Íslendingur

Eksemplar

Íslendingur - 06.06.1956, Side 6

Íslendingur - 06.06.1956, Side 6
6 ÍSLENDINGUR Miðvikudagur 6. júní 1956 Íþróttalífið á Akureyri: ir frd Lai- emburg ftentanlegur í sumar ^kýr§laƧkulýð§heimilis templara í Varðborg: veturinn 1055-56 Á blaðamannafundi ÍBA. sem sagt var frá í síðasta blaði, skýrðu formenn og fulltrúar sér- ráða innan bandalagsins frá starfsemi hinna einstöku ráða og fyrirhuguðum keppnum og mót- um á komandi starfsári. Skal það nú lauslega rakið. Knattspyrnan. (Formaður Knattspyrnuráðs: Ragnar Steinbergsson.) Síðastliðið sumar unnu Akur- eyringar Knattspyrnumót íslands í II. deild og öðluðust við það rétt til keppni í I. deild. Yeröur það helzti knattspyrnuviðburður- inn í sumar, en keppnin fer fram í Reykjavík. Akureyrarliðið leik- ur 5 leiki, og með samkomulag: við Knattspymuráð Reykjavíkuv, sem sér um mótið, hefir verið á- kveðið, að þeir verði leiknir í þrem ferðum. íslandsmótið hefst 10. þ. m. (á sunnudaginn kemur) með leik milli Akureyringa og Fram. 12. júní verður leikið við Val, 29. júní við Akurnesinga, 31. júlí við Víking og 15. ágúst við K. R. Akureyrarliðið hefir æft vel fyrir sumarið. Æfingar hafa ver- ið tvisvar í viku innanhúss í vet- ur, aðallega undir stjórn Her- manns Sigtryggssonar, en í vor hefir Karl Guðmundsson lands- þjálfari verið hér nokkra daga til leiðbeininga. Hermann Sigtrvggs- son mun hafa umsjón með æfing um í sumar. Þátttaka í íslandsmótinu verð- ur mjög kostnaðarsöm. T. d. má benda á, að úrslitaleikur í II. deild sl. sumar í Reykjavík kost- aði KRA um 13500 krónur, en nú verða farnar 3 slíkar ferðir. Til þess að fá eitthvað upp í hinn mikla kostnað, hefir Knatt- spyrnuráð Akureyrar efnt til happdrættis með allgóðum vinn- ingum, og er því beint til knatt- spyrnuunnenda, að þeir kaupi miða og styrki þannig þátttöku í íslandsmótinu. ERLEND HEIMSÓKN. í byrjun júlí kemur hingað til lands á vegum Knattspyrnufélags- ins Þróttar í Reykjavík knatt* spyrnulið frá Luxemburg, C. A. Spora. Með samningum við Þrótt hefir verið ákveðið, að lið þetta leiki á Akureyri 14. júlí n. k. Lið þetta er mjög sterkt og var t. d. valið sem fulltrúi lands síns í þriggja landa keppni: England— F rakkland—Luxemburg. Er ekki að efa, að knattspyrn- unni hér verður mikill fengur að komu þessa liðs. Búast má við, að aðgöngumiðar að leik þessum verði eitthvað dýrari en ella og er þess vænzt, að bæjarbúar mæti því með skilningi. Frjálsar íþróttir. (Formaður Frjálsíþróttaráðs: Leifur Tómasson.) ^ Mót í frjálsiþróttakeppni milli ÍBA og UMSE fer fram 1 sam- bandi við hátíðahöld þjóðhátíð- ardagsins, 17. júní. Verður það stigakeppni, þar sem úrslit verða reiknuð eftir stigum tveggja beztu manna hvors aðila. Þá verður haldinn um land allt almennur íþróttadagur, þai sem menn á mjög rúmu aldursstigi geta orðið þátttakendur og hljóta möguleika á stigum, þótt ekki séu afreksmenn á sviði íþrótta. Frjálsíþróttamenn úr KR koma hingað 7.—8. júlí, og mn miðjan þann mánuð nokkrir Svíar frá Bromma Idrætsforening ásamt ÍR-ingmn. Meistaramót Akureyr- ar í frjálsíþróttum verður 11.— 12. ágúst og Norðurlandsmót seint í ágúst eða byrjun septem- ber. Þá verður dagana 25. og 26. ágúst keppni milli Akureyringa, UMS Kjalarnesþings og íþrótta- bandalags Keflavíkur. Sund. (Formaður Sundráðs: ísak Guðmann.) Fyrirhugað er, að Jónas Hall- dórsson, sundþjálfari úr Reykja- vík hafi hér þriggja vikna sund- námskeið upp úr rniðjum júlí. Þá er gert ráð fyrir Akureyrarmót: í sundíþróttum um mánaðamótin ágúst—september. Skíðaíþróttir. (Skíðaráð: Formaður Hermann Stefánsson.) Skíðaráð Akureyrar er elzta sérráð bæjarins í íþróttamálum, stofnað 1938. Því hefir nú verið falið að sjá um Landsmót skíða- manna næsta vetur. Fyrir það mót þarf að byggja stóra stökkbraut, a. m. k. 60—70 metra. Brautin verður við Arnarklett, beint upp af Skíðaskálanum í 700 m. hæð, en skálinn er nú í smíðum, og verður reynt að koma honum und- ir þak í sumar. Hann verður til afnota fyrir alla: Skólafólk, í- þróttafélög, bæjarbúa almennt og ferðamenn, er vilja kynnast hinu ágæta 6kíðalandi í Hlíðarfjalli. Handknattleiksráð. (Formaður Knútur Karlsson.) Handknattleikslið kvenna hér bænum er all-öflugt og æfir vel Gerði það sem kunnugt er jafn tefli við handknattleikslið Þrótt ar í tveim leikjum um hvítasunnu helgina eins og kunnugt er. Samn ingar standa nú yfir um ferð til Færeyja á þessu ári. Golfið. (Golfklúbbur Akureyrar: For- maður Jóhann Þorkelsson.) í Golfklúbb Akureyrar eru um 60 félagar sem æfa af kappi á golfvellinum við Þórunnarstræti. Islandsmótið er háð þriðja hvert ár á Akureyri. Akureyringar liafa unnið öll íslandsmót, sem hér eru háð, og oft leikið til úrslita fyrir sunnan. Áttum við 5 fyrstu menn á síðasta móti og unnum alla bik- ara, sem um var keppt, nema einn. Golfið er holl og góð íþrótt fyrir menn á öllum aldri. GQ0n}rffikfróf við G. A. Bóknámsdeild: Auður Ólafsdóttir 6.32. Ásrún Tryggvadóttir 6.57. Birna S. Ingólfsdóttir 7.35. Dóra M. Jónasdóttir 7.35. Friðrika A. Adamsdóttir 7.62. . Gísli Bragi Hjartarson 7.53. . Guðbjörg S. Mikaelsdóttir 7.67. Guðmundur Þorsteinsson 7.26. Hallfríður B. Magnúsdóttir 7.59. Heiða Hrönn Jóhannsdóttir 7.04. Hugrún Steinþórsdóttir 6.63. Iðunn Ágústsdóttir 7.29. Ingólfur O. Georgsson 7.84. Ingvi Þór Þorkelsson 8.13. Jóhanna Steinmarsdóttir 7.75. Jóhannes V. Haraldsson 6.71. Jórunn Björgvinsdóttir 7.36. Lára K. Ingólfsdóttir 7.79. Málfríður Torfadóttir 6.89. Ottó Tulinius 6.83. Rafn H. Gíslason 7.06. Ragnar Hólm Bjarnason 7.54. Sigríður K. Ámadóttir 5.45. Sigurður S. Guðbjartsson 7.12. Skúli Svavarsson 7.45. Soffía G. Jakobsdóttir 6.29. Viðar Garðarsson 6.72. Vilhjálmur II. Baldursson 6.59. Verknámsdeild: Alda Jónatansdóttir 5.29. Auður Ófeigsdóttir 8.16. Ása Jónsdóttir 7.34. Áslaug Þorsteinsd. Austmar 8.14. Elísabet Ólafsdóttir 6.70. Erla Magnúsdóttir 7.39. FriSrik R. Vestmann 6.65. Greta Geirsdóttir 5.49. Hallgrímur J. Pálsson 6.91. Ingibjörg Ófeigsdóttir 6.87. Marinó Jónsson 6.96. Rósa Jónsdóttir 6.83. Sigríður Ingvarsdóttir 7.74. Sigurjón O. Sigurðsson 5.76. Sveinn R. Pálmason 6.91. Sverrir F. Leósson 6.42. Raflagnir Raffækjaviðgerðir Raflagnateikningar. RAFORKA H.F. sími 2257. Kaupvangsstr. 19. Vetrarstarfsemi Æskulýðsheim- j ilis templara á Akureyri hófst í Varðborg þann 7. nóv. 1955. Eins og mörgum er kunnugt er starf- semi þessi aðallega tvennskonar, þar sem annar hluti hennar fer fram í námskeiðum en hinn í leik- starfsemi við leikáhöld og dægra- dvalir. Námskeiðin. 1. Námskeið í föndri fyrir börn 8—12 ára hófst 7. nóvember og voru nemendur 45. Kennsla fór fram í tveim flokkum, drengir sér og stúlkur sér, og var kennt í tveim stofum í efstu hæð Varð- borgar og tveim stofum á mið- hæð. Aðalhráefnin sem unnið var úr voru pappír, bast og tágar sem Æskulýðsheimilið lét riemendum í té. Kennarar voru Sigríður Jónsdóttir, Rebekka Guðmann og Hermann Sigtryggsson. Nám- skeiðinu lauk 17. desember. 2. Námskeið í flugmódelsmíði hófst 6. janúar og voru nemendur 39 sem tóku þátt í því. Námskeið- ið fór þannig fram að nemendur gátu komið á hverju kvöldi og haít aðgang að smíðastofum heimilisins, en kennarinn mætti þrisvar í viku til leiðbeininga. Námskeiðið stóð ekki neinn á- kveðinn tíma og gátu því nýir nemendur komið hvenær sem var. Mánaðargjald var kr. 30.00. Fjöl- margar svifflugur voru búnar til af ýmsum gerðum og stærðuin. Kennarar voru Dúi Eðvaldsson og Pétur Eggertsson. Smíðastof- urnar voru opnar til 25. marz. 3. Námskeið í skuggaskurði hófst 6. janúar og voru nemendur 22. Kennsla fór fram í tveim flokkum, yngri og eldri flokk og var kennt í þrem stofum á mið- hæð Varðborgar. Aðallega voru búin til hillubretti (munu þau hafa verið 32), borðplötur, gar- dínukappar o. fl. Kennari var Jón Bergsson. Námskeiðinu lauk 22. janúar. 4. Námskeið í Ijósmyndun hófst 11. janúar og voru nemendur 29. Kennt var í þrem flokkum og var nemendum kennd meðferð ljós- myndavéla úti og inni, svo og að kopera, framkalla og stækka Ijós- myndir. Tvær stofur voru teknar undir þetta námskeið og var ijós- myndað í annarri þeirra cn hin var myrkrastofa og aðalvinnu- herbergi. Kennari var Kristján Hallgrímsson Ijósmyndari. Nám- skeiðinu lauk 27. febrúar. 5. Námskeið í þjóðdönsum hófst 27. janúar og voru nemend- ur 66, aðallega 12 ára og yngri. Kennsla fór fram í stóra salnum í Skjaldborg og voru kenndir bæði íslenzkir og erlendir dansar. Nokkrir nemendur af námskeiði þessu sýndu þjóðdansa á barna- skemmtun, er barnastúkurnar á Akureyri héldu í Samkomuhúsi bæjarins. Kennari og stjórnandi sýningarflokksins var Ásdís Karlsdóttir. Námskeiðinu lauk 7. marz. 6. Námskeið í skák hófst 15. febrúar og voru nemendur 27, flestir 16 ára og yngri. Kennsla fór fram í einum flokki. Seinni hluta námskeiðsins tefldu félagar úr Taflfélagi Akureyrar fjölskák- ir við nemendurna og einnig voru skákkeppnir milli nemenda. Aðal- kennari námskeiðsins var Jóhann Snorrason. Því lauk 19. marz. Leikstofurnar. Leikstofur Æskulýðsheimilis templara voru opnaðar 10. nóv- ember og voru opnar þann dag kl. 8—10 e.h. Fyrir jól voru leik- stofurnar opnar kl. 5—7 e.h. fyr- ir 11—15 ára og kl. 8—10 e.h. fyrir 16 ára og eldri tvisvar í viku og voru þær með sömu leik- tækjum og undanfarna vetur, cn þann 19. janúar var að nýju opn- uð lesstofa og bókasafn heimilis- ins og hafði því nú aukizt mjög bókakostur frá því það var opið síðast. Bókaútlán voru samtals 520 frá 19. janúar til 20. marz. Alls sóttu 1450—1500 gestir Æskul'ðsheimili templara í Varð- borg í vetur. Starfsemi Æskulýðs- heimilisins lauk 12. apríl. ___ »Það gengur á ýmsu í kosn- ingum« sagði Dagur í forystugrein dag- inn fyrir Alþingiskosningarnar 1953. Og bætti síðan við: „Framsóknarflokkurinn hefir ekki alltaf unnið kjörfylgi með því að scgja þjóðinni afdróttarlausan sann- leikann." (I) Þetta er hreinskilnislega mælt, og vissu þó kjósendur það fyrir, að ósannindin eru flokknum tamari en „afdráttarlaus sannleik ur“, enda bera blöð hans því glöggt vitni. Nægir t. d. að benda á Stjórnmálaþátt síðasta Dags í því sambandi, þar sem hann telur Sjálfstæðisflokkinn liafa verið á móti skilnaði við Dani. Fyrr má nú rota en dauðrota, og fyrr má hagræða sannleikanum en bera jafnfráleitar lygar á borð fyrir Iesendur. Þjálfi. Framboðsfundir í Eyjafjarðarsýslu hefjast á föstudaginn kemur. — Verður þá fundur í Ólafsfirði kl. 8.30 að kvöldi. Á laugardaginn verður fundur í Hrísey kl. 2 síð- degis. Á Dalvík mánudaginn 11. júní kl. 8.30 e.h., þinghúsi Ár- skógshrepps þriðjudag 12. júní kl. 2 síðdegis, þinghúsi Skriðu- hrepps miðvikudaginn 13. júní kl. 2 og að Sólgarði í Eyjafirði fimmtudaginn 14. júní kl. 2.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.