argar Steingrímsdóttur
raddþjálfara kórsins. Söngstjóri
var Arni Inglmundarson og und-
irleikari frú Þórgunnur Ingi-
mundardóltir. Húslð var fullskip-
að áheyrendum, er tóku kórnum
með kostum og kynjum, og varð
hann að endurtaka mörg lög og
gefa aukalag að lokum.
A söngskrá voru 10 lög, flest
eftir erlenda höfunda. Ekkert lag
var þar eftir akureyrskt tónskáld.
Einsöngva sungu Henning Kon-
drup (I svanalíki eflir Inga T.
Lárusson) og Sigurður Svan-
bergsson (í Kan det tröste eftir
Kjerulf). En nýs'.árlegasti og til-
komumesti þáttur samsöngsins
var Miserere úr óperunni II Tro-
vatore eftir Verdi, þar sem ung-
frú Ingibjörg Steingrímsdót'ir og
Henning Kondrup sungu sólóarn-
ar. Það verk ætti kórinn að
syngja inn á plötu.
Allmikið er af nýjum söng-
Flugferð til Parísar eða London
fyrir beztu smásögu ársins
Nýtt hefti af Stefni komið út
Fyrir skömmu kom út nýtt hefti af Stejni, tímariti um þjóðmál
og mennlngarmál. Er það fyrsta hefti 6. árgangs. — Stefnir er hið
vandaðasta og fjölbreyttasta tímarit sinnar legundar, sem nú er gef-
ið út hér á landi og ágætlega úr garði gert. í heftinu er auglýst smá-
sagnasamkeppni, sem S'.efnir gengst fyrir nú í sumar.
Glæsileg verðlaun.
Verðlaunin fyrir beztu smásög-
una. sem heftinu berst, er flugferð
til Parísar eða Lundúna, og má
verðlaunahafinn ráða, . hvenær
ferðin er farin. Þá fylgir og frítt
uppihald þar í tíu daga. Eru þetta
glæsilegustu verðlaunin, sem ís-
Ienzkt tímarit hefir nokkru sinni
veitt í smásagnasamkeppni. Frest
ur til að skila sögunum er útrunn-
;nn 15. júlí n. k. og er utanáskrift
ritsins: Tímaritið Stefnir, Sjálf-
s'æðishúsið, Reykjavik.
í samkeppninni er öllu ungu
fólki helmil þátttaka allt að 33
ára aldri, og skipa ritstjórar
Stefnis dómnefndina.
rjölbreytt rit.
í þessu hefti Stefnis er marg-
víslegt efni. Þar birlist m.a. nýj
asta smásaga Gunnars Gunnars-
sonar -rithöfundar, grein er um
Matisse Iátinn, Jón Júlíusson for-
maður Filmíu skrifar um mis-
muninn á kvikmyndum og sjón
leikjum, Þorste'nn Thorarensen
ritar erlent yfirlit, Magnús Jóns
son alþm. skrifar greinina Verka
maðurinn og þjóðfélagið, birtar
eru kínversk og japönsk smásaga,
grein um brezka ljóðskáld.ð Dy-
lan Thomas og riígerð eftir hann
um ljóðagerð, ljóð eru í heftinu
eftir þá Andrés Björnsson, cand.
mag., Gísla Jónsson menntaskóla
kennara, Gylfa Gröndal og Olaf
Jónsson. Þá eru í heftinu leik-
dómar, bókadómar og ýmislegt
fleira.
Ritstjóraskipti.
Stefnir kemur út fjórum sinn-
um á ári, og kostar árgangurinn
35 krónur. Með þessu hefti hafa
þeir alþinglsmennirnir Magnús
Jónsson og Sigurður Bjarnason
látið af ri'stjórn tímaritsins, en
þeir Gunnar G. Schram, Matthías
Jóhannessen og Þorsteinn 0.
Thorarensen tekið við.
Stefnir fæst í bókabúðum hér í
bænum.
Hjónacjni. Ungfrú Gyða Bárðar-
dóttir Eiðsva'Iagötu 26 og Yngvi
Böðvars on Ægisgötu 4. Akureyri.
kröftum í Geysi, og virðist nú-
verandi söngstjóra hafa vel tek-
izt að samhæfa þá hinum
eldri. Enn býr kórinn yfir ó-
’.víræðum söngþrótti, eins og ljós
ast kom fram í laginu Vor eftir
Strauss, en hann á líka til klið-
mýkt, þegar hennar er þöif, svo
sem í Vögguvísu Gjerströms og
aukalaginu.
Söngstjóra, undirlelkara og
raddþjálfara bárust fagrir blóm-
vendir.
___*_____
Erfiðleikar Braga
Ritstjóri Alþýðumannsins er
öðru hverju með bænarkvak um
vins'.ri stjórn í blaði sínu. Hefir
það nokkuð ágerzt eftir að Hanni
bal varð viðskila við flokkinn og
Alfreð var rekinn. Sömu eríið-
leika veiður greinilega vart hjá
aðalmálgagninu. Aður en til yfir-
standandi verkfalls kom, var þar
oft rætt um að auka kaupmátt
krónunnar með opinberum að-
gerðum og bæta með því kjör
fólksins. Nú er þessu alveg snúið
við. Blöð krata heimta, að kaup-
máttur krónunnar sé rýrður með
því að hækka kaup og setja nýja
dýrtíðaröldu af stað, og má varla
á milli sjá, hvort ritstjórar Þjóð-
viljans eða Krala-blaðanna mega
sín betur.
En þegar Alþýðumaðurinn er
að biðja um samslarf vinstri
flokkanna verður mörgum á að
brosa. HannibaLs'.ar Alþýðufl.
hafa stofnað nýtt blað, sem berst
einnig fyrir vinstri stjórn með
sams'arfi við Framsókn, Þjóð-
varnarmenn og kommúnista.
Jafnframt treður blaðið illsakir
við s'.jóinendur Alþýðuflokksins
af öllum mætti. Sýnist því Lggja
ljóst fyrir, að málgögn Alþýðu-
flokksins ættu fyrs' að reyna að
sætta h’nar ósamstæðu fylkingar
hans innbyrðis, áður en leitað
er samstarfs við hina vinstri
flokkanna. Ef þeim lækist það,
Ein hreingerningarkona
Verkamaðurinn 5. þ. m. er
mjög úfinn í skapi yfir því, að
bæjarfógetaembættinu á Akureyri
hafi ekki verið gef.ð leyfi til að
gera sérsamning um kaup við
„eina hreingerningakonu", og
verði því bæjarfóge'.inn að greiða
henni fé úr eigin vasa til þess að
skrifstofufólkið þurfi ekki að
„vaða óhreinindin“!
Ekki er vitað, hvers vegna rit-
stjóra Verkamannsins finnst ó-
þolandi, að starfsfólk á bæjar-
fógetaskrifstofunum „vaði ó-
hreinindi“ eins og starfsfólk
annarra s'ofnana hefir orðið að
gera undanfarið, enda skiptir það
lillu máli. En hefir Alþýðusam-
bandið ekkert við það að athuga,
þótt gerðir séu launasamningar
við einn mann eða „eina hrein-
gerningarkonu“? Oss hefir skil-
izt, að Hannibal & Co. vilji enga
pukurssamninga við einn og einn
einstakling, heldur heildarsanrn-
inga fyrir félög eða félagasam-
steypur.
Slckað á klónni
Þeim, sem lesa Dag, mun enn
í fersku minni sú staðhæfing rit-
stjórans fyrr á vetrinum, að í
frumvarpi því til laga um Bruna-
bótafélag íslands, sem nú er orð-
ið að lögum, væri verið að lög-
festa einokun B. í. á brunatrygg-
ingum utan Reykjavíkur. Stað-
hæfing þessi var rekin kyrfilega
öfan í blaðið með því að birta
orðré!tan kafla úr frumvarpinu,
sem fór óbreyttur gegnum þing-
ið. Hefir Dagur nú slegið nokkuð
undan, þótt hann kunni ekki við
að hverfa til fulls frá firrunni. í
síðasta blaði lætur ritstj. sér
nægja að segja: „Er ljóst, að
sums'aðar á landinu jafngildir
lagasetning þessi því, að einok-
unin standi senr áður.“
Þótt hér sé verulega slakað á
klónni, vantar ennþá skýringu á
þv', að hverju leyti lög:'n um B. í.
jafngilda einokun, enda erfitt að
finna því stað, þar sem uppsagn-
arfrestur sanminga við B. í. er
hinn sami í lögunum og Sam-
vinnu'ryggingar bjóða skemmst-
an.